{"id":9175,"date":"2017-08-05T20:07:42","date_gmt":"2017-08-05T20:07:42","guid":{"rendered":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/?p=9175"},"modified":"2024-04-25T10:41:39","modified_gmt":"2024-04-25T10:41:39","slug":"illugastadir-2017","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2017\/08\/05\/illugastadir-2017\/","title":{"rendered":"Illugasta\u00f0ir 2017"},"content":{"rendered":"<p><figure id=\"attachment_9176\" aria-describedby=\"caption-attachment-9176\" style=\"width: 300px\" class=\"wp-caption alignright\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"size-medium wp-image-9176\" src=\"http:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2017\/08\/bordaduti-300x169.jpg\" alt='' width=\"300\" height=\"169\" \/><figcaption id=\"caption-attachment-9176\" class=\"wp-caption-text\">Vi\u00f0 t\u00f3kum eina m\u00e1lt\u00ed\u00f0 \u00fati vi\u00f0<\/figcaption><\/figure><br \/>\nMi\u00f0vikudaginn 26. j\u00fal\u00ed lag\u00f0i \u00e9g af sta\u00f0 \u00ed lei\u00f0angur. Fyrsti \u00e1fangasta\u00f0ur var Vopnafj\u00f6r\u00f0ur \u00fear sem fj\u00f6lskyldan bei\u00f0. \u00c9g keyr\u00f0i af sta\u00f0 en ekkert \u00e1hugavert ger\u00f0ist fyrr en r\u00e9tt utan vi\u00f0 Borgarnes \u00fear sem \u00e9g s\u00e1 mann \u00e1 puttanum. \u00c9g haf\u00f0i ekki teki\u00f0 upp puttafer\u00f0alang \u00ed mj\u00f6g langan t\u00edma enda yfirleitt me\u00f0 fj\u00f6lskyldufylltann b\u00edl.\n<\/p>\n<p>\u00deetta var r\u00e9tt r\u00famlega tv\u00edtugur franskur str\u00e1kur \u00e1 lei\u00f0 til Akureyrar. R\u00e9tt eftir a\u00f0 \u00e9g haf\u00f0i teki\u00f0 hann upp \u00ed \u00fe\u00e1 stoppa\u00f0i Vegager\u00f0in okkur. Reyndar var \u00fear \u00e1 fer\u00f0inni drengur me\u00f0 skilti sem st\u00f3\u00f0 \u00e1 Stop. Ekki draumastarfi\u00f0 en hann haf\u00f0i allavega s\u00edma og st\u00f3l. Vi\u00f0 bi\u00f0um me\u00f0an Vegager\u00f0arb\u00edll leiddi b\u00edlar\u00f6\u00f0ina sem kom \u00e1 m\u00f3ti okkur. \u00deetta var til a\u00f0 takmarka grj\u00f3tkast. \u00deegar Vegager\u00f0arb\u00edllinn haf\u00f0i sn\u00fai\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sneri drengurinn \u00ed st\u00f3lnum skiltinu s\u00ednu vi\u00f0 og \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 Go.\n<\/p>\n<p>Spjall okkar n\u00e1\u00f0i um heim og geima. \u00c9g var ekki lengi a\u00f0 segja honum fr\u00e1 fj\u00f6lskyldutengslum m\u00ednum vi\u00f0 Frakkland og hann t\u00f3k \u00fea\u00f0 ekkert n\u00e6rri s\u00e9r. Flj\u00f3tlega f\u00f3rum vi\u00f0 a\u00f0 tala um franska p\u00f3lit\u00edk og \u00e9g tala\u00f0i illa um Le Pen sem var ekkert s\u00e9rstaklega djarft enda var puttafer\u00f0alangurinn, eins og hann \u00fatsk\u00fdr\u00f0i seinna, barn franskrar m\u00f3\u00f0ur og f\u00f6\u00f0ur fr\u00e1 Kong\u00f3. \u00c9g ve\u00f0ja\u00f0i sums\u00e9 r\u00e9ttilega \u00e1 a\u00f0 hann v\u00e6ri ekki stu\u00f0ningsma\u00f0ur Front National. \u00dea\u00f0 gladdi mig svol\u00edti\u00f0 \u00feegar puttafer\u00f0alangurinn spur\u00f0i mig um svart f\u00f3lk \u00e1 \u00cdslandi. \u00c9g gat sagt honum fr\u00e1 bl\u00e1m\u00f6nnum, Hans J\u00f3natan, bandar\u00edskum herm\u00f6nnum og fyrsta skiptinu sem \u00e9g s\u00e1 fullor\u00f0inn svartan mann. Hann sag\u00f0i m\u00e9r l\u00edka fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feegar hann f\u00f3r \u00ed heima\u00feorp f\u00f6\u00f0ur s\u00edns \u00fear sem b\u00f6rnin bentu \u00e1 hann og k\u00f6llu\u00f0u, \u00e1 sinni tungu, &#8222;hv\u00edtur, hv\u00edtur&#8220;.\n<\/p>\n<p>\u00c9g uppfr\u00e6ddi \u00feann franska um \u00edslenskan mat. \u00dear \u00e1 me\u00f0al benti \u00e9g honum \u00e1 a\u00f0 eina m\u00f6gulega \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 bor\u00f0a h\u00e1karl v\u00e6ri a\u00f0 geta sagt einhverjar karlmennskus\u00f6gur af sj\u00e1lfum s\u00e9r. Ef hann vildi bor\u00f0a ekta mat heimamanna \u00fe\u00e1 \u00e6tti hann a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r hamborgara me\u00f0 fr\u00f6nskum \u00e1 milli e\u00f0a dj\u00fapsteikta pylsu. \u00c9g nefndi l\u00edka a\u00f0 lambakj\u00f6t v\u00e6ri l\u00edka bo\u00f0legt og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega hangikj\u00f6t.\n<\/p>\n<p>\u00c9g skutla\u00f0i franska drengnum \u00e1 tjaldst\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00e1 Akureyri en byrja\u00f0i \u00fe\u00e1 flj\u00f3tlega a\u00f0 heyra undarleg hlj\u00f3\u00f0 \u00far b\u00edlnum. \u00c9g \u00feor\u00f0i ekki a\u00f0 keyra miki\u00f0 lengra og gladdist \u00ed hjarta m\u00ednu a\u00f0 b\u00edllinn v\u00e6ri lei\u00f0inlegur \u00e1 Akureyri. \u00c9g gat nefnilega hringt \u00ed Svavar fr\u00e6nda sem redda\u00f0i m\u00e9r inn \u00e1 verkst\u00e6\u00f0i\u00f0 me\u00f0 litlum fyrirvara. \u00dear kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 undir b\u00edlnum var \u00f3h\u00f3flegt magn af steinum og tj\u00f6ru. \u00dev\u00ed var s\u00f3pa\u00f0 undan og \u00e9g gat haldi\u00f0 \u00e1fram fer\u00f0inni, \u00f3endanlega \u00feakkl\u00e1tur fr\u00e6nda og hans f\u00f3lki.\n<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 hafa bor\u00f0a\u00f0 hamborgara me\u00f0 fr\u00f6nskum \u00e1 milli dreif \u00e9g mig austur. \u00dea\u00f0 var t\u00ed\u00f0indal\u00edti\u00f0 fer\u00f0alag. \u00dea\u00f0 var \u00feoka \u00e1 hei\u00f0um og \u00e9g var\u00f0 h\u00e1lfringla\u00f0ur \u00feegar \u00e9g kom ni\u00f0ur a\u00f0 \u00feorpinu \u00fev\u00ed vegurinn haf\u00f0i ekki veri\u00f0 tilb\u00fainn s\u00ed\u00f0ast \u00feegar \u00e9g kom. \u00dea\u00f0 var mikil gle\u00f0i hj\u00e1 drengjunum \u00feegar \u00e9g kom og l\u00edka hj\u00e1 m\u00e9r. \u00c9g haf\u00f0i alveg sakna\u00f0 \u00feeirra. Eygl\u00f3 var l\u00edka gl\u00f6\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 mig en ekki jafn \u00f3stj\u00f3rnlega og \u00feeir tveir.\n<\/p>\n<p>\u00c9g eyddi fimmtudeginum \u00e1 Vopnafir\u00f0i, f\u00f3r \u00ed sund og hitti tengdaf\u00f3lk. \u00c9g haf\u00f0i reyndar n\u00e1\u00f0 a\u00f0 missa af besta ve\u00f0ri sumarsins \u00fearna fyrir nor\u00f0an og austan og var einmitt a\u00f0 missa af besta ve\u00f0rinu fyrir sunnan. \u00c1 f\u00f6studag f\u00f3rum vi\u00f0 s\u00ed\u00f0an af sta\u00f0 \u00ed \u00e1tt a\u00f0 Illugast\u00f6\u00f0um \u00fear sem vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um leigt sumarb\u00fasta\u00f0. \u00dea\u00f0 gekk allt vel. Drengirnir \u00fe\u00e6gilegir ekkert \u00f3h\u00f3flega margir fer\u00f0amenn \u00e1 veginum. Vi\u00f0 hentum d\u00f3tinu okkar inn \u00e1 Illugast\u00f6\u00f0um og, eftir a\u00f0 hafa hlusta\u00f0 \u00e1 ofurj\u00e1kv\u00e6\u00f0ni Gunnsteins, \u00fe\u00e1 drifum vi\u00f0 okkur til Akureyrar \u00fear sem vi\u00f0 keyptum nau\u00f0synjar \u00ed B\u00f3nus. Kv\u00f6ldmaturinn var s\u00ed\u00f0an sn\u00e6ddur \u00e1 Bryggjunni.\n<\/p>\n<p>Laugardagur \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0 var leti. Vi\u00f0 byrju\u00f0um \u00e1 sundi og afreku\u00f0um s\u00ed\u00f0an sem minnst. Vi\u00f0 l\u00e6r\u00f0um l\u00edka a\u00f0eins \u00e1 heita pottinn. \u00deegar h\u00e9r var komi\u00f0 vi\u00f0 s\u00f6gu \u00fe\u00e1 var j\u00e1kv\u00e6\u00f0ni drengja farin a\u00f0 minnka. Skortur \u00e1 netsambandi var \u00fear ofarlega \u00e1 kv\u00f6rtunarbla\u00f0i. \u00dea\u00f0 var v\u00edst ekki h\u00e6gt a\u00f0 vita hve m\u00f6rg myndb\u00f6nd Unspeakable v\u00e6ri b\u00fainn a\u00f0 setja \u00e1 YouTube me\u00f0an vi\u00f0 vorum \u00fearna \u00ed menningarleysinu. \u00c9g enda\u00f0i sj\u00e1lfur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sogast inn \u00ed einhvern breskan \u00fe\u00e1tt um matr\u00e1\u00f0skonu sem stal lott\u00f3mi\u00f0a. \u00dea\u00f0 var h\u00e1lfdapurlegt hva\u00f0 \u00e9g var farinn a\u00f0 taka \u00feetta allt n\u00e6rri m\u00e9r. Vi\u00f0 Eygl\u00f3 endu\u00f0um s\u00ed\u00f0an kv\u00f6ldi\u00f0 \u00e1 a\u00f0 horfa \u00e1 laugardagsmyndina \u00e1 R\u00daV saman.\n<\/p>\n<p>Sunnudagur byrja\u00f0i \u00e1 sundi og s\u00ed\u00f0an lag\u00f0i Eygl\u00f3 til a\u00f0 vi\u00f0 myndum fara til Greniv\u00edkur. \u00c9g reyndi a\u00f0 f\u00e1 sk\u00fdringu \u00e1 \u00feessari undarlegu hugmynd en h\u00fan vildi bara sj\u00e1 \u00feorpi\u00f0. \u00c9g veit ekki hvers vegna. En \u00fearna f\u00f3rum vi\u00f0. Vi\u00f0 komust \u00feanga\u00f0 og keyr\u00f0um um \u00feorpi\u00f0 allt og stoppu\u00f0um s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 sk\u00f3lann \u00fear sem \u00e6tlunin var a\u00f0 drengirnir myndu hreyfa sig a\u00f0eins. Gunnsteinn var mj\u00f6g gla\u00f0ur en Ingimar haf\u00f0i vakna\u00f0 eitthva\u00f0 pirra\u00f0ur og sam\u00feykkti enga skemmtun. \u00c1 me\u00f0an \u00e1 \u00feessu st\u00f3\u00f0 keyr\u00f0u \u00feorpsb\u00faar allir framhj\u00e1 okkur og st\u00f6r\u00f0u. M\u00e9r lei\u00f0 svol\u00edti\u00f0 eins og \u00e9g v\u00e6ri \u00ed Stephen King b\u00f3k.\n<\/p>\n<p>Til a\u00f0 reyna a\u00f0 gle\u00f0ja Ingimar skruppum vi\u00f0 \u00ed J\u00f3nsab\u00fa\u00f0 til a\u00f0 kaupa \u00eds. Hann vildi ekki koma me\u00f0 \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 Gunnsteinn f\u00f3rum einir inn. \u00c9g valdi tr\u00fa\u00f0a\u00eds handa Ingimari og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 sigra hann \u00feannig. \u00dea\u00f0 var hins vegar \u00f3stj\u00f3rnlega rangt hj\u00e1 m\u00e9r. Hann vildi velja \u00edsinn sj\u00e1lfur. Eygl\u00f3 n\u00e1\u00f0i a\u00f0 hugga hann og f\u00e1 hann til a\u00f0 velja n\u00fdjan \u00eds me\u00f0an s\u00e1 gamli byrja\u00f0i a\u00f0 br\u00e1\u00f0na. Reyndar f\u00e9kk tr\u00fa\u00f0a\u00edsinn ekki a\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0 mauki \u00fev\u00ed a\u00f0 Ingimar var til \u00ed a\u00f0 f\u00e1 sm\u00e1 auka \u00eds \u00feegar hann var b\u00fainn me\u00f0 sinn \u00fatvalda. Gunnsteinn f\u00e9kk l\u00edka af honum.\n<\/p>\n<p>Ein helsta gle\u00f0in vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 tr\u00fa\u00f0a\u00eds er au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 flautu til a\u00f0 gera fullor\u00f0na brj\u00e1la\u00f0a. En \u00feegar Gunnsteinn \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 losa s\u00edna flautu gekk \u00fea\u00f0 ekkert. Ingimar var flj\u00f3tur a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a fram s\u00edna \u00fej\u00f3nustu, sag\u00f0ist geta gert \u00feetta og st\u00f3\u00f0 vi\u00f0. \u00deetta var s\u00ed\u00f0an endurteki\u00f0 \u00e1 hinni flautunni. Ingimar er greinilega har\u00f0hentastur.\n<\/p>\n<p>Vi\u00f0 endu\u00f0um \u00e1 Akureyri \u00fear sem vi\u00f0 b\u00e6ttum a\u00f0eins vi\u00f0 nau\u00f0synjar og f\u00f3rum aftur \u00e1 Bryggjuna sem var greinilega or\u00f0in eftirl\u00e6tissta\u00f0ur hj\u00e1 drengjum, og svo sem okkur l\u00edka.\n<\/p>\n<p>M\u00e1nudagurinn var hef\u00f0bundinn me\u00f0 sundi og s\u00ed\u00f0an komu Hafd\u00eds og fj\u00f6lskylda \u00ed heims\u00f3kn og grill. \u00dea\u00f0 var alveg \u00f3gurleg gle\u00f0i hj\u00e1 kr\u00f6kkunum en \u00fe\u00f3 voru Sunna og Gunnstein s\u00e9rstaklega \u00e1n\u00e6g\u00f0 a\u00f0 leika saman. Vi\u00f0 reyndum a\u00f0 fara \u00ed m\u00edn\u00edg\u00f3lf sta\u00f0arins en \u00fea\u00f0 gekk ekkert rosalega vel af \u00fev\u00ed a\u00f0 flugurnar reyndu a\u00f0 \u00e9ta okkur. S\u00e9rstaklega okkur Hafd\u00edsi og b\u00f6rnin \u00e1 me\u00f0an Mummi og Eygl\u00f3 sluppu mun betur. \u00c9g var n\u00e6stum b\u00fainn a\u00f0 missa mig yfir helv\u00edtisflugunum.\n<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feri\u00f0judag var fari\u00f0 \u00ed M\u00fdvatnssveit (eftir hi\u00f0 daglega sund), sem hlj\u00f3mar reyndar ekki sem g\u00f3\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6vint\u00fdri m\u00e1nudagsins. Vi\u00f0 bor\u00f0u\u00f0um \u00e1 Daddapizzu sem var mj\u00f6g gott en ekki \u00f3d\u00fdrt nema \u00e1 m\u00e6likvar\u00f0a M\u00fdvatnssveitar. Vi\u00f0 f\u00f3rum s\u00ed\u00f0an og r\u00f6ltum um Dimmuborgir. Gunnsteinn var vo\u00f0alega gla\u00f0ur fyrst a\u00f0 sj\u00e1 j\u00f3lasveinahelli en \u00feolinm\u00e6\u00f0in var ekki algj\u00f6r me\u00f0an vi\u00f0 gengum r\u00famlega tveggja k\u00edl\u00f3metra hring. \u00c9g haf\u00f0i ekki komi\u00f0 \u00ed Dimmuborgir lengi og \u00fe\u00f3tti vo\u00f0alega skr\u00fdti\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 \u00feetta svona t\u00faristav\u00e6tt. \u00dea\u00f0 sk\u00e1na\u00f0i a\u00f0eins \u00feegar vi\u00f0 vorum komin \u00fearna lengra inn.\n<\/p>\n<p>Eftir Dimmuborgir komum vi\u00f0 vi\u00f0 \u00ed Samkaup og keyptum okkur \u00edsa. \u00dea\u00f0 var erfi\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hva\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 gera n\u00e6st en vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 Fuglasafni\u00f0 yr\u00f0i fyrir valinu. \u00c9g reyndi au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 lj\u00faga \u00fev\u00ed a\u00f0 drengjunum a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ru a\u00f0 ruglast og \u00feetta v\u00e6ri \u00ed raun flugnasafn &#8211; sem v\u00e6ri au\u00f0vita\u00f0 miklu meira vi\u00f0eigandi. En Fuglasafni\u00f0 sl\u00f3 \u00ed gegn. \u00dea\u00f0 bo\u00f0a\u00f0i l\u00edka gott \u00feegar \u00f6nd r\u00f6lti \u00e1 undan okkur inn. Ingimar heilla\u00f0ist af haferni en Gunnsteinn var meira a\u00f0 p\u00e6la \u00ed heildinni. Eftir \u00feetta var bara fari\u00f0 beint \u00ed b\u00fasta\u00f0inn.\n<\/p>\n<p>Mi\u00f0vikudagur byrja\u00f0i \u00e1 hinu hef\u00f0bundna sundi en s\u00ed\u00f0an f\u00f3rum vi\u00f0 \u00e1 Akureyri a\u00f0 hitta R\u00f3su og Lindu \u00ed Kjarnask\u00f3gi. \u00c9g skrapp reyndar fyrst \u00e1 n\u00fdopna\u00f0an skyndibitasta\u00f0 sem heitir Aleppo. \u00dea\u00f0 er var vo\u00f0alega ind\u00e6lt a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0eins koma fj\u00f6lbreytt l\u00edf \u00ed g\u00f6ngug\u00f6tu heimab\u00e6jarins. \u00cd Kjarnask\u00f3gi var n\u00fdr leikv\u00f6llur prufa\u00f0ur eftir a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um n\u00e1\u00f0 a\u00f0 hrekja vinnuv\u00e9lar \u00e1 brott. S\u00ed\u00f0an var v\u00f6lundarh\u00fas sko\u00f0a\u00f0. \u00dea\u00f0 er l\u00edklega ekki n\u00fdtt en l\u00edklega er ekki langt s\u00ed\u00f0an \u00fea\u00f0 n\u00e1\u00f0i bo\u00f0legri h\u00e6\u00f0. Eftir \u00fea\u00f0 var fari\u00f0 inn \u00ed Hrafnagil a\u00f0 hitta Hafd\u00edsi og fj\u00f6lskyldu aftur.\n<\/p>\n<p>\u00c1 fimmtudag h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 st\u00f3r pl\u00f6n um a\u00f0 fara \u00ed \u00c1sbyrgi og Axarfj\u00f6r\u00f0 og jafnvel a\u00f0 Dettifossi. \u00dea\u00f0 var hins vegar vo\u00f0alega l\u00edtil stemming fyrir langfer\u00f0 \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 endu\u00f0um me\u00f0 a\u00f0 d\u00falla okkur, eftir sundi\u00f0, og a\u00f0 s\u00ed\u00f0an f\u00f3rum vi\u00f0 \u00ed stutta fer\u00f0 a\u00f0 Go\u00f0afossi. Vi\u00f0 f\u00f3rum alveg a\u00f0 fossinum sem stendur au\u00f0vita\u00f0 fyrir s\u00ednu. \u00dea\u00f0 er skr\u00fdti\u00f0 a\u00f0 vera umvafinn fer\u00f0am\u00f6nnum \u00fearna. Vi\u00f0 verslu\u00f0um a\u00f0eins \u00e1 Fossh\u00f3l og \u00fea\u00f0 voru mist\u00f6k. \u00dea\u00f0 var r\u00e1nd\u00fdrt og n\u00e6r ekkert var ver\u00f0merkt. \u00de\u00e1 kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 mj\u00f3lkin sem vi\u00f0 keyptum \u00fearna var \u00f3n\u00fdt.\n<\/p>\n<p>Eins og venjulega t\u00f3kum vi\u00f0 kv\u00f6ldi\u00f0 \u00ed pottinum, allavega vi\u00f0 str\u00e1karnir. Vi\u00f0 vorum samm\u00e1la um a\u00f0 l\u00e1gmarkshitinn v\u00e6ri full h\u00e1r \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 t\u00f3kum okkur til og stilltum pottinn \u00e1 n\u00e6turhita. H\u00e6gt og r\u00f3lega f\u00f3r hitastigi\u00f0 ni\u00f0ur \u00ed t\u00e6par 29\u00b0 sem var notaleg tilfinning. Heiti potturinn \u00fearna var reyndar af frekar lei\u00f0inlegri tegund. Hann er mj\u00f6g \u00f3reglulegur sem er \u00e6tla\u00f0 til \u00feess a\u00f0 ma\u00f0ur geti seti\u00f0 og legi\u00f0 \u00ed \u00fdmsum stellingum en a\u00f0allega var\u00f0 \u00fea\u00f0 til \u00feess a\u00f0 ma\u00f0ur rann au\u00f0veldlega til og misteig sig \u00feegar ma\u00f0ur var \u00e1 fer\u00f0inni. \u00dear a\u00f0 auki var \u00f3\u00feolandi vesen a\u00f0 \u00fer\u00edfa hann enda rann vatni\u00f0 ekkert almennilega \u00far honum heldur festist bara \u00ed \u00f6llum \u00feessum kimum.\n<\/p>\n<p>Vi\u00f0 t\u00f3kum f\u00f6studagsmorgun \u00ed sundlauginni, vi\u00f0 str\u00e1karnir. \u00c9g synti reyndar n\u00e6r ekkert enda \u00feurfti athyglin a\u00f0 vera \u00e1 Ingimari. Vi\u00f0 bjuggum \u00ed anna\u00f0 skipti\u00f0 til &#8222;hatt&#8220; \u00far kleinuhringjum og pylsu. \u00dea\u00f0 vakti mikla lukku. Reyndar haf\u00f0i Eygl\u00f3 fengi\u00f0 hl\u00e1turskast \u00feegar \u00e9g f\u00f3r fyrst inn \u00ed \u00feetta daginn \u00e1\u00f0ur. Eftir a\u00f0 hafa \u00ferifi\u00f0 og drifi\u00f0 allt drasli\u00f0 \u00ed b\u00edlinn keyr\u00f0um vi\u00f0 til Akureyrar. Bryggjan var\u00f0 fyrir valinu. Reyndar haf\u00f0i Ingimar fyrst sagt flatt nei vi\u00f0 \u00fev\u00ed en a\u00f0 lokum \u00e1ttu\u00f0um vi\u00f0 okkur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vildi endilega f\u00e1 franskar og vissi ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri alveg h\u00e6gt a\u00f0 panta \u00fe\u00e6r \u00fearna. \u00deegar hann var uppl\u00fdstur um st\u00f6\u00f0u fransknanna \u00fe\u00e1 t\u00f3k hann gle\u00f0i s\u00edna \u00e1 n\u00fd og sam\u00feykkti Bryggjuna.\n<\/p>\n<p>Drengirnir voru yndislegir \u00ed b\u00edlnum. Vi\u00f0 t\u00f3kum bara eitt pissustopp enda var gulr\u00f3t vi\u00f0 enda lei\u00f0arinnar til Reykjav\u00edkur, KFC \u00ed Mosfellsb\u00e6. Maturinn \u00fear er vissulega alveg \u00e1g\u00e6tur, og \u00fea\u00f0 f\u00e1st franskar, en a\u00f0allega er \u00fea\u00f0 leiksv\u00e6\u00f0i\u00f0 sem heillar.\n<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var mikil gle\u00f0i a\u00f0 komast heim nema a\u00f0 blokkin er a\u00f0 missa gr\u00e6na litinn og or\u00f0in full hv\u00edt sem er full lj\u00f3tt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mi\u00f0vikudaginn 26. j\u00fal\u00ed lag\u00f0i \u00e9g af sta\u00f0 \u00ed lei\u00f0angur. Fyrsti \u00e1fangasta\u00f0ur var Vopnafj\u00f6r\u00f0ur \u00fear sem fj\u00f6lskyldan bei\u00f0. \u00c9g keyr\u00f0i af sta\u00f0 en ekkert \u00e1hugavert ger\u00f0ist fyrr en r\u00e9tt utan vi\u00f0 Borgarnes \u00fear sem \u00e9g s\u00e1 mann \u00e1 puttanum. \u00c9g haf\u00f0i ekki teki\u00f0 upp puttafer\u00f0alang \u00ed mj\u00f6g langan t\u00edma enda yfirleitt me\u00f0 fj\u00f6lskyldufylltann b\u00edl. \u00deetta var &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/2017\/08\/05\/illugastadir-2017\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Illugasta\u00f0ir 2017<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":9176,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[16],"tags":[283,268,284,285],"class_list":["post-9175","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-ferdasaga","tag-ferdast-innanlands","tag-fjolskylduferd","tag-illugastadir","tag-nordurland"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/9175","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=9175"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/9175\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":19968,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/9175\/revisions\/19968"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=9175"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=9175"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/oligneisti\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=9175"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}