Þá er komið að næstsíðustu umferð Orkujarlsins. Þrír keppendur geta sigrað í keppninni, þeir Gísli, Snæbjörn og Sigurður. Aðrir geta blandað sér í baráttuna um bronsverðlaunin eða í það minnsta komið sér á blað. Spennan er því nánast óbærileg. Staðan er:
8 stig Gísli ísgeirsson
8 stig Snæbjörn Guðmundsson
5 stig Sigurður Magnússon
3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
3 stig Þorbjörn Rúnarsson
3 stig Páll Hilmarsson
3 stig Andrés Ingi Jónsson
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Stefán Karl Kristjánsson
1 stig Hilmar Hilmarsson
Sautjánda spurning fjallar um nafn goðsögulegs fyrirbæris.
Heiti þetta kemur nokkuð víða við í orkusögunni, jafnt hérlendis sem erlendis. Það má finna í gömlu rafstöðinni við Elliðaár, en í því tilviki er það danskt að uppruna.
Hvert er nafnið?