Hnaut um þessa frétt á RÚV í kvöld. Svo virðist sem spunameistarar lífeyrirssjóðanna séu að reyna að slá ryki í augu fólks – nema að fréttamaðurinn sé rækilega úti á þekju. Á stuttri frétt var í tvígang talað um skerðingu greiðslna til „útivinnandi öryrkja“. Þetta er kolrangt. Hér er ekki sérstaklega verið að krukka í greiðslum til þeirra öryrkja sem útivinnandi eru – heldur öryrkja almennt.
Fjöldi öryrkja sem hefur engar aðrar tekjur en greiðslur frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun lendir í skerðingum. Kannski lífeyrissjóðirnir líti svo á að þeir teljist útivinnandi sem fái greitt frá TR? Samkvæmt því teldust allir öryrkjar á Íslandi útivinnandi.
Það verður afar áhugavert að fylgjast með því hvort lífeyrissjóðirnir fjórtán muni koma leiðréttingu til fréttastofunnar vegna fréttarinnar, þar sem fram kemur að þeir skerða jafnt hjá vinnandi öryrkjum sem atvinnulausum.