{"id":8776,"date":"2014-11-09T12:42:44","date_gmt":"2014-11-09T12:42:44","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=8776"},"modified":"2025-02-16T17:01:59","modified_gmt":"2025-02-16T17:01:59","slug":"russell-brand-slaktivistabylting-hirdfiflsins","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2014\/11\/09\/russell-brand-slaktivistabylting-hirdfiflsins\/","title":{"rendered":"Russell Brand &#8211; Slaktivistabylting hir\u00f0f\u00edflsins"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g held \u00e9g s\u00e9 b\u00fainn a\u00f0 fylgjast me\u00f0 Russell Brand lengur en flestir \u00cdslendingar. \u00c9g hef lesi\u00f0 tv\u00e6r \u00e6vis\u00f6gur hans og \u00fe\u00f3tti \u00f6nnur \u00feeirra st\u00f3rskemmtileg. \u00c9g f\u00f3r \u00e1 uppistandi\u00f0 hans \u00ed fyrra og skemmti m\u00e9r vel. M\u00e9r \u00feykir Brand l\u00edka oft skemmtilegur \u00feegar hann er me\u00f0 uppsteyt, t.d. \u00feegar hann skaut \u00e1 Hugo Boss.<\/p>\n<p>En Russell Brand er ekki p\u00f3lit\u00edskur hugsu\u00f0ur. Hann er hir\u00f0f\u00edfl. Hann getur stundum afhj\u00fapa\u00f0 valdamenn og er ekki laus vi\u00f0 inns\u00e6i. Hann skrifa\u00f0i t.d. \u00e1kaflega vel um \u00f3eir\u00f0irnar \u00ed Bretlandi fyrir nokkrum \u00e1rum enda \u00feekkir hann vel \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem sk\u00f6pu\u00f0u \u00fe\u00e6r.<\/p>\n<p>B\u00f3kin <em>Revolution<\/em> er ekki laus vi\u00f0 g\u00f3\u00f0ar hugmyndir &#8211; h\u00fan er bara laus vi\u00f0 g\u00f3\u00f0ar n\u00fdjar hugmyndir. Og h\u00fan er uppfull af sl\u00e6mum hugmyndum. G\u00f3\u00f0u hugmyndirnar koma a\u00f0allega fr\u00e1 hugsu\u00f0um eins og Chomsky og Brand vi\u00f0urkennir \u00fea\u00f0 yfirleitt. Vondu hugmyndirnar koma flestar \u00far n\u00fdaldarspekinni sem Brand a\u00f0hyllist svo mj\u00f6g.<\/p>\n<p>B\u00f3kin vir\u00f0ist illa ranns\u00f6ku\u00f0. Til d\u00e6mis heldur Brand \u00fev\u00ed fram a\u00f0 J\u00fap\u00edter hafi fj\u00f6gur tungl sem er alveg afskaplega rangt. S\u00ed\u00f0an eru l\u00edka nokkrar vafasamar tilvitnanir \u00ed Einstein og \u00e9g hef einmitt \u00fe\u00e1 stefnu a\u00f0 \u00e1l\u00edta allar sl\u00edkar tilvitnanir falsa\u00f0ar ef ekki fylgir v\u00edsun \u00ed heimildir. \u00deegar Brand talar um sp\u00e6nska borgarastr\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1 vir\u00f0ist hann ekki skilja neitt um \u00fea\u00f0, ekki bakgrunn \u00feess e\u00f0a eftirm\u00e1l.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem \u00e9g hef lesi\u00f0 um b\u00f3kina til \u00feessa hefur veri\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 Brand komi ekki me\u00f0 neinar hugmyndir um a\u00f0 koma &#8222;byltingunni&#8220; af sta\u00f0. \u00dea\u00f0 er reyndar rangt. Hann er me\u00f0 eina hugmynd um a\u00f0 koma byltingunni af sta\u00f0 og \u00fea\u00f0 er a\u00f0 huglei\u00f0a.<\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur en lengra er haldi\u00f0 er r\u00e9tt a\u00f0 taka fram a\u00f0 \u00e9g hef ekkert \u00e1 m\u00f3ti huglei\u00f0slu og hef alveg velt fyrir m\u00e9r a\u00f0 prufa. Hins vegar veit \u00e9g vel a\u00f0 \u00fe\u00f3 huglei\u00f0slan myndi kannski koma s\u00e9r vel fyrir mig \u00fe\u00e1 hefur h\u00fan engin \u00e1hrif \u00e1 neitt anna\u00f0. \u00dea\u00f0 er sama og um a\u00f0rar athafnir sem r\u00f3a hugann, hvort sem \u00fea\u00f0 eru b\u00e6nir e\u00f0a a\u00f0 horfa \u00e1 heimskulegar gamanmyndir. \u00dea\u00f0 hefur ekki \u00e1hrif nema \u00e1 og \u00ed gegnum mann sj\u00e1lfan.<\/p>\n<p>Brand vitnar oft \u00ed tilraun sem fylgjendur Maharishi Mahesh Yogi ger\u00f0u. \u00deeir hugleiddu tvisvar \u00e1 dag saman \u00ed von um a\u00f0 l\u00e6kka gl\u00e6pat\u00ed\u00f0nina \u00ed Washington DC \u00ed Bandar\u00edkjunum. Brand heldur a\u00f0 \u00feessi tilraun hafi virka\u00f0 \u00feannig a\u00f0 gl\u00e6pat\u00ed\u00f0nin hafi l\u00e6kka\u00f0 um 20%. Vandinn er a\u00f0 \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist ekki. S\u00e9r \u00ed lagi hefur veri\u00f0 bent \u00e1 a\u00f0 mor\u00f0t\u00ed\u00f0ni \u00ed borginni h\u00e6kka\u00f0i en s\u00e1 sem ger\u00f0i tilraunina svara\u00f0i \u00feannig a\u00f0 &#8222;hrottalegum&#8220; mor\u00f0um hafi f\u00e6kka\u00f0. \u00dea\u00f0 a\u00f0 tala um gagnsemi huglei\u00f0slu til a\u00f0 hafa \u00e1hrif \u00e1 samf\u00e9lagi\u00f0 er helsta tilraun Brand til a\u00f0 koma me\u00f0 a\u00f0fer\u00f0ir til a\u00f0 bylta samf\u00e9laginu. Brand m\u00e1 eiga \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann h\u00e6\u00f0ist a\u00f0 tilraunum \u00feessa sama h\u00f3ps, sem hann sj\u00e1lfur tilheyrir, til j\u00f3gaflugs. Vonandi er h\u00e6gt a\u00f0 nota t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i til a\u00f0 s\u00fdna honum a\u00f0 huglei\u00f0slutilraunin er af sama sau\u00f0ah\u00fasi.<\/p>\n<p>Brand talar nokkrum sinnum illa um v\u00edsindin en \u00e1 sama t\u00edma er honum miki\u00f0 \u00ed mun a\u00f0 reyna a\u00f0 nota skammtafr\u00e6\u00f0i til a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta n\u00fdaldarspeki s\u00edna. \u00c1 \u00feeim k\u00f6flum gretti \u00e9g mig t\u00f6luvert \u00ed framan og \u00ed heilanum. Mj\u00f6g vafas\u00f6m t\u00falkun.<\/p>\n<p>Versta hugmyndin \u00ed b\u00f3kinni er au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk \u00e6tti ekki a\u00f0 kj\u00f3sa en h\u00fan er ekki n\u00fd. \u00dea\u00f0 er barnaleg hugmynd sem d\u00e6mir f\u00f3lk einfaldlega \u00far leik. Stj\u00f3rnm\u00e1lamenn eltast ekki vi\u00f0 f\u00f3lk sem k\u00fds ekki. Au\u00f0velt d\u00e6mi \u00e1 \u00cdslandi er au\u00f0vita\u00f0 hvernig l\u00e1g kosninga\u00fe\u00e1tttaka ungs f\u00f3lks var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 P\u00edratar fengu ekki \u00fea\u00f0 fylgi sem \u00feeir hef\u00f0u geta\u00f0 fengi\u00f0. Au\u00f0vita\u00f0 eru a\u00f0st\u00e6\u00f0ur a\u00f0rar \u00ed Bretlandi en \u00fear v\u00e6ri til d\u00e6mis miklu betri hugmynd a\u00f0 kj\u00f3sa Gr\u00e6na flokkinn \u00fear heldur en a\u00f0 sleppa \u00fev\u00ed a\u00f0 kj\u00f3sa. UKip f\u00f3lki\u00f0 k\u00fds. Gamla f\u00f3lki\u00f0 k\u00fds. Ef \u00fe\u00fa k\u00fdst ekki \u00fe\u00e1 ertu ekki me\u00f0 og \u00f6llum er sama um \u00feig. Flokkarnir reyna frekar a\u00f0 f\u00e6ra sig til \u00feeirra sem munu kj\u00f3sa (sem er au\u00f0vita\u00f0 ein helst \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed Bandar\u00edkjunum eru tv\u00e6r h\u00e6gri flokkar sem \u00f6llu r\u00e1\u00f0a). \u00dea\u00f0 \u00fearf au\u00f0vita\u00f0 meiri pistil til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 kj\u00f3sa en \u00e9g vil samt segja a\u00f0 \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 reyna a\u00f0 velja sk\u00e1sta kostinn og s\u00e6tta sig vi\u00f0 a\u00f0 stundum l\u00ed\u00f0i manni svolti\u00f0 eins og ma\u00f0ur s\u00e9 sk\u00edtugur fyrir a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feessu.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hef\u00f0i l\u00edka veri\u00f0 sterkara hj\u00e1 Brand a\u00f0 segja f\u00f3lki a\u00f0 skila au\u00f0u e\u00f0a gera \u00f3gilt heldur en a\u00f0 sitja heima. Enginn s\u00e9r mun \u00e1 \u00feeim sem sitja heima af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru latir og \u00feeim sem sitja heima af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru rei\u00f0ir.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 gagnlegast ef Brand hef\u00f0i hvatt f\u00f3lk til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed p\u00f3lit\u00edsku starfi e\u00f0a h\u00f3pum sem eru berjast fyrir samf\u00e9lagslegum breytingum. En \u00fea\u00f0 hef\u00f0i ekki veri\u00f0 n\u00f3gu einfalt til a\u00f0 n\u00e1 til f\u00f3lks sem vill helst l\u00e1ta r\u00e9ttl\u00e6ta \u00e1kv\u00f6r\u00f0un s\u00edna um a\u00f0 kj\u00f3sa ekki.<\/p>\n<p>B\u00f3kin er samhengisl\u00edtil og frekar \u00f3fyndin, d\u00e1lti\u00f0 eins og seinni \u00e6visaga hans. Brand fer oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um \u00fat um v\u00ed\u00f0a v\u00f6ll \u00feannig a\u00f0 lesendur hlj\u00f3ta a\u00f0 hafa misst \u00fer\u00e1\u00f0inn \u00feegar hann sn\u00fdr aftur a\u00f0 \u00fev\u00ed sem hann var a\u00f0 tala um. Verst er fro\u00f0uspekin \u00fear sem Brand talar \u00ed l\u00f6ngu og fl\u00f3knu m\u00e1li til a\u00f0 fela a\u00f0 hann hefur ekkert a\u00f0 segja.<\/p>\n<p>Russell Brand segist hafa fari\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0um gr\u00ednistans Robert Webb og lesi\u00f0 sm\u00e1 Orwell en \u00fea\u00f0 hefur ekki gagnast miki\u00f0 \u00fev\u00ed Brand vir\u00f0ist ekki skilja neitt. \u00dea\u00f0 er annars gagnlegt a\u00f0 bera Brand saman vi\u00f0 annan breskan gr\u00ednista, Frankie Boyle, sem talar miki\u00f0 um stj\u00f3rnm\u00e1l. S\u00e1 er alltaf tilb\u00fainn a\u00f0 benda lesendum s\u00ednum \u00e1 a\u00f0 hann s\u00e9 bara gr\u00ednisti og a\u00f0 hann s\u00e9 ekki skarpasti hugsu\u00f0urinn \u00fe\u00f3 hann s\u00e9 au\u00f0vita\u00f0 miklu mun skarpari en Brand.<\/p>\n<p>B\u00f3kin er l\u00edklega h\u00e1punktur &#8222;slaktivismans&#8220; \u00fev\u00ed h\u00fan hvetur f\u00f3lk til a\u00f0 breyta samf\u00e9laginu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sitja heima \u00e1 kj\u00f6rdag og sitja \u00e1 rassinum a\u00f0 huglei\u00f0a. Kannski virkar Brand best sem hir\u00f0f\u00edfl vinstrimennskunnar sem minnir okkur \u00e1 a\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i er fyrir \u00fe\u00e1 sem taka \u00fe\u00e1tt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g held \u00e9g s\u00e9 b\u00fainn a\u00f0 fylgjast me\u00f0 Russell Brand lengur en flestir \u00cdslendingar. \u00c9g hef lesi\u00f0 tv\u00e6r \u00e6vis\u00f6gur hans og \u00fe\u00f3tti \u00f6nnur \u00feeirra st\u00f3rskemmtileg. \u00c9g f\u00f3r \u00e1 uppistandi\u00f0 hans \u00ed fyrra og skemmti m\u00e9r vel. M\u00e9r \u00feykir Brand l\u00edka oft skemmtilegur \u00feegar hann er me\u00f0 uppsteyt, t.d. \u00feegar hann skaut \u00e1 Hugo Boss. En &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2014\/11\/09\/russell-brand-slaktivistabylting-hirdfiflsins\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Russell Brand &#8211; Slaktivistabylting hir\u00f0f\u00edflsins<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[77,58],"tags":[1004],"class_list":["post-8776","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-77","category-stjornmal","tag-q296609"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8776","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8776"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8776\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":22922,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8776\/revisions\/22922"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8776"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8776"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8776"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}