Sko til, þetta gátum við!
Kvöld nokkurt síðasta vetur, þegar við vorum að vaska upp leirtauið, spurði Steinunn hvort við ættum ekki bara að drífa í að gifta okkur? Ég játti því og svo héldum við áfram að vaska upp og sinna gestum.
Um mitt sumar negldum við niður daginn. Pöntuðum félagsheimili Orkuveitunnar í Elliðaárdal og bókuðum Hilmar Örn allsherjargoða.
Skömmu áður hafði Stebbi Hagalín sagt mér frá búðkaupsveislu Helga Hjörvar og Þórhildar, þar sem gjafir hefðu verið afþakkaðar en gestir verið beðnir um að koma með rétt á hlaðborð og vínflösku í púkkið. Þetta sagði hann að hefði tekist frábærlega – og ég varð strax skotinn í hugmyndinni. Eftir nokkrar umræður tókst mér að sannfæra Steinunni um það sama.
Fyrir tæpum mánuði sendum við út boðskortin. Það voru u.þ.b. 80 manns á gestalistanum, langflestir vinir og kunningjar – sárafáir ættingjar og vinnufélagar.
Sjálft brúðkaupið fór svo fram í gær, laugardag. Athöfnin var stutt og einföld á grasflöt fyrir neðan félagsheimilið. Það var mjög skemmtilegt að fá Hilmar Örn til að sjá um hana, enda er hann gull að manni.
íhyggjur sumra af eldri kynslóðinni varðandi tilhögunina varðandi matinn reyndust óþarfar. Þarna var nóg að éta og réttirnir hver öðrum glæsilegri. Barinn var sömuleiðis að svigna af veigum, en auk léttvínsins frá gestunum bættum við við fordrykk og slatta af bjór.
Félagi Proppé setti svo ný viðmið í veislustjórn, þar sem hann stýrði dagskránni eins og herforingi og greip svo gítarinn og spilaði með hljómsveit kvöldsins, Hinum geðþekku fautum. Fautarnir voru frábærir. Sama má raunar segja um Svavar Knút sem mætti fyrr um kvöldið og tók nokkur lög. Palli Hilmars dí-djeiaði svo á undan og eftir bandinu. Hann spilaði m.a.s. Skid Row fyrir Steinunni, en lét ekki verða af hótunum sínum um að leika Valslagið með Stefáni Hilmars.
(Rétt er að þakka mínum mönnum í Fram sérstaklega fyrir framlag þeirra til veislunnar – þ.e. að falla ekki niður um deild.)
Er gaman að vera kvæntur? Ójá, svo sannarlega.
Spurningin er – á ég að fara að kalla Steinunni, Frú Steinunni, hér eftir?
# # # # # # # # # # # # #
Heimili okkar er nú fullt af trogum, diskum og ílátum sem gestir skildu eftir. Eigendur eru beðnir um að gefa sig fram hið fyrsta.
Sem dyggur lesandi þinn vil ég óska ykkur til hamingju með giftinguna.
Til hamingju 😀
Ég er ótengdur og vandalaus og allt það — en þeir sem standa ykkur nærri árna ykkur væntanlega heilla í beinni. Netleiðis til hamingju!
Innilega til hamingju.
Til hamíngju með þessa fínu krækju að ná þér í þessa fínu konu. Við Frammarar spilum alltaf til sóknar, hvernig sem að vindar blása þetta árið eða hitt.
S.
Til hamingju!
Hjartanlega til hamingju öll þrjú.
Til hamingju væni minn. Gaman að allt tókst svona vel. Findið að Palli hafi spilað Skid Row. Held einmitt að Steinunn hafi næstoftast kysst söngvara þeirrar sveitar á eftir þér.
Innilega til hamingju 🙂
Innilega til hamingju!
Til hamingju bæði tvö!
Til hamingju með giftinguna Stefán. Ég gerði svipaðan hlut fyrir tveimur árum og gifti mig þá í sömu laut. Ég bið innilega að heilsa Steinunni og óska ykkur velfarnaðar í ektapöruninni.
Óska fjölskyldumeðlimum hjartanlega til hamingju.
Til hamingju með Fram!
OG úr því ég er að skrifa þetta; OK: Til hamingju með brúðkaupið!
Til hamingju frú Steinunn og herra Stefán
Hingað til hef ég tilheyrt þeim hópi lesenda sem kvittar ekki fyrir sig heldur læðist hingað inn af og til og skýst eldsnöggt út aftur eftir lesninguna. Á þetta skiptið ákvað ég hins vegar að segja hæ og bæ og í leiðinni óska ykkur skötuhjúunum til hamingju. Auk þess þakka ég stórgott blogg.
Til hamingju með brúðkaupið.
Til hamingju! Megið þið unnast vel og lengi!
Hjartanlega til hamingju!
Kom skemmtilega á óvart að lesa þetta. Óska ykkur alls hins besta.
Kærar kveðjur frá Kaliforníu,
Anna Þorbjörg og Palli
Innilegar hamingjuóskir með að vera kominn í hnappelduna
Til lukku 🙂
Ég óska ykkur hjartanlega til hamingju.
Hjartanlegar hamingjuóskir með frúna!
það er nú ekki annað viðeigandi en skilja eftir hamingjuóskir fyrst maður þurfti nú að skrópa í í veisluna sjálfa. lifið í lukku en ekki í krukku.. k. kv. Salný
Heyrðu! Ég reyndi að ná í fötin mín (fat í ft.) en þá var mér sagt að það væri ekki hægt. Þar sem þið bjuggust við að margir mundu gleyma þeim þá var búið að taka þau öll saman og setja út í bíl. En hvað um það. Ég kem nú einhverntíman í heimsókn til ykkar. Til hamingju.