„I think that — I’m not a lawyer. My impression is that what has been charged thus far is abuse, which I believe technically is different from torture.“ – Donald Rumsfeld um pyntingarnar í írösku fangelsunum. „Under Saddam Hussein’s regime, this sort of behavior, this sort of treatment at Abu Ghraib would have been celebrated“ …
Monthly Archives: maí 2004
Er þjóðin hlynnt fjölmiðlafrumvarpinu?
„Nú segið þið að fólk sé almennt sammála ykkur í andstöðunni við stríðið í írak. Hvers vegna eru þá svona fáir mættir í þessi mótmæli?“ – spurði fréttamaður Stöðvar tvö mig fyrir framan Stjórnarráðið þar sem 7-800 manns voru saman komin. Mér fannst spurningin skringileg, enda vandfundin þau samtök eða hreyfingar á Íslandi sem fá …
Fórnarlamb kolkrabbans
Urr… Eimskip hafa einokað píparann minn í allan dag. Með þessu áframhaldi verður múrarinn bráðum stopp. Ekki er það skemmtilegt. Ég kenni kolkrabbanum um ef flutningar heim á Mánagötu tefjast öllu lengur. Ljótt, ljótt – sagði fuglinn.
Pæling
Þegar vísindamenn leita svara við spurningunni um það hvort vitsmunalíf sé eða hafi þrifist á öðrum hnöttum, velta þeir því oftast fyrir sér hvort þar sé eða hafi verið vatn að finna. Þetta tel ég vera ranga nálgun. Nær væri að spyrja hvort þar sé eða hafi verið KAFFI að finna? Nú eru þeir til …
Kraftvélar áróðursmaskínunnar
Gleði og fögnuður! Við Palli höfum nú fengið í hendur nýja barmmerkjapressu. Fyrir áttum við 1-tommu pressu, sem gerir litlu nælurnar sem sjá má fólk með um allan bæ & 1 1/2-tommu pressu, en við höfum aldrei verið ánægðir með hana. Annars vegar vegna þess að hún er leiðinleg í meðförum og lítillega biluð – …
Hjálparkokkurinn Stefán
Var að ljúka skringilegu símtali. Á mig hringdi túristi sem hafði verið bent á að bjalla í mig af Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík. Erindi hans var að hafa upp á einhverjum forsvarsmönnum búddista á Íslandi. Eftir að hafa vandræðast með honum í gegnum símann og leitað ákaft á netinu, kveikti ég á því að sjá …
Bensínstöðvar & sandkassar
Pæling: Sírnir félagi minn skammaðist einhverju sinni yfir þeirri áráttu Svía að kalla stofnanir vitlausum nöfnum. Að hans sögn fara Svíar ekki í bankann til að greiða reikninga, heldur í pósthúsið. En vei þeim sem halda að hægt sé að póstleggja bréf eða sækja böggla til póstsins – það er gert í kjörbúðinni. Skrítið! En …
ÓRG og „skúbb“ Morgunblaðsins
Morgunblaðið blés um helgina upp þá frétt að Ólafur Ragnar hafi í raun ekki ætlað sér forsetaembættið – heldur hafi markmiðið verið að tapa með reisn og nota kosningarnar til að byggja upp bakland fyrir áframhaldandi pólitískt valdabrölt. Þessi frétt er hins vegar ekki ný af nálinni. Hún birtist áður í prófkjörsblaði Einars Karls Haraldssonar, …
Óskalög bloggara
Þórdís upplýsir, í framhaldi af slúðurmola í Fréttablaðinu, að henni hafi boðist að taka þátt í útvarpsþætti þar sem bloggarar áttu að spila uppáhaldslögin sín – og þá væntanlega að blaðra eitthvað á milli laga. Skringilegt konsept, veit ekki hvort það virkar. Á það minnsta nenni ég aldrei að hlusta á þáttinn á Rás eitt …