Júlíus Vífill er stórhuga í prófkjörinu hjá íhaldinu og vill 2. sætið, eftir að hafa daðrað við borgarstjórastólinn með hléum síðustu árin. Á litlu flettiskilti við Sæbrautina, rétt norðvestan við hús Endurvinnslunnar, hefur mátt sjá andlitsmynd af Júlíusi.
Þessi auglýsing hefur vakið mikla gleði, enda frambjóðandinn rauður eins og tómatur í framan.
Nú hefur ný mynd verið sett upp í staðinn og á henni er Júlíus Vífill allur orðinn litlausari. Það þykir víst ekki fínt að vera of rauður í prófkjörsbaráttu Sjálfstæðisflokksins.
# # # # # # # # # # # # #
Á kvöld er SHA-fundur í Friðarhúsi. Sjá nánar.
# # # # # # # # # # # # #
Innflytjandi Pampers á Íslandi sendi Steinunni bleyju í póstinum og hvatti hana til að nota á atorkusama barnið sitt. Ekki þótti ástæða til að stíla sendinguna á mig. Það er nú frekar skúnkalegt.
Svíar eigna sér þann vafasama heiður að hafa fundið upp einnota bleyjur. Það var á fimmta áratugnum. Procter & Gamble, framleiðendur Pampers, gerðu notkun þeirra hins vegar almenna í byrjun sjöunda áratugarins.