{"id":24083,"date":"2025-05-20T20:20:25","date_gmt":"2025-05-20T20:20:25","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=24083"},"modified":"2025-05-20T20:20:25","modified_gmt":"2025-05-20T20:20:25","slug":"the-thing-1982","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/05\/20\/the-thing-1982\/","title":{"rendered":"The Thing (1982)\ud83d\udc4d\ud83d\udc4d\ud83d\udd96"},"content":{"rendered":"<p>Brj\u00e1la\u00f0ir Nor\u00f0menn valda \u00f3v\u00e6ntum usla \u00ed kringum bandar\u00edska ranns\u00f3knarst\u00f6\u00f0 \u00e1 Su\u00f0urskautslandinu og \u00edb\u00faar hennar \u00feurfa a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00f3v\u00e6ntar aflei\u00f0ingar.<\/p>\n<p><em>The Thing<\/em> var \u00ed b\u00ed\u00f3 og vi\u00f0 fe\u00f0gar skelltum okkur tveir. Venjulega eru \u00e1horfendur \u00e1 \u00feessum eldri myndum \u00e1 m\u00ednum aldri og upp\u00far en sonurinn oft s\u00e1 yngsti. \u00cd \u00feetta skipti var miki\u00f0 af ungu f\u00f3lki og merkilega miki\u00f0 af ungum konum (e\u00f0a g\u00f6mlum st\u00falkum). Gaman.<\/p>\n<p>\u00c9g haf\u00f0i aldrei \u00e1\u00f0ur s\u00e9\u00f0 <em>The Thing<\/em>. M\u00e9r skilst a\u00f0 k\u00e1pan (\u00e9g get ekki hugsa\u00f0 um anna\u00f0 en VHS) s\u00e9 \u00edkon\u00edsk, en h\u00fan heilla\u00f0i mig ekki. Satt best a\u00f0 segja leit \u00feetta \u00fat fyrir a\u00f0 vera l\u00e9leg mynd. N\u00fa g\u00e6ti veri\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hafi einfaldlega s\u00e9\u00f0 of margar raunverulega l\u00e9legar myndir sem reyndu a\u00f0 st\u00e6la k\u00e1pu <em>The Thing<\/em>.<\/p>\n<p>\u00c9g kanna\u00f0ist vi\u00f0 n\u00e6r alla leikara \u00ed myndinni, fastagestir \u00ed kvikmyndum og sj\u00f3nvarpi \u00e6sku minnar. \u00dea\u00f0 s\u00e9st \u00ed myndinni a\u00f0 um 95% pers\u00f3nuleika Wilford Brimley var falinn \u00ed skegginu hans. \u00c1n \u00feess er hann svo hversdagslegur a\u00f0 \u00e9g \u00feekkti hann varla. Richard Dysart var yfirma\u00f0urinn \u00ed <em>L.A. Law<\/em> og kom b\u00e6\u00f0i \u00ed <em>Being There<\/em> og <em>Back to the Future part III<\/em>. S\u00ed\u00f0an er Keith David fr\u00e6gastur fyrir a\u00f0 hafa veri\u00f0 \u00ed sj\u00f6ttu ser\u00edunni af <em>Community<\/em> (m\u00e9r fannst <span style=\"text-decoration: underline;\">r\u00f6ddin<\/span> hans ver\u00f0a s\u00edfellt meira \u00e1berandi \u00feegar \u00e1 lei\u00f0 myndina). Au\u00f0vita\u00f0 er Kurt Russell \u00fear \u00ed a\u00f0alhlutverki, Disney-barnastjarnan sj\u00e1lf.<\/p>\n<p>Ennio Morricone er skr\u00e1\u00f0ur fyrir t\u00f3nlistinni en \u00e1 einhverjum t\u00edmapunkti hugsa\u00f0i \u00e9g me\u00f0 sj\u00e1lfum m\u00e9r a\u00f0 eitthva\u00f0 af henni v\u00e6ri bara eftir Carpenter (sem semur venjulega s\u00edna kvikmyndat\u00f3nlist sj\u00e1lfur). \u00dea\u00f0 var v\u00edst r\u00e9tt \u00e1lyktun hj\u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n<p>Flosi \u00deorgeirs nefndi um daginn a\u00f0 Leonard Maltin hef\u00f0i bara gefi\u00f0 <em>The Thing<\/em> \u2605\u00bd en \u00fea\u00f0 er r\u00e9tt a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 h\u00fan f\u00e9kk sl\u00e6ma d\u00f3ma fr\u00e1 flestum gagnr\u00fdnendum og \u00e1horfendur voru ekki miki\u00f0 gla\u00f0ari me\u00f0 hana heldur.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00e1hugavert a\u00f0 b\u00e6\u00f0i <em>The Thing<\/em> og <em>Blade Runner<\/em> komu \u00fat sama dag en \u00fea\u00f0 var l\u00edklega ekki \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir sl\u00f6ku gengi \u00feeirra. \u00c1horfendur og gagnr\u00fdnendur voru \u00ed meiri stu\u00f0i fyrir fallega kvikmynd sem kom \u00fat tveimur vikum fyrr, <em>E.T. The Extra-Terrestrial<\/em>. Ind\u00e6lli geimvera.<\/p>\n<p>T\u00e6knibrellurnar sem eru svo fr\u00e1b\u00e6rar og velheppna\u00f0ar eiga kannski l\u00edka s\u00f6k \u00e1 sl\u00f6kum vi\u00f0t\u00f6kum myndarinnar. Margir gagnr\u00fdnendur t\u00f6ldu \u00fe\u00e6r tilgangslausar e\u00f0a allavega \u00b4o\u00fearflega \u00f3ge\u00f0slegar. \u00c1 m\u00f3ti hj\u00e1lpu\u00f0u brellurnar au\u00f0vita\u00f0 til \u00feess a\u00f0 gera <em>The Thing<\/em> a\u00f0 k\u00f6ltmynd.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 ger\u00f0 mynd sem heitir <em>The Thing from Another World<\/em> \u00e1ri\u00f0 1951 (sem Carpenter var v\u00edst mj\u00f6g hrifinn af) \u00fe\u00e1 skilst m\u00e9r a\u00f0 \u00feessi s\u00e9 frekar afturhvarf til upprunalegu s\u00f6gu John W. Campbell <em>Who Goes There?<\/em> sem gefin var \u00fat \u00e1ri\u00f0 1938.<\/p>\n<p>Megin\u00feema <em>The Thing<\/em> og <em>Who Goes There?<\/em> er au\u00f0vita\u00f0 hr\u00e6\u00f0slan vi\u00f0 hi\u00f0 \u00f3\u00feekkta. \u00dea\u00f0 vakti l\u00edka hugrenningatengsl vi\u00f0 H.P. Lovecraft sem skrifa\u00f0i nokkrum \u00e1rum fyrr einnig s\u00f6gu um dularfulla uppg\u00f6tun \u00e1 Su\u00f0urskautslandinu (<em>At the Mountains of Madness<\/em>). Sm\u00e1 gr\u00fask (Wikipedia) leiddi \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 Campbell var agalegur rasisti (og almennur rugludallur) l\u00edkt og Lovecraft. Reyndar var hinn s\u00ed\u00f0arnefndi farinn a\u00f0 skipta um sko\u00f0un \u00e1\u00f0ur en hann l\u00e9st \u00e1 me\u00f0an s\u00e1 yngri var \u00ed ruglinu allt sitt l\u00edf.<\/p>\n<p><em>Who Goes There?<\/em> er ekki l\u00f6ng saga (<a href=\"https:\/\/archive.org\/details\/sim_astounding-science-fiction_1938-08_21_6\/page\/60\/mode\/1up?view=theater\">upprunalega \u00fatg\u00e1fan<\/a> \u00e1 Internet Archive) en tilfinning m\u00edn var samt a\u00f0 h\u00f6fundur s\u00f6gunnar (Campbell) v\u00e6ri a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r a\u00f0 ritstj\u00f3ri <em>Astounding Science Fiction<\/em> (l\u00edka Campbell) myndi borga honum fyrir hvert skrifa\u00f0 or\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 krefjast styttingar. Har\u00f0ari yfirlesari hef\u00f0i m\u00f6gulega strika\u00f0 yfir s\u00edendurteknar l\u00fdsingar \u00e1 \u00fev\u00ed hve h\u00e1vaxnir allir \u00feessir gaurar v\u00e6ru.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem vakti \u00fe\u00f3 helst \u00e1huga minn (fyrir utan &#8222;bronsa\u00f0a&#8220; karlmenn) var l\u00edna sem einn \u00f3\u00feokkinn l\u00e6tur fr\u00e1 s\u00e9r:<\/p>\n<blockquote>\n<p>You are displaying the childish human weakness of hating the different.<\/p>\n<\/blockquote>\n<p>\u00dea\u00f0 kemur au\u00f0vita\u00f0 \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 hr\u00e6\u00f0slan vi\u00f0 hi\u00f0 \u00f3\u00feekkta var hi\u00f0 eina r\u00e9tta \u00ed st\u00f6\u00f0unni og \u00fea\u00f0 f\u00e9ll kannski bara \u00e1g\u00e6tlega a\u00f0 sko\u00f0unum Campbell. H\u00ed \u00e1 hann a\u00f0 f\u00e1 s\u00ed\u00f0an tvo svarta leikara \u00ed \u00feessari mynd.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er komi\u00f0 a\u00f0 h\u00f6skuldum.<\/p>\n<p><strong>H\u00d6SKULDUR! \u00ed fleirt\u00f6lu reyndar.<\/strong><\/p>\n<p>Upphafssena myndarinnar er \u00f3tr\u00falega \u00f6flug. Vi\u00f0 sveimum um sl\u00e9ttur Su\u00f0urskautslandsins me\u00f0 fallegum og g\u00f3\u00f0legum sle\u00f0ahundi. Skyndilega birtist \u00feyrla og \u00fear eru einhverjir brj\u00e1l\u00e6\u00f0ingar a\u00f0 reyna a\u00f0 skj\u00f3ta grey hundinn. \u00deeir ganga svo langt a\u00f0 kasta einhvers konar sprengjum a\u00f0 honum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 kemur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feessir grimmu menn sem voru a\u00f0 skemmta s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 murka l\u00edfi\u00f0 \u00far besta vini mannsins eru Nor\u00f0menn (t\u00fdp\u00edskt). Tungum\u00e1lamunurinn kemur \u00ed veg fyrir sk\u00fdringar en m\u00f6gulega skilja \u00e1horfendur \u00feegar gaurinn notar or\u00f0 sem hlj\u00f3mar eins og &#8222;<em>thing<\/em>&#8220; (ekki skildi \u00e9g fleira \u00ed norskunni hans og mig grunar a\u00f0 leikarinn hafi ekki gert \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur). \u00deannig f\u00e6r \u00e1horfandinn inns\u00fdn \u00ed skr\u00fdmsli\u00f0 \u00e1 undan pers\u00f3nunum. Fr\u00e1b\u00e6rt innlegg sem kom v\u00e6ntanlega fr\u00e1 handritsh\u00f6fundinum Bill Lancaster (syni Burt).<\/p>\n<p>L\u00edklega hef\u00f0i myndin veri\u00f0 stutt ef \u00feeim norska hef\u00f0i dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 segja bara &#8222;reib\u00eds&#8220;.<\/p>\n<p>Myndin byggir upp spennu h\u00e6gt og r\u00f3lega. Hverjum skal treysta. Enginn, hvorki \u00e1horfendur n\u00e9 pers\u00f3nur, getur veri\u00f0 viss hver s\u00e9 &#8222;smita\u00f0ur&#8220;. \u00dea\u00f0 eru n\u00e6gilega margir \u00ed h\u00f3pnum til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 getum vita\u00f0 st\u00f6\u00f0una \u00e1 \u00f6llum. Jafnvel hetjan okkar heg\u00f0ar s\u00e9r eins og hann hafi algj\u00f6rlega gengi\u00f0 af g\u00f6flunum.<\/p>\n<p>\u00deetta er eiginlega bara <em>Among Us<\/em> (e\u00f0a <em>Werewolf<\/em>). Kannski er \u00fea\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 allt unga f\u00f3lki\u00f0 m\u00e6tti? &#8230; l\u00edklega ekki.<\/p>\n<p>Endalokin eru tv\u00edr\u00e6\u00f0. Er annar hinna eftirlifenda &#8222;smita\u00f0ur&#8220;? \u00c9g komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 John Carpenter vir\u00f0ist hafa svara\u00f0 \u00feeirri spurningu hreint \u00fat fyrr \u00e1 \u00feessari \u00f6ld sem m\u00e9r finnst algj\u00f6r \u00f3\u00fearfi. \u00dea\u00f0 sem \u00e1 undan er gengi\u00f0 var n\u00f3gu gott til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum ekki n\u00e1nari \u00fatlistanir.<\/p>\n<p>Sums\u00e9, g\u00f3\u00f0 mynd.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brj\u00e1la\u00f0ir Nor\u00f0menn valda \u00f3v\u00e6ntum usla \u00ed kringum bandar\u00edska ranns\u00f3knarst\u00f6\u00f0 \u00e1 Su\u00f0urskautslandinu og \u00edb\u00faar hennar \u00feurfa a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00f3v\u00e6ntar aflei\u00f0ingar. The Thing var \u00ed b\u00ed\u00f3 og vi\u00f0 fe\u00f0gar skelltum okkur tveir. Venjulega eru \u00e1horfendur \u00e1 \u00feessum eldri myndum \u00e1 m\u00ednum aldri og upp\u00far en sonurinn oft s\u00e1 yngsti. \u00cd \u00feetta skipti var miki\u00f0 af &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/05\/20\/the-thing-1982\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">The Thing (1982)\ud83d\udc4d\ud83d\udc4d\ud83d\udd96<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":24084,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[30],"tags":[550,786,1595,333,1581,1395,200,1639,1638,1640,500,413,1637,1635,1636],"class_list":["post-24083","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kvikmyndir","tag-q945074","tag-bioferdir","tag-q184843","tag-q728553","tag-q11621","tag-q23848","tag-q169566","tag-q95008","tag-q370918","tag-q103157","tag-kvikmyndaahorf-2025","tag-q5222211","tag-q110628","tag-q210756","tag-q712180"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24083","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=24083"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24083\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":24086,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24083\/revisions\/24086"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/24084"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=24083"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=24083"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=24083"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}