Er að glugga í Eimreiðina frá 1942 (ekki spyrja, vinnutengt) og skemmti mér vel yfir auglýsingunum. Ein er sérstaklega skemmtileg enda stóru orðin ekki spöruð:
Ekkert
er jafnömurlegt og bókarlaust heimili.
Notið nú tækifærið að koma upp vísi að heimilisbókasafni- og byrjið á íslenzkum úrvalsbókum:
Sögunni af Þuríði formanni,
Sögu Theodórs Friðrikssonar,
Stjörnum vorsins eftir Tómas,
Ljósvíkingnum eftir Laxness,
Íslenzkum aðal eftir Þórberg,
Það brýtur á boðum,
Eddu Þórbergs Þórðasonar,
Við hin gullnu þil,
Sjö töframönnum eftir Laxness.
– Lengri var auglýsingin ekki, enda fátt ósagt. Skemmtilegt!