{"id":7825,"date":"2012-03-11T13:52:22","date_gmt":"2012-03-11T13:52:22","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=7825"},"modified":"2025-02-22T10:42:37","modified_gmt":"2025-02-22T10:42:37","slug":"hofundavarid-efni-i-limbo-mogulegar-lausnir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2012\/03\/11\/hofundavarid-efni-i-limbo-mogulegar-lausnir\/","title":{"rendered":"H\u00f6fundavari\u00f0 efni \u00ed limb\u00f3 &#8211; m\u00f6gulegar lausnir"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g hef undanfari\u00f0 eytt t\u00f6luver\u00f0um t\u00edma \u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um vandann sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 g\u00f3\u00f0ar b\u00e6kur sem enn er vari\u00f0 me\u00f0 h\u00f6fundar\u00e9tti hverfur \u00ed limb\u00f3 \u00fear sem enginn hefur hag af \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa efni\u00f0 \u00fat. \u00c9g hef hins vegar ekki nefnt neinar prakt\u00edskar lausnir. N\u00fa er komi\u00f0 a\u00f0 \u00feeim hluta p\u00e6linga minna.\n<\/p>\n<p>\u00c9g nefndi a\u00f0 \u00fev\u00ed mig minnir \u00ed fyrri f\u00e6rslu um rafb\u00f3kar\u00e1\u00f0stefnur a\u00f0 Hannes Eder hinn s\u00e6nski hafi stungi\u00f0 upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00f3kas\u00f6fn hef\u00f0u frumkv\u00e6\u00f0i af \u00fev\u00ed a\u00f0 &#8222;stafr\u00e6na&#8220; efni sem enn er \u00ed h\u00f6fundar\u00e9tt me\u00f0 einhvers konar samkomulagi vi\u00f0 h\u00f6fundar\u00e9tthafa. \u00c9g hef raunar veri\u00f0 a\u00f0 hugsa \u00e1 svipu\u00f0um sl\u00f3\u00f0um sj\u00e1lfur.\n<\/p>\n<p>Landsb\u00f3kasafni\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 gefa h\u00f6fundar\u00e9tth\u00f6fum m\u00f6guleika \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa safninu leyfi til a\u00f0 skanna inn b\u00e6kur og gera a\u00f0gengilegar \u00e1 netinu. Safni\u00f0 er n\u00fa \u00feegar me\u00f0 sk\u00f6nnunarverkefni \u00ed gangi \u00e1 vefnum <a href=\"http:\/\/www.baekur.is\/\">B\u00e6kur<\/a> (og auglj\u00f3slega \u00e1 <a href=\"http:\/\/www.timarit.is\/\">T\u00edmarit<\/a>). \u00dear eru rit sem komin eru \u00far h\u00f6fundar\u00e9tt sk\u00f6nnu\u00f0 og sett inn. Reyndar \u00fe\u00e1 v\u00e6ri betra ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 keyra efni\u00f0 \u00fat sem n\u00fat\u00edmalega rafb\u00f3k og m\u00e9r finnst ekkert \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 veri\u00f0 a\u00f0 vinna \u00ed sl\u00edkum hugmyndum \u00fear.\n<\/p>\n<p>Erfi\u00f0asti \u00fe\u00e1tturinn er auglj\u00f3slega pr\u00f3farkalestur en \u00fea\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 reyna \u00fdmsar hugmyndir \u00ed \u00fev\u00ed sambandi. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri til d\u00e6mis hugsanlegt a\u00f0 \u00feegar b\u00f3k hefur veri\u00f0 sk\u00f6nnu\u00f0 inn og lj\u00f3slesin til a\u00f0 b\u00faa til textaskjal \u00fe\u00e1 g\u00e6tu h\u00f6fundar\u00e9tthafar sj\u00e1lfir lesi\u00f0 yfir textann og lei\u00f0r\u00e9tt. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri s\u00e9rstaklega vi\u00f0eigandi ef h\u00f6fundurinn sj\u00e1lfur er enn \u00e1 l\u00edfi. \u00de\u00e1 v\u00e6ri l\u00edka h\u00e6gt a\u00f0 hugsa s\u00e9r a\u00f0 f\u00e1 verkefnastyrki e\u00f0a bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 sumarst\u00f6rf fyrir n\u00e1msmenn sem myndu taka a\u00f0 s\u00e9r yfirlestur. A\u00f0 lokum finnst m\u00e9r alveg h\u00e6gt a\u00f0 hugsa s\u00e9r a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a almenningi a\u00f0 lesa yfir b\u00e6kur. Eftir a\u00f0 hafa sko\u00f0a\u00f0 sj\u00f3r\u00e6ningjamarka\u00f0inn \u00e1 rafb\u00f3kum veit \u00e9g vel a\u00f0 \u00fea\u00f0 er til f\u00f3lk sem er tilb\u00fai\u00f0 a\u00f0 leggja \u00e1 sig mikla vinnu \u00e1n grei\u00f0slu til \u00feess a\u00f0 koma \u00e1 framf\u00e6ri efni sem \u00fev\u00ed \u00feykir \u00e1hugavert. \u00c9g get ekki \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r hvers vegna \u00feetta f\u00f3lk, og margir fleiri, v\u00e6ru ekki tilb\u00fanir a\u00f0 gera \u00feetta \u00ed \u00fe\u00e1gu \u00feess a\u00f0 var\u00f0veita b\u00e6kur til framt\u00ed\u00f0ar.\n<\/p>\n<p>Samningar milli safnsins og h\u00f6fundar\u00e9tthafa g\u00e6tu veri\u00f0 \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 \u00feeir s\u00ed\u00f0arnefndu h\u00e9ldu r\u00e9ttinum til \u00feess a\u00f0 gera papp\u00edrs\u00fatg\u00e1fur af b\u00f3kum. S\u00fa vinna sem f\u00e6ri \u00fev\u00ed \u00ed a\u00f0 gera textann rafr\u00e6nan g\u00e6ti \u00fev\u00ed n\u00fdst til \u00feess a\u00f0 gera prent\u00fatg\u00e1fur. Sl\u00edkt ver\u00f0ur mikils vir\u00f0i \u00ed framt\u00ed\u00f0inni \u00feegar hin svokalla\u00f0 &#8222;book-on-demand&#8220; t\u00e6kni ver\u00f0ur or\u00f0in betri og \u00fer\u00f3a\u00f0ri. \u00de\u00e1 er h\u00e6gt a\u00f0 prenta b\u00f3k \u00ed st\u00f6kum eint\u00f6kum. \u00dea\u00f0 er h\u00e6rri prentkostna\u00f0ur en dreifingar- og lagerkostna\u00f0ur hverfur. Um lei\u00f0 m\u00e1 benda \u00e1 a\u00f0 \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 rafv\u00e6\u00f0a b\u00f3k \u00fe\u00e1 er au\u00f0veldara a\u00f0 b\u00faa til uppf\u00e6r\u00f0ar \u00fatg\u00e1fur af \u00feeim en \u00fea\u00f0 \u00e1 kannski meira vi\u00f0 um fr\u00e6\u00f0ib\u00e6kur.\n<\/p>\n<p>\u00c9g hef \u00ed f\u00e6rslum m\u00ednum um \u00feessi m\u00e1l l\u00edklega veri\u00f0 me\u00f0 of mikinn f\u00f3kus \u00e1 sk\u00e1lds\u00f6gur \u00fev\u00ed \u00e9g held a\u00f0 rafb\u00f3kav\u00e6\u00f0ing fort\u00ed\u00f0arinnar (og til framt\u00ed\u00f0ar) g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 jafnvel d\u00fdrm\u00e6tari \u00ed fr\u00e6\u00f0iheiminum. \u00dea\u00f0 er frekar vonlaust a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa \u00fat fr\u00e6\u00f0ib\u00e6kur &#8211; nema a\u00f0 \u00fe\u00fa heitir til d\u00e6mis \u00c1rni Bj\u00f6rnsson. \u00c9g man eftir samtali vi\u00f0 skoska \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0ipr\u00f3fessora sem s\u00f6g\u00f0u fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sk\u00f3linn \u00feeirra hef\u00f0i gert samning vi\u00f0 \u00fatg\u00e1fufyrirt\u00e6ki sem ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu fengi\u00f0 peninga \u00feegar b\u00fai\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 selja fleiri en fimmhundru\u00f0 eint\u00f6k. \u00dea\u00f0 voru aldrei prentu\u00f0 svo m\u00f6rg eint\u00f6k og enginn gr\u00e6ddi neitt \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa \u00feessar b\u00e6kur. Sta\u00f0an er l\u00edklega ekki betri \u00e1 \u00cdslandi og \u00e9g hef heyrt af fr\u00e6\u00f0im\u00f6nnum sem hafa tapa\u00f0 peningum \u00e1 \u00fatg\u00e1fum. \u00dea\u00f0 er ekki heldur miki\u00f0 um endur\u00fatg\u00e1fur af fr\u00e6\u00f0ib\u00f3kum. Einstaka b\u00e6kur lifa \u00e1fram \u00feannig en flestar fara \u00ed limb\u00f3.\n<\/p>\n<p>Ef \u00e9g tek d\u00e6mi \u00far minni fr\u00e6\u00f0igrein \u00fe\u00e1 l\u00e9st J\u00f3n Hnefill A\u00f0alsteinsson pr\u00f3fessor fyrir r\u00e9ttum tveimur \u00e1rum. Hann haf\u00f0i skrifa\u00f0 margt merkilegt \u00e1 svi\u00f0i \u00fej\u00f3\u00f0fr\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 er hins vegar erfitt a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 nokkur peningur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 endur\u00fatgefa \u00fea\u00f0 en \u00fea\u00f0 er hins vegar miki\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a a\u00f0 gera \u00feetta efni a\u00f0gengilegt almenningi. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri \u00fev\u00ed vi\u00f0eigandi a\u00f0 ger\u00f0ur yr\u00f0i samningur milli erfingja hans og Landsb\u00f3kasafnsins um a\u00f0 rafv\u00e6\u00f0a b\u00e6kur hans. \u00dea\u00f0 er reyndar s\u00e9rstaklega vi\u00f0eigandi \u00fear sem J\u00f3n Hnefill var pr\u00f3fessor vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands og Landsb\u00f3kasafni\u00f0 er l\u00edka b\u00f3kasafn H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. \u00c9g get l\u00edka \u00edmynda\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u \u00f3tal kennarar vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann sem myndu gla\u00f0ir gefa b\u00f3kasafninu r\u00e9ttinn til a\u00f0 rafb\u00f3kav\u00e6\u00f0a rit \u00feeirra. \u00dea\u00f0 \u00fearf bara a\u00f0 b\u00faa til grundv\u00f6ll til \u00feess a\u00f0 sl\u00edkt s\u00e9 m\u00f6gulegt.\n<\/p>\n<p>\u00cd f\u00e6rslunni hef \u00e9g reyndar gefi\u00f0 m\u00e9r \u00fe\u00e1 forsendu a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feurfi a\u00f0 skanna inn b\u00e6kurnar til a\u00f0 b\u00faa til rafr\u00e6nar \u00fatg\u00e1fur af \u00feeim. Hins vegar eru \u00f6rugglega til \u00f3tal b\u00e6kur \u00e1 rafr\u00e6nu formi sem mun au\u00f0veldara v\u00e6ri a\u00f0 gera a\u00f0gengilegar. \u00dea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 h\u00f6fundar haldi upp \u00e1 sl\u00edk skj\u00f6l en um lei\u00f0 \u00e1berandi a\u00f0 \u00feeir gera \u00fea\u00f0 ekki.\n<\/p>\n<p>Sj\u00e1lfur tel \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 breyta skilaskyldul\u00f6gum \u00feannig a\u00f0 \u00feegar skila\u00f0 er inn prent\u00fatg\u00e1fum af b\u00f3kum \u00e1 Landsb\u00f3kasafni\u00f0 \u00fe\u00e1 s\u00e9 einnig skila\u00f0 inn handriti \u00e1 rafr\u00e6nu formi. \u00deetta rafr\u00e6na form b\u00f3karinnar yr\u00f0i ekki gert a\u00f0gengilegt nema me\u00f0 samningi vi\u00f0 h\u00f6fundar\u00e9tthafa en \u00fea\u00f0 b\u00fdr til \u00e1kve\u00f0inn grundv\u00f6ll til \u00feess a\u00f0 \u00feegar a\u00f0 \u00fev\u00ed kemur \u00fe\u00e1 s\u00e9r h\u00e6gt a\u00f0 gera rafr\u00e6nar \u00fatg\u00e1fur a\u00f0gengilegar me\u00f0 l\u00edtilli fyrirh\u00f6fn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef undanfari\u00f0 eytt t\u00f6luver\u00f0um t\u00edma \u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um vandann sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 g\u00f3\u00f0ar b\u00e6kur sem enn er vari\u00f0 me\u00f0 h\u00f6fundar\u00e9tti hverfur \u00ed limb\u00f3 \u00fear sem enginn hefur hag af \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa efni\u00f0 \u00fat. \u00c9g hef hins vegar ekki nefnt neinar prakt\u00edskar lausnir. N\u00fa er komi\u00f0 a\u00f0 \u00feeim hluta p\u00e6linga minna. &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2012\/03\/11\/hofundavarid-efni-i-limbo-mogulegar-lausnir\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">H\u00f6fundavari\u00f0 efni \u00ed limb\u00f3 &#8211; m\u00f6gulegar lausnir<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[85,91],"tags":[264],"class_list":["post-7825","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-hofundarettur","category-rafbaekur","tag-q1297822"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7825","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=7825"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7825\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":23484,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/7825\/revisions\/23484"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=7825"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=7825"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=7825"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}