{"id":8135,"date":"2012-05-29T10:54:48","date_gmt":"2012-05-29T10:54:48","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=8135"},"modified":"2025-02-22T10:42:31","modified_gmt":"2025-02-22T10:42:31","slug":"jay-leno-eda-nbc-stelur-og-stelur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2012\/05\/29\/jay-leno-eda-nbc-stelur-og-stelur\/","title":{"rendered":"Jay Leno (e\u00f0a NBC) stelur og stelur"},"content":{"rendered":"<p>Brian Kamerer bj\u00f3 til fyndna kosningaaugl\u00fdsingu fyrir vin sinn sem var \u00ed frambo\u00f0i \u00ed einhverjum sm\u00e1b\u00e6. \u00deessi augl\u00fdsing var s\u00ed\u00f0an s\u00fdnd \u00ed \u00fe\u00e6tti Jay Leno. H\u00f6fundurinn var ekkert s\u00e1r yfir \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3 hann hafi ekki fengi\u00f0 neitt borga\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0 e\u00f0a yfirleitt veri\u00f0 l\u00e1tinn vita af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 s\u00fdna augl\u00fdsinguna. Bara gla\u00f0ur yfir athyglinni. Nokkrum \u00e1rum seinna hverfur myndband me\u00f0 augl\u00fdsingunni af YouTube me\u00f0 tilkynningu um a\u00f0 NBC eigi \u00feetta efni og \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 birt \u00e1n heimildar. H\u00f6fundurinn var sums\u00e9 \u00e1saka\u00f0ur um a\u00f0 hafa stoli\u00f0 eigin h\u00f6fundarverki.\n<\/p>\n<p>\u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem gerst hafi s\u00e9 a\u00f0 einhverjir &#8222;r\u00f3b\u00f3tar&#8220; \u00e1 vegum NBC hafi veri\u00f0 a\u00f0 skanna myndb\u00f6nd \u00e1 YouTube. \u00deau eru s\u00ed\u00f0an borin saman vi\u00f0 efni sem NBC hefur framleitt. \u00dea\u00f0 sem fyrirt\u00e6ki\u00f0 hefur vanr\u00e6kt, l\u00edklega bara af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim er sama, er a\u00f0 segja r\u00f3b\u00f3tanum a\u00f0 \u00feeir eigi ekki r\u00e9ttinn \u00e1 \u00f6llu sem kemur fram \u00e1 \u00fe\u00e6tti Jay Leno.\n<\/p>\n<p>\u00deegar James Randi kom til \u00cdslands sag\u00f0i a\u00f0sto\u00f0arma\u00f0ur hans m\u00e9r a\u00f0 \u00feeir \u00e6ttu einmitt \u00ed vandr\u00e6\u00f0um me\u00f0 NBC. Randi kom nefnilega oft fram \u00ed \u00fe\u00e1ttum Johnny Carson og f\u00e9kk leyfi fr\u00e1 honum til \u00feess a\u00f0 nota uppt\u00f6kur af \u00feeim heims\u00f3knum a\u00f0 eigin vild. A\u00f0sto\u00f0arf\u00f3lk Randi setur \u00fev\u00ed \u00feessar klippur \u00e1 YouTube en lendir endalaust \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 NBC l\u00e6tur taka \u00fe\u00e6r ni\u00f0ur (\u00fe\u00f3 fyrirt\u00e6ki Carson eigi \u00fe\u00e6r).\n<\/p>\n<p>Mig minnir l\u00edka a\u00f0 leikstj\u00f3ri Der Untergang hafi lagt blessun s\u00edna yfir \u00f6ll myndb\u00f6ndin \u00fear sem Hitler er a\u00f0 \u00e6rast yfir \u00f6llum m\u00f6gulegum hlutum en framlei\u00f0endurnir hafi \u00e1fram haldi\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja YouTube a\u00f0 fjarl\u00e6gja \u00feau.\n<\/p>\n<p>Svona virkar \u00feetta. St\u00f3ru framlei\u00f0endurnir geta \u00ed raun bara sagt a\u00f0 \u00feeir eigi efni \u00e1 YouTube og \u00fea\u00f0 er s\u00ed\u00f0an fjarl\u00e6gt. \u00dea\u00f0 er til einhver &#8222;\u00e1fr\u00fdjunarm\u00f6guleiki&#8220; en \u00fea\u00f0 er v\u00edst \u00e1kaflega erfitt ferli. Litla f\u00f3lki\u00f0 hefur n\u00e1tt\u00farulega enga m\u00f6guleika \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sl\u00e1st vi\u00f0 d\u00fdru l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingana sem NBC hefur \u00e1 s\u00ednum sn\u00e6rum. \u00dea\u00f0 myndi aldrei svara kostna\u00f0i.\n<\/p>\n<p>Brian Kamerer \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 nota a\u00f0ra a\u00f0fer\u00f0. Hann skrifa\u00f0i opi\u00f0 br\u00e9f til <a href=\"http:\/\/splitsider.com\/2012\/05\/an-open-letter-to-jay-leno-about-stealing-my-video-and-then-getting-it-removed-from-youtube\/\">Jay Leno<\/a>. A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u hefur Jay Leno sj\u00e1lfur ekkert a\u00f0 gera me\u00f0 \u00feessa r\u00f3b\u00f3ta en hann er eitt helsta andlit (e\u00f0a ver\u00f0m\u00e6tasta &#8222;eign&#8220;) fyrirt\u00e6kisins. \u00deannig n\u00e1\u00f0i hann a\u00f0 vekja athygli \u00e1 \u00feessu. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u \u00fe\u00fasundir einstaklinga me\u00f0 \u00e1l\u00edka s\u00f6gur sem aldrei hafa n\u00e1\u00f0 neinni athygli.\n<\/p>\n<p>\u00c9g tel reyndar a\u00f0 \u00feessi eltingarleikur h\u00f6fundar\u00e9tthafa vi\u00f0 myndb\u00f6nd \u00e1 YouTube s\u00e9 \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r f\u00e1r\u00e1nlegur. Langoftast ska\u00f0a h\u00f6fundav\u00f6r\u00f0u myndb\u00f6ndin \u00ed engu hagsmuni r\u00e9tthafa. Oft virka \u00feau einfaldlega sem augl\u00fdsingar. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00edmynda s\u00e9r a\u00f0 einhverjir tapi hugsanlega \u00feegar um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a heilu \u00fe\u00e6ttina. Myndbandi\u00f0 sem Brian Kamerer ger\u00f0i var hins vegar r\u00e9tt r\u00famlega ein m\u00edn\u00fata a\u00f0 lengd. Hverju hef\u00f0i NBC tapa\u00f0 ef \u00feetta hef\u00f0i veri\u00f0 m\u00edn\u00fatubrot af Jay Leno sj\u00e1lfum a\u00f0 segja brandara? \u00deetta eru &#8222;einnota&#8220; \u00fe\u00e6ttir \u00feannig a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri bara augl\u00fdsing. \u00dea\u00f0 eitt og s\u00e9r a\u00f0 NBC er a\u00f0 eltast vi\u00f0 einhver p\u00ednubrot s\u00fdnir hve mikil vitleysa er \u00ed sj\u00e1lfst\u00fdringunni sem h\u00f6fundar\u00e9tthafar eru me\u00f0 \u00ed \u00feessum m\u00e1lum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brian Kamerer bj\u00f3 til fyndna kosningaaugl\u00fdsingu fyrir vin sinn sem var \u00ed frambo\u00f0i \u00ed einhverjum sm\u00e1b\u00e6. \u00deessi augl\u00fdsing var s\u00ed\u00f0an s\u00fdnd \u00ed \u00fe\u00e6tti Jay Leno. H\u00f6fundurinn var ekkert s\u00e1r yfir \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3 hann hafi ekki fengi\u00f0 neitt borga\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0 e\u00f0a yfirleitt veri\u00f0 l\u00e1tinn vita af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 s\u00fdna augl\u00fdsinguna. Bara gla\u00f0ur yfir &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2012\/05\/29\/jay-leno-eda-nbc-stelur-og-stelur\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Jay Leno (e\u00f0a NBC) stelur og stelur<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[85],"tags":[264],"class_list":["post-8135","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-hofundarettur","tag-q1297822"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8135","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8135"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8135\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":23475,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8135\/revisions\/23475"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8135"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8135"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8135"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}