{"id":1617,"date":"2006-10-13T14:29:09","date_gmt":"2006-10-13T14:29:09","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/2006\/10\/13\/rafmagni%c3%b0-i-nor%c3%b0ur-koreu\/"},"modified":"2006-10-13T14:29:09","modified_gmt":"2006-10-13T14:29:09","slug":"rafmagni%c3%b0-i-nor%c3%b0ur-koreu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2006\/10\/13\/rafmagni%c3%b0-i-nor%c3%b0ur-koreu\/","title":{"rendered":"Rafmagni\u00f0 \u00ed Nor\u00f0ur-K\u00f3reu"},"content":{"rendered":"<p>Gu\u00f0mundur Magn\u00fasson <a href=\"http:\/\/gudmundurmagnusson.blogspot.com\/2006\/10\/ljsin-slkkt.html\">skrifar \u00ed\u00ad dag um Nor\u00f0ur-K\u00f3reu<\/a> og leggur \u00fat af fr\u00e6gri mynd sem tekin er yfir nor\u00f0austur As\u00ed\u00adu og s\u00fdnir myrkri\u00f0 \u00ed\u00ad N-K\u00f3reu samanbori\u00f0 vi\u00f0 grannl\u00f6ndin. \u00deessi mynd hefur margoft birst \u00e1\u00f0ur og er me\u00f0al annars notu\u00f0 sem myndskreyting vi\u00f0 <a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Economy_of_North_Korea\">Wikipediu-greinina um efnahagsm\u00e1l N-K\u00f3reu<\/a>.<\/p>\n<p>Kenning Gu\u00f0mundar er s\u00fa a\u00f0 sl\u00f6kkt s\u00e9 \u00e1 lj\u00f3sunum \u00ed\u00ad Nor\u00f0ur-K\u00f3reu til a\u00f0 spara rafmagn fyrir kjarnorkuvopnaframlei\u00f0slu. Gaman v\u00e6ri a\u00f0 vita hvernig Gu\u00f0mundur s\u00e9r fyrir s\u00e9r a\u00f0 menn spari rafmagn me\u00f0 \u00feessum h\u00e6tti &#8211; ef til vill s\u00e9r hann fyrir s\u00e9r gr\u00ed\u00ad\u00f0arst\u00f3ra rafgeyma sem r\u00ed\u00adkisstj\u00f3rnin keppist vi\u00f0 a\u00f0 hla\u00f0a \u00e1? &#8211; En gott og vel, vi\u00f0 skulum ekki str\u00ed\u00ad\u00f0a sagnfr\u00e6\u00f0ingnum \u00e1 e\u00f0lisfr\u00e6\u00f0ikunn\u00e1ttunni.<\/p>\n<p>En \u00fear sem \u00e9g er n\u00fa rafmagnsn\u00f6rd, kveikti myndin \u00e1huga minn og \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 lesa um raforkum\u00e1l \u00ed\u00ad Nor\u00f0ur-K\u00f3reu \u00e1 netinu. \u00dear kom margt \u00e1hugavert \u00ed\u00ad lj\u00f3s.<\/p>\n<p>Fyrir tuttugu \u00e1rum s\u00ed\u00ad\u00f0an var Nor\u00f0ur-K\u00f3rea \u00ed\u00ad 22. s\u00e6ti yfir <a href=\"http:\/\/globalis.gvu.unu.edu\/indicator.cfm?IndicatorID=46&amp;Year=1985&amp;Country=\">\u00feau l\u00f6nd sem notu\u00f0u mesta raforku<\/a>. Su\u00f0ur-K\u00f3rea var \u00feremur s\u00e6tum ofar, en \u00fear sem sunnanmenn eru \u00f6llu fleiri var Nor\u00f0ur-K\u00f3rea me\u00f0 meiri orkunotkun \u00e1 hvern \u00ed\u00adb\u00faa.<\/p>\n<p>\u00deessi tala segir au\u00f0vita\u00f0 ekki miki\u00f0 um st\u00f6\u00f0u alls almennings. St\u00f3r sveitah\u00e9ru\u00f0 munu vera \u00f3rafv\u00e6dd \u00ed\u00ad nor\u00f0rinu, en orkufrek st\u00f3ri\u00f0ja heldur uppi me\u00f0altalinu. En \u00fear sem \u00feessar t\u00f6lur eru oft nota\u00f0ar sem m\u00e6likvar\u00f0i \u00e1 hags\u00e6ld \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 halda mig vi\u00f0 \u00fe\u00e6r.<\/p>\n<p>N\u00fa, tuttugu \u00e1rum s\u00ed\u00ad\u00f0ar er raforkunotkun \u00e1 hvern \u00ed\u00adb\u00faa t\u00ed\u00adf\u00f6ld \u00ed\u00ad Su\u00f0ur-K\u00f3reu \u00e1 vi\u00f0 Nor\u00f0ur-K\u00f3reu. \u00deetta eru \u00f3tr\u00falega skj\u00f3t umskipti &#8211; ekki hva\u00f0 s\u00ed\u00adst ef haft er \u00ed\u00ad huga a\u00f0 orkunotkun Nor\u00f0ur-K\u00f3reu h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 vaxa til \u00e1risins 1991 \u00feegar h\u00fan n\u00e1\u00f0i h\u00e1marki. \u00c1 t\u00ed\u00adunda \u00e1ratugnum hrynur orkuframlei\u00f0slan hins vegar og n\u00e6r botni \u00e1ri\u00f0 1999, en \u00fe\u00e1 m\u00e6ldist h\u00fan um 60% af \u00fev\u00ed\u00ad sem mest var (myndin \u00e1 s\u00ed\u00ad\u00f0u Gu\u00f0mundar er einmitt tekin \u00e1ri\u00f0 2000). H\u00e6gfara v\u00f6xtur hefur veri\u00f0 \u00ed\u00ad orkukerfinu s\u00ed\u00ad\u00f0ustu \u00e1rin, en \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 enn ekki nema \u00e1 svipu\u00f0um sl\u00f3\u00f0um og var \u00ed\u00ad kringum 1980.<\/p>\n<p>H\u00e9r rekst \u00e9g reyndar \u00e1 eitt heimildafr\u00e6\u00f0ilegt vandam\u00e1l. T\u00f6lur Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna um raforkunotkun \u00ed\u00ad Nor\u00f0ur-K\u00f3reu eru n\u00e6rri tv\u00f6falt h\u00e6rri en t\u00f6lur \u00fe\u00e6r sem birtast \u00ed\u00ad CIA Factbook, sem er <a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/List_of_countries_by_electricity_consumption\">a\u00f0alheimild Wikipediu \u00ed\u00ad m\u00e1linu<\/a>. \u00deetta er reyndar mj\u00f6g skr\u00ed\u00adti\u00f0 \u00fear sem t\u00f6lur S\u00de og CIA eru \u00ed\u00ad langflestum tilfellum mj\u00f6g svipa\u00f0ar. Fyrst datt m\u00e9r \u00ed\u00ad hug a\u00f0 bandar\u00ed\u00adska leyni\u00fej\u00f3nustan v\u00e6ri viljandi a\u00f0 l\u00e6kka t\u00f6lurnar hj\u00e1 K\u00f3reum\u00f6nnum, en \u00fea\u00f0 er \u00f3l\u00ed\u00adklegt &#8211; t.d. er \u00fea\u00f0 ekki raunin \u00feegar kemur a\u00f0 K\u00fabu og \u00f6\u00f0rum &#8222;\u00fatlagar\u00ed\u00adkjum&#8220;. \u00c9g held mig samt vi\u00f0 S\u00de t\u00f6lurnar, enda eru \u00fe\u00e6r r\u00f6kr\u00e9ttari.<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt \u00feessu er raforkunotkun \u00e1 \u00ed\u00adb\u00faa \u00ed\u00ad Nor\u00f0ur-K\u00f3reu \u00f6llu meiri en \u00ed\u00ad \u00feri\u00f0ja heims l\u00f6ndum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Per\u00fa og Marokk\u00f3, miklu meiri en t.d. N\u00ed\u00adger\u00ed\u00adu og Bangladesh &#8211; en \u00feessar 23 millj\u00f3nir N-K\u00f3reub\u00faa \u00feurfa hins vegar a\u00f0 l\u00e1ta s\u00e9r lynda \u00e1l\u00ed\u00adka miki\u00f0 rafmagn og \u00e1tta millj\u00f3n B\u00falgarir og nokku\u00f0 minna en Danir sem \u00fe\u00f3 eru bara fimm og h\u00e1lf millj\u00f3n.<\/p>\n<p>Samsetningin \u00ed\u00ad orkuframlei\u00f0slunni vekur l\u00ed\u00adka athygli. Uppsett afl rafst\u00f6\u00f0va \u00ed\u00ad Nor\u00f0ur-K\u00f3reu skiptist nokkurn veginn jafnt \u00e1 milli ol\u00ed\u00adust\u00f6\u00f0va og vatnsaflsvirkjanna. \u00de\u00e6r s\u00ed\u00ad\u00f0arnefndu framlei\u00f0a hins vegar um 70% orkunnar &#8211; \u00fear sem ol\u00ed\u00aduskortur kemur \u00ed\u00ad veg fyrir fulla n\u00fdtingu hinna st\u00f6\u00f0vanna. Nor\u00f0ur-K\u00f3rea og \u00cdsland eru \u00fev\u00ed\u00ad me\u00f0 n\u00e1lega sama hlutfall raforkuvinnslu me\u00f0 vatnsafli.<\/p>\n<p>\u00deurrkar hafa leiki\u00f0 vatnsb\u00faskap Nor\u00f0ur-K\u00f3reumanna gr\u00e1tt s\u00ed\u00ad\u00f0ustu \u00e1rin. Til a\u00f0 spara vatn hefur veri\u00f0 gripi\u00f0 til sk\u00f6mmtunara\u00f0ger\u00f0a eins og a\u00f0 h\u00e6tta rafmagnsframlei\u00f0slu \u00e1 n\u00e6turnar til a\u00f0 safna \u00ed\u00ad uppist\u00f6\u00f0ul\u00f3nin. M\u00f6gulega hefur gervihnattamyndin g\u00f3\u00f0a veri\u00f0 tekin \u00e1 \u00feeim t\u00ed\u00adma. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 \u00f3l\u00ed\u00adklegt, \u00fear sem \u00e9g tr\u00fai varla \u00f6\u00f0ru en a\u00f0 eitthva\u00f0 af virkjununum \u00fearna s\u00e9u rennslisvirkjanir. Ma\u00f0ur veit samt aldrei.<\/p>\n<p>L\u00ed\u00adklegra er a\u00f0 myndin s\u00e9 tekin \u00ed\u00ad blakk\u00e1ti, en auk \u00feess a\u00f0 framlei\u00f0a ekki n\u00e6ga orku mun flutnings- og dreifikerfi\u00f0 vera \u00far s\u00e9r gengi\u00f0. Rafmagnsleysi &#8211; og jafnvel allsherjarrafmagnsleysi af v\u00f6ldum bilana eru \u00fev\u00ed\u00ad t\u00ed\u00ad\u00f0 \u00ed\u00ad kerfinu.<\/p>\n<p>\u00c1 sama t\u00ed\u00adma og raforkukerfi Nor\u00f0ur-K\u00f3reu heldur \u00e1fram a\u00f0 drabbast ni\u00f0ur, bl\u00e6s kerfi\u00f0 \u00fat sunnan landam\u00e6ra. Su\u00f0ur-K\u00f3rea er ellefti mesti raforkunotandi \u00ed\u00ad heimi og me\u00f0 mj\u00f6g mikla h\u00f6f\u00f0ut\u00f6lunotkun &#8211; meiri en sum af st\u00f3ru i\u00f0nr\u00ed\u00adkjum Vestur-Evr\u00f3pu. S\u00e1 v\u00f6xtur er a\u00f0 mestu kn\u00fainn \u00e1fram af kjarnorkuverum, sem stj\u00f3rnin \u00ed\u00ad Su\u00f0ur-K\u00f3reu hefur fengi\u00f0 a\u00f0 koma upp me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 Bandar\u00ed\u00adkjanna.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er n\u00fa svo.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gu\u00f0mundur Magn\u00fasson skrifar \u00ed\u00ad dag um Nor\u00f0ur-K\u00f3reu og leggur \u00fat af fr\u00e6gri mynd sem tekin er yfir nor\u00f0austur As\u00ed\u00adu og s\u00fdnir myrkri\u00f0 \u00ed\u00ad N-K\u00f3reu samanbori\u00f0 vi\u00f0 grannl\u00f6ndin. \u00deessi mynd hefur margoft birst \u00e1\u00f0ur og er me\u00f0al annars notu\u00f0 sem myndskreyting vi\u00f0 Wikipediu-greinina um efnahagsm\u00e1l N-K\u00f3reu. Kenning Gu\u00f0mundar er s\u00fa a\u00f0 sl\u00f6kkt s\u00e9 \u00e1 lj\u00f3sunum \u00ed\u00ad &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2006\/10\/13\/rafmagni%c3%b0-i-nor%c3%b0ur-koreu\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Rafmagni\u00f0 \u00ed Nor\u00f0ur-K\u00f3reu<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-1617","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1617","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1617"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1617\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1617"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1617"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1617"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}