Framboð aldraðra

Skoðanakönnunin sem Fréttablaðið slær upp í­ dag er varla uppörvandi fyrir boðað framboð aldraðra og öryrkja. Að sönnu segjast fleiri myndu í­huga að kjósa slikt framboð en Íslandsflokk Ómars – en það held ég að segi bara hálfa söguna.

Ef ég lenti í­ skoðanakönnun þar sem spurt væri hvort til greina kæmi að kjósa framboð eldri borgara, þá kæmi á mig smá hik. Ekki svo að skilja að ég sé ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að kjósa (fí­nt að fá Steinunni á þing – þá get ég hætt að vinna og hangið heima fyrir framan sjónvarpið) – samt þætti manni óþægilegt að viðurkenna í­ skoðanakönnun að ekki komi til greina að láta eldri borgurum atkvæði í­ té.

Held að sama myndi gerast ef ég yrði spurður um afstöðu mí­na til framboðs samkynhneigðra, nýrra í­slendinga, einstæðra foreldra o.s.frv. Einhvern veginn finnst manni það hljóma eins og fordómar í­ garð viðkomandi hóps að segjast ekki í­huga að kjósa framboðið. Allt öðru máli gildir t.d. um Ómar og félaga.

Út frá þessu held ég að verði að skoða þessa tölu um að 13% í­hugi að kjósa framboð aldraðra og öryrkja. Raunar finnst mér talan vera ótrúlega lág og gefur til kynna að fylgið í­ kosningum verði vart yfir tveimur prósentum.

# # # # # # # # # # # # #

Frjálsyndi flokkurinn kynnti framboðslista sí­na í­ dag. ísgerður Jóna Flosadóttir frá Fjölskylduhjálpinni er í­ öðru sæti í­ kjördæminu mí­nu. Hver ætlar að semja fyrsta brandarann um útrunnið kornflex og kakómalt?

Megi Moggabloggið nærast á útrunnum matvælum!