Morfísið

Þegar ég var viðloðandi framhaldsskólaræðukeppnirnar í­ gamla daga, þá rakst maður á allnokkra krakka sem höfðu tileinkað sér ægilegan ósið við ræðuflutning. Það var að taka setningarnar sem átti að flytja með sérstökum þunga og klippa niður í­ einstök orð. Þannig-urðu-ræðurnar-alveg-fáránlegar-á-að-hlýða,-en-viðkomandi-ræðumanni-fannst-þetta-örugglega-rosalega-töff.

Fæstir Morfí­s-keppendur höfðu þennan ósið, en þessi fjórðungur eða svo sem flutti ræður með þessum ósköpum var svo áberandi að oft var talað um þetta sem „Morfí­s-ræðustí­linn“.

Birkir Jón Jónsson, nýr varaformaður Framsóknarflokksins, er því­ miður með þennan herfilega galla. Gamla ræðuþjálfarahjartað þoldi ekki að hlusta á meira en 1-2 mí­nútur af ræðunni hans í­ gær. Sem betur fer var fótbolti á Sýn á sama tí­ma…