{"id":4381,"date":"2008-06-21T17:58:18","date_gmt":"2008-06-21T17:58:18","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=4381"},"modified":"2024-04-25T10:41:40","modified_gmt":"2024-04-25T10:41:40","slug":"franskar-eda-hrisgrjon-er-folsk-klemma","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2008\/06\/21\/franskar-eda-hrisgrjon-er-folsk-klemma\/","title":{"rendered":"Franskar e\u00f0a hr\u00edsgrj\u00f3n er f\u00f6lsk klemma"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var \u00e9g frekar \u00fereyttur og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 fara ekki \u00ed fer\u00f0ina til Donnegal sem var \u00ed dag. Reyndar l\u00edka af \u00fev\u00ed a\u00f0 J\u00fal\u00edana haf\u00f0i ekki fengi\u00f0 mi\u00f0a. \u00c9g vakna\u00f0i snemma til a\u00f0 reyna a\u00f0 selja mi\u00f0ann minn en \u00fea\u00f0 gekk ekki. \u00c9g reyndi a\u00f0 selja Ungverja \u00feetta \u00e1 h\u00e1lfvir\u00f0i en \u00fea\u00f0 f\u00f3r fyrir l\u00edti\u00f0 \u00feegar h\u00fan f\u00e9kk hvorte\u00f0er a\u00f0 fara af \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e6ti\u00f0 mitt var laust. \u00c9g hef\u00f0i geta\u00f0 veri\u00f0 f\u00edfl og sagt a\u00f0 h\u00fan m\u00e6tti ekki f\u00e1 s\u00e6ti\u00f0 mitt en \u00e9g er bara ekki \u00feannig innr\u00e6ttur. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i samt veri\u00f0 gott fyrir veski\u00f0.\n<\/p>\n<p>\u00c9g f\u00f3r \u00fe\u00e1 aftur heim a\u00f0 sofa. \u00dea\u00f0 gekk illa og um ellefu leyti\u00f0 f\u00f3r brunakerfi\u00f0 af sta\u00f0. \u00cdtreka\u00f0. \u00c9g f\u00f3r fram og m\u00e9r var sagt a\u00f0 hafa ekki \u00e1hyggjur, \u00feetta v\u00e6ri bara \u00e6fing. \u00c9g gafst upp \u00e1 svefni. Hringdi \u00ed J\u00fal\u00ed\u00f6nu og vi\u00f0 endu\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 r\u00f6lta ni\u00f0ur \u00ed b\u00e6. \u00dear hittum vi\u00f0 engan en komumst yfir \u00ed Bogside aftur og sko\u00f0u\u00f0um d\u00fdpra. Veggmynd sem \u00e9g h\u00e9lt a\u00f0 v\u00e6ri \u00ed vi\u00f0ger\u00f0 \u00feegar \u00e9g f\u00f3r \u00fearna s\u00ed\u00f0ast um var greinilega bara veri\u00f0 a\u00f0 m\u00e1la og tilb\u00fain \u00feegar vi\u00f0 komum \u00fearna. \u00dearna voru M\u00f3\u00f0ir Teresa, Mandela, Martin Luther King og happadr\u00e6ttisdragarinn John Hume. S\u00fart ma\u00f0ur. Vi\u00f0 komum \u00fearna vi\u00f0 \u00ed b\u00fa\u00f0 til a\u00f0 kaupa batter\u00ed en fengum \u00f3venju hei\u00f0arlega konu sem sag\u00f0i a\u00f0 Panasonic v\u00e6ri rubbish og vi\u00f0 \u00e6ttum bara a\u00f0 fara \u00ed n\u00e6stu sjoppu. B\u00fa\u00f0 hei\u00f0arlegu konunnar virtist reyndar selja a\u00f0allega eldivi\u00f0.\n<\/p>\n<p>\u00c9g lenti \u00ed pirringi \u00feegar \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 taka inn greinina m\u00edna sem Terry haf\u00f0i yfirfari\u00f0. \u00c9g \u00feurfti a\u00f0 fara fram og til baka af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i gleymt minnislyklinum\/mp3 spilaranum. J\u00e1, hann kom semsagt \u00ed leitirnar \u00ed g\u00e6r eftir fyrirlesturinn. \u00c9g k\u00edkti a\u00f0eins \u00e1 athugasemdir Terrys og sofna\u00f0i s\u00ed\u00f0an a\u00f0eins en um sexleyti\u00f0 hringdi J\u00fal\u00edana \u00ed mig og sag\u00f0i a\u00f0 h\u00fan og Kristinn v\u00e6ru \u00e1 kr\u00e1 ni\u00f0r\u00ed \u00ed b\u00e6.\n<\/p>\n<p>\u00c9g hoppa\u00f0i og skoppa\u00f0i af sta\u00f0, vonlaus um a\u00f0 sofna en vong\u00f3\u00f0ur um mat. Einhvern vegin enda\u00f0i \u00feetta me\u00f0 \u00fev\u00ed vi\u00f0 eyddum fleiri klukkut\u00edmum \u00ed a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3tbolta me\u00f0 Neil og Gary \u00e1 The Claredon. \u00c9g f\u00e9kk Kristinn me\u00f0 m\u00e9r \u00ed plott um a\u00f0 \u00feykjast vera Kr\u00f3atar \u00ed von um a\u00f0 f\u00e1 \u00f3keypis \u00ed glas. Vi\u00f0 \u00f6skru\u00f0um \u00e1 sj\u00f3nvarpi\u00f0 \u00e1 \u00edslensku og \u00feegar Kr\u00f3at\u00eda skora\u00f0i a\u00f0 \u00fev\u00ed er virtist sigurmarki\u00f0 \u00ed framlengingu sungum vi\u00f0 saman \u00cdsland \u00f6grum skori\u00f0. En vi\u00f0 fengum engin bo\u00f0 um drykki og Tyrkir skoru\u00f0u s\u00ed\u00f0an og ey\u00f0il\u00f6g\u00f0u kv\u00f6ldi\u00f0 fyrir okkur Kr\u00f3\u00f6tum \u00ed v\u00edtaspyrnukeppni.\n<\/p>\n<p>Vi\u00f0 skyldum vi\u00f0 Neil um ellefuleyti\u00f0 og f\u00f3rum fj\u00f6gur a\u00f0 f\u00e1 okkur a\u00f0 bor\u00f0a. \u00dea\u00f0 er l\u00edti\u00f0 \u00farval \u00e1 \u00feessum t\u00edma kv\u00f6lds \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 keyptum okkur \u00e1kaflega undarlegan mat. \u00c9g f\u00e9kk Chicken balls sem reyndist vera dj\u00fapsteiktur kj\u00faklingur me\u00f0 br\u00fans\u00f3su, fr\u00f6nskum og hr\u00edsgrj\u00f3num. \u00dea\u00f0 er greinilega f\u00f6lsk klemma \u00feegar ma\u00f0ur er l\u00e1tinn velja milli franskra kartaflna og hr\u00edsgrj\u00f3na sem me\u00f0l\u00e6ti \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 hr\u00faga \u00feessu \u00f6llu \u00ed frau\u00f0plastsbox. Undarlegast var hve vel \u00feetta smakka\u00f0ist \u00fear sem vi\u00f0 s\u00e1tum \u00e1 bekk \u00fat \u00e1 torgi \u00ed Derry.\n<\/p>\n<p>Vi\u00f0 hoppu\u00f0um s\u00ed\u00f0an inn \u00e1 n\u00e6stu kr\u00e1 sem var safna\u00f0i greinilega f\u00e1num og t\u00e1knum undiroka\u00f0ra \u00fej\u00f3\u00f0a. Mesta athygli vakti s\u00e6nski f\u00e1ninn sem \u00e9g sag\u00f0i a\u00f0 hlyti a\u00f0 vera f\u00e1ni Hjaltlandseyja e\u00f0a eitthva\u00f0. En \u00fearna voru semsagt Terry og fr\u00fa \u00e1samt d\u00f3ttur sinni. \u00dearna var h\u00e1v\u00e6r t\u00f3nlist og vi\u00f0 spj\u00f6llu\u00f0um frameftir. Valdimar kom l\u00edka. \u00deegar vi\u00f0 f\u00f3rum loksins, \u00e9g, Valdimar, J\u00fal\u00edana, Kristinn og Gary, \u00fe\u00e1 komu Derrymenn og bu\u00f0u okkur \u00ed part\u00ed. Af einhverjum dularfullum \u00e1st\u00e6\u00f0um \u00fe\u00e1\u00f0i Kristinn \u00feetta bo\u00f0 fyrir okkar h\u00f6nd og \u00fea\u00f0 var nokku\u00f0 erfitt a\u00f0 reyna s\u00ed\u00f0an a\u00f0 koma m\u00f6nnunum \u00ed skilning um a\u00f0 vi\u00f0 v\u00e6rum \u00ed raun \u00e1 heimlei\u00f0. \u00deetta enda\u00f0i me\u00f0 a\u00f0 Gary og Kristinn f\u00f3rnu\u00f0u s\u00e9r fyrir okkur sem \u00feurftum a\u00f0 vakna fyrr. \u00c1 lei\u00f0inni heim f\u00f3rum vi\u00f0 \u00e1 kebabsta\u00f0 \u00fear sem \u00e9g keypti m\u00e9r mat bara af \u00fev\u00ed \u00e9g vildi kebab. \u00dea\u00f0 var fokkings fr\u00e1b\u00e6rt. Einfalt og gott. \u00c9g hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 bor\u00f0a \u00fearna alla vikuna.\n<\/p>\n<p>En n\u00fana er \u00e9g a\u00f0 mestu b\u00fainn a\u00f0 undirb\u00faa brottf\u00f6r. \u00c9g vakna um sj\u00f6leyti\u00f0 og vi\u00f0 hittumst \u00fati r\u00e9tt eftir \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 gerum r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 Derryflugv\u00f6llur bj\u00f3\u00f0i ekki upp \u00e1 tveggja t\u00edma bi\u00f0 eins og Stansted.\n<\/p>\n<p>\u00dereyttur a\u00f0 vanda klukkan 3:18 a\u00f0 \u00edrskum t\u00edma \u00ed Duncreggan \u00feann 21. j\u00fan\u00ed 2008.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd g\u00e6r var \u00e9g frekar \u00fereyttur og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 fara ekki \u00ed fer\u00f0ina til Donnegal sem var \u00ed dag. Reyndar l\u00edka af \u00fev\u00ed a\u00f0 J\u00fal\u00edana haf\u00f0i ekki fengi\u00f0 mi\u00f0a. \u00c9g vakna\u00f0i snemma til a\u00f0 reyna a\u00f0 selja mi\u00f0ann minn en \u00fea\u00f0 gekk ekki. \u00c9g reyndi a\u00f0 selja Ungverja \u00feetta \u00e1 h\u00e1lfvir\u00f0i en \u00fea\u00f0 f\u00f3r fyrir &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2008\/06\/21\/franskar-eda-hrisgrjon-er-folsk-klemma\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Franskar e\u00f0a hr\u00edsgrj\u00f3n er f\u00f6lsk klemma<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[16],"tags":[273,302,274,114,305,297],"class_list":["post-4381","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-ferdasaga","tag-q163584","tag-derry-2008","tag-irland","tag-matur","tag-skyndibiti","tag-q132116"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4381","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4381"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4381\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":19979,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4381\/revisions\/19979"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4381"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4381"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4381"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}