{"id":8510,"date":"2013-12-12T15:06:30","date_gmt":"2013-12-12T15:06:30","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=8510"},"modified":"2024-04-25T12:34:47","modified_gmt":"2024-04-25T12:34:47","slug":"russell-brand-er-ekki-hetjan-min","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2013\/12\/12\/russell-brand-er-ekki-hetjan-min\/","title":{"rendered":"Russell Brand er ekki hetjan m\u00edn"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-8512 alignleft\" src=\"http:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2013\/12\/5c2b8e1e7c3a6_brand-225x300.jpg\" alt=\"brand\" width=\"225\" height=\"300\" \/>\u00deegar \u00e9g fr\u00e9tti a\u00f0 Russell Brand v\u00e6ri a\u00f0 koma til landsins var \u00e9g flj\u00f3tur a\u00f0 redda mi\u00f0um. \u00c9g sannf\u00e6r\u00f0i l\u00edka Eygl\u00f3 a\u00f0 koma me\u00f0 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 f\u00f3r svo a\u00f0 \u00feetta var\u00f0 akk\u00farat fyrsta skipti\u00f0 sem vi\u00f0 tv\u00f6 h\u00f6fum fari\u00f0 saman eitthva\u00f0 \u00fat \u00e1n drengjanna s\u00ed\u00f0an Ingimar f\u00e6ddist.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00e1 seinni s\u00fdninguna sem var \u00e1 \u00feri\u00f0judagskv\u00f6ld. Vi\u00f0 vorum me\u00f0 mi\u00f0a \u00e1 \u00feri\u00f0ja bekk. Vi\u00f0 hef\u00f0um geta\u00f0 komist framar en eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 uppist\u00f6nd me\u00f0 Brand \u00fe\u00f3tti m\u00e9r betra a\u00f0 vera a\u00f0eins aftar. Sj\u00e1lfur hef\u00f0i \u00e9g reyndar h\u00f6ndla\u00f0 sm\u00e1 athygli fr\u00e1 honum en Eygl\u00f3 hef\u00f0i v\u00e6ntanlega fari\u00f0 hj\u00e1 s\u00e9r. En j\u00e1, vi\u00f0 vorum me\u00f0 g\u00f3\u00f0 s\u00e6ti.<\/p>\n<p>\u00deetta var reyndar fyrsta skipti\u00f0 mitt \u00ed H\u00f6rpu og m\u00e9r leyst bara vel \u00e1. \u00c9g er reyndar einn af f\u00e1um sem \u00fe\u00f3tti fyrirfram a\u00f0 byggingin v\u00e6ri of st\u00f3r og ekki n\u00f3gu falleg en var s\u00ed\u00f0an nokku\u00f0 har\u00f0ur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 kl\u00e1ra hana (a\u00f0allega af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i einfaldlega kosta\u00f0 st\u00f3rf\u00e9 a\u00f0 kl\u00e1ra ekki).<\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur en s\u00fdningin byrja\u00f0i nefndi \u00e9g vi\u00f0 Eygl\u00f3 a\u00f0 kynjahlutfalli\u00f0 \u00ed salnum v\u00e6ri frekar \u00f3venjulegt. Mig grunar nefnilega a\u00f0 yfirleitt dragi svona uppistandarar a\u00f0 s\u00e9r fleiri karlmenn en konur. Reyndar ver\u00f0ur a\u00f0 teljast merkilegt a\u00f0 Brand n\u00e1i a\u00f0 fylla n\u00e6stum tv\u00e6r s\u00fdningar \u00ed st\u00f3ra salnum \u00ed H\u00f6rpu \u00fev\u00ed l\u00edti\u00f0 af efni hans hefur veri\u00f0 s\u00fdnt h\u00e9r \u00e1 landi. \u00dearna er neti\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 standa fyrir s\u00ednu.<\/p>\n<p>S\u00fdningin byrja\u00f0i \u00e1 lj\u00f3\u00f0sk\u00e1ldinu Mr. Gee sem var a\u00f0allega me\u00f0 uppistand en l\u00edka nokkur lj\u00f3\u00f0. Hann var \u00e1g\u00e6tur. \u00c9g n\u00e6 reyndar ekki a\u00f0 hl\u00e6ja s\u00e9rstaklega miki\u00f0 a\u00f0 br\u00f6ndurum um h\u00e1karla og v\u00edkinga \u00feannig a\u00f0 \u00e9g hl\u00f3 ekki jafn miki\u00f0 og margir a\u00f0rir. Eftir hans stutta stans \u00e1 svi\u00f0inu var 20 m\u00edn\u00fatna hl\u00e6. \u00de\u00e1 \u00f6snu\u00f0umst vi\u00f0 Eygl\u00f3 til \u00feess a\u00f0 versla \u00ed sjoppunni. Hef\u00f0um bara \u00e1tt a\u00f0 sleppa \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>Russell Brand l\u00e9t ekki b\u00ed\u00f0a eftir s\u00e9r eftir hl\u00e9. Hann byrja\u00f0i eiginlega \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e6\u00f0a \u00fat \u00ed sal og tala vi\u00f0 og gera gr\u00edn a\u00f0 \u00e1horfendum. Einn 13 \u00e1ra drengur sem kom me\u00f0 m\u00f3\u00f0ur sinni f\u00e9kk t\u00f6luver\u00f0a athygli. Hann gekk fyrir aftan mig en t\u00f3k ekki einu sinni eftir \u00feegar \u00e9g t\u00f3k mynd af honum.<\/p>\n<p>\u00c9g vissi fyrirfram hvert \u00feema s\u00fdningarinnar yr\u00f0i og \u00fe\u00f3tti \u00e1hugavert. Hann var a\u00f0 fjalla um hetjur. Hann t\u00f3k fyrir s\u00ednar eigin hetjur, Gandhi, Che, Malcolm X og Jes\u00fas og benti \u00e1 galla \u00feeirra. Hans megin \u00e1hersla var \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6ttum a\u00f0 eiga okkur hetjur \u00fe\u00f3 \u00fe\u00e6r v\u00e6ru galla\u00f0ar og \u00e9g er a\u00f0 m\u00f6rgu leyti \u00f3samm\u00e1la honum \u00fear. \u00c9g held a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6ttum ekki a\u00f0 setja f\u00f3lk \u00e1 stall \u00fe\u00f3 vi\u00f0 getum vissulega d\u00e1\u00f0st a\u00f0 f\u00f3lk af m\u00f6rgum \u00e1st\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>M\u00e9r \u00fe\u00f3tti Brand st\u00f3rfyndin en stundum hef\u00f0i hann m\u00e1tt lesa s\u00e9r a\u00f0eins betur til um \u00fea\u00f0 sem hann var a\u00f0 segja og fullyr\u00f0a a\u00f0eins minna. Til a\u00f0 mynda er v\u00edst \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 sk\u00f3lamynd sem hann s\u00fdndi s\u00e9 raunverulega af Hitler og Wittgenstein (\u00feeir voru \u00ed sama sk\u00f3la en ekki sama bekk eins og Brand h\u00e9lt fram).<\/p>\n<p>\u00c9g haf\u00f0i \u00e1kaflega gaman af br\u00f6ndurum hans um Sigmund Dav\u00ed\u00f0 og almennt var\u00f0andi \u00fea\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum aftur kosi\u00f0 yfir okkur hrunli\u00f0i\u00f0. \u00c9g hef\u00f0i reyndar vilja\u00f0 benda honum \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0horf eins og hans til kosninga s\u00e9 \u00fear hluti af vandam\u00e1linu.<\/p>\n<p>Svo f\u00f3lk f\u00e1i ekki ranga mynd af s\u00fdningunni er r\u00e9tt a\u00f0 taka fram a\u00f0 \u00f3tr\u00falega margir brandarar Brand fj\u00f6llu\u00f0u um kynl\u00edf og sumir hverjir voru t\u00f6luvert gr\u00f3fir. \u00c9g geri r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 einhverjir foreldrar sem komu \u00fearna me\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn hafi fengi\u00f0 bak\u00feanka vegna \u00e1kv\u00f6r\u00f0unar sinnar.<\/p>\n<p>A\u00f0al skotmark Brand er hann sj\u00e1lfur. Langflestir brandararnir (Brandararnir?) voru \u00e1 hans eigin kostna\u00f0. Suma \u00feekkti \u00e9g reyndar fyrir enda hef \u00e9g lesi\u00f0 \u00e6vis\u00f6gu hans en meira a\u00f0 segja \u00feeir voru sag\u00f0ir \u00e1 ferskan h\u00e1tt.<\/p>\n<p>Sums\u00e9, st\u00f3rg\u00f3\u00f0 skemmtun. Spurning hvort einhver vilji s\u00ed\u00f0an flytja inn Frankie Boyle n\u00e6st.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar \u00e9g fr\u00e9tti a\u00f0 Russell Brand v\u00e6ri a\u00f0 koma til landsins var \u00e9g flj\u00f3tur a\u00f0 redda mi\u00f0um. \u00c9g sannf\u00e6r\u00f0i l\u00edka Eygl\u00f3 a\u00f0 koma me\u00f0 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 f\u00f3r svo a\u00f0 \u00feetta var\u00f0 akk\u00farat fyrsta skipti\u00f0 sem vi\u00f0 tv\u00f6 h\u00f6fum fari\u00f0 saman eitthva\u00f0 \u00fat \u00e1n drengjanna s\u00ed\u00f0an Ingimar f\u00e6ddist. Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00e1 seinni s\u00fdninguna sem var \u00e1 &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2013\/12\/12\/russell-brand-er-ekki-hetjan-min\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Russell Brand er ekki hetjan m\u00edn<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[34],"tags":[],"class_list":["post-8510","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-menning"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8510","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8510"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8510\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":21492,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8510\/revisions\/21492"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8510"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8510"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8510"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}