{"id":8738,"date":"2014-08-27T12:00:54","date_gmt":"2014-08-27T12:00:54","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=8738"},"modified":"2025-02-22T10:30:36","modified_gmt":"2025-02-22T10:30:36","slug":"setti-upp-leikjatolvuhermi-a-raspberry-pi-dvergtolvu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2014\/08\/27\/setti-upp-leikjatolvuhermi-a-raspberry-pi-dvergtolvu\/","title":{"rendered":"Setti upp leikjat\u00f6lvuhermi \u00e1 Raspberry Pi dvergt\u00f6lvu"},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 eru h\u00e1tt \u00ed tv\u00f6 \u00e1r s\u00ed\u00f0an \u00e9g keypti m\u00e9r <a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Raspberry_Pi\">Raspberry Pi<\/a> t\u00f6lvu fyrst. Fyrir \u00fe\u00e1 sem ekki \u00feekkja til eru \u00feetta p\u00ednulitlar t\u00f6lvur sem vi\u00f0 fyrstu s\u00edn vir\u00f0ast frekar gagnslausar. \u00dea\u00f0 sem ger\u00f0ist \u00feegar \u00fe\u00e6r f\u00f3ru \u00e1 marka\u00f0 var a\u00f0 t\u00f6lvun\u00f6rdar heimsins fengu kast og byrju\u00f0u a\u00f0 hanna og a\u00f0laga st\u00fdrikerfinu og forrit a\u00f0 kostum t\u00f6lvunnar. \u00c9g sett fyrst upp sj\u00f3nvarpst\u00f6lvu me\u00f0 XBMC st\u00fdrikerfinu (e\u00f0a \u00f6llu heldur a\u00f0l\u00f6gun sem heitir RASPBMC) og hef nota\u00f0 s\u00ed\u00f0an. \u00c1 \u00feeim t\u00edma var reyndar sm\u00e1 maus a\u00f0 setja \u00feetta upp en n\u00fana getur ma\u00f0ur bara keypt minniskort sem ma\u00f0ur setur \u00ed t\u00f6lvuna og velur hva\u00f0a st\u00fdrikerfi ma\u00f0ur vill setja upp. Ma\u00f0ur \u00fearf svo sem a\u00f0 hafa vit \u00e1 t\u00f6lvum til a\u00f0 kl\u00e1ra uppsetninguna en ekkert s\u00e9rstakt vit \u00e1 Linux (flestar Pi t\u00f6lvur keyra \u00e1 Linux). Pi getur m.a. tengst sj\u00f3nvarpi me\u00f0 HDMI sn\u00faru.\n<\/p>\n<p>Snemmsumars kom \u00fat n\u00fd \u00fatg\u00e1fa af Raspberry Pi sem kallast Model B+. H\u00fan er me\u00f0 fleiri USB raufum, keyrir \u00e1 minna rafmagni og notar micro SD kort \u00ed sta\u00f0 st\u00e6rri ger\u00f0arinnar. \u00c9g bei\u00f0 \u00ed sm\u00e1 t\u00edma me\u00f0 a\u00f0 st\u00f6kkva til en ekki mj\u00f6g lengi (\u00e9g panta\u00f0i fr\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.adafruit.com\/\">Adafruit<\/a> en \u00feetta f\u00e6st l\u00edka \u00ed <a href=\"http:\/\/wayback.vefsafn.is\/wayback\/20081114113055\/http:\/\/www.midbaejarradio.is\/\">Mi\u00f0b\u00e6jarrad\u00ed\u00f3<\/a>). \u00c9g setti upp XBMC \u00e1 n\u00fdju t\u00f6lvuna og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 nota \u00fe\u00e1 g\u00f6mlu \u00ed sm\u00e1 skemmtit\u00e6ki.\n<\/p>\n<p>Eitt \u00fea\u00f0 fyrsta sem forritarar ger\u00f0u me\u00f0 Raspberry Pi var a\u00f0 b\u00faa til leikjat\u00f6lvuherma. Svona hermar eru ekkert n\u00fdtt. \u00c9g man eftir a\u00f0 hafa nota\u00f0 Amstrad hermi seint \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. En einfaldleikinn sem Pi t\u00f6lvurnar bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 gerir \u00feetta skemmtilegra. Flottasta kerfi\u00f0 sem er \u00ed bo\u00f0i heitir RetroPie og \u00ed \u00fev\u00ed eru \u00f3tal leikjat\u00f6lvuhermar sem ma\u00f0ur getur vali\u00f0 \u00far \u00ed einf\u00f6ldu st\u00fdrikerfi.\n<\/p>\n<p>\u00c9g f\u00f3r eftir lei\u00f0beiningum hj\u00e1 <a href=\"http:\/\/lifehacker.com\/how-to-turn-your-raspberry-pi-into-a-retro-game-console-498561192\">Life Hacker<\/a> vi\u00f0 uppsetninguna. \u00dea\u00f0 eina sem g\u00e6ti talist fl\u00f3ki\u00f0 er a\u00f0 skrifa &#8222;mynd&#8220; me\u00f0 st\u00fdrikerfinu \u00e1 minniskort (ey\u00f0ir \u00f6llu af minniskortinu) en \u00fea\u00f0 er einfalt forrit sem ma\u00f0ur notar vi\u00f0 \u00fea\u00f0.\n<\/p>\n<p>Til \u00feess a\u00f0 setja upp leiki \u00e1 t\u00f6lvunni \u00fearf h\u00fan a\u00f0 vera nettengd \u00e1 me\u00f0an. T\u00f6lvan birtist \u00e1 heimanetinu og \u00feegar ma\u00f0ur opnar hana \u00fear \u00fe\u00e1 s\u00e9r ma\u00f0ur m\u00f6ppur sem hver um sig t\u00e1knar \u00e1kve\u00f0na leikjat\u00f6lvu. \u00dear setur ma\u00f0ur leikina inn. Einnig er h\u00e6gt a\u00f0 nota FTP til \u00feess a\u00f0 setja inn leiki og \u00feannig getur ma\u00f0ur l\u00edka breytt fl\u00f3knari stillingum.\n<\/p>\n<p>Vondu fr\u00e9ttirnar eru a\u00f0 \u00fea\u00f0 virka ekki allir hermarnir jafn vel. \u00dea\u00f0 \u00e1 s\u00e9rstaklega vi\u00f0 herma sem \u00feurfa a\u00f0 keyra st\u00e6rri leiki. Margir Playstation (1) leikir virka \u00ed herminum en \u00fe\u00e1 er l\u00edka gott a\u00f0 ver\u00f0a s\u00e9r \u00fati um BIOS skr\u00e1 sem hj\u00e1lpar til. Aftur \u00e1 m\u00f3ti hefur m\u00e9r ekki enn tekist a\u00f0 l\u00e1ta Nintendo 64 herminn virka a\u00f0 neinu viti. \u00dea\u00f0 er tala\u00f0 um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 gott a\u00f0 yfirklukka t\u00f6lvuna til a\u00f0 leikirnir virki en \u00fea\u00f0 eru au\u00f0vita\u00f0 ekki allir sem geta e\u00f0a vilja standa \u00ed sl\u00edku. En ef ma\u00f0ur er bara \u00ed einfaldari leikjum, segjum fram a\u00f0 Super Nintendo e\u00f0a Sega Genesis (svok\u00f6llu\u00f0 fj\u00f3r\u00f0a kynsl\u00f3\u00f0 leikjat\u00f6lva) \u00fe\u00e1 er ma\u00f0ur \u00ed nokku\u00f0 g\u00f3\u00f0um m\u00e1lum. Verst er a\u00f0 \u00fea\u00f0 er vesen me\u00f0 Amiga herminn eins og er (en \u00fea\u00f0 er \u00ed vinnslu).\n<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 a\u00f0 redda s\u00e9r leikjum kemur au\u00f0vita\u00f0 inn \u00e1 svi\u00f0 h\u00f6fundalaga og s\u00fdnir hva\u00f0 \u00feau geta veri\u00f0 \u00far takti vi\u00f0 raunveruleikann. \u00dea\u00f0 er einfaldlega l\u00edtill marka\u00f0ur fyrir 20-30 \u00e1ra gamla t\u00f6lvuleiki og \u00fev\u00ed h\u00e1lfvonlaust fyrir menn a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a \u00e1 \u00fev\u00ed. Um lei\u00f0 er gr\u00ed\u00f0arlegur fj\u00f6ldi t\u00f6lvuleikjatitla sem er &#8222;muna\u00f0arlaus&#8220; af \u00fev\u00ed a\u00f0 fyrirt\u00e6kin sem \u00e1ttu h\u00f6fundar\u00e9ttinn eru l\u00f6ngu farin \u00e1 hausinn.\n<\/p>\n<p>Ef \u00fei\u00f0 eru\u00f0 eins og \u00e9g og vilji\u00f0 helst spila leiki sem \u00fei\u00f0 \u00e1ttu\u00f0 h\u00e9r \u00e1\u00f0ur fyrr \u00fe\u00e1 er au\u00f0vita\u00f0 ekkert athugavert vi\u00f0 a\u00f0 leita a\u00f0 \u00feeim leikjum \u00e1 netinu. \u00dei\u00f0 skrifi\u00f0 einfaldlega inn titil leiksins, heiti leikjat\u00f6lvunnar og or\u00f0i\u00f0 &#8222;rom&#8220;. \u00dea\u00f0 eru til \u00f3tal vefir me\u00f0 sl\u00edkjum leikjaskr\u00e1m og \u00feeir vir\u00f0ast f\u00e1 a\u00f0 hanga uppi af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6fundar\u00e9tth\u00f6fum vir\u00f0ist meira og minna vera sama (og sumir reyndar sty\u00f0ja \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk hafi a\u00f0gang a\u00f0 leikjunum \u00feeirra). Au\u00f0vita\u00f0 \u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 passa sig \u00e1 svona s\u00ed\u00f0um. Ef ma\u00f0ur fer a\u00f0 hala inn skr\u00e1 og \u00fea\u00f0 stendur a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 &#8222;exe&#8220; (sums\u00e9 Windows forrit) \u00fe\u00e1 er best a\u00f0 for\u00f0a s\u00e9r. Annars eru skr\u00e1arendingar \u00e1 \u00feessum leikjum margskonar t.d. dsk og adf.\n<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 virka ekki allir leikir \u00ed herminum. \u00dea\u00f0 er l\u00edka af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessar skr\u00e1r eru ger\u00f0ar af \u00e1hugaf\u00f3lki en ekki fagf\u00f3lki. Einnig eru leikjahermarnir misg\u00f3\u00f0ir. \u00c9g get m\u00e6lt me\u00f0 a\u00f0 velja leikjaskr\u00e1r sem eru hr\u00f3pmerktar (!) \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r eiga vera pr\u00f3fa\u00f0ar og s\u00ed\u00f0an er gott a\u00f0 muna a\u00f0 (E) \u00fe\u00fd\u00f0ir evr\u00f3psk \u00fatg\u00e1fa, (U) \u00fe\u00fd\u00f0ir bandar\u00edsk \u00fatg\u00e1fa og (J) \u00fe\u00fd\u00f0ir jap\u00f6nsk \u00fatg\u00e1fa.\n<\/p>\n<p>Fyrst spila\u00f0i \u00e9g bara me\u00f0 lyklabor\u00f0i og \u00fea\u00f0 er vel h\u00e6gt. Stundum er \u00fea\u00f0 jafnvel betra. En \u00e9g vildi prufa l\u00edka \u00feannig a\u00f0 \u00e9g keypti m\u00e9r svona Super Nintendo &#8222;joypad&#8220; (st\u00fdrisspjald? fjarst\u00fdring?) eftirhermu sem tengist me\u00f0 USB. \u00c9g panta\u00f0i akk\u00farat s\u00f6mu ger\u00f0 og er nefnd \u00ed Life Hacker greininni (en \u00fea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 nota \u00fdmsar a\u00f0rar ger\u00f0ir og \u00fe\u00e1 eru X-Box fjarst\u00fdringar oft nefndar). \u00de\u00e6r eru mj\u00f6g \u00f3d\u00fdrar en vandinn er a\u00f0 \u00fe\u00e6r eru ekki seldar beint til \u00cdslands. \u00c9g \u00feurfti \u00fev\u00ed a\u00f0 senda \u00feetta til <a href=\"http:\/\/myus.com\/\">MyUS<\/a> (svipa\u00f0 en \u00f3d\u00fdrara en ShopUSA mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 allt sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0) og \u00feeir sendu \u00feetta \u00e1fram til \u00cdslands. Ef ma\u00f0ur \u00e6tlar bara a\u00f0 kaupa eina \u00fe\u00e1 borgar \u00feetta sig varla.\n<\/p>\n<p>Til a\u00f0 stilla inn fjarst\u00fdringar \u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 fara \u00far a\u00f0alst\u00fdrikerfinu og keyra sm\u00e1 forrit eins og l\u00fdst er ne\u00f0arlega \u00ed Life Hacker greininni (\u00e9g var lengi a\u00f0 fatta \u00fea\u00f0 af \u00fev\u00ed st\u00fdringarnar komu d\u00e1lti\u00f0 eftir a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i sett \u00feetta upp og haf\u00f0i ekki greinina vi\u00f0 h\u00f6ndina \u00feegar \u00e9g var a\u00f0 stilla \u00fe\u00e6r).\n<\/p>\n<p>\u00c9g endurn\u00fdja\u00f0i kynni m\u00edn af Mortal Kombat 4 og \u00fea\u00f0 virka\u00f0i mun betur a\u00f0 nota fjarst\u00fdringuna heldur en lyklabor\u00f0i\u00f0. Sensible Soccer hins vegar mun \u00fe\u00e6gilegri me\u00f0 lyklabor\u00f0i.\n<\/p>\n<p>\u00cd stuttu m\u00e1li \u00fe\u00e1 er \u00feetta \u00f3d\u00fdrt og br\u00e1\u00f0skemmtilegt. Ef \u00fei\u00f0 fari\u00f0 \u00ed \u00feetta muni\u00f0 a\u00f0 kaupa Model B+ frekar en hinar ger\u00f0irnar og passi\u00f0 a\u00f0 straumbreytirinn s\u00e9 sem \u00f6flugastur (helst allavega 1 amper). \u00c9g \u00fearf sj\u00e1lfur a\u00f0 nota USB h\u00f6bb tengdan vi\u00f0 rafmagn til a\u00f0 hafa fjarst\u00fdringarnar og lyklabor\u00f0i\u00f0 \u00ed sambandi en \u00e9g er l\u00edka me\u00f0 g\u00f6mlu Model B. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri gaman a\u00f0 vita hvort fjarst\u00fdringarnar virki beintengdar \u00ed Model B+ sem er me\u00f0 svona margar USB raufar og betri rafmagnsn\u00fdtingu. Annars getur ma\u00f0ur stj\u00f3rna\u00f0 flestu \u00ed st\u00fdrikerfinu me\u00f0 fjarst\u00fdringunni en gott er a\u00f0 hafa lyklabor\u00f0 l\u00edka \u00feegar ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 fara \u00ed stillingar. \u00dea\u00f0 er vo\u00f0a gott a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0eins a\u00f0 tengjast t\u00f6lvunni me\u00f0 ssh (sem er l\u00edka h\u00e6gt \u00far Windows og Mac t\u00f6lvum) en \u00fea\u00f0 er engin nau\u00f0syn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 eru h\u00e1tt \u00ed tv\u00f6 \u00e1r s\u00ed\u00f0an \u00e9g keypti m\u00e9r Raspberry Pi t\u00f6lvu fyrst. Fyrir \u00fe\u00e1 sem ekki \u00feekkja til eru \u00feetta p\u00ednulitlar t\u00f6lvur sem vi\u00f0 fyrstu s\u00edn vir\u00f0ast frekar gagnslausar. \u00dea\u00f0 sem ger\u00f0ist \u00feegar \u00fe\u00e6r f\u00f3ru \u00e1 marka\u00f0 var a\u00f0 t\u00f6lvun\u00f6rdar heimsins fengu kast og byrju\u00f0u a\u00f0 hanna og a\u00f0laga st\u00fdrikerfinu og forrit a\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2014\/08\/27\/setti-upp-leikjatolvuhermi-a-raspberry-pi-dvergtolvu\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Setti upp leikjat\u00f6lvuhermi \u00e1 Raspberry Pi dvergt\u00f6lvu<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[67],"tags":[985,118],"class_list":["post-8738","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-tolvur","tag-q478829","tag-q388"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8738","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8738"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8738\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":19558,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8738\/revisions\/19558"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8738"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8738"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8738"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}