{"id":22115,"date":"2025-01-07T17:11:43","date_gmt":"2025-01-07T17:11:43","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=22115"},"modified":"2025-02-16T15:20:45","modified_gmt":"2025-02-16T15:20:45","slug":"forrest-gump-1994","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/01\/07\/forrest-gump-1994\/","title":{"rendered":"Forrest Gump (1994) \ud83e\udd0f <br\/> {7-\u00f8-\u00f8-\u00f8}"},"content":{"rendered":"<p>L\u00edfi\u00f0 er konfektkassi er l\u00edklega fr\u00e6gasta l\u00ednan \u00far Forrest Gump en \u00e9g man oftar eftir a\u00f0 hafa kalla\u00f0 &#8222;Run Forrest, Run&#8220; \u00e1 eftir hlaupandi f\u00e9l\u00f6gum m\u00ednum.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1994 var fr\u00e1b\u00e6rt b\u00ed\u00f3\u00e1r. \u00dea\u00f0 voru b\u00e6\u00f0i margar fr\u00e1b\u00e6rar og eftirminnilegar kvikmyndir s\u00fdndar og frums\u00fdndar. \u00dea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g var fimmt\u00e1n \u00e1ra \u00fdkir kannski upp \u00feessa tilfinningu en h\u00e9rna eru nokkur d\u00e6mi.<\/p>\n<p><em>Bullets Over Broadway<\/em> (1994), <i>Clear and Present Danger<\/i> (1994), <i>Clerks<\/i> (1994), <i>Dumb and Dumber<\/i> (1994), <i>Eat Drink Man Woman<\/i> (1994), <i>Ed Wood<\/i> (1994), <i>F\u00e1nalita\u00fer\u00edkurinn<\/i> (1993-1994), <i>Forrest Gump<\/i> (1994), <i>Four Weddings and a Funeral<\/i> (1994), <i>Heavenly Creatures<\/i> (1994), <i>Immortal Beloved<\/i> (1994), <i>Interview with the Vampire<\/i> (1994), <i>Legends of the Fall<\/i> (1994), <i>L\u00e9on: The Professional<\/i> (1994), <i>Little Women<\/i> (1994), <i>Natural Born Killers<\/i> (1994), <i>Nell<\/i> (1994), <i>Pulp Fiction<\/i> (1994), <i>Quiz Show<\/i> (1994), <i>Reality Bites<\/i> (1994), <i>Serial Mom<\/i> (1994), <i>Speed<\/i> (1994), <i>The Hudsucker Proxy<\/i> (1994), <i>The Lion King<\/i> (1994), <i>The Madness of King George<\/i> (1994), <i>The Mask<\/i> (1994), <i>The Shawshank Redemption<\/i> (1994), <i>True Lies<\/i> (1994), <i>Reality Bites<\/i> (1994) &#8230;<\/p>\n<p>G\u00f3\u00f0ar og sl\u00e6mar en f\u00e1ar eru jafn umdeildar eftir \u00e1 og <em>Forrest Gump<\/em>. \u00dea\u00f0 a\u00f0 myndin hlaut \u00f3talin (nenni ekki a\u00f0 telja) \u00d3skarver\u00f0laun, \u00fear \u00e1 me\u00f0al sem s\u00fa besta, er l\u00edklega st\u00e6rsta \u00e1st\u00e6\u00f0an. Flestir vilja meina a\u00f0 <em>Shawshank<\/em>, sem s\u00f6kk \u00ed kvikmyndah\u00fasum, hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 vinna &#8230; en \u00e9g segi, og sag\u00f0i \u00fe\u00e1, <em>Pulp Fiction. <\/em>\u00c9g horf\u00f0i \u00e1 <em>Forrest Gump<\/em> aftur og hef nokkur or\u00f0 um myndina a\u00f0 segja.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 myndin hafi veri\u00f0 meira gagnr\u00fdnd \u00ed seinni t\u00ed\u00f0 \u00fe\u00e1 var strax bent \u00e1 l\u00edkindi hennar vi\u00f0 <em>Zelig<\/em> (1983) og <em>Being There<\/em> (1979) sem b\u00e1\u00f0ar fjalla um, \u00e1 mismunandi h\u00e1tt, menn sem \u00e1lpast inn \u00ed mannkyns\u00f6guna.<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3ri myndarinnar Robert Zemeckis haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur gert margar vins\u00e6lar myndir \u00ed r\u00f6\u00f0. <em>Romancing the Stone<\/em> (1984), <em>Back to the Future<\/em> \u00fer\u00edleikinn og <em>Who Framed Roger Rabbit?<\/em> (1988). Margir hafa v\u00e6ntanlega gleymt, heppilega fyrir hann, a\u00f0 s\u00ed\u00f0asta myndin sem hann framdi \u00e1 undan <em>Gump<\/em> var hin fyrirlitna <em>Death Becomes Her<\/em> (1992).<\/p>\n<p>Upphaflega var <em>Forrest Gump<\/em> b\u00f3k eftir Winston Groom. \u00dea\u00f0 er langt s\u00ed\u00f0an \u00e9g las hana en \u00e9g man a\u00f0 h\u00fan var, \u00f3l\u00edkt myndinni, beitt. \u00dear var l\u00edka meira kynl\u00edf og ofbeldi. Margt sem h\u00e6gt er a\u00f0 gagnr\u00fdna vi\u00f0 myndina kemur til vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan hefur m\u00fdkt s\u00f6guna.<\/p>\n<p>Strax og t\u00f3nlist Alan Silvestri byrja\u00f0i a\u00f0 hlj\u00f3ma rifju\u00f0ust upp fyrir m\u00e9r hl\u00fdjar tilfinningar \u00ed gar\u00f0 myndarinnar. Upphafsn\u00f3turnar s\u00fdna hve mj\u00fak h\u00fan er, einl\u00e6gt og huglj\u00faf &#8230; e\u00f0a einf\u00f6ld sykurvella.<\/p>\n<p>\u00c9g var mj\u00f6g hrifinn af, og frekar \u00f3gagnr\u00fdninn \u00e1, <em>Forrest Gump<\/em> \u00e1 s\u00ednum t\u00edma. En \u00e9g var s\u00e9rstaklega hrifinn af t\u00f3nlistinni, ekki bara framlagi Silvestri heldur l\u00edka l\u00f6gunum sem hlj\u00f3ma undir vegfer\u00f0 titilpers\u00f3nunnar \u00ed gegnum eftirstr\u00ed\u00f0s\u00e1rin \u00ed Bandar\u00edkjunum fram \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratuginn. Rokki\u00f0 sem heyrist er oft mj\u00f6g beitt samf\u00e9lags\u00e1deila.<\/p>\n<p><strong>H\u00f6skuldar frumundan.<\/strong><\/p>\n<p>Saga Forrest Gump byrjar \u00feegar hann var ungur drengur me\u00f0 l\u00e1ga greindarv\u00edsit\u00f6lu \u00ed Alabama. Nafn hans er v\u00edsun \u00ed stofnanda Ku Klux Klan. L\u00edklega virka\u00f0i \u00feetta betur \u00ed b\u00f3kinni. \u00cd sta\u00f0inn f\u00e1um vi\u00f0 fyrstu auglj\u00f3su t\u00e6knibrelluna sem myndin er \u00feekkt fyrir. Tom Hanks er klipptur inn \u00ed rasista\u00e1r\u00f3\u00f0urskvikmyndina <em>Birth of a Nation<\/em> (1915). Bara fyndni. Rasismi \u00feyrfti a\u00f0 vera \u00e1berandi \u00ed kvikmynd sem fjallar um Su\u00f0urr\u00edki Bandar\u00edkjanna \u00e1 \u00f3lgut\u00edmum en Forrest er of einfaldur til a\u00f0 taka eftir sl\u00edku. Vi\u00f0 f\u00e1um glefsur \u00far \u00feeirri s\u00f6gu en ekkert bitast\u00e6tt.<\/p>\n<p>S\u00fa gagnr\u00fdni hefur oft heyrst \u00e1 kvikmyndina er a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 \u00edhalds\u00e1r\u00f3\u00f0ur. A\u00f0 h\u00fan tilbi\u00f0ji &#8222;hef\u00f0bundin&#8220; gildi sem s\u00e9 \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 r\u00f3tt\u00e6kni sj\u00f6unda og \u00e1ttunda \u00e1ratugarins. \u00c9g er ekki samm\u00e1la \u00fev\u00ed. Vandam\u00e1l myndarinnar er a\u00f0 hana skortir gagnr\u00fdna s\u00f6gusko\u00f0un sem er au\u00f0velt a\u00f0 rugla saman vi\u00f0 h\u00e6grisinna\u00f0ar sko\u00f0anir.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 f\u00e1um strax m\u00f3tr\u00f6k gegn \u00fev\u00ed a\u00f0 hef\u00f0bundin gildi s\u00e9u sett \u00e1 stall \u00ed myndinni. \u00deegar senda \u00e1 Forrest \u00ed s\u00e9rsk\u00f3la vegna greindarv\u00edsit\u00f6lu hans stoppar mamma hans \u00fea\u00f0 af me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00fata sk\u00f3lastj\u00f3ranum me\u00f0 kynl\u00edfi. \u00dea\u00f0 er frekar \u00f3hef\u00f0bundin n\u00e1lgun \u00e1 fj\u00f6lskyldugildin.<\/p>\n<p>Ef Forrest \u00e1 a\u00f0 vera t\u00e1knr\u00e6nn fyrir einfaldleika g\u00f3\u00f0ra bandar\u00edskra gilda \u00fe\u00e1 er vinkona hans Jenny hi\u00f0 r\u00f3tt\u00e6ka and\u00f3f. \u00deau kynnast \u00ed sk\u00f3lar\u00fatunni \u00e1 fyrst sk\u00f3ladeginum og ver\u00f0a strax bestu vinir. Hennar fj\u00f6lskyldua\u00f0st\u00e6\u00f0ur er <em>erfi\u00f0ar<\/em>, og \u00fea\u00f0 er \u00f3\u00fe\u00e6gilegt \u00feegar Forrest l\u00fdsir &#8222;\u00e1st\u00fa\u00f0legum&#8220; f\u00f6\u00f0ur hennar.<\/p>\n<p>Forrest \u00e1lpast \u00ed gegnum l\u00edfi\u00f0. Hans helsti h\u00e6fileiki er a\u00f0 hlaupa (\u00ed b\u00f3kinni er hann l\u00edka \u00e1kaflega sterkur sem passar illa vi\u00f0 l\u00edkamsger\u00f0 Hanks). Hann \u00e1lpast \u00ed h\u00e1sk\u00f3la \u00e1 sk\u00f3lastyrk og s\u00ed\u00f0an \u00e1lpast hann \u00ed str\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>A\u00f0 vissu leyti er V\u00edetnam eitt helsta svari\u00f0 vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 myndin standi fyrir h\u00e6grisinnu\u00f0 gildi. \u00de\u00f3 str\u00ed\u00f0i\u00f0 s\u00e9 ekki gagnr\u00fdnt nema m\u00f6gulega fyrir tilgangsleysi \u00fe\u00e1 kemur herinn ekki s\u00e9rstaklega vel \u00fat. Forrest sj\u00e1lfur haf\u00f0i ekki vit \u00e1 a\u00f0 for\u00f0ast herinn og kynnast li\u00f0foringja sem er a\u00f0 reyna a\u00f0 uppfylla fj\u00f6lskylduhef\u00f0ina me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 deyja \u00ed bandar\u00edsku str\u00ed\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00cd fyrsta atri\u00f0inu \u00ed V\u00edetnam heyrum vi\u00f0 <em>Fortunate Son<\/em> me\u00f0 <span class=\"wikibase-descriptionview-text\">Creedence Clearwater Revival. Texti lagsins fjallar um a\u00f0 synir hinna r\u00edku og valdamiklu (s.s. Donald Trump og George W. Bush) \u00feurfi ekki a\u00f0 fara og deyja \u00ed str\u00ed\u00f0i. L\u00edkt og myndin \u00fe\u00e1 er sam\u00fa\u00f0in me\u00f0 herm\u00f6nnunum en ekki f\u00f3lkinu \u00ed V\u00edetnam. \u00dea\u00f0 sj\u00e1st engin af \u00feeim hversdagslegu vo\u00f0averkum sem voru framin daglega af bandar\u00edskum herm\u00f6nnum. \u00c9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 sj\u00e1ist ekki framan \u00ed einn einasta V\u00edetnama \u00ed myndinni allri. Vi\u00f0 sj\u00e1um Forrest bara skj\u00f3ta \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 trj\u00e1m.\u00a0<\/span><\/p>\n<p>Eina svarta pers\u00f3nan sem f\u00e6r eitthva\u00f0 pl\u00e1ss er herma\u00f0urinn Bubba (sem \u00e1 \u00fea\u00f0 sameiginlegt me\u00f0 Red \u00ed <em>Shawskank<\/em> a\u00f0 hafa upphaflega veri\u00f0 hv\u00edtur .. sem sk\u00fdrir n\u00f6fn \u00feeirra beggja). Pers\u00f3nuleiki hans er \u00e1hugi \u00e1 r\u00e6kjum og a\u00f0 vera \u00e1 svipu\u00f0u greindarstigi og Forrest. Hann uppfyllir s\u00ed\u00f0an klisjuna um a\u00f0 svarti ma\u00f0urinn deyi. Li\u00f0sforinginn Dan missir hins vegar f\u00f3tleggi s\u00edna vi\u00f0 hn\u00e9 og ver\u00f0ur bitur alkah\u00f3listi sem hatar gu\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deegar Forrest Gump hl\u00fdtur or\u00f0u fyrir hetjud\u00e1\u00f0ir (ekki fyrir a\u00f0 skj\u00f3ta neinn samt) endar hann \u00ed mi\u00f0jum m\u00f3tm\u00e6lum og flytur r\u00e6\u00f0u um V\u00edetnamstr\u00ed\u00f0i\u00f0. Vi\u00f0 f\u00e1um ekki a\u00f0 heyra r\u00e6\u00f0una en \u00fe\u00f3 sj\u00e1um vi\u00f0 a\u00f0 Abbie Hoffman var mj\u00f6g snertur sem bendir til \u00feess a\u00f0 h\u00fan hafi veri\u00f0 gagnr\u00fdnin.<\/p>\n<p>Fr\u00e1 Bubba f\u00e9kk Forrest \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 kaupa s\u00e9r r\u00e6kjuvei\u00f0ib\u00b4\u00e1t. \u00dea\u00f0 gengur illa hj\u00e1 honum en hann f\u00e6r Dan \u00ed li\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r og meira a\u00f0 segja \u00ed kirkju. Lukkulega kemur fellibylurinn Carmen og \u00feurrkar \u00fat alla r\u00e6kju\u00fatger\u00f0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Dan finnur gu\u00f0 og \u00feeir ver\u00f0a b\u00e1\u00f0ir millj\u00f3nam\u00e6ringar.<\/p>\n<p>Satt best a\u00f0 segja er fellibylurinn s\u00e1 hluti s\u00f6gunnar sem \u00e9g \u00e1 erfi\u00f0ast me\u00f0 a\u00f0 s\u00e6tta mig vi\u00f0. Ekki af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 s\u00e9 tilviljanakenndur atbur\u00f0ur heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 au\u00f0\u00e6fi Forrest Gump byggja \u00e1 \u00f3f\u00f6rum hundru\u00f0a e\u00f0a \u00fe\u00fasunda. \u00c9g f\u00e6 alltaf sm\u00e1 \u00f3brag\u00f0 af \u00feeim hluta myndarinnar.<\/p>\n<p>\u00cd seinni t\u00ed\u00f0 er Robert Zemeckis \u00feekktastur fyrir t\u00e6knibrellurnar sem hann notar \u00ed kvikmyndum s\u00ednum. S\u00fa vegfer\u00f0 var au\u00f0vita\u00f0 hafin \u00feegar kom a\u00f0 <em>Gump<\/em> en \u00fea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 hluti af marka\u00f0setningunni \u00e1 myndinni var \u00e1hersla \u00e1 t\u00e6knibrellurnar.<\/p>\n<p>Auglj\u00f3su og fr\u00e6gu brellurnar eru \u00feegar Tom Hanks er skeytt inn \u00ed raunveruleg myndskei\u00f0 af forsetum Bandar\u00edkjanna og \u00ed spjall\u00fe\u00e1tt me\u00f0 John Lennon. \u00de\u00e6r brellur eldast ekkert s\u00e9rstaklega vel. Hins vegar er sumt sem stendur enn fyrir s\u00ednu. Aflimun Gary Sinise var framin me\u00f0 t\u00e6knibrellum. Sama \u00e1 vi\u00f0 um \u00feessa fj\u00f6\u00f0ur sem sveimar um \u00ed upphafi og lok myndarinnar. \u00dea\u00f0 er l\u00edka dapurlegt a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 a\u00f0 Tom Hanks var bara alls ekki svona g\u00f3\u00f0ur \u00ed bor\u00f0tennis.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 sj\u00e1um glefsur \u00far l\u00edfi Jenny og einstaka sinnum hvernig lei\u00f0ir hennar og Forrest liggja saman. H\u00fan er alltaf frekar \u00f3hamingjus\u00f6m og lei\u00f0ist \u00fat \u00ed d\u00f3p og r\u00f3ttt\u00e6ka p\u00f3lit\u00edk. Hi\u00f0 s\u00ed\u00f0arnefnda lei\u00f0ir til frekar kj\u00e1nalegs atri\u00f0is \u00fear sem Forrest m\u00e6tir me\u00f0limum Sv\u00f6rtu pardusanna. Einn \u00feeirra les yfir hausam\u00f3tunum \u00e1 einfeldningnum sem skilur ekkert \u00fe\u00f3 er allt sem honum er sagt sannleikur um misr\u00e9tti \u00ed Bandar\u00edkjunum.<\/p>\n<p>Forrest er \u00e1stfanginn af Jenny en h\u00fan vill hann ekki. \u00dearna er klisjan um g\u00f3\u00f0a gaurinn sem stelpan hunsar \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 hann v\u00e6ri miklu betri fyrir hana. \u00b4\u00c9g get ekki \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 Jenny hef\u00f0i veri\u00f0 hamingjus\u00f6m me\u00f0 Forrest til lengri t\u00edma.<\/p>\n<p>Samt d\u00falla \u00feau s\u00e9r saman, einu sinni svo \u00e1kaflega a\u00f0 Jenny ver\u00f0ur \u00f3l\u00e9tt \u00e1n \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 segja Forrest fr\u00e1 \u00fev\u00ed. Hann fer \u00fat a\u00f0 hlaupa en h\u00fan byggir upp l\u00edf sitt me\u00f0 syni \u00feeirra &#8230; leikinn af Haley Joel Osment \u00e1\u00f0ur en hann var\u00f0 fr\u00e6gur fyrir <em>Sixth Sense<\/em> (1999 &#8211; hitt st\u00f3ra b\u00ed\u00f3\u00e1r t\u00edunda \u00e1ratugarins).<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum kallar Jenny \u00ed Forrest og uppl\u00fdsir hann um son \u00feeirra. Leikh\u00e6fileikar Tom Hanks sj\u00e1st kannski best \u00ed \u00fev\u00ed atri\u00f0i \u00feegar Forrest \u00f3ttast a\u00f0 sonur hans hafi erft greindina fr\u00e1 honum, ekki vegna \u00feess a\u00f0 hann telja g\u00e1fa\u00f0 f\u00f3lk betra heldur a\u00f0 hann telji erfi\u00f0ara a\u00f0 vera s\u00edn megin \u00ed greindarv\u00edsit\u00f6ludeildinni.<\/p>\n<p>Jenny uppl\u00fdsir l\u00edka hafi fengi\u00f0 einhvern \u00f3\u00feekktan v\u00edrus (lifrarb\u00f3lgu-C \u00ed b\u00f3kinn en l\u00edklega HIV \u00ed myndinni). \u00deau giftast og henni l\u00ed\u00f0ur vel s\u00ed\u00f0ustu daga l\u00edfs s\u00edns. Samkv\u00e6mt h\u00e6grisinnu\u00f0um t\u00falkunum \u00e1 myndinni er \u00feetta g\u00f3\u00f0a \u00e1kv\u00f6r\u00f0unin \u00ed sorglegu l\u00edfi hennar \u00feegar h\u00fan \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 taka hef\u00f0bundin gildi \u00ed s\u00e1tt.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 \u00e9g geti gagnr\u00fdnt margt vi\u00f0 heimsmynd Forrest Gump \u00fe\u00e1 held \u00e9g a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 ekki h\u00e6grisinna\u00f0ur \u00e1r\u00f3\u00f0ur. Ef \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 tengja hana vi\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1lasko\u00f0un \u00fe\u00e1 myndi \u00e9g segja a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri mi\u00f0jumo\u00f0. H\u00fan hefur \u00e1kaflega l\u00edti\u00f0 a\u00f0 segja um nokku\u00f0 sem ger\u00f0ist \u00e1 \u00feessu t\u00edmabili \u00ed s\u00f6gu Bandar\u00edkjanna.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1 erfitt me\u00f0 a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0 \u00feegar h\u00e6grimenn setja Forrest Gump \u00e1 stall sem fyrirmynd nema af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir vilja helst kj\u00f3sendur sem eru ekki f\u00e6rir um gagnr\u00fdna hugsun. Kannski telja \u00feeir a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 ver\u00f0launa\u00f0ur me\u00f0 au\u00f0\u00e6vum fyrir a\u00f0 leggja hart af s\u00e9r. \u00dea\u00f0 er ekki \u00fea\u00f0 sem myndin s\u00fdnir. Myndin er um mann sem \u00e1lpast \u00ed gegnum konfektkassann sem er l\u00edf hans \u00e1n \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 komast \u00fev\u00ed hva\u00f0a brag\u00f0 er af molunum \u00e1\u00f0ur en hann b\u00edtur \u00ed \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>Mig minnir a\u00f0 <a href=\"http:\/\/smygl.is\">\u00c1sgeir f\u00e9lagi<\/a> hafi einhvern t\u00edmann or\u00f0a\u00f0 \u00feetta \u00feannig a\u00f0 <em>Forrest Gump<\/em> v\u00e6ri ekki jafn g\u00f3\u00f0 og h\u00fan var upphaflega \u00e1litin en ekki jafn sl\u00e6m og var haldi\u00f0 fram seinna. \u00dea\u00f0 er l\u00edklega r\u00e9tt. \u00dea\u00f0 var frekar \u00f3heppilegt fyrir myndina a\u00f0 h\u00fan hafi hloti\u00f0 \u00d3skarinn \u00e1 svona g\u00f3\u00f0u b\u00ed\u00f3\u00e1ri. Henni ver\u00f0ur alltaf l\u00edkt vi\u00f0 <em>Shawshank<\/em>, <em>Pulp Fiction<\/em> og allar hinar st\u00f3rg\u00f3\u00f0u myndir \u00e1rsins 1994. H\u00fan kemur ekki vel \u00fat \u00ed samanbur\u00f0inum vi\u00f0 \u00fe\u00e6r.<\/p>\n<p>Forrest Gump er g\u00f6llu\u00f0 mynd sem er h\u00e6gt a\u00f0 nj\u00f3ta en \u00fea\u00f0 v\u00e6ru mist\u00f6k a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 l\u00e6ra einhverjar lex\u00edur af titilpers\u00f3nunni e\u00f0a s\u00f6gunni sj\u00e1lfri.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L\u00edfi\u00f0 er konfektkassi er l\u00edklega fr\u00e6gasta l\u00ednan \u00far Forrest Gump en \u00e9g man oftar eftir a\u00f0 hafa kalla\u00f0 &#8222;Run Forrest, Run&#8220; \u00e1 eftir hlaupandi f\u00e9l\u00f6gum m\u00ednum. \u00c1ri\u00f0 1994 var fr\u00e1b\u00e6rt b\u00ed\u00f3\u00e1r. \u00dea\u00f0 voru b\u00e6\u00f0i margar fr\u00e1b\u00e6rar og eftirminnilegar kvikmyndir s\u00fdndar og frums\u00fdndar. \u00dea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g var fimmt\u00e1n \u00e1ra \u00fdkir kannski upp \u00feessa tilfinningu en h\u00e9rna &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/01\/07\/forrest-gump-1994\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Forrest Gump (1994) \ud83e\udd0f <br \/> {7-\u00f8-\u00f8-\u00f8}<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":22122,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[30],"tags":[542,550,529,545,516,540,551,510,531,500,546,407,514,541,512,544,511,513,422,543,509,549],"class_list":["post-22115","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kvikmyndir","tag-q91558","tag-q945074","tag-q1004531","tag-q1160186","tag-q639481","tag-q72594","tag-q2012932","tag-q489856","tag-q322206","tag-kvikmyndaahorf-2025","tag-q753345","tag-q104123","tag-q651722","tag-q187364","tag-q272972","tag-q502629","tag-q187033","tag-q172241","tag-q2263","tag-q379873","tag-q464700","tag-q187423"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/22115","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=22115"}],"version-history":[{"count":11,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/22115\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":22907,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/22115\/revisions\/22907"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/22122"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=22115"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=22115"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=22115"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}