{"id":639,"date":"2003-11-24T20:48:44","date_gmt":"2003-11-24T20:48:44","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2003\/11\/24\/oli-does-tyr-the-fan\/"},"modified":"2025-02-17T14:11:57","modified_gmt":"2025-02-17T14:11:57","slug":"oli-does-tyr-the-fan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2003\/11\/24\/oli-does-tyr-the-fan\/","title":{"rendered":"\u00d3li does T\u00fdr (The Fan)"},"content":{"rendered":"<p>\u00deetta er saga helgarinnar. <a href=\"http:\/\/www.hi.is\/~olis\/myndir\/2003_1123\/index.htm\">Myndir fr\u00e1 helginni eru h\u00e9r<\/a>, \u00e1 eftir a\u00f0 l\u00e1ta inn fleiri myndir \u00e1 T\u00fdss\u00ed\u00f0una.<\/p>\n<p>\u00c1 f\u00f6studaginn f\u00f3r \u00e9g \u00e1 Grand Rokk me\u00f0 Eygl\u00f3 og Hallgr\u00edmi. \u00deegar vi\u00f0 komum \u00fe\u00e1 var Dark Harvest a\u00f0 spila og \u00feeir voru bara nokku\u00f0 g\u00f3\u00f0ir. \u00c9g s\u00e1 Heri g\u00edtarleikara\/s\u00f6ngvara T\u00fds \u00fearna og heilsa\u00f0i honum, hann mundi eftir m\u00e9r (\u00fataf heimas\u00ed\u00f0unni sem \u00e9g bj\u00f3 til um \u00fe\u00e1 og t\u00f6lvup\u00f3stsamskiptum okkar). Hann kynnti mig fyrir k\u00e6rustunni\/umbo\u00f0smanninum, henni Sigrid. \u00c9g f\u00e9kk \u00fe\u00e1 l\u00edka \u00feessa fr\u00e1b\u00e6ru mynd af okkur saman. \u00c9g n\u00e1\u00f0i hins vegar ekki a\u00f0 koma miklu af viti \u00fat\u00far m\u00e9r \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 spjalla vi\u00f0 hann \u00fe\u00e1, bara svona:&#8220;N\u00fdja platan ykkar er g\u00f3\u00f0, jafnvel betri en s\u00fa fyrri&#8220;.<\/p>\n<p>Freak Kitchen kom s\u00ed\u00f0an \u00e1 svi\u00f0, \u00e9g var b\u00fainn a\u00f0 redda m\u00e9r nokkrum l\u00f6gum me\u00f0 \u00feeim \u00feannig a\u00f0 \u00e9g vissi a\u00f0 \u00feeir voru g\u00f3\u00f0ir, \u00fea\u00f0 var l\u00edka hluti \u00e1horfenda sem var a\u00f0 \u00fearna bara til a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00e1. Matthias s\u00f6ngvari\/g\u00edtarleikari er alveg e\u00f0al showma\u00f0ur og virkilega g\u00f3\u00f0ur t\u00f3nlistarma\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er ekki hver sem er sem spilar \u00e1 g\u00edtar me\u00f0 &#8222;gigantic chinese ass dildo&#8220;. Bj\u00f6rn trommari \u00e1tti afm\u00e6li um kv\u00f6ldi\u00f0 og n\u00e6rri \u00fev\u00ed hvert einasta lag var tileinka\u00f0 honum, Eygl\u00f3 h\u00e9lt reyndar fyrst a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru s\u00edfellt a\u00f0 tileinka Bj\u00f6rk l\u00f6gin \u00fev\u00ed h\u00fan \u00e1tti afm\u00e6li um daginn. \u00dea\u00f0 var reyndar hluti \u00e1horfendanna sem var ekki a\u00f0 f\u00edla Freak Kitchen og vildi f\u00e1 T\u00fd.<\/p>\n<p>Klukkan var l\u00edklega or\u00f0in 2:20 \u00feegar T\u00fdr steig \u00e1 svi\u00f0, \u00ed millit\u00ed\u00f0inni haf\u00f0i h\u00f3purinn framan vi\u00f0 svi\u00f0i\u00f0 alveg gj\u00f6rbreyst og le\u00f0urjakkat\u00f6ffararnir voru farnir. \u00dea\u00f0 fannst m\u00e9r fyndi\u00f0. T\u00fdr var a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 gott en \u00e1horfendurnir hef\u00f0u l\u00edklega vilja\u00f0 f\u00e1 Ormin Langa fyrr, \u00feeir spilu\u00f0u \u00fea\u00f0 sem n\u00e6st s\u00ed\u00f0asta lag (ef \u00e9g man r\u00e9tt). Man \u00fea\u00f0 var einn n\u00e1ungi \u00fearna sem var s\u00edfellt a\u00f0 reyna a\u00f0 segja m\u00e9r eitthva\u00f0 en \u00e9g heyr\u00f0i aldrei nokku\u00f0 \u00ed honum. En dj\u00f6full hva\u00f0 \u00feetta var gaman, \u00e9g s\u00f6ng mig h\u00e1san og hoppa\u00f0i og dansa\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00c1 laugardagskv\u00f6ldi\u00f0 f\u00f3rum vi\u00f0 me\u00f0 Evu, Hei\u00f0u og Emmu vinkonu \u00feeirra fr\u00e1 Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 (sem hefur l\u00edka b\u00fai\u00f0 \u00ed F\u00e6reyjum) til Selfoss, vi\u00f0 fundum Hv\u00edta H\u00fasi\u00f0 og \u00fea\u00f0 er bara f\u00ednn sta\u00f0ur og st\u00f3r. \u00c9g var aftur me\u00f0 fr\u00e1tekna mi\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e9g vildi ekki keyra alla \u00feessa lei\u00f0 og \u00feurfa a\u00f0 sn\u00faa vi\u00f0. \u00c9g f\u00f3r strax a\u00f0 hitta Heri og \u00fe\u00e1 kynnti hann mig fyrir restinni af hlj\u00f3msveitinni, t\u00f3kum nokkrar myndir, me\u00f0al annars af Emmu og Evu me\u00f0 Heri (Eva heimta\u00f0i \u00fea\u00f0 og \u00e9g held a\u00f0 h\u00fan hafi hr\u00e6tt Heri enda var h\u00fan h\u00e1v\u00e6r). \u00c9g spjalla\u00f0i a\u00f0eins vi\u00f0 Sigrid um myndirnar sem \u00e9g haf\u00f0i teki\u00f0 og hvort \u00e9g \u00e6tti ekki a\u00f0 koma \u00feeim til hennar \u00e1\u00f0ur en \u00feau f\u00e6ru. \u00de\u00e1 var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a m\u00e9r \u00e1 t\u00f3nleikana \u00ed Tjarnarb\u00ed\u00f3 sem \u00e9g var \u00e1kaflega gla\u00f0ur me\u00f0.<\/p>\n<p>Nilfisk f\u00f3r \u00e1 svi\u00f0i\u00f0 og voru bara f\u00ednir, \u00feeir eiga greinilega s\u00edna a\u00f0d\u00e1endur \u00fearna. \u00c1 me\u00f0an Nilfisk var a\u00f0 spila \u00fe\u00e1 spjalla\u00f0i \u00e9g a\u00f0eins vi\u00f0 Sigga H\u00f3lm (eins miki\u00f0 og ma\u00f0ur spjallar vi\u00f0 einhvern me\u00f0an h\u00e1v\u00e6r hlj\u00f3msveit er a\u00f0 spila), kom \u00fe\u00e1 \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 hann f\u00f3r me\u00f0 hlj\u00f3msveitirnar \u00ed t\u00faristalei\u00f0angur um n\u00e1grenni Reykjav\u00edkur (Gullfoss og Geysir).<\/p>\n<p>Freak Kitchen steig \u00e1 svi\u00f0 og voru vissulega g\u00f3\u00f0ir, \u00ed \u00feetta skipti f\u00f3rum vi\u00f0 Eygl\u00f3 og vorum fyrir framan svi\u00f0i\u00f0. Selfyssingar eru skr\u00fdtnir, \u00feeir d\u00f6nsu\u00f0u einsog vitleysingar, komu og spj\u00f6llu\u00f0u vi\u00f0 mig \u00e1 fullu (veit ekki af hverju). \u00dea\u00f0 byrju\u00f0u slagsm\u00e1l \u00ed mi\u00f0ju lagi og Matthias t\u00f3k sig til og stoppa\u00f0i spilamennskuna, sag\u00f0i slagsm\u00e1lahundunum a\u00f0 hann v\u00e6ri ekki a\u00f0 \u00feola svona vitleysu og ba\u00f0 \u00fe\u00e1 um a\u00f0 h\u00e6tta e\u00f0a \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00feeim yr\u00f0i bara hent \u00fat. Hann er svalur.<\/p>\n<p>\u00deegar hita\u00f0 var upp fyrir T\u00fd var Rammstein spila\u00f0 og \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 dansa vi\u00f0 \u00fea\u00f0, \u00e9g og Siggi H\u00f3lm t\u00f3kum rispu sem hann t\u00f3k myndir af, fj\u00f6r. T\u00fdr kom s\u00ed\u00f0an \u00e1 svi\u00f0 og \u00fea\u00f0 var svolti\u00f0 \u00e1berandi hva\u00f0 Gunnar bassaleikari var \u00ed miklu meira stu\u00f0i en fyrra kv\u00f6ldi\u00f0 (enda h\u00f6f\u00f0u \u00feeir v\u00edst bara komi\u00f0 til landsins klukkan 19:00 \u00e1 f\u00f6studag). Einn \u00ed \u00e1horfendah\u00f3pnum var me\u00f0 eitthva\u00f0 leikfangalamb sem kom t\u00f6luvert vi\u00f0 s\u00f6gu. \u00cd einhverju af s\u00ed\u00f0ustu l\u00f6gunum var \u00e9g farin a\u00f0 b\u00f6mpa vi\u00f0 einhverja stelpu \u00fearna upp vi\u00f0 svi\u00f0i\u00f0 (\u00e1 me\u00f0an Eygl\u00f3 var a\u00f0eins aftar me\u00f0 vinkonum s\u00ednum).<\/p>\n<p>F\u00e6r\u00f0in \u00e1 lei\u00f0inni til baka var \u00f6murleg, s\u00e1 ekki veginn almennilega \u00ed snj\u00f3num. Eins gott a\u00f0 \u00e9g skipti yfir \u00e1 vetrardekk fyrr um daginn.<\/p>\n<p>\u00c1 sunnudagskv\u00f6ldi\u00f0 f\u00f3r \u00e9g \u00ed Tjarnarb\u00ed\u00f3, f\u00f3r frekar snemma. \u00c9g l\u00e9t \u00feau hafa myndirnar sem \u00e9g haf\u00f0i teki\u00f0 fyrri kv\u00f6ldin og spjalla\u00f0i a\u00f0eins vi\u00f0 \u00feau. S\u00ed\u00f0an spjalla\u00f0i \u00e9g a\u00f0eins vi\u00f0 Matthias \u00far Freak Kitchen sem vildi a\u00f0 \u00e9g sendi honum l\u00edka myndir, \u00e9g t\u00f3k mig \u00fe\u00e1 til og r\u00e1\u00f0ska\u00f0ist a\u00f0eins me\u00f0 hva\u00f0a l\u00f6g \u00feeir, sag\u00f0i a\u00f0 \u00feeir yr\u00f0u a\u00f0 taka Nobodys Laughing (en \u00feeir h\u00f6f\u00f0u sleppt \u00fev\u00ed kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1\u00f0ur). Hann t\u00f3k \u00feessari gagnr\u00fdni bara vel.<\/p>\n<p>\u00c9g lauma\u00f0i m\u00e9r baksvi\u00f0s og h\u00e9kk \u00fear, fylgdist me\u00f0 hlj\u00f3msveitunum, s\u00e9rstaklega \u00fev\u00ed \u00feegar me\u00f0limir T\u00fds voru a\u00f0 hita upp. T\u00f3k fullt af myndum. \u00c9g spjalla\u00f0i s\u00ed\u00f0an t\u00f6luvert vi\u00f0 alla \u00ferj\u00e1 me\u00f0limi T\u00fds og var kominn upp\u00far a\u00f0d\u00e1endaf\u00edlingnum og or\u00f0inn \u00e9g sj\u00e1lfur. Vi\u00f0 Heri spj\u00f6llu\u00f0um um Go\u00f0heimab\u00e6kurnar, \u00e9g gat sagt honum fr\u00e1 \u00fev\u00ed hven\u00e6r b\u00f3kin um Ragnar\u00f6k \u00e6tti a\u00f0 koma (semsagt a\u00f0 h\u00fan yr\u00f0i n\u00famer 14), \u00e9g m\u00e6lti s\u00ed\u00f0an me\u00f0 a\u00f0 hann l\u00e6si American Gods eftir Neil Gaiman.<\/p>\n<p>\u00cd bakherberginu me\u00f0 okkur var n\u00e1ungi fr\u00e1 Radio Reykjav\u00edk sem haf\u00f0i teki\u00f0 vi\u00f0tal vi\u00f0 \u00fe\u00e1, \u00e9g spjalla\u00f0i a\u00f0eins vi\u00f0 hann \u00e1 me\u00f0an T\u00fdr var a\u00f0 \u00e6fa upp raddirnar \u00e1 salerninu\/\u00ed stiganum. \u00deegar Freak Kitchen var svona r\u00famlega h\u00e1lfna\u00f0 \u00fe\u00e1 fatta\u00f0i Heri a\u00f0 hann hef\u00f0i gleymt a\u00f0 kaupa batter\u00ed \u00ed headsetti\u00f0 og \u00e9g be\u00f0inn um a\u00f0 fara a\u00f0 kaupa tv\u00f6 stykki. \u00c9g hlj\u00f3p \u00ed 10-11 og hlj\u00f3p til baka og fann \u00fe\u00e1 a\u00f0 l\u00edkaminn var a\u00f0eins byrja\u00f0ur a\u00f0 kvarta yfir dansi og headbangi (a\u00f0allega baki\u00f0). \u00deetta redda\u00f0ist allt.<\/p>\n<p>T\u00fdr f\u00f3r \u00e1 svi\u00f0 og \u00e9g held a\u00f0 \u00feetta hafi veri\u00f0 bestu t\u00f3nleikar \u00feeirra. Reyndar er Tjarnarb\u00ed\u00f3 ekki alveg rokksta\u00f0ur, fullt af unglingum \u00ed salnum og f\u00e1ir \u00feor\u00f0u a\u00f0 standa \u00e1 f\u00e6tur og hreyfa sig (\u00e9g st\u00f3\u00f0 n\u00e6r allan t\u00edmann). \u00c9g haf\u00f0i \u00e6gilega gaman af \u00fev\u00ed \u00feegar Heri mundi ekki hven\u00e6r Eric the Red hef\u00f0i komi\u00f0 \u00fat og \u00e9g kalla\u00f0i \u00fea\u00f0 til hans og f\u00e9kk svona &#8222;Takk, \u00d3li Gneisti&#8220; fyrir.<\/p>\n<p>Eftir t\u00f3nleikana keypti \u00e9g m\u00e9r Freak Kitchen bol, fatta\u00f0i reyndar \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i gleymt a\u00f0 f\u00e1 mynd af m\u00e9r me\u00f0 hlj\u00f3mveitinni en \u00e9g redda \u00fev\u00ed bara n\u00e6st. S\u00ed\u00f0an t\u00f3k \u00e9g bruna\u00f0i heim og til baka svo \u00e9g g\u00e6ti l\u00e1ti\u00f0 T\u00fd hafa d\u00e1lti\u00f0 sem \u00e9g lofa\u00f0i \u00feeim, vonandi endar \u00fea\u00f0 me\u00f0 svona skemmtilegri upp\u00e1komu \u00feegar \u00feeir koma n\u00e6st. Jamm og \u00feeir eru vonandi a\u00f0 koma r\u00e9tt br\u00e1\u00f0um aftur.<\/p>\n<p>Sjitt hva\u00f0 \u00feetta var gaman.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deetta er saga helgarinnar. Myndir fr\u00e1 helginni eru h\u00e9r, \u00e1 eftir a\u00f0 l\u00e1ta inn fleiri myndir \u00e1 T\u00fdss\u00ed\u00f0una. \u00c1 f\u00f6studaginn f\u00f3r \u00e9g \u00e1 Grand Rokk me\u00f0 Eygl\u00f3 og Hallgr\u00edmi. \u00deegar vi\u00f0 komum \u00fe\u00e1 var Dark Harvest a\u00f0 spila og \u00feeir voru bara nokku\u00f0 g\u00f3\u00f0ir. \u00c9g s\u00e1 Heri g\u00edtarleikara\/s\u00f6ngvara T\u00fds \u00fearna og heilsa\u00f0i honum, hann mundi &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2003\/11\/24\/oli-does-tyr-the-fan\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00d3li does T\u00fdr (The Fan)<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[92],"tags":[249,336],"class_list":["post-639","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-tonleikar","tag-q1452121","tag-q524495"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/639","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=639"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/639\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":22956,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/639\/revisions\/22956"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=639"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=639"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=639"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}