Jæja, þá vænkast hagur nörda í kvöld. Spurningakeppni framhaldsskólanna byrjar á Rás 2 og fyrstu umferðinni verður rumpað af á fimm kvöldum – sem mér finnst nú í það stífasta.
Ég er spenntur að sjá hvernig Davíð Þór stendur sig í dómarahlutverkinu og mun að sjálfsögðu halda úti GB-bloggum til að rýna í keppnina. Þykist vita að Davíð muni bara taka þeim skrifum vel.
Það er nú ekki að búast við neinum flugeldasýningum í kvöld, ef tekið er mið af skólunum sem þá keppa. Flensborg og Laugarvatn mætast fyrst, en gamla stórveldið ML hefur átt afar erfitt uppdráttar í mörg ár. Hafnfirðingar stundum skriðið í sjónvarp síðustu árin, en sjaldnast staðið almennilega undir væntingum.
Suðurnes og Austur-Skaftafellssýsla eigast við í annarri keppninni. Þar ættu Hornfirðingar að teljast sigurstranglegri ef horft er til sögunnar. Þriðja og síðasta viðureignin er svo keppni Laugaskóla og Garðbæinga. Hér er erfitt að spá. Laugar hafa staðið sig furðuvel miðað við nemendafjölda síðustu árin, en FG hefur stundum sent inn þokkaleg lið.
Ég yrði undrandi að sjá meira en eitt þessara liða komast í sjónvarpskeppnina, en jafnframt er ég bjartsýnn á að allir skólarnir muni halda andlitinu og komast í tveggja stafa tölu.
Davíð og Sigmar eru heppnir að því leyti að engin stigahá taplið komast áfram milli umferða í ár. Það þýðir að keppnisliðin fara ekki í ómögulegan samanburð á því hvort þessi viðureignin eða hin hafi verið léttari eða þyngri.
GB lifi, Moggabloggið farist!