Grænmetisauglýsing

Úgg. Á gær fór ég gjörsamlega upp úr engu að raula lagið úr gamalli frænmetisauglýsingu. Hú var á þessa leið:

Nú er lag –
Sólargrænmeti hvern dag!
Það heilsu þí­na bætir –
sem og vax-tar-lag…

Eitthvað segir mér að það hafi verið tvö erindi. Er einhver von til þess að einhver lesandi hafi restina á takteinum? Jafnframt væri gaman að vita hvort Sólargrænmeti sé ennþá framleitt?

Og úr því­ að verið er að rifja upp sungnar auglýsingar – þá var Svarti-Pétur, lakkrí­sjógúrt, skringileg afurð. Hún bragðaðist eins og bí­ldekk í­ undanrennu en var auglýst á bráðskemmtilegan hátt af hópi unglinga í­ pönkarafötum sem öskruðu sig í­ textann: „Svarti P-é-é-étur! Lakkrí­s jó-ó-ógúrt!“ – Hvernig geta svona vörur klikkað á markaði?

Að lokum – svona úr því­ að verslunarmannahelgin nálgast – hver man ekki eftir útihátí­ðinni „Gauknum“ í­ Þjórsárdal. (Skemmtilegt að ví­sa svona í­ fornsögurnar.) Allan júlí­mánuð fyrir þá samkomu var spiluð linnulaust útvarpsauglýsing með stórkarlalegum kór syngja: „Um verslunarmannahelgina – þá förum við á Gaukinn!“ – Þangað mættu svo rustamenni og lögðu Þjórsárdal í­ rúst.

Man einhver nákvæmlega hvaða ár Gaukurinn var haldinn?