{"id":25357,"date":"2026-04-19T08:23:47","date_gmt":"2026-04-19T08:23:47","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=25357"},"modified":"2026-04-19T08:23:47","modified_gmt":"2026-04-19T08:23:47","slug":"project-hail-mary-2026","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2026\/04\/19\/project-hail-mary-2026\/","title":{"rendered":"Project Hail Mary (2026) \u2605\u2605\u2605\u2605\u2bea\ud83d\udc4d\ud83d\udc4d"},"content":{"rendered":"<p><!-- obsidian --><\/p>\n<p><!-- obsidian --><\/p>\n<p>Hvers vegna a\u00f0 senda v\u00edsindakennara til a\u00f0 bjarga heiminum?<\/p>\n<p>Ryland Grace er \u00f6\u00f0ruv\u00edsi s\u00f6guhetja. Baksaga hans er a\u00f0 hann reyndi a\u00f0 f\u00f3ta sig innan v\u00edsindaheimsins sem sameindal\u00edffr\u00e6\u00f0ingur en \u00fer\u00e1tt fyrir inns\u00e6i og hugmyndaau\u00f0gi var\u00f0 pers\u00f3nuleiki hans til \u00feess a\u00f0 ferill hans brotlenti. Hann vir\u00f0ist hafa fundi\u00f0 k\u00f6llun s\u00edna sem kennari sem kynnir nemendum s\u00ednum fyrir leyndard\u00f3mum alheimsins \u00e1 skemmtilegan h\u00e1tt.<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0an er Grace \u00f3v\u00e6nt kalla\u00f0ur til a\u00f0 bjarga heiminum.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 hann s\u00e9 oft gla\u00f0lyndur \u00ed gegnum <em>Project Hail Mary<\/em> er auglj\u00f3slega dj\u00fap sorg \u00ed Grace. Hann felur sig \u00e1 bak vi\u00f0 \u00feessa gr\u00edmu og for\u00f0ast af \u00f6llu afli a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 hlutverk sitt og \u00f6rl\u00f6g.<\/p>\n<p><em>Project Hail Mary<\/em> er \u00e1 vissan h\u00e1tt arftaki Amblin-mynda n\u00edunda \u00e1ratugarins. H\u00fan er sums\u00e9 meira <em>Innerspace<\/em> en <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/03\/18\/interstellar-2014\/\"><em>Interstellar<\/em><\/a> (sem betur fer). Vi\u00f0 h\u00f6fum fengi\u00f0 nokkrar sl\u00edkar \u00ed seinni t\u00ed\u00f0. <em>Super 8<\/em>, <em>Attack the Block<\/em> og au\u00f0vita\u00f0 <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/12\/12\/dust-bunny-2025\/\"><em>Dust Bunny<\/em><\/a>. \u00deetta er mynd almennt \u00e6tlu\u00f0 yngra f\u00f3lki en fullor\u00f0i\u00f0 f\u00f3lk vir\u00f0ist almennt nj\u00f3ta hennar l\u00edka.<\/p>\n<p>Leikstj\u00f3rar <em>Project Hail Mary<\/em> eru Christpher Miller og Phil Lord. Ferill \u00feeirra f\u00f3r \u00e1 fullt me\u00f0 <em>Cloudy With a Chance of Meatballs<\/em> en \u00feeir ur\u00f0u stj\u00f6rnur fyrir a\u00f0 taka einhverja kj\u00e1nalegustu hugmynd allra t\u00edma, Leg\u00f3mynd, og b\u00faa til fr\u00e1b\u00e6ra kvikmynd \u00far henni.<\/p>\n<p>Miller og Lord \u00e1ttu s\u00ed\u00f0an a\u00f0 gera <em>Star Wars<\/em> myndina <em>Solo<\/em> en einhvern veginn fannst Disney \u00fea\u00f0 ekki ganga upp og Ron Howard var fenginn til a\u00f0 &#8222;bjarga&#8220; m\u00e1lunum. Miki\u00f0 hef\u00f0i \u00e9g vilja\u00f0 a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u fengi\u00f0 a\u00f0 kl\u00e1ra s\u00edna \u00fatg\u00e1fu. Toppurinn er samt l\u00edklega a\u00f0 \u00feeir hafa skrifa\u00f0 og framleitt, sundur og saman, Spider Verse-myndirnar.<\/p>\n<p>\u00c9g m\u00e1 reyndar til me\u00f0 a\u00f0 nefna a\u00f0 Lord og Miller stigu s\u00edn fyrstu skref me\u00f0 sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e1ttunum <em>Clone High<\/em> undir handlei\u00f0slu Bill Lawrence (<em>Scrubs<\/em> og <em>Ted Lasso<\/em>).<\/p>\n<p>S\u00f6guhetja <em>Project Hail Mary<\/em> er \u00ed h\u00f6ndum Ryan Gosling og Sandra H\u00fcller (<a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2025\/10\/23\/anatomie-dune-chute-2023\/\"><em>Anatomie d&#8217;une chute<\/em><\/a>) er l\u00edklega n\u00e6st mest \u00e1 tjaldinu. James Ortiz er s\u00ed\u00f0an bjargi\u00f0 sem myndin treystir \u00e1.<\/p>\n<p>V\u00edsindi leika au\u00f0vita\u00f0 lykilhlutverk \u00ed <em>Project Hail Mary<\/em>. \u00dea\u00f0 er ekki kafa\u00f0 \u00ed sm\u00e1atri\u00f0i og l\u00edklega er \u00fdmislegt sem ekki gengur alveg upp. \u00dea\u00f0 eru samt \u00f3tal skemmtilegar hugmyndir \u00ed gangi og \u00fea\u00f0 er ekki \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 \u00e9g lesi b\u00f3kina (eftir Andy Weir) vi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem skiptir mestu m\u00e1li er a\u00f0 <em>Project Hail Mary<\/em> er j\u00e1kv\u00e6\u00f0 \u00ed gar\u00f0 v\u00edsinda. \u00dea\u00f0 er ekki sj\u00e1lfgefi\u00f0 \u00e1 t\u00edmum \u00fear sem vi\u00f0 sj\u00e1um endalausar \u00e1r\u00e1sir \u00e1 f\u00f3lk og stofnanir innan \u00feessa heims.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 gaurar eins og Elon Musk kalli eftir meira af svalri t\u00e6kni og v\u00edsindum \u00ed v\u00edsindask\u00e1ldskap \u00fe\u00e1 hefur \u00fea\u00f0 sjaldnast veri\u00f0 mikilv\u00e6gasta hlutverk \u00feessarar b\u00f3kmenntagreinar (\u00ed v\u00ed\u00f0um skilningi \u00feess or\u00f0s). \u00deetta eru b\u00e6kur, sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6ttir og kvikmyndir sem setja mikilv\u00e6g m\u00e1lefni \u00ed n\u00fdjan b\u00faning til \u00feess a\u00f0 varpa n\u00fdju lj\u00f3si \u00e1 \u00feau.<\/p>\n<p>Undir ni\u00f0ri fjallar <em>Project Hail Mary<\/em> um loftslagsbreytingar af mannav\u00f6ldum.<\/p>\n<p>Spurningin sem \u00e9g tel a\u00f0 myndi vekji er: Af hverju erum vi\u00f0 ekki a\u00f0 berjast gegn loftslagsbreytingum af fullu afli \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vi\u00f0 vitum n\u00e1kv\u00e6mlega hva\u00f0 vi\u00f0 \u00e6ttum a\u00f0 vera gera? Vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 flj\u00faga \u00fat \u00ed geim til a\u00f0 minnka m\u00f6gulegan ska\u00f0a, vi\u00f0 \u00feurfum bara a\u00f0 framkv\u00e6ma hi\u00f0 auglj\u00f3sa og f\u00e6ra f\u00f3rnir sem eru l\u00edtilv\u00e6gar \u00ed st\u00f3ra samhenginu.<\/p>\n<p>N\u00fana \u00fearf \u00e9g a\u00f0 fara a\u00f0eins inn \u00e1 h\u00f6skuldasv\u00e6\u00f0i\u00f0. Ekki s\u00e9rstaklega alvarlegt en ef \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 lesi\u00f0 eitthva\u00f0 af d\u00f3mum m\u00ednum \u00fe\u00e1 viti\u00f0 \u00fei\u00f0 hvernig \u00e9g er.<\/p>\n<hr \/>\n<p>\u00deegar \u00e1 l\u00ed\u00f0ur myndina f\u00e1um vi\u00f0, \u00f3v\u00e6nt ef vi\u00f0 for\u00f0umst h\u00f6skulda, n\u00fdja pers\u00f3nu.\u00b9 \u00dea\u00f0 er Rocky, geimvera sem er a\u00f0 reyna a\u00f0 bjarga eigin heimi \u00e1 sama h\u00e1tt og Grace \u00e6tlar a\u00f0 bjarga okkar heimi. Rocky er andlitslaus k\u00edsill\u00edfvera (eins og tr\u00f6llin \u00ed Discworld).<\/p>\n<p>Afreki\u00f0 \u00ed h\u00f6nnuninni \u00e1 Rocky er a\u00f0 hann er andlitslaus. \u00dea\u00f0 a\u00f0 vekja samkennd hj\u00e1 \u00e1horfendum me\u00f0 sl\u00edkri veru er magna\u00f0. Au\u00f0vita\u00f0 reyndi \u00e9g, eins og \u00f6rugglega flestir \u00e1horfendur, a\u00f0 reyna a\u00f0 sj\u00e1 andlit \u00far berginu en \u00fea\u00f0 er ekki til sta\u00f0ar.<\/p>\n<p>L\u00edklega skiptir h\u00f6fu\u00f0m\u00e1li a\u00f0 Rocky er um \u00fea\u00f0 bil jafn oft br\u00fa\u00f0a og hann er t\u00f6lvum\u00f3del. \u00c9g held a\u00f0 \u00feetta skipti miklu \u00feegar Grace reynir a\u00f0 eiga \u00ed samskiptum vi\u00f0 \u00feessa veru. Sambandi\u00f0 hef\u00f0i \u00f6rugglega ekki veri\u00f0 jafn mannlegt af Gosling hef\u00f0i ekki s\u00e9\u00f0 f\u00e9laga sinn.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er reyndar oft gagnr\u00fdnt hve flj\u00f3tt \u00feessir vinir n\u00e1 a\u00f0 gera sig skiljanlega. Sj\u00e1lfur er \u00e9g \u00e1 a\u00f0 Rocky beri mesta \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed enda b\u00fdr hann yfir \u00f3jar\u00f0neskri t\u00e6kni. A\u00f0allega er \u00e9g \u00fe\u00f3 sannf\u00e6r\u00f0ur um a\u00f0 <em>Project Hail Mary<\/em> hef\u00f0i ekki veri\u00f0 betri ef vi\u00f0 hef\u00f0um eytt meiri t\u00edma \u00ed \u00feennan \u00fe\u00e1tt myndarinnar.<\/p>\n<p>\u00deetta vinasamband er au\u00f0vita\u00f0 grunnur <em>Project Hail Mary<\/em> en stundum fannst m\u00e9r brandararnir \u00ed samspili \u00feeirra full \u00f3d\u00fdrir. Aftur \u00e1 m\u00f3ti fannst m\u00e9r brandarinn me\u00f0 &#8222;John Williams-laginu&#8220; \u00f3tr\u00falega skemmtilegur \u00fe\u00f3 enginn annar \u00ed salnum virtist fatta hva\u00f0 var \u00ed gangi. Spielberg \u00e1tti v\u00edst \u00feessa hugmynd.<\/p>\n<p>Maltin er almennt h\u00e6ttur stj\u00f6rnugj\u00f6fum en fannst Gosling g\u00f3\u00f0ur en myndin of l\u00f6ng.<\/p>\n<p>\u00d3li gefur \u2605\u2605\u2605\u2605\u2bea\ud83d\udc4d\ud83d\udc4d<\/p>\n<p>\u00b9 \u00c9g var reyndar h\u00f6skulda\u00f0ur af \u00fer\u00edv\u00edddarm\u00f3deli af Rocky.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvers vegna a\u00f0 senda v\u00edsindakennara til a\u00f0 bjarga heiminum? Ryland Grace er \u00f6\u00f0ruv\u00edsi s\u00f6guhetja. Baksaga hans er a\u00f0 hann reyndi a\u00f0 f\u00f3ta sig innan v\u00edsindaheimsins sem sameindal\u00edffr\u00e6\u00f0ingur en \u00fer\u00e1tt fyrir inns\u00e6i og hugmyndaau\u00f0gi var\u00f0 pers\u00f3nuleiki hans til \u00feess a\u00f0 ferill hans brotlenti. Hann vir\u00f0ist hafa fundi\u00f0 k\u00f6llun s\u00edna sem kennari sem kynnir nemendum s\u00ednum fyrir &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2026\/04\/19\/project-hail-mary-2026\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Project Hail Mary (2026) \u2605\u2605\u2605\u2605\u2bea\ud83d\udc4d\ud83d\udc4d<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[30],"tags":[1605,2875,1741,786,2601,1486,2647,2870,2871,778,1426,1888],"class_list":["post-25357","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-kvikmyndir","tag-q457893","tag-q18590295","tag-q757865","tag-bioferdir","tag-q121572303","tag-q131285","tag-kvikmyndaahorf-2026","tag-q107105860","tag-ryan-gosling","tag-q485668","tag-q8877","tag-q379877"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/25357","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=25357"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/25357\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":25364,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/25357\/revisions\/25364"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=25357"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=25357"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=25357"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}