{"id":24590,"date":"2025-09-06T16:12:34","date_gmt":"2025-09-06T16:12:34","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=24590"},"modified":"2025-09-06T16:12:34","modified_gmt":"2025-09-06T16:12:34","slug":"citizen-kane-1941","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/09\/06\/citizen-kane-1941\/","title":{"rendered":"Citizen Kane (1941) \u2605\u2605\u2605\u2605\u2605\ud83d\udc4d\ud83d\udc4d\ud83d\udd96"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd <em>Kvikmyndahandb\u00f3k Halliwell<\/em>\u00b9 er v\u00edsa\u00f0 \u00ed <a href=\"https:\/\/letterboxd.com\/alexanderson\/list\/sight-sound-1962-critics-list\/\">topplista t\u00edmaritsins <em>Sight &amp; Sound<\/em><\/a> fr\u00e1 1952, &#8217;62, &#8217;72 og &#8217;82. \u00c1 elsta listanum eru <em>Hj\u00f3lrei\u00f0a\u00fej\u00f3farnir<\/em> efstir en \u00e1 \u00feeim \u00feremur sem \u00e1 eftir fylgja er \u00fea\u00f0 <em>Citizen Kane<\/em> sem tr\u00f3nir \u00e1 toppnum\u00b2. \u00dea\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 myndin lenti \u00e1 &#8222;\u00fearf a\u00f0 finna og horfa&#8220; listanum m\u00ednum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var ekki au\u00f0velt a\u00f0 komast yfir <em>Citizen Kane<\/em> \u00e1 Akureyri \u00feannig a\u00f0 \u00e9g held a\u00f0 \u00e9g hafi a\u00f0 lokum s\u00e9\u00f0 hana \u00feegar h\u00fan var s\u00fdnd \u00ed sj\u00f3nvarpi 1995. M\u00e9r fannst h\u00fan g\u00f3\u00f0 en f\u00e9ll ekki strax fyrir henni. \u00c9g hef m\u00f6gulega s\u00e9\u00f0 <em>The Magnificent Ambersons<\/em>\u00b3 oftar.<\/p>\n<p>Eitt af \u00fev\u00ed fr\u00e6gasta vi\u00f0 <em>Citizen Kane<\/em> er a\u00f0 h\u00fan byggir a\u00f0 einhverju leyti \u00e1 \u00e6vi bla\u00f0ak\u00f3ngsins William Randolph Hearst. \u00dea\u00f0 skemmdi l\u00edka feril Orson Welles \u00feegar a\u00f0 f\u00f3lk \u00e1 vegum au\u00f0j\u00f6fursins r\u00e9\u00f0ust \u00e1 myndina og leikstj\u00f3rann.<\/p>\n<p>\u00cd seinni t\u00ed\u00f0 er fr\u00e6gt a\u00f0 kvikmyndagagnr\u00fdnirinn Pauline Kael h\u00e9lt \u00fev\u00ed fram \u00ed b\u00f3kinni <em>Raising Kane<\/em> (1971) a\u00f0 Orson Welles hef\u00f0i eiginlega ekkert komi\u00f0 n\u00e1l\u00e6gt \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa handriti\u00f0 heldur hef\u00f0i skr\u00e1\u00f0ur me\u00f0h\u00f6fundur \u00feess, Herman J. Mankiewicz, skrifa\u00f0 allt.<\/p>\n<p>\u00deetta hefur meira og minna veri\u00f0 hraki\u00f0. \u00dea\u00f0 eru til g\u00f6gn sem s\u00fdna a\u00f0 Welles var sannanlega me\u00f0h\u00f6fundur og byggir \u00e6vi Kana a\u00f0 einhverju leyti \u00e1 eigin reynslu. John Houseman (sem vann me\u00f0 Orson \u00ed Mercury leikh\u00fasinu) \u00e1 l\u00edka \u00fdmislegt \u00ed handritinu en af\u00feakka\u00f0i bo\u00f0 um a\u00f0 nafn hans yr\u00f0i sett \u00e1 myndina.<\/p>\n<p>Orson Welles \u00e1tti au\u00f0vel me\u00f0 a\u00f0 deila hei\u00f0ri me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. \u00dea\u00f0 s\u00e9st m\u00f6gulega best \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed endatitlinum \u00fear sem hann er skr\u00e1\u00f0ur leikstj\u00f3ri setti hann, \u00fevert \u00e1 venjur, nafn Gregg Toland uppt\u00f6kustj\u00f3ra beint fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 er \u00fea\u00f0 myndatakan, miklu frekar en handriti\u00f0, sem gerir <em>Citizen Kane<\/em> a\u00f0 \u00feeirri \u00e1hrifamestu \u00ed bandar\u00edskri kvikmyndas\u00f6gu.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2025\/09\/greggtoland.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-full wp-image-24594\" src=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2025\/09\/greggtoland.jpeg\" alt=\"\" width=\"640\" height=\"480\" srcset=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2025\/09\/greggtoland.jpeg 640w, https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2025\/09\/greggtoland-300x225.jpeg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 640px) 100vw, 640px\" \/><\/a><\/p>\n<p>H\u00f6skuldar framundan. \u00dea\u00f0 er betra a\u00f0 horfa \u00e1 myndina fyrst en a\u00f0 lesa \u00fea\u00f0 sem \u00e9g skrifa. Ef \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 minnsta \u00e1huga \u00e1 kvikmyndum \u00e6ttu\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 <em>Citizen Kane<\/em> \u00e1\u00f0ur, e\u00f0a jafnvel frekar, en \u00fei\u00f0 lesi\u00f0 lengri.<\/p>\n<p>H\u00d6SKULDAR.<\/p>\n<p>Citizen Kane var h\u00f6skuldu\u00f0 fyrir m\u00e9r l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en \u00e9g s\u00e1 hana. <em>The Simpsons<\/em> er til d\u00e6mis st\u00f3r s\u00f6kud\u00f3lgur. \u00c9g vissi alveg hva\u00f0 Rosebud v\u00e6ri. \u00c9g \u00feekkti l\u00edka s\u00f6guna fr\u00e1 Gore Vidal um a\u00f0 Hearst hef\u00f0i kalla\u00f0 sn\u00edp Marion Davis, fyrirmyndin a\u00f0 seinni konu Kane, \u00feessu nafni. Gagnr\u00fdnandinn Andrew Sarris sag\u00f0i v\u00edst a\u00f0 \u00feetta hef\u00f0i veri\u00f0 hj\u00f3l sem Mankiewicz glata\u00f0i \u00ed \u00e6sku.<\/p>\n<p>\u00c9g man eftir a\u00f0 hafa heyrt e\u00f0a lesi\u00f0 s\u00f6gu um a\u00f0 Orson Welles hafi veri\u00f0 spur\u00f0ur \u00ed vi\u00f0tali hvernig nokkur hafi vita\u00f0 andl\u00e1tsor\u00f0 Charles Foster Kane ef hann var einn \u00ed herberginu \u00feegar hann l\u00e9st. Welles \u00e1 a\u00f0 hafa veri\u00f0 hissa og sag\u00f0i: &#8222;\u00c9g hef aldrei hugsa\u00f0 um \u00fea\u00f0&#8220;. F\u00f3lk sem man eftir myndinni getur \u00edmynda\u00f0 s\u00e9r kaldh\u00e6\u00f0nina \u00ed r\u00f6ddinni \u00fev\u00ed au\u00f0vita\u00f0 er \u00feetta \u00fatsk\u00fdrt, brytinn Raymond var \u00ed herberginu.<\/p>\n<p>Eins og \u00e9g nefndi a\u00f0 ofan \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 myndatakan og myndm\u00e1li\u00f0 sem gerir <em>Citizen Kane<\/em> a\u00f0 st\u00f3rvirki. Myndav\u00e9lin smeygir s\u00e9r inn og \u00fat eins og ekkert s\u00e9. Vi\u00f0 heyrum samband Kane vi\u00f0 fyrri eiginkonu s\u00edna deyja \u00ed samt\u00f6lum \u00feeirra en \u00fea\u00f0 sem er eftirminnilegast er hvernig fjarl\u00e6g\u00f0in er s\u00fdnd.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem er kannski s\u00e9rst\u00e6\u00f0ast vi\u00f0 myndat\u00f6kuna er a\u00f0 l\u00fdsingin er oft notu\u00f0 til fella skugga \u00e1 andlit leikaranna. \u00dea\u00f0 er s\u00e9rstaklega \u00e1berandi \u00ed atri\u00f0inu \u00fear sem bla\u00f0amennirnir eru a\u00f0 reyna a\u00f0 finna n\u00fdjan vinkil \u00e1 umfj\u00f6llun s\u00edna um dau\u00f0a Kane. \u00deeir sj\u00e1st varla og \u00feannig eru samr\u00e6\u00f0urnar settar \u00ed forgrunn. \u00dea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 almennt s\u00e9 hlj\u00f3\u00f0h\u00f6nnun kvikmyndarinnar vel n\u00fdtt til \u00feess a\u00f0 d\u00fdpka \u00e1hrifin.<\/p>\n<p>\u00deau atri\u00f0i sem h\u00f6f\u00f0u mest \u00e1hrif \u00e1 mig, allavega \u00ed \u00feetta skipti\u00f0. Voru \u00ed bl\u00e1lokin. \u00deegar vi\u00f0 sj\u00e1um listaverkin sem Kane safna\u00f0i en voru, a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti en a\u00f0 s\u00fdna au\u00f0\u00e6fi hans, merkingarlaus fyrir hann pers\u00f3nulega. S\u00ed\u00f0an sj\u00e1um vi\u00f0 sle\u00f0ann, sem er einskis vir\u00f0i en \u00fe\u00f3 \u00f3metanlegur \u00ed huga Kane, fleygt \u00e1 eldinn. Vi\u00f0 sj\u00e1um hann brenna og me\u00f0 honum leysist leyndard\u00f3mur myndarinnar upp \u00ed \u00f6sku og reyk.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00feetta \u00e1horf t\u00f3k \u00e9g eftir einu sem \u00e9g haf\u00f0i sem \u00e9g haf\u00f0i ekki fatta\u00f0 \u00e1\u00f0ur. \u00deegar Kane hittir fyrst Susan, sem ver\u00f0ur seinni konan hans, nefnir hann a\u00f0 hann hafi veri\u00f0 \u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 k\u00edkja \u00ed geymslu \u00fear sem v\u00e6ru hlutir sem hann f\u00e9kk fr\u00e1 m\u00f6mmu sinni. Hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 tr\u00edtla ni\u00f0ur veg minninganna.<\/p>\n<p>Kane h\u00e6ttir vi\u00f0 og tekur \u00e1kv\u00f6r\u00f0un sem mun ekki bara ey\u00f0ileggja fj\u00f6lskyldu hans og drauma heldur svipta hann um m\u00f6gulegu uppgj\u00f6ri vi\u00f0 \u00e6sku s\u00edna. Hvort hann hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 betri ma\u00f0ur vi\u00f0 a\u00f0 finna sle\u00f0ann sinn \u00ed geymslunni er opin spurning.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru ger\u00f0ir margir Rosebud sle\u00f0ar fyrir ger\u00f0 <em>Citizen Kane<\/em>. Hve margir hafa glatast er \u00f3lj\u00f3st en nokkrir eru enn til. Mig minnir a\u00f0 Spielberg eigi einn.<\/p>\n<p>\u00c1 n\u00edunda \u00e1ratugnum kom starfsma\u00f0ur Universal a\u00f0 tali vi\u00f0 Joe Dante og sag\u00f0ist vera a\u00f0 henda allskonar hlutum sem ekki v\u00e6ri pl\u00e1ss fyrir. Honum var\u00f0 hugsa\u00f0 til leikstj\u00f3rans \u00fev\u00ed Dante var og er mikill \u00e1hugama\u00f0ur um kvikmyndas\u00f6guna. \u00cd draslinu var einn af Rosebud sle\u00f0unum. \u00dea\u00f0 er v\u00edst h\u00e6gt a\u00f0 sj\u00e1 sle\u00f0ann \u00ed fj\u00f3rum kvikmyndum Dante. \u00c9g veit ekki hverjum en \u00e9g mun \u00f6rugglega athuga \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd j\u00fal\u00ed s\u00ed\u00f0astli\u00f0num seldi Joe Dante sle\u00f0ann fyrir r\u00famar fj\u00f3rt\u00e1n millj\u00f3nir dollara.<\/p>\n<p>Samband Kane vi\u00f0 &#8222;s\u00f6ngkonuna&#8220; er veigamiki\u00f0 \u00ed kvikmyndinni. Hann vill henni allt hi\u00f0 besta og hi\u00f0 besta er \u00fea\u00f0 sem hann vill. Hann ney\u00f0ir hana til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00f3perus\u00f6ng \u00fe\u00f3 h\u00fan hafi auglj\u00f3slega ekki r\u00f6ddina \u00ed \u00fea\u00f0 (en hef\u00f0i l\u00edklega geta\u00f0 sungi\u00f0 l\u00e9ttari t\u00f3nlist).<\/p>\n<p>\u00dear sem s\u00f6ngkonan er bygg\u00f0 \u00e1 leikkonunni Marion Davis, \u00e1stkonu Hearst, var s\u00fa pers\u00f3na l\u00edklega \u00fea\u00f0 sem f\u00f3r mest \u00ed taugarnar \u00e1 bla\u00f0ak\u00f3nginum. \u00deetta eitra\u00f0i l\u00edka or\u00f0spor Davis \u00fev\u00ed f\u00f3lk h\u00e9lt a\u00f0 leikh\u00e6fileikar hennar hef\u00f0u veri\u00f0 \u00e1 sama stigi og s\u00f6ngh\u00e6fileikar Susan.<\/p>\n<p><em>Citizen Kane<\/em> er fr\u00e1b\u00e6r mynd og gr\u00ed\u00f0arlega \u00e1hrifamikil en \u00e9g myndi ekki setja hana efst \u00e1 lista yfir bestu kvikmyndir allra t\u00edma. Ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hafi sl\u00edkan lista en \u00e9g get hugsa\u00f0 m\u00e9r nokkrar sem \u00e9g myndi hafa oftar. En \u00e1 lista yfir \u00e1hrifamestu kvikmyndirnar&#8230;<\/p>\n<p>Maltin gefur \u2605\u2605\u2605\u2605.<\/p>\n<p>\u00d3li gefur \u2605\u2605\u2605\u2605\u2605 \ud83d\udc4d\ud83d\udc4d\ud83d\udd96.<\/p>\n<p>\u00b9 Leslie Halliwell var breskur kvikmyndagagnr\u00fdnir sem \u00feoldi ekki myndir ger\u00f0ar eftir cirka 1950. Kannski \u00fdki \u00e9g. Af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um var vali\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a og gefa \u00fat Kvikmyndahandb\u00f3k hans \u00ed fimm bindum. Mj\u00f6g handh\u00e6gt. Ef \u00fei\u00f0 voru\u00f0 ekki \u00fearna \u00fe\u00e1 \u00e1tti\u00f0 ykkur ekki \u00e1 hve ferskur andbl\u00e6r kom \u00feegar hinn (\u00ed samanbur\u00f0inum) ungi Leonard Maltin var\u00f0 a\u00f0gengilegri \u00ed \u00edslenskum b\u00f3kab\u00fa\u00f0um.<\/p>\n<p>\u00b2 Kane er l\u00edka \u00e1 toppnum 1992 og 2002. Myndin toppa\u00f0i l\u00edka leikstj\u00f3ralista <em>Sight &amp; Sound<\/em> s\u00f6mu \u00e1r. \u00c1ri\u00f0 2012 f\u00e6rist h\u00fan ne\u00f0ar \u00e1 b\u00e1\u00f0um listum en var \u00fe\u00e1 samt ofarlega sem og 2022.<\/p>\n<p>\u00b3 RKO b\u00f3kstaflega ey\u00f0ilag\u00f0i filmurnar sem hef\u00f0u gert \u00fea\u00f0 m\u00f6gulegt a\u00f0 endurskapa upprunlegu \u00fatg\u00e1fu Orson Welles af <em>The Magnificent Ambersons<\/em> og bj\u00f3 til sinn eigin. \u00dea\u00f0 er ekki eina d\u00e6mi\u00f0 um sl\u00edk skemmdarverk sem oft voru bara til \u00feess a\u00f0 s\u00fdna leikstj\u00f3rum a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u engin v\u00f6ld. Au\u00f0vita\u00f0 er algengara a\u00f0 efni hafi glatast af vanr\u00e6kslu e\u00f0a af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 vanta\u00f0i geymslupl\u00e1ss.<\/p>\n<p>\u00c9g var a\u00f0 lesa a\u00f0 eitthva\u00f0 gervigreindarfyrirt\u00e6ki \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 endurgera endinn \u00e1 <em>The Magnificent Ambersons<\/em> \u00ed takt vi\u00f0 fyrir\u00e6tlanir Welles. \u00dea\u00f0 er vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slega hugmynd og til merkis um \u00feann \u00f3ge\u00f0fellda hroka sem fylgir t\u00e6knibransanum almennt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd Kvikmyndahandb\u00f3k Halliwell\u00b9 er v\u00edsa\u00f0 \u00ed topplista t\u00edmaritsins Sight &amp; Sound fr\u00e1 1952, &#8217;62, &#8217;72 og &#8217;82. \u00c1 elsta listanum eru Hj\u00f3lrei\u00f0a\u00fej\u00f3farnir efstir en \u00e1 \u00feeim \u00feremur sem \u00e1 eftir fylgja er \u00fea\u00f0 Citizen Kane sem tr\u00f3nir \u00e1 toppnum\u00b2. \u00dea\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 myndin lenti \u00e1 &#8222;\u00fearf a\u00f0 finna og horfa&#8220; listanum m\u00ednum. \u00dea\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/09\/06\/citizen-kane-1941\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Citizen Kane (1941) \u2605\u2605\u2605\u2605\u2605\ud83d\udc4d\ud83d\udc4d\ud83d\udd96<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":24591,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[30],"tags":[2113,1561,2108,2109,2112,2111,500,1542,412,413,1415,2110,2114,2116,2115],"class_list":["post-24590","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kvikmyndir","tag-q507162","tag-q296804","tag-q24815","tag-q166000","tag-q956533","tag-q315734","tag-kvikmyndaahorf-2025","tag-q172837","tag-q731195","tag-q5222211","tag-q1820792","tag-q24829","tag-q436910","tag-q1546271","tag-q628664"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24590","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=24590"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24590\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":24595,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/24590\/revisions\/24595"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media\/24591"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=24590"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=24590"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=24590"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}