{"id":1318,"date":"2005-11-16T00:27:20","date_gmt":"2005-11-16T00:27:20","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/2005\/11\/16\/oft-%c3%bearf-bara-einn-hlut\/"},"modified":"2005-11-16T00:27:20","modified_gmt":"2005-11-16T00:27:20","slug":"oft-%c3%bearf-bara-einn-hlut","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2005\/11\/16\/oft-%c3%bearf-bara-einn-hlut\/","title":{"rendered":"Oft \u00fearf bara einn hlut&#8230;"},"content":{"rendered":"<p>\u00c1 kv\u00f6ld litu g\u00f6mlu \u00far Frostaskj\u00f3linu \u00ed\u00ad heims\u00f3kn \u00e1 M\u00e1nag\u00f6tuna, klyfju\u00f0 verkf\u00e6rum. Markmi\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 ganga fr\u00e1 \u00fdmsum sm\u00e1verkefnum sem hafa veri\u00f0 l\u00e1tin sitja \u00e1 hakanum: negla upp myndir og sm\u00e1hluti, skr\u00fafa saman barnast\u00f3l, setja upp reykskynjara, ry\u00f0ja til mublum o.s.frv. Allt eru \u00feetta sm\u00e1verkefni sem \u00e9g hef ekki haft mig \u00ed\u00ad hj\u00e1lparlaust.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er allt anna\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 \u00ed\u00adb\u00fa\u00f0ina. Verst hva\u00f0 ma\u00f0ur f\u00e6r mikla aulatilfinningu yfir a\u00f0 hafa ekki veri\u00f0 b\u00fainn a\u00f0 geta \u00feetta fyrir lifandis l\u00f6ngu.<\/p>\n<p># # # # # # # # # # # # #<\/p>\n<p>Steinunn f\u00f3r \u00ed\u00ad klippingu seinnipartinn hj\u00e1 gamalli bekkjarsystur sinni a\u00f0 austan. H\u00fan kom aftur s\u00e6t og f\u00ed\u00adn, sem v\u00e6nta m\u00e1tti.<\/p>\n<p>\u00deessa dagana er Steinunn gj\u00f6rsamlega a\u00f0 eipa af ofvirkni og eir\u00f0arleysi. \u00dea\u00f0 er hli\u00f0arverkun af sterak\u00farnum sem h\u00fan er \u00e1 n\u00fana. Raunar veitti ekkert af a\u00f0 hafa okkur \u00ferj\u00fa h\u00e9rna \u00ed\u00ad kv\u00f6ld, svo h\u00fan g\u00e6ti skipa\u00f0 n\u00e6gilega fyrir&#8230;<\/p>\n<p># # # # # # # # # # # # #<\/p>\n<p>\u00c1 h\u00e1deginu \u00e1 fimmtudaginn flyt \u00e9g erindi hj\u00e1 Verkfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9laginu. Erindi\u00f0 er a\u00f0 skr\u00ed\u00ad\u00f0a saman og er n\u00fana \u00ed\u00ad yfirlestri hj\u00e1 Sk\u00fala Sigur\u00f0ssyni. Sk\u00fali er, auk \u00feess a\u00f0 vera g\u00f3\u00f0ur vinur, einhver frj\u00f3asti og hugmyndar\u00ed\u00adkasti fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur sem \u00e9g hef kynnst.<\/p>\n<p>Sk\u00fali hefur ekki gert miki\u00f0 af \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 skrifa st\u00f3rar b\u00e6kur, heldur fremur sent fr\u00e1 s\u00e9r styttri t\u00ed\u00admaritsgreinar og flutt fyrirlestra. Fyrir viki\u00f0 \u00e1tta margir sig ekki \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad hversu margt hann hefur fram a\u00f0 f\u00e6ra til \u00ed\u00adslenskrar sagnfr\u00e6\u00f0i, auk \u00feess sem \u00fdmsir vilja ekki skilja \u00fea\u00f0 &#8211; \u00fear sem Sk\u00fali er ekki ma\u00f0ur hinna einf\u00f6ldu og \u00fe\u00e6gilegu sk\u00fdringa.<\/p>\n<p>Stundum upplifir ma\u00f0ur \u00fea\u00f0 vi\u00f0 lestur b\u00f3ka e\u00f0a greina a\u00f0 rekast \u00e1 eina setningu e\u00f0a eina m\u00e1lsgrein, sem segir n\u00e1kv\u00e6mlega \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur hefur veri\u00f0 a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r lengi en ekki geta\u00f0 komi\u00f0 or\u00f0um a\u00f0. \u00deessi augnablik geta veri\u00f0 hreinar opinberanir. \u00c9g hef sjaldan upplifa\u00f0 \u00feetta vi\u00f0 lestur \u00ed\u00adslenskra sagnfr\u00e6\u00f0irita (kemur \u00fe\u00f3 fyrir), en nokkrum sinnum or\u00f0i\u00f0 \u00feess a\u00f0nj\u00f3tandi vi\u00f0 a\u00f0 lesa efni fr\u00e1 Sk\u00fala.<\/p>\n<p>\u00c1 handritinu sem \u00e9g var a\u00f0 lesa s\u00ed\u00ad\u00f0ast, er svona setningu a\u00f0 finna:<\/p>\n<p>&#8222;The standard view in Iceland continues to be that electric power = hydropower. Accordingly, technology is about the conquest of natural resources, not production and consumption. It is insufficently recognized that modern technology is networked and spatially insatiable, constitutive of modern cityscapes, and that it is gendered.&#8220;<\/p>\n<p>EINMITT. N\u00fa hef \u00e9g lesi\u00f0 e\u00f0a rennt lauslega yfir n\u00e1nast allt \u00fea\u00f0 sem skrifa\u00f0 hefur veri\u00f0 um \u00ed\u00adslenska orkus\u00f6gu s\u00ed\u00ad\u00f0ustu fimmt\u00ed\u00adu \u00e1rin &#8211; og \u00fea\u00f0 er AKK\u00daRATT \u00feetta sem er vandam\u00e1li\u00f0. \u00c1 \u00f6llum \u00feessum b\u00f3kum sn\u00fdst orkusagan um fossa sem \u00feurfti a\u00f0 virkja, en ekki f\u00f3lk sem langa\u00f0i \u00ed\u00ad \u00ed\u00adssk\u00e1p &#8211; e\u00f0a b\u00f3nda sem keypti s\u00e9r hey\u00feurrkara &#8211; e\u00f0a bandar\u00ed\u00adska st\u00f3rmarka\u00f0ake\u00f0ju sem heimta\u00f0i a\u00f0 fiskverkandinn \u00e1 \u00cdslandi fengi s\u00e9r \u00f6flugari frystigeymslu.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 GETUM sagt \u00ed\u00adslenska orkus\u00f6gu \u00e1n \u00feess a\u00f0 minnast einu or\u00f0i \u00e1 Einar Ben, \u00e1n \u00feess a\u00f0 v\u00ed\u00adkja a\u00f0 Vatnal\u00f6gunum e\u00f0a fjalla um fossana \u00ed\u00ad Soginu (\u00fe\u00f3tt vissulega v\u00e6ri \u00fea\u00f0 ekki \u00e6skilegt markmi\u00f0 \u00ed\u00ad sj\u00e1lfu s\u00e9r). En vi\u00f0 getum hins vegar EKKI sagt \u00fe\u00e1 s\u00f6gu \u00e1n \u00feess a\u00f0 geta um vinnukonuskort \u00ed\u00ad Reykjav\u00ed\u00adk millistr\u00ed\u00ad\u00f0s\u00e1ranna, matarvenjur f\u00f3lks sem vildi sj\u00f3\u00f0a s\u00ed\u00adna \u00fdsu \u00ed\u00ad h\u00e1deginu e\u00f0a fjalla um herinn \u00e1 Keflav\u00ed\u00adkurflugvelli sem kynnti amer\u00ed\u00adska \u00ed\u00adssk\u00e1pa sem minntu helst \u00e1 kjarnorkubyrgi og eyddu orku eftir \u00fev\u00ed\u00ad &#8211; amk. ekki ef vi\u00f0 viljum a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i vit \u00ed\u00ad \u00feeirri s\u00f6gu.<\/p>\n<p>Saga t\u00e6knikerfa 20. aldar er saga neyslu &#8211; ekki hr\u00e1efna. Hvers vegna er svona erfitt a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 kv\u00f6ld litu g\u00f6mlu \u00far Frostaskj\u00f3linu \u00ed\u00ad heims\u00f3kn \u00e1 M\u00e1nag\u00f6tuna, klyfju\u00f0 verkf\u00e6rum. Markmi\u00f0i\u00f0 var a\u00f0 ganga fr\u00e1 \u00fdmsum sm\u00e1verkefnum sem hafa veri\u00f0 l\u00e1tin sitja \u00e1 hakanum: negla upp myndir og sm\u00e1hluti, skr\u00fafa saman barnast\u00f3l, setja upp reykskynjara, ry\u00f0ja til mublum o.s.frv. Allt eru \u00feetta sm\u00e1verkefni sem \u00e9g hef ekki haft mig \u00ed\u00ad hj\u00e1lparlaust. \u00dea\u00f0 er &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2005\/11\/16\/oft-%c3%bearf-bara-einn-hlut\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Oft \u00fearf bara einn hlut&#8230;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-1318","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1318","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1318"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1318\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1318"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1318"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1318"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}