Öskudagurinn er að fara í hundana – þökk sé helvíts markaðsöflunum.
Á dag gengur öskudagurinn út á að Leikbær og fleiri leikfangaverslanir selja börnum spædermanbúninga á 5.000 kall stykkið. Svo ganga þau búð úr búð og gaula til að fá sælgæti – það mun vera einhver norðlenskur siður sem vondir menn fluttu til Reykjavíkur. Einhverra hluta vegna hefur öskudagur alltaf verið sérstaklega mikil hátíð á Eyjafjarðarsvæðinu.
Þegar ég var gríslingur, var öskudagurinn mun ómarkvissari en jafnframt skemmtilega kaotískur. Skipulagðar skemmtanir voru fáar í bænum að þessu tilefni. Á miðbænum var sleginn köttur úr tunnu, þ.e. stálpaðir strákar börðu í tunnu uns hún rifnaði í sundur og úr ullu töggur-karamellur. Hersing af börnum hlupu í eina kös og smástelpur tróðust undir. – Sögur gengur af því að á ísafirði væri í raun og veru dauður köttur í tunnunni, en eitthvað segir mér að svo hafi ekki verið í alvörunni.
Grímubúningar voru þó ekki aðalmálið á öskudaginn, enda Leikbær (þá Liverpool) ekki búið að taka hann yfir. Flestir klæddu sig því bara í gömul föt af ömmu sinni eða afa. Einungis þeir sem áttu heimavinnandi og ofvirkar mömmur voru í „almennilegum“ búningum. Þá sjaldan ég reyndi að klæða mig í grímubúning, var ég alltaf gamall kall – í frakka af afa og með staf sem langafi heitinn hafði átt. Eftir tuttugu mínútur hætti svo að vera gaman að styðja sig við stafinn og var hann upp frá því notaður til stangarstökks eða skylminga.
Aðalmálið voru öskupokarnir. Þeir voru hengdir miskunarlaust á úlpur vina, kunningja og almennra vegfarenda. Það þótti bráðfyndið. Rauði krossinn reyndi líka að gera sér mat úr deginum með því að selja silkipoka með merki hreyfingarinnar. Börn voru plötuð til að ganga í hús og selja þetta upp á von um sölulaun. Held að krakkarnir í skóverksmiðjunum í Kína hafi haft meira upp úr krafsinu en hrekkleysingjarnir sem létu etja sér út í þessa pokasölu.
Eftir öskudaginn eipaði alltaf einhver mamman yfir því að stungin hefðu verið göt á nýju úlpuna barnsins hennar, sem einmitt var úr asnalegu gerviefni sem þola átti regn, heimskautakulda og rok – en raknaði upp í strimla við títuprjónsstungu. Á kjölfarið fylgdi ræða frá skólastjóra eða yfirkennara Melaskóla um að bera virðingu fyrir eignum annarra.
Jamm.