{"id":190,"date":"2002-11-26T15:03:55","date_gmt":"2002-11-26T15:03:55","guid":{"rendered":"http:\/\/192.168.1.4\/stefan\/2002\/11\/26\/super-mario-kristbjorn-flugkappi-visar\/"},"modified":"2002-11-26T15:03:55","modified_gmt":"2002-11-26T15:03:55","slug":"super-mario-kristbjorn-flugkappi-visar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2002\/11\/26\/super-mario-kristbjorn-flugkappi-visar\/","title":{"rendered":"Super Mario Kristbj\u00f6rn flugkappi v\u00edsar"},"content":{"rendered":"<p><b>Super Mario<\/b><\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/kristbjorn.blogspot.com\/\">Kristbj\u00f6rn flugkappi<\/a> v\u00ed\u00adsar \u00ed\u00ad afrek Bros-br\u00e6\u00f0ra, sem hugsanlega eru einu p\u00ed\u00adpararnir sem bjarga\u00f0 hafa heiminum. \u00c1 g\u00e6r bjarga\u00f0i Kristbj\u00f6rn hins vegar heimilisf\u00f3lkinu a\u00f0 M\u00e1nag\u00f6tu 24.<\/p>\n<p>Segi\u00f0 svo a\u00f0 bloggi\u00f0 s\u00e9 ekki \u00f6flugt t\u00e6ki! Vi\u00f0 Steinunn b\u00f6rmum okkur l\u00ed\u00adtillega yfir leku kl\u00f3setti \u00e1 blogginu og \u00fea\u00f0 er eins og vi\u00f0 manninn m\u00e6lt, Kristbj\u00f6rn n\u00e1granni okkar bau\u00f0 fram \u00fej\u00f3nustu s\u00ed\u00adna og laga\u00f0i kl\u00f3setti\u00f0 milli \u00feess sem hann skellti \u00ed\u00ad sig 1-2 kaffibollum. &#8211; Handh\u00e6gt!<\/p>\n<p>Annars datt m\u00e9r \u00ed\u00ad hug a\u00f0 fara a\u00f0 kalla Kristbj\u00f6rn &#8222;Liebermann&#8220;. Tengingin er auglj\u00f3s. Hann s\u00f3ttist eftir a\u00f0 ver\u00f0a n\u00e6stbesti og -fr\u00e6gasti bloggari landsins, en tapa\u00f0i naumlega fyrir <a href=\"http:\/\/thordis.blogspot.com\">\u00de\u00f3rd\u00ed\u00adsi<\/a>. \u00deessu m\u00e1 l\u00ed\u00adkja vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feegar Joe Liebermann reyndi a\u00f0 ver\u00f0a varaforseti Bandar\u00ed\u00adkjanna en mist\u00f3kst. &#8211; Eftir \u00fev\u00ed\u00ad sem \u00e9g hugsa meira um \u00feetta, \u00fe\u00e1 er \u00e9g samt farinn a\u00f0 f\u00e1 efasemdir um \u00feetta vi\u00f0urnefni. Er kurteislegt a\u00f0 l\u00ed\u00adkja manninum sem lagar kl\u00f3setti\u00f0 manns vi\u00f0 fasistann Liebermann? Og ef Kristbj\u00f6rn v\u00e6ri Liebermann, v\u00e6ri \u00de\u00f3rd\u00ed\u00ads \u00fe\u00e1 Chaney? Og &#8211; \u00fagg! V\u00e6ri \u00e9g \u00fe\u00e1 Bush?<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>\u00c1 bloggi g\u00e6rdagsins var minnst \u00e1 Sigur\u00f0 Gr\u00e9tar Gu\u00f0mundsson. Af \u00fev\u00ed\u00ad tilefni skal rifja\u00f0ur upp gamall pistill Lagnafr\u00e9tta, s\u00e1 nefndist \u00fev\u00ed\u00ad skemmtilega nafni &#8222;\u00ed\u0081rinni kennir illur r\u00e6\u00f0ari&#8220;:<\/p>\n<p><i>HANN sat \u00e1b\u00fa\u00f0armikill, drakk kaffi\u00f0 me\u00f0 bers\u00fdnilegri vel\u00fe\u00f3knun, ekki fyrsti bollinn \u00ed\u00ad dag og \u00f6rugglega ekki s\u00e1 s\u00ed\u00ad\u00f0asti. A\u00f0 baki var langur starfsferill \u00ed\u00ad byggingarbransanum og hvergi komi\u00f0 a\u00f0 t\u00f3mum kofunum \u00feegar r\u00e6tt var um byggingar, hvort sem \u00fea\u00f0 var \u00ed\u00ad hans fagi, tr\u00e9sm\u00ed\u00ad\u00f0inni, e\u00f0a \u00f6llum hinum.<br \/>\nLagnir, kerfi og ekki s\u00ed\u00adst st\u00fdringar voru undir \u00e1kve\u00f0nar sko\u00f0anir beyg\u00f0ar, enda sko\u00f0analausir menn heldur hvimlei\u00f0ir.<\/p>\n<p>Hann kom \u00fe\u00f3 verulega \u00e1 \u00f3vart \u00feegar hann dr\u00f3 upp \u00far sko\u00f0anakirnu sinni afgamalt m\u00e1l sem flestir h\u00e9ldu a\u00f0 v\u00e6ri \u00fatr\u00e6tt, en \u00fea\u00f0 er l\u00ed\u00adklega of snemmt a\u00f0 fagna m\u00e1lalyktum \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad svi\u00f0i.<\/p>\n<p>&#8222;\u00c9g les n\u00fa oft \u00feessa pistla, lagnafr\u00e9ttir, margt \u00e1g\u00e6tt \u00ed\u00ad \u00feeim, en stundum er \u00e9g \u00fe\u00f3 gj\u00f6rsamlega \u00f3samm\u00e1la,&#8220; sag\u00f0i hann og setti sig n\u00fa \u00ed\u00ad stellingar l\u00e6rif\u00f6\u00f0ur sem valdi\u00f0 hefur.<\/p>\n<p>&#8222;\u00dea\u00f0 er nokku\u00f0 um li\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 skrifa\u00f0 um t\u00far- e\u00f0a ret\u00farkrana \u00ed\u00ad pistlunum, en \u00fe\u00f3 man \u00e9g \u00fea\u00f0 langt a\u00f0 eindregi\u00f0 var m\u00e6lt me\u00f0 notkun t\u00farkrana \u00e1 ofna, en m\u00e6lt \u00e1 m\u00f3ti notkun ret\u00farkrana, sem \u00fe\u00f3 voru n\u00e6r allsr\u00e1\u00f0andi fyrir 15-20 \u00e1rum.<\/p>\n<p>\u00deessu er \u00e9g algj\u00f6rlega \u00f3samm\u00e1la og get r\u00f6kstutt \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 bygg\u00f0um fj\u00f6lb\u00fdlish\u00fas og f\u00f3rum eftir \u00feessum r\u00e1\u00f0um og \u00f6\u00f0rum vi\u00f0l\u00ed\u00adka, illu heilli, notu\u00f0um n\u00e6r eing\u00f6ngu t\u00farkrana.<\/p>\n<p>Og hver var\u00f0 \u00e1rangurinn?<\/p>\n<p>Kerfi\u00f0 virka\u00f0i engan veginn, sumir ofnarnir hitnu\u00f0u allt of miki\u00f0, a\u00f0rir hitnu\u00f0u ekkert og allra s\u00ed\u00adst \u00feeir st\u00e6rstu \u00fear sem hita\u00fe\u00f6rfin var mest.&#8220;<\/p>\n<p>Hann saup n\u00fa drj\u00fagum \u00e1 kaffinu og var or\u00f0i\u00f0 miki\u00f0 ni\u00f0ri fyrir. Reynt var a\u00f0 malda \u00ed\u00ad m\u00f3inn og sagt a\u00f0 \u00feessu hef\u00f0i m\u00e1tt bjarga.<\/p>\n<p>&#8222;M\u00e1tt bjarga, j\u00e1, a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u, og \u00fea\u00f0 var gert \u00e1 \u00feann eina h\u00e1tt sem var f\u00e6r. Vi\u00f0 l\u00e9tum r\u00ed\u00adfa alla \u00feessa d\u00e9skotans t\u00farkrana burtu og settum ret\u00farkrana \u00e1 alla ofna. S\u00ed\u00ad\u00f0an hefur \u00feetta gengi\u00f0 \u00feokkalega og l\u00ed\u00adti\u00f0 um kvartanir.&#8220;<\/p>\n<p>Og hva\u00f0 var gert vi\u00f0 t\u00farkranana? <\/p>\n<p>&#8222;\u00deeir liggja v\u00ed\u00adst \u00ed\u00ad kassa ni\u00f0ri \u00ed\u00ad sameign og ver\u00f0a \u00fear l\u00ed\u00adklega ellidau\u00f0ir ef \u00feeir fara ekki \u00ed\u00ad Sorpu,&#8220; var svar mannsins sem vissi s\u00ed\u00adnu viti.<\/i><\/p>\n<p>&#8211; \u00c1 \u00feessum inngangskafla kemur \u00ed\u00ad lj\u00f3s a\u00f0 Sigur\u00f0ur Gr\u00e9tar er leiksk\u00e1ld gott og er laginn \u00ed\u00ad a\u00f0 svi\u00f0setja samt\u00f6l. H\u00e9r gr\u00ed\u00adpur hann til \u00feess st\u00ed\u00adlbrag\u00f0s a\u00f0 gefa andst\u00e6\u00f0ingi s\u00ed\u00adnum or\u00f0i\u00f0 og leyfa honum a\u00f0 tefla fram s\u00ed\u00adnum r\u00f6kum. \u00deessu n\u00e6st sn\u00fdr hann s\u00e9r \u00ed\u00ad a\u00f0 r\u00ed\u00adfa m\u00e1lflutning hans \u00ed\u00ad sig:<\/p>\n<p><i>\u00ed\u0081\u00f0ur en lengra er haldi\u00f0 er r\u00e9tt a\u00f0 rifja \u00f6rstutt upp fr\u00e6\u00f0in. T\u00farkraninn er \u00e1 innrennslisr\u00f6ri ofnsins og st\u00fdrist eftir lofthitanum \u00ed\u00ad vi\u00f0komandi herbergi, lokar vi\u00f0 h\u00e6kkandi hita og opnar vi\u00f0 l\u00e6kkandi. Ret\u00farkraninn er hinsvegar \u00e1 afrennsli ofnsins og st\u00fdrist eftir hitanum \u00e1 vatninu sem rennur \u00fat af ofninum, lokar \u00e1 sama h\u00e1tt vi\u00f0 h\u00e6kkandi vatnshita og opnar vi\u00f0 l\u00e6kkandi hita. Ret\u00farlokinn er \u00fev\u00ed\u00ad \u00ed\u00ad litlum tengslum vi\u00f0 hitann \u00ed\u00ad herberginu, b\u00faast m\u00e1 vi\u00f0 talsver\u00f0um hitasveiflum \u00fear sem hann er nota\u00f0ur.<\/p>\n<p>En \u00feegar byrja\u00f0 var a\u00f0 nota t\u00farkrana gleymdu menn flj\u00f3tlega mikilv\u00e6gu atri\u00f0i sem heitir jafnv\u00e6gisstilling e\u00f0a getur eins kallast rennslisstilling. L\u00e1ti\u00f0 var n\u00e6gja a\u00f0 stilla haus kranans \u00e1 \u00e6skilegan hita en \u00feegar hann opna\u00f0i gaf kraninn \u00e1 litla ofninum jafnmiki\u00f0 vatn og kraninn \u00e1 \u00feeim st\u00f3ra. Og \u00fear me\u00f0 mishitna\u00f0i kerfi\u00f0 og menn ur\u00f0u au\u00f0vita\u00f0 hundf\u00falir. \u00deetta ger\u00f0ist hinsvegar ekki \u00e1 ret\u00farkrananum, \u00feegar vatni\u00f0 f\u00f3r a\u00f0 renna heitt \u00fat af ofninum loka\u00f0i kraninn og svo koll af kolli, allir ofnar hitnu\u00f0u a\u00f0 lokum en hitastillinging var\u00f0 alltaf \u00f3j\u00f6fn og \u00e6\u00f0i brokkgeng.<\/p>\n<p>Upp \u00far 1980 komu t\u00farkranar me\u00f0 n\u00fdjum innbygg\u00f0um b\u00fana\u00f0i til a\u00f0 skammta hverjum ofni \u00fea\u00f0 vatnsmagn sem vi\u00f0komandi ofn \u00feurfti, en \u00fev\u00ed\u00ad mi\u00f0ur vir\u00f0ist vera misbrestur \u00e1 a\u00f0 \u00feessi b\u00fana\u00f0ur s\u00e9 endanlega stilltur r\u00e9tt.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er einmitt \u00fea\u00f0 sem vir\u00f0ist hafa gerst hj\u00e1 fyrrnefndum \u00e1b\u00fa\u00f0armiklum kaffi\u00feambara, \u00fea\u00f0 var sem sagt nota\u00f0ur \u00e1g\u00e6tur b\u00fana\u00f0ur, en hann aldrei stilltur \u00feannig a\u00f0 hann virka\u00f0i eins og til var \u00e6tlast.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 var ekki frekar spurt; t\u00farkranar voru d\u00e6mdir drasl sem best var a\u00f0 losna vi\u00f0 og setja \u00fe\u00e1 upp g\u00f6mlu g\u00f3\u00f0u ret\u00farkranana \u00ed\u00ad sta\u00f0inn.<\/i><\/p>\n<p>&#8211; \u00deegar h\u00e9r er komi\u00f0 s\u00f6gu er ekki laust vi\u00f0 a\u00f0 lesandinn spyrji sig spurningarinnar: &#8222;Er eitthva\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed\u00ad, hafa ret\u00farkranar ekki \u00fej\u00f3na\u00f0 h\u00faseigendum \u00e1 hitaveitusv\u00e6\u00f0um b\u00e6\u00f0i vel og lengi?&#8220; &#8211; En Sigur\u00f0ur \u00e1 svar vi\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad:<\/p>\n<p><i>Vissulega, en \u00feeir ver\u00f0a aldrei g\u00f3\u00f0ir hitastillar, \u00feeir halda s\u00ed\u00adnu striki hvort sem kalt er \u00fati e\u00f0a heitt og brakandi s\u00f3lskin, \u00feeir l\u00e1ta renna \u00e1 sama hitastigi \u00fat af ofninum \u00e1r og s\u00ed\u00ad\u00f0 ef stillingu er ekki breytt og ef of heitt ver\u00f0ur \u00e1 sumardegi er oft brug\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0 a\u00f0 opna alla glugga og svaladyrnar l\u00ed\u00adka.<\/p>\n<p>T\u00farkraninn krefst hinsvegar meiri n\u00e1kv\u00e6mni af p\u00ed\u00adpulagningamanninum vi\u00f0 uppsetningu, \u00fea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 velja sta\u00f0setningu af al\u00fa\u00f0, stundum \u00fearf fjarnema til a\u00f0 for\u00f0ast sta\u00f0i \u00fear sem h\u00e6tta er \u00e1 drags\u00fagi, svo sem undir opnum glugga e\u00f0a vi\u00f0 svaladyr, \u00fea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 stilla vatnsmagni\u00f0 sem um hvern t\u00farkrana rennur af n\u00e1kv\u00e6mni mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 st\u00e6r\u00f0 ofns og r\u00fdmis.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 er komin miklu n\u00e1kv\u00e6mari hitastilling \u00ed\u00ad \u00ed\u00adb\u00fa\u00f0ina sem b\u00e6\u00f0i veitir meiri \u00fe\u00e6gindi og betri n\u00fdtingu \u00e1 heita vatninu til \u00fe\u00e6ginda fyrir budduna.<\/p>\n<p>Okkar kaffik\u00e6ri byggingama\u00f0ur var \u00fev\u00ed\u00ad \u00e6\u00f0i flj\u00f3tf\u00e6r. Hann hef\u00f0i ekki hent Bensinum fyrir L\u00f6du \u00fe\u00f3 gangurinn hef\u00f0i veri\u00f0 skrykkj\u00f3ttur.<\/p>\n<p>Hann hef\u00f0i fari\u00f0 me\u00f0 Bensinn \u00ed\u00ad v\u00e9larstillingu og eki\u00f0 um g\u00f6turnar s\u00e6ll og \u00e1n\u00e6g\u00f0ur.<\/i><\/p>\n<p>J\u00e1, \u00fea\u00f0 eru ekki bara lagnap\u00e1far sem f\u00e1 \u00e1 baukinn \u00ed\u00ad Lagnafr\u00e9ttum. Sj\u00e1lbirgingslegir kaffisvelgir eiga heldur ekki sj\u00f6 dagana s\u00e6la&#8230;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Super Mario Kristbj\u00f6rn flugkappi v\u00ed\u00adsar \u00ed\u00ad afrek Bros-br\u00e6\u00f0ra, sem hugsanlega eru einu p\u00ed\u00adpararnir sem bjarga\u00f0 hafa heiminum. \u00c1 g\u00e6r bjarga\u00f0i Kristbj\u00f6rn hins vegar heimilisf\u00f3lkinu a\u00f0 M\u00e1nag\u00f6tu 24. Segi\u00f0 svo a\u00f0 bloggi\u00f0 s\u00e9 ekki \u00f6flugt t\u00e6ki! Vi\u00f0 Steinunn b\u00f6rmum okkur l\u00ed\u00adtillega yfir leku kl\u00f3setti \u00e1 blogginu og \u00fea\u00f0 er eins og vi\u00f0 manninn m\u00e6lt, Kristbj\u00f6rn n\u00e1granni &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2002\/11\/26\/super-mario-kristbjorn-flugkappi-visar\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Super Mario Kristbj\u00f6rn flugkappi v\u00edsar<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-190","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/190","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=190"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/190\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=190"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=190"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=190"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}