Þriðja síðasta umferð Orkujarlsins hefst nú á sunnudagseftirmiðdegi og kemur þá í ljós hvaða keppendur eiga við alvarlega internet-fíkn að ræða.
Staðan í keppninni er þessi:
8 stig Gísli ísgeirsson
5 stig Snæbjörn Guðmundsson
5 stig Sigurður Magnússon
3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
3 stig Þorbjörn Rúnarsson
3 stig Páll Hilmarsson
3 stig Andrés Ingi Jónsson
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Stefán Karl Kristjánsson
1 stig Hilmar Hilmarsson
Að þessu sinni er spurt um frumkvöðul á sviði íslenskra raforkumála.
Hann vann meðal annars við virkjanir í Vestmannaeyjum, Bíldudal, Eskifirði og Vík í Mýrdal. Stærstan hluta starfsævi sinnar vann hann þó í Reykjavík. Hver er maðurinn?