{"id":2746,"date":"2006-07-02T15:26:45","date_gmt":"2006-07-02T15:26:45","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2006\/07\/02\/sertruarsofnudur-truleysingja\/"},"modified":"2019-01-03T20:44:25","modified_gmt":"2019-01-03T20:44:25","slug":"sertruarsofnudur-truleysingja","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2006\/07\/02\/sertruarsofnudur-truleysingja\/","title":{"rendered":"&#8222;S\u00e9rtr\u00faars\u00f6fnu\u00f0ur tr\u00faleysingja&#8220;"},"content":{"rendered":"<p>M\u00e9r lei\u00f0ist og \u00e6tla \u00fev\u00ed a\u00f0 taka fyrir greinina sem var skrifu\u00f0 um Vantr\u00fa um daginn \u00e1 <a href=\"https:\/\/web.archive.org\/web\/20060719084053\/http:\/\/ihald.is:80\/roller\/comments\/ihald\/Weblog\/sertruarsofnudur_truleysingja\">\u00cdhald.is<\/a>.  Lalli var \u00feegar b\u00fainn a\u00f0 <a href=\"http:\/\/www.kommunan.is\/larus\/safn\/2006\/06\/sertruarsoefnuu.html\">skrifa a\u00f0eins um \u00feetta<\/a>.\n<\/p>\n<p>\u00c9g l\u00e6t vera a\u00f0 skrifa [sic] fyrir aftan allar stafsetningar- og m\u00e1lfarsvillur (e\u00f0a innsl\u00e1ttarvillur ef \u00e9g \u00e1 a\u00f0 vera \u00f6rl\u00e1tur) \u00ed upprunalegu greininni, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri bara of mikil vinna.\n<\/p>\n<blockquote><p>Tr\u00faleysingjar \u00e1 \u00cdslandi hafa safnast nokkrir saman \u00ed h\u00f3p og stofna\u00f0 vefs\u00ed\u00f0u, <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/\">www.vantru.is<\/a>. \u00deetta ger\u00f0ist n\u00fa reyndar ekki \u00ed g\u00e6r \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 er svo sem engar fr\u00e9ttir \u00fe\u00f3 a\u00f0 nokkrir ungir drengir stofni s\u00ed\u00f0u sem fjallar um a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 ekki neitt.<\/p><\/blockquote>\n<p>Akk\u00farat.  Fyrsta tilraunin til \u00e1r\u00e1sar er a\u00f0 gefa \u00ed skyn a\u00f0 Vantr\u00faarmenn s\u00e9u einhverjir krakkar.  \u00c9g er yngstur \u00feeirra sem kom a\u00f0 stofnun Vantr\u00faar og er \u00e1rinu eldri en G\u00edsli Freyr Vald\u00f3rsson sem skrifa\u00f0i \u00feessa grein \u00e1 \u00cdhald.  En vi\u00f0 erum \u00fe\u00f3 k\u00e1tir og ungir \u00ed anda sem g\u00e6ti rugla\u00f0 f\u00f3lk.\n<\/p>\n<blockquote><p>N\u00fa var ma\u00f0ur h\u00e9r \u00e1 landi s\u00ed\u00f0ustu helgi a\u00f0 halda r\u00e1\u00f0stefnu um a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 ekki neitt.<\/p><\/blockquote>\n<p>Nei, \u00fea\u00f0 var h\u00e9r haldinn r\u00e1\u00f0stefna sem h\u00e9t J\u00e1kv\u00e6\u00f0ar raddir tr\u00faleysis.  Enginn af \u00feeim fj\u00f6lm\u00f6rgu erlendum gestum sem komu \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnuna &#8222;h\u00e9lt&#8220; hana.\n<\/p>\n<blockquote><p>\u00dea\u00f0 er einnig athyglisvert a\u00f0 sko\u00f0a ,,commentin\u201d sem koma \u00e1 eftir greinunum. \u00deau eru a\u00f0allega fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum pennum s\u00ed\u00f0unnar a\u00f0 segja hvor \u00f6\u00f0rum hversu g\u00f3\u00f0ar greinarnar \u00feeirra eru, hversu samm\u00e1la \u00feeir s\u00e9u og hva\u00f0 allir \u00ed heiminum s\u00e9u miklir f\u00e1v&#8230;., \u00fe\u00f3 s\u00e9rstaklega nafngreindir tr\u00faa\u00f0ir menn \u00e1 \u00cdslandi.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er auglj\u00f3slega helber vitleysa.  Vissulega kemur fyrir a\u00f0 vi\u00f0 hr\u00f3sum hver \u00f6\u00f0rum fyrir g\u00f3\u00f0ar greinar en \u00fea\u00f0 er bara \u00f6rl\u00edtill hluti af athugasemdum okkar (og hvers vegna notar G\u00edsli or\u00f0i\u00f0 &#8222;comment&#8220;? Vi\u00f0 gerum \u00fea\u00f0 ekki).  \u00dea\u00f0 er hins vegar bara lygi a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 kalla tr\u00famenn upp til h\u00f3pa f\u00e1vita.  \u00dea\u00f0 a\u00f0 einhver tr\u00fai \u00e1 gu\u00f0 e\u00f0a eitthva\u00f0 anna\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki a\u00f0 hann s\u00e9 f\u00e1viti og vi\u00f0 myndum aldrei halda \u00fev\u00ed fram.\n<\/p>\n<blockquote><p>N\u00fa er \u00edhald.is ekki s\u00ed\u00f0a um tr\u00fam\u00e1l. \u00dea\u00f0 er ekki tilgangur s\u00ed\u00f0unnar a\u00f0 sanna tilveru Gu\u00f0s, sonar Hans, n\u00e9 hins Heilaga Anda. Hins vegar vakti \u00fea\u00f0 athygli m\u00edna hvernig \u00feessi f\u00e1menni h\u00f3pur talar um alla sem telja sig hafa upplifa\u00f0 eitthva\u00f0 \u00e6\u00f0ra okkar mannlega skilningi, \u00fe.e.a.s. tr\u00faa \u00e1 eitthva\u00f0 \u00e6\u00f0ra m\u00e1ttarvald.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00cdhaldi\u00f0 hefur n\u00fa brennt sig \u00e1 a\u00f0 tj\u00e1 sig um tr\u00fam\u00e1l.  Til a\u00f0 mynda var <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2006\/05\/22\/07.30\/\">Hj\u00f6rtur J. Gu\u00f0mundsson rassskelltur af Vantr\u00fa fyrir bj\u00e1nalega grein s\u00edna um \u00fer\u00f3unarkenninguna<\/a> fyrir nokkru.  Hann haf\u00f0i n\u00fa vit \u00e1 a\u00f0 \u00feegja bara og svara Vantr\u00faargreininni ekki enda hef\u00f0i sl\u00edkt bara \u00fe\u00fdtt a\u00f0 Hj\u00f6rtur hef\u00f0i aftur veri\u00f0 rassskelltur.\n<\/p>\n<blockquote><p>\u00deessi fyrrgreindi ma\u00f0ur heitir Richard Dawkins og er v\u00edst einhver fr\u00e6gur tr\u00faleysingi.<\/p><\/blockquote>\n<p>Richard Dawkins er fr\u00e6gur \u00fer\u00f3unarl\u00edffr\u00e6\u00f0ingur og var\u00f0 fyrst og fremst \u00feekktur fyrir skrif s\u00edn um \u00feau m\u00e1lefni.  N\u00fa eru \u00cdhaldsmenn ekki vel a\u00f0 s\u00e9r \u00ed \u00fer\u00f3unarkenningunni \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 kemur ekki \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 \u00feeir \u00feekki ekki Dawkins.\n<\/p>\n<blockquote><p>\u00cd vi\u00f0tali \u00ed Kastlj\u00f3si beitir Dawkins \u00fev\u00ed helst fyrir s\u00e9r a\u00f0 \u00feeir sem tr\u00faa \u00e1 eitthva\u00f0 hugsi ekki. \u00deeir sem \u00e1 eitthva\u00f0 tr\u00faa hugsi ekki sj\u00e1lfst\u00e6tt og jafnvel ekki neitt. Svipa\u00f0ar r\u00f6ksemdir eru haf\u00f0ar uppi \u00e1 vantr\u00faars\u00ed\u00f0unni \u2013 \u00fea\u00f0 eru sem sagt allir h\u00e1lfvitar nema Richard Dawkins og nokkrir str\u00e1kar \u00e1 \u00cdslandi. Allir \u00feeir hundru\u00f0i millj\u00f3na ef ekki milljar\u00f0a af f\u00f3lki sem tr\u00fair \u00e1 eitthva\u00f0 \u00e6\u00f0ra \u00fev\u00ed sj\u00e1lfu og \u00fev\u00ed sem vi\u00f0 sj\u00e1um \u00ed kringum okkur hugsar ekki sj\u00e1lfst\u00e6tt. Miki\u00f0 er n\u00fa gott a\u00f0 Dr. Dawkins kom til a\u00f0 uppl\u00fdsa okkur um \u00fea\u00f0.<\/p><\/blockquote>\n<p>Enn og aftur \u00fe\u00e1 er \u00feetta bara ekki satt.  Dawkins hefur aldrei sagt a\u00f0 tr\u00famenn hugsi ekki.  \u00deetta er bara \u00f3d\u00fdr brella hj\u00e1 \u00cdhaldsmanninum til \u00feess a\u00f0 reyna a\u00f0 vekja and\u00fa\u00f0 lesandans \u00e1 Dawkins a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0ulausu.  \u00dea\u00f0 er l\u00edka lygi a\u00f0 Dawkins haldi \u00fev\u00ed fram a\u00f0 allir sem tr\u00fai s\u00e9u h\u00e1lfvitar.  Getur \u00cdhaldsma\u00f0urinn ekki fari\u00f0 r\u00e9tt me\u00f0 neinar sta\u00f0reyndir?<\/p>\n<blockquote><p>En Dawkins (sem er v\u00edsindama\u00f0ur eins og hann t\u00f3k nokkrum sinnum fram \u00ed vi\u00f0talinu) telur f\u00f3lk vera afvegaleitt \u00feegar \u00fea\u00f0 s\u00e6kir kirkju. Or\u00f0r\u00e9tt segir hann augl\u00fdsingar kirknanna <em>,,g\u00e6\u00f0a tr\u00fana spennu fyrir tregg\u00e1fa\u00f0 f\u00f3lk.\u201d<\/em> (e.low grade mentality) J\u00e1, \u00fea\u00f0 eru v\u00edst ekki allir jafn g\u00e1fa\u00f0ir og Dawkins og litli vantr\u00faarh\u00f3purinn \u00e1 \u00cdslandi. Hrokinn leynir s\u00e9r ekki \u00ed \u00feessum umm\u00e6lum Dawkins. Mega kirkjur ekki augl\u00fdsa sig? Eiga kirkjur a\u00f0eins a\u00f0 starfa \u00ed leynum og bak vi\u00f0 luktar dyr?<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c9g \u00feori n\u00fa a\u00f0 ve\u00f0ja a\u00f0 Vantr\u00faarh\u00f3purinn er t\u00f6luvert st\u00e6rri en \u00cdhaldsh\u00f3purinn.  \u00de\u00fd\u00f0ingin \u00e1 frasanum low grade mentality er sl\u00f6k og \u00fear \u00e1 G\u00edsli ekki s\u00f6k \u00e1 heldur treystir hann \u00e1 l\u00e9lega \u00fe\u00fd\u00f0ingu.  Mentality \u00ed \u00feessu tilfelli \u00fe\u00fd\u00f0ir hugarfar, ekki greind.  Dawkins var semsagt a\u00f0 tala um augl\u00fdsingamennsku \u00e1 l\u00e1gu plani og a\u00f0 tr\u00fa s\u00e9 augl\u00fdst eins og s\u00e1pa.\n<\/p>\n<blockquote><p>Og au\u00f0vita\u00f0 \u00feurfti Dawkins l\u00edka a\u00f0 koma p\u00f3lit\u00edskum sko\u00f0unum s\u00ednum a\u00f0, <em>,,s\u00fa \u00fej\u00f3\u00f0 sem k\u00fds yfir sig George W. Bush er ansi fur\u00f0uleg \u00fej\u00f3\u00f0. Engin \u00f6nnur \u00fej\u00f3\u00f0 \u00ed heiminum hef\u00f0i kosi\u00f0 svo l\u00e9legan kost. Tr\u00faarleg \u00f6fl vir\u00f0ast a\u00f0 mestu leyti hafa \u00e1tt \u00fe\u00e1tt \u00ed kj\u00f6ri hans.\u201d<\/em><\/p><\/blockquote>\n<p>J\u00e1.  F\u00e1ir tr\u00faleysingjar deila a\u00f0d\u00e1un \u00cdhaldsmanna \u00e1 Bush og m\u00f6rg okkar telja a\u00f0 tr\u00faarh\u00f3par hafi haft \u00e1hrif \u00e1 a\u00f0 hann komst til valda.\n<\/p>\n<blockquote><p>En a\u00f0 kalla alla illum n\u00f6fnum sem tr\u00faa \u00e1 eitthva\u00f0 telja sig yfir alla hafna af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir ,,viti betur\u201d og ,,hugsi sj\u00e1lfst\u00e6tt\u201d er ekkert nema hroki. \u00dea\u00f0 eru ekki allir \u00f6fgamenn e\u00f0a ofst\u00e6kismenn \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feeir tr\u00fai \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 manninum \u00e6\u00f0ra.<\/p><\/blockquote>\n<p>Enda kalla hvorki Vantr\u00faarmenn n\u00e9 Dawkins tr\u00famenn \u00f6llum illum n\u00f6fnum n\u00e9 teljum vi\u00f0 okkur yfir a\u00f0ra hafna.  \u00dear a\u00f0 auki k\u00f6llum vi\u00f0 ekki alla tr\u00famenn \u00f6fgamenn e\u00f0a ofst\u00e6kismenn.  \u00deetta er skot \u00fat \u00ed lofti\u00f0 eins og grein G\u00edsla \u00ed heild sinni.\n<\/p>\n<blockquote><p>En talandi um \u00f6fgar og ofst\u00e6ki. \u00c9g held a\u00f0 flestir pennar <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/\">www.vantru.is<\/a> s\u00e9u \u00e1kafari \u00ed \u00e1huga s\u00ednum heldur en flestir kirkjus\u00e6kandi og tr\u00faa\u00f0ir menn \u00e1 \u00cdslandi. En \u00e9g hef n\u00fa ekkert s\u00e9rstakt fyrir m\u00e9r \u00ed \u00fev\u00ed \u00feannig a\u00f0 \u00e9g skal gla\u00f0ur \u00e9ta \u00fea\u00f0 ofan \u00ed mig ef svo er ekki. Reyndar skilst og s\u00fdnist \u00e1 \u00feessari umr\u00e6\u00f0u a\u00f0 ma\u00f0ur \u00feurfi ekki a\u00f0 hafa miki\u00f0 fyrir s\u00e9r \u00ed neinu. Bara segjast hugsa sj\u00e1lfst\u00e6tt.<\/p><\/blockquote>\n<p>Vissulega h\u00f6fum vi\u00f0 \u00e1huga \u00e1 \u00feessum m\u00e1lum en hva\u00f0 um \u00fea\u00f0?  \u00dearf \u00e9g a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta \u00e1hugam\u00e1l m\u00edn fyrir G\u00edsla?  Ef G\u00edsli telur a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi ekki a\u00f0 hafa miki\u00f0 fyrir s\u00e9r til a\u00f0 skrifa \u00e1 Vantr\u00fa \u00fe\u00e1 vil \u00e9g benda \u00e1 a\u00f0 \u00f3l\u00edkt \u00cdhaldss\u00ed\u00f0unni \u00fe\u00e1 leyfum vi\u00f0 hverjum sem er a\u00f0 gagnr\u00fdna sko\u00f0anir okkar \u00ed opnu athugasemdakerfi.  Ef vi\u00f0 h\u00f6fum rangt fyrir okkur \u00fe\u00e1 getur G\u00edsli komi\u00f0 \u00ed heims\u00f3kn og reynt a\u00f0 hrekja m\u00e1lflutning okkar.\n<\/p>\n<blockquote><p>En er l\u00edfi\u00f0 ekki bera skemmtilegra \u00feegar m\u00e1l eins og tr\u00fa, \u00e1stir, listir, menning, n\u00e1tt\u00fara og margt fleira b\u00e6tist vi\u00f0 \u00fea\u00f0?<\/p><\/blockquote>\n<p>Auglj\u00f3slega er bara eitt \u00ed \u00feessu sem Vantr\u00faarmenn vildu klippa \u00fat.  \u00dea\u00f0 a\u00f0 gefa \u00ed skyn a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum eitthva\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti \u00e1st, listum, menningu og n\u00e1tt\u00farunni er bara f\u00e1r\u00e1nlegt og erfitt a\u00f0 skilja hva\u00f0 G\u00edsli er a\u00f0 fara me\u00f0 \u00feessu.\n<\/p>\n<p>Semsagt, lygar, \u00fat\u00farsn\u00faningar og helbert kjaft\u00e6\u00f0i.\n<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er kannski best a\u00f0 benda um lei\u00f0 \u00e1 tveggja \u00e1ra gamla Vantr\u00faargrein: <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2004\/03\/21\/00.03\/\">\u00dei\u00f0 eru\u00f0 ekki f\u00edfl<\/a>.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>M\u00e9r lei\u00f0ist og \u00e6tla \u00fev\u00ed a\u00f0 taka fyrir greinina sem var skrifu\u00f0 um Vantr\u00fa um daginn \u00e1 \u00cdhald.is. Lalli var \u00feegar b\u00fainn a\u00f0 skrifa a\u00f0eins um \u00feetta. \u00c9g l\u00e6t vera a\u00f0 skrifa [sic] fyrir aftan allar stafsetningar- og m\u00e1lfarsvillur (e\u00f0a innsl\u00e1ttarvillur ef \u00e9g \u00e1 a\u00f0 vera \u00f6rl\u00e1tur) \u00ed upprunalegu greininni, \u00fea\u00f0 v\u00e6ri bara of mikil &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2006\/07\/02\/sertruarsofnudur-truleysingja\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">&#8222;S\u00e9rtr\u00faars\u00f6fnu\u00f0ur tr\u00faleysingja&#8220;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[68],"tags":[],"class_list":["post-2746","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-tru"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2746","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2746"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2746\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":16751,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2746\/revisions\/16751"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2746"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2746"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2746"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}