Stefán og Steinunn vakna fyrir allar aldir að morgni mánudagsins 1. september, enda stíf dagskrá fyrir höndum. Safnverðir mega aldrei sofna á verðinum og Stefán hefur boðað komu sína á Vand- og energiværkstedet, sem er bráðskemmtilegt fræðslusetur á vegum Vatnveitu Kaupmannahafnar og orkufyrirtækja á svæðinu.
Þegar ferðalangarnir íslensku mæta á svæðið er hópur skólakrakka, 6-7 ára á að giska, að hamast við að dæla vatni, byggja stíflugarða og veiða vatnakvikindi með þar til gerðum háfum. Strákurinn sem rekur staðinn bauð upp á kaffi og lóðsaði um allt svæðið, þar á meðal frábærlega skemmtilegt „völundarhús“ þar sem gríslingarnir geta ímyndað sér að þeir séu að ganga eftir holræsakerfi Kaupmannahafnar. Danirnir fá fyrstu einkunn fyrir framtakið og er Stefán strax farinn að vinna í því að fá aðalarkitektinn á bak við þetta fluttann til landsins.
Pan-skandinavisminn í verki
Frá Vandværkstedet löbbuðu besti bloggarinn og frú að höfuðstöðvum danska MS-félagsins. Þar hafði Steinunn sett niður fund með formanni ungliðasamtaka félagsins og starfsmanni á skrifstofunni. Þessar höfuðstöðvar reyndust tröllauknar og starfsmannahaldið margfalt meira en órað hefði mátt fyrir. Danska MS-félagið er raunar einstakt í sinni röð á Noðrurlöndum hvað umfang og styrk varðar. Fundurinn varðaði norræna ráðstefnu sem fyrirhugað er að halda á Íslandi innan tíðar.
Danirnir höfðu margt gott til málanna að leggja, en eins og svo títt er um Skandinava í norrænu samstarfi eiga þeir erfitt með að skilja tungumálavandann. Það er eins og þeir komi því ekki inn í kollinn á sér að danska og íslenska séu gjörólík tungumál og að útilokað væri að fá dæmigerða Íslendinga til að halda ráðstefnu á dönsku, til þess eins að 2-3 danskir gestir geti fylgst með því sem fram fer. Ekki bætti úr skák að Steinunn talar dönsku nánast eins og innfædd og gátu Danirnir því ekki ímyndað sér annað en að allir Íslendingar séu tvítyngdir. – Stefán hlustaði á umræðurnar og reyndi að halda sér til hlés, þó hann hafi þurft að bíta í tunguna á sér þegar talið barst að Færeyingum. Fordómar og skilningsleysi Dana gagnvart Færeyjum er með hreinum ólíkindum. Lifi frjálsar Færeyjar!
Ferð án fyrirheits
Það var langt liðið á daginn þegar fundarhöldunum í MS-heimilinu lauk. Steinunn ákvað að halda upp á herbergi að hvíla sig um stund. Stefán ákvað að skreppa fyrst og finna netkaffihús til að líta á fjármálin og leita fregna að heiman. Grunlaus var hann um það hversu fágæt slík þjónusta er í Kaupmannahöfn.
Á eina og hálfa klukkustund eigraði besti og frægasti bloggarinn um götur höfuðborgarinnar án þess að finna nokkra netþjónustu. Almenningsþvottahús, skiptiþjónusta fyrir gjaldeyri og búðir sem selja hjálpartæki ástarlífsins voru á hverju strái – en um internetsamband var ekki að ræða. Örvæntingarfull leitin rak Stefán loks út á hina alræmdu Istegade. Óhætt er að segja að sú heimsókn hafi valdið vonbrigðum, því eftir allar hryllingssögurnar af dýragarðsbörnum og dópistum sem á manni hafa bulið virtist gatan álíka ógnvekjandi og Tryggvagatan á slæmum degi. – Stefán sneri því sárfættur heim á hótel án þess að hafa heiðrað veraldarvefinn með nærveru sinni þann daginn.
Enn á Tyrkjaslóðum
Að síðdegislúr loknum var orðið tímabært að finna einhvern stað til að éta á nýjan leik – enda yfirlýst markmið ferðarinnar að bæta á sig nokkrum kílóum fyrir hinar óumflýjanlegu frosthörkur næstu mánaða. Aftur varð sá afbragðsgóði staður Ankara fyrir valinu, að þessu sinni hið rómaða hlaðborð sem auglýst var hið stærsta á Norðurlöndum. Steinunn og Stefán gúffuðu í sig tyrkneskum krásum og spöruðu ekki hvítlaukinn, sér til óblandinnar ánægju en fáum öðrum til yndisauka.
Fátt er betra eftir góða máltíð en að skella sér í bíó. Við eina hliðargötu Striksins er þetta fína kvikmyndahús sem einkum sýnir evrópskar bíómyndir og selur ekki poppkorn. Ætlunin hafði verið að sjá Dogville, nýjustu mynd Lars von Trier, en hún var sýnd á asnalegum tímum. Þess í stað skelltu Steinunn og Stefán sér á þýska mynd, „Goodbye Lenin“.
Myndin gerist í austur-Berlín um það leyti sem Berlínarmúrnum var rutt úr vegi og Þýskaland sameinaðist. Móðir aðalsöguhetjunnar hefur tröllatrú á austur-þýsku ríkisstjórninni, en lendir í dái á spítala á meðan ríkið hrynur til grunna. Þegar hún vaknar aftur ákveður aðalsöguhetjan að vernda hana fyrir sannleikanum og búa til blekkingarveröld þar sem Austur-Þýskaland er still going strong. Notalegur húmor og ágætis pælingar um það hver sé í raun að blekkja hvern og hvenær uppspuninn byrjar að viðhalda sjálfum sér blekkingarinnar vegna. Hins vegar eru værðarlegar hugvekjur sögumannsins, sem tyggur móralinn í sögunni oní áhorfendur, hvimleiðar til lengdar.
Rúmrusk
Eftir bíóið var gengið heim í úrhellisrigningu, eldingum og þrumuveðri. Stefán og Steinunn urðu hundblaut, enda ekki slíkir aumingjar að standa undir skyggni meðan gekk á með verstu hryðjunum. Fólkið í næsta herbergi hélt svo uppi fjörinu fram eftir nóttu með kraftmiklum og taktföstum æfingum. Það er nefnilega ekki bara einfalt gler í gluggum í herbergjunum á Hótel Ljóni, heldur eru veggirnir næfurþunnir líka. Tjaldið fellur, þriðja þætti lýkur.