Sindri

Um daginn þvældist ég inn í­ Bókabúð Braga og rakst á nokkra árganga af tí­mariti sem mig hefur lengi langað til að eiga. Sindri, tí­marit Iðnfræðafélagsins kom út á þriðja áratugnum, alls fimm árgangar. Ég fékk þá fjóra fyrstu fyrir sanngjarnt verð og hef verið að skemmta mér við lesturinn sí­ðan.

Sindri er tí­mamótarit í­ iðnsögunni og hafði mikilvægu hlutverki að gegna. Nú þarf ég bara að verða mér út um Elektrón, blað sí­mamanna – annað vanmetið tí­marit.

Ottó B. Arnar var ein helsta driffjöðurin í­ Sindra og þar skrifaði hann að ég held fyrstu greinina á í­slensku um mikilvægi þess að landsmenn hagnýttu sér útvarpið.