Hjálp óskast!
Fyrir stríð fengu KR-ingar inni í því sem kallað var í grein í Framblaðinu 1943 „gamla íshúsið við Tjörnina“. Þar komu þeir upp aðstöðu til innanhússæfinga í knattspyrnu á vetrum og leigðu öðrum félögum auk þess að nýta hana sjálfir.
En nú er spurningin: hvaða íshús var þetta?
Erum við að tala um Fríkirkjuveg 7 (Herðubreið/Glaumbæ/Listasafnið)?
Eða íshúsið við Skothúsveg (ísbjörninn)?
Eða – við Tjarnargötu (Tjarnarbíó/Tjarnarbæ)?
Getur e-r svarað þessu?