{"id":23821,"date":"2025-04-12T18:49:34","date_gmt":"2025-04-12T18:49:34","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=23821"},"modified":"2025-04-12T18:49:34","modified_gmt":"2025-04-12T18:49:34","slug":"stjornur-og-onnur-einkunnagjof","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/04\/12\/stjornur-og-onnur-einkunnagjof\/","title":{"rendered":"Stj\u00f6rnur og \u00f6nnur einkunnagj\u00f6f"},"content":{"rendered":"<p>\u00deegar kemur a\u00f0 stj\u00f6rnugj\u00f6f er \u00e9g alveg vonlaus. Satt best a\u00f0 segja eru stj\u00f6rnur vonlausar (s\u00e9rstaklega \u00ed heimi \u00fear sem fj\u00f3rar stj\u00f6rnur eru t\u00falka\u00f0ar sem meinf\u00fdsin \u00e1r\u00e1s). \u00de\u00e6r geta \u00ed besta falli n\u00e1\u00f0 a\u00f0 endurspegla sko\u00f0anir \u00feess sem gefur stj\u00f6rnurnar.<\/p>\n<p>Jafnvel innan \u00feess samhengis erum vi\u00f0, flest allavega, oft \u00f3samkv\u00e6m sj\u00e1lfum okkur. Vi\u00f0 erum ekki v\u00e9lar. Vi\u00f0 erum stundum \u00ed vondu skapi. \u00dea\u00f0 er pirrandi f\u00f3lk \u00ed kringum okkur \u00ed b\u00ed\u00f3salnum, myndin er \u00far f\u00f3kus, hlj\u00f3\u00f0i\u00f0 er illa stillt, augl\u00fdsingar s\u00fdndu bestu atri\u00f0in, leikari fer \u00ed taugarnar \u00e1 okkur&#8230; M\u00e9r finnst l\u00edka g\u00f3\u00f0ar myndir yfirleitt betri \u00feegar \u00e9g s\u00e9 \u00fe\u00e6r \u00ed b\u00ed\u00f3.<\/p>\n<p>Stj\u00f6rnurnar sj\u00e1lfar eru oft illskiljanlegar. \u00c9g hef til d\u00e6mis teki\u00f0 eftir f\u00f3lk sem talar um d\u00f3ma Leonard Maltin \u00e1ttar sig ekki einu sinni \u00e1 hva\u00f0a skala hann gefur myndum einkunn. Ef \u00fe\u00fa heldur a\u00f0 fimm stj\u00f6rnur s\u00e9u h\u00e6sta m\u00f6gulega einkunn hans eru allar l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00e9r finnist hann yfirleitt \u00f3sanngjarn.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru nokkrar lei\u00f0ir til a\u00f0 n\u00e1lgast stj\u00f6rnugj\u00f6f. Sumir telja a\u00f0 h\u00e6sta einkunn, fj\u00f3rar e\u00f0a fimm stj\u00f6rnur, \u00fe\u00fd\u00f0i fullkomnun. Sem er f\u00ednt ef vi\u00f0 \u00feekkjum \u00feeirra vi\u00f0mi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deannig a\u00f0 m\u00e9r l\u00edkar ekki \u00feegar stj\u00f6rnugj\u00f6f gagnr\u00fdnenda er umreiknu\u00f0 \u00ed skala fr\u00e1 einum til t\u00edu. Fyrir utan \u00f3l\u00edka n\u00e1lgun eru allar l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 gagnr\u00fdnandinn hafi sj\u00e1lfur n\u00e1munda\u00f0 stj\u00f6rnurnar \u00feannig a\u00f0 umreikningur g\u00e6ti \u00fdkt \u00fe\u00e1 n\u00e1mundun t\u00f6luvert.<\/p>\n<p>M\u00e9r l\u00edkar pers\u00f3nulega best vi\u00f0 normalk\u00farvun\u00e1lgun. Flestar myndir eru \u00e1 mi\u00f0junni en f\u00e6star \u00e1 sitt hvorum endanum. M\u00e9r \u00feykir Leonard Maltin \u00e1g\u00e6tur \u00ed \u00fev\u00ed. \u00c9g er me\u00f0 yfirlit um 24 \u00fe\u00fasund kvikmyndir sem fengu einkunn \u00ed s\u00ed\u00f0ustu kvikmyndahandb\u00f3kum hans.<\/p>\n<p>BOMB [\u00datg\u00e1fa Maltins af \u2605]: 1011<br \/>\n\u2605\u00bd: 2591<br \/>\n\u2605\u2605: 5445<br \/>\n\u2605\u2605\u00bd: 7224<br \/>\n\u2605\u2605\u2605: 5732<br \/>\n\u2605\u2605\u2605\u00bd: 1758<br \/>\n\u2605\u2605\u2605\u2605: 468<\/p>\n<p>\u00deetta er ekki fullkomin k\u00farva en langflestar myndir f\u00e1 \u00fearna mi\u00f0lungseinkunn.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g er a\u00f0 rembast vi\u00f0 a\u00f0 gefa stj\u00f6rnur lendi \u00e9g \u00ed auglj\u00f3sum vanda. \u00d3l\u00edkt Maltin (og hans ritstj\u00f3rnarme\u00f0limum) \u00fearf \u00e9g ekki a\u00f0 sj\u00e1 allar myndir. Ef m\u00e9r finnst myndir l\u00edta \u00fat fyrir a\u00f0 vera l\u00e9legar horfi \u00e9g ekki \u00e1 \u00fe\u00e6r. Ef m\u00e9r finnst \u00fe\u00e6r vonlausar \u00feegar \u00e9g er b\u00fainn a\u00f0 horfa \u00e1 fimmt\u00e1n m\u00edn\u00fatur slekk \u00e9g bara.<\/p>\n<p>M\u00edn k\u00farva af stj\u00f6rnugj\u00f6fum ver\u00f0ur \u00fev\u00ed aldrei n\u00e1l\u00e6gt \u00feeirri sem vi\u00f0 f\u00e1um hj\u00e1 Maltin. Ef vi\u00f0 mi\u00f0um vi\u00f0 hans kvar\u00f0a myndi \u00e9g eiginlega aldrei gefa minna en tv\u00e6r stj\u00f6rnur. Um lei\u00f0 er skekkja hinum megin \u00fev\u00ed \u00e9g er a\u00f0 eltast vi\u00f0 kvikmyndir sem eru almennt taldar s\u00e9rstaklega g\u00f3\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00deannig a\u00f0 \u00e9g hef l\u00e1ti\u00f0 vera a\u00f0 gefa stj\u00f6rnur h\u00e9rna \u00e1 blogginu. \u00c9g byrja\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 tj\u00e1kna sko\u00f0un m\u00edna me\u00f0 \u00feumlum og handabendingum. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 hafa stj\u00f6rnur vildi \u00e9g gefa til kynna hve \u00e1n\u00e6g\u00f0ur \u00e9g v\u00e6ri me\u00f0 myndina.<\/p>\n<p>Mj\u00f6g \u00e1n\u00e6g\u00f0ur eru tveir \u00feumlar.<br \/>\n\u00c1n\u00e6g\u00f0ur er einn \u00feumall.<br \/>\nS\u00e1ttur er h\u00f6ndin a\u00f0 lyfta upp.<br \/>\nT\u00edmas\u00f3un\/frekar \u00f3n\u00e6g\u00f0ur er h\u00f6ndin a\u00f0 \u00fer\u00fdsta ni\u00f0ur.<br \/>\nMj\u00f6g \u00f3\u00e1n\u00e6g\u00f0ur er \u00feumall ni\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u00deetta er allt bundi\u00f0 vi\u00f0 upplifun m\u00edna. Stundum langar mig til \u00feess a\u00f0 gefa til kynna a\u00f0 kvikmynd s\u00e9 klass\u00edsk. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 n\u00e6sta sem \u00e9g kemst \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa stj\u00f6rnur. Mig vantar hins vegar tj\u00e1kn fyrir kvikmyndir sem hafa sinn sess \u00ed kvikmyndas\u00f6gunni, og jafnvel kvikmyndauppeldi, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera &#8222;\u00fatrunnar&#8220; a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum m\u00e1 \u00e9g til me\u00f0 a\u00f0 nefna a\u00f0 upp\u00e1haldskvikmyndir m\u00ednar eru ekki n\u00e6rri \u00fev\u00ed alltaf \u00fe\u00e6r sem \u00e9g tel vera bestar. \u00c9g veit vel a\u00f0 \u00e9g elska margar myndir sem eru langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera \u00e1berandi g\u00f3\u00f0ar.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar kemur a\u00f0 stj\u00f6rnugj\u00f6f er \u00e9g alveg vonlaus. Satt best a\u00f0 segja eru stj\u00f6rnur vonlausar (s\u00e9rstaklega \u00ed heimi \u00fear sem fj\u00f3rar stj\u00f6rnur eru t\u00falka\u00f0ar sem meinf\u00fdsin \u00e1r\u00e1s). \u00de\u00e6r geta \u00ed besta falli n\u00e1\u00f0 a\u00f0 endurspegla sko\u00f0anir \u00feess sem gefur stj\u00f6rnurnar. Jafnvel innan \u00feess samhengis erum vi\u00f0, flest allavega, oft \u00f3samkv\u00e6m sj\u00e1lfum okkur. Vi\u00f0 erum ekki &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/04\/12\/stjornur-og-onnur-einkunnagjof\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Stj\u00f6rnur og \u00f6nnur einkunnagj\u00f6f<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":23822,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[30],"tags":[1433],"class_list":["post-23821","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kvikmyndir","tag-einkunnagjof"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/23821","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=23821"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/23821\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":23823,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/23821\/revisions\/23823"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/23822"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=23821"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=23821"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=23821"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}