{"id":24261,"date":"2025-07-02T20:05:46","date_gmt":"2025-07-02T20:05:46","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=24261"},"modified":"2025-08-16T23:41:52","modified_gmt":"2025-08-16T23:41:52","slug":"chasing-amy-1997","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/07\/02\/chasing-amy-1997\/","title":{"rendered":"Chasing Amy (1997)\ud83d\udc4d"},"content":{"rendered":"<p>Gagnkynhneig\u00f0ur karlma\u00f0ur kynnist samkynhneig\u00f0ri konu og &#8230; H\u00f6skuldar fylgja.<\/p>\n<p><em>Chasing Amy<\/em> er \u00feri\u00f0ja kvikmynd Kevin Smith og margir af fastaleikurum hans koma fram. \u00c9g hef ekki horft \u00e1 myndina \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 segjast a\u00f0 \u00e9g t\u00f3k betur eftir g\u00f6llum kvikmyndarinnar \u00ed \u00feetta skipti.<\/p>\n<p>Holden og Banky, leiknir af Ben Affleck og Jason Lee, eru teiknimyndas\u00f6guh\u00f6fundar og bestu vinir. Alyssa, leikin af Joey Lauren Adams, er teiknimyndas\u00f6guh\u00f6fundur. H\u00fan er fr\u00e1b\u00e6r en m\u00e9r finnst eiginlega a\u00f0 \u00feeir tveir hef\u00f0u \u00e1tt a\u00f0 skipta um hlutverk. Annar er sjarmerandi og hinn er Ben Affleck me\u00f0 skegg sem er svo sl\u00e6mt a\u00f0 \u00fev\u00ed var eytt af veggspjaldinu (vi\u00f0 getum sums\u00e9 ekki afsaka\u00f0 \u00feetta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja a\u00f0 \u00feetta hafi veri\u00f0 a\u00f0rir t\u00edmar, \u00feetta var aldrei \u00e1s\u00e6ttanlegt).<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 Alyssa s\u00e9 samkynhneig\u00f0 fellur Holden fyrir henni. \u00dea\u00f0 skr\u00fdtna er a\u00f0 lokum fellur h\u00fan fyrir honum og \u00feau hefja samband. Banky ver\u00f0ur afbr\u00fd\u00f0issamur og byrjar a\u00f0 snu\u00f0ra um fort\u00ed\u00f0 k\u00e6rustu besta vinar s\u00edns. \u00dea\u00f0 sem hann uppg\u00f6tvar fyllir Holden af sl\u00edkri minnim\u00e1ttarkennd a\u00f0 hann getur ekki hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 halda sambandinu \u00e1fram.<\/p>\n<p>Kvikmyndin hefur veri\u00f0 r\u00e9ttilega gagnr\u00fdnd fyrir a\u00f0 spila inn \u00ed draum\u00f3ra gagnhneig\u00f0ra karlmanna a\u00f0 \u00feeir geti &#8222;sn\u00fai\u00f0&#8220; lesb\u00edum. \u00c9g held samt a\u00f0 Kevin Smith hafi veri\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 segja a\u00f0 kynhneig\u00f0 s\u00e9 ekki anna\u00f0 hvort e\u00f0a. A\u00f0 \u00feetta s\u00e9 meira eins og Kinsey-skalinn. Sem \u00e9g held a\u00f0 s\u00e9 alveg r\u00e9tt og \u00e9g held a\u00f0 f\u00f3lk s\u00e9 meira \u00e1 \u00feeirri l\u00ednu \u00ed dag. \u00deetta er undirstrika\u00f0 \u00feegar Holden uppl\u00fdsir a\u00f0 hann s\u00e9 \u00ed ekki &#8222;algj\u00f6rlega&#8220; gagnkynhneig\u00f0ur.<\/p>\n<p>Samt er bara svo margt \u00f3gurlega klaufalegt \u00ed framsetningu \u00e1 n\u00e6r \u00f6llu sem vi\u00f0kemur samkynhneig\u00f0. \u00c1kaflega vandr\u00e6\u00f0alegt. Kevin Smith hefur l\u00edka sagt a\u00f0 gagnr\u00fdni hinsegin f\u00f3lks \u00e1 myndina s\u00e9 meira og minna r\u00e9tt.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 tekst betur hj\u00e1 Kevin Smith a\u00f0 skrifa gagnkynhneig\u00f0a karlmenn. \u00cd grunninn er \u00feetta nefnilega saga af brotth\u00e6ttri og eitra\u00f0ri karlmennsku. Vi\u00f0 sj\u00e1um \u00fea\u00f0 \u00ed druslusk\u00f6mmun g\u00f6mlu sk\u00f3laf\u00e9lagana og vanm\u00e1ttarkenndinni sem gagntekur Holden.<\/p>\n<p>Kevin Smith er ekki a\u00f0 lofsama \u00feessa menn.<\/p>\n<p>Strax eftir \u00feetta \u00e1horf komst \u00e9g a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 kom \u00fat heimildarmynd fyrir ekki l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0an sem heitir <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/07\/02\/chasing-chasing-amy-2023\/\"><em>Chasing Chasing Amy<\/em><\/a> og fjallar um tengsl leikstj\u00f3rans, sem er hinsegin, vi\u00f0 myndina. \u00c9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 horfa strax \u00e1 hana og h\u00fan milda\u00f0i d\u00f3m minn t\u00f6luvert.<\/p>\n<p>Maltin gefur \u2605\u2605\u2605\u00bd en hann m\u00e6tti taka eitthva\u00f0 af \u00feeim og gefa <em>Mallrats<\/em> (\u2605\u00bd!) \u00ed sta\u00f0inn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gagnkynhneig\u00f0ur karlma\u00f0ur kynnist samkynhneig\u00f0ri konu og &#8230; H\u00f6skuldar fylgja. Chasing Amy er \u00feri\u00f0ja kvikmynd Kevin Smith og margir af fastaleikurum hans koma fram. \u00c9g hef ekki horft \u00e1 myndina \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 segjast a\u00f0 \u00e9g t\u00f3k betur eftir g\u00f6llum kvikmyndarinnar \u00ed \u00feetta skipti. Holden og Banky, leiknir af Ben Affleck og &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/07\/02\/chasing-amy-1997\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Chasing Amy (1997)\ud83d\udc4d<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":24263,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[30],"tags":[1814,879,528,2045,1815,689,1813,884,500,413,1816],"class_list":["post-24261","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kvikmyndir","tag-q483118","tag-q40115","tag-q747877","tag-q314610","tag-q447584","tag-q4960","tag-q237115","tag-q489831","tag-kvikmyndaahorf-2025","tag-q5222211","tag-q39999"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24261","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=24261"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24261\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":24271,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24261\/revisions\/24271"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/24263"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=24261"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=24261"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=24261"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}