{"id":1951,"date":"2007-08-13T12:29:08","date_gmt":"2007-08-13T12:29:08","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/2007\/08\/13\/pistlahofundurinn-or%c3%b0r%c3%a6%c3%b0ugreindur\/"},"modified":"2007-08-13T12:29:08","modified_gmt":"2007-08-13T12:29:08","slug":"pistlahofundurinn-or%c3%b0r%c3%a6%c3%b0ugreindur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2007\/08\/13\/pistlahofundurinn-or%c3%b0r%c3%a6%c3%b0ugreindur\/","title":{"rendered":"Pistlah\u00f6fundurinn or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreindur"},"content":{"rendered":"<p>Gu\u00f0mundur Andri Thorsson (sem \u00e9g myndi l\u00ed\u00adklega kalla <em>Egil Helgason f\u00e1t\u00e6ka mannsins<\/em> ef \u00e9g v\u00e6ri g\u00e1rungur) er farinn a\u00f0 skrifa pistla \u00ed\u00ad Fr\u00e9ttabla\u00f0i\u00f0 \u00e1 n\u00fd. Kannski er langt s\u00ed\u00ad\u00f0an hann byrja\u00f0i aftur, \u00e9g er ekkert s\u00e9rstaklega athugull bla\u00f0alesandi og mundi bara eftir \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 Gu\u00f0mundur Andri var\u00f0 f\u00fall \u00feegar honum var sagt upp pistlah\u00f6fundarst\u00f6\u00f0unni s\u00ed\u00ad\u00f0ast.<\/p>\n<p>Pistill dagsins ber yfirskriftina <a href=\"http:\/\/visir.is\/article\/20070813\/SKODANIR04\/108130033\/1222\/SKODANIR\">Bilu\u00f0 sj\u00f3nv\u00f6rp<\/a> og fjallar um ungmennin sem hafa m\u00f3tm\u00e6lt st\u00f3ri\u00f0justefnunni h\u00e9r \u00e1 landi s\u00ed\u00ad\u00f0ustu sumur og kalla sig <em>Saving Iceland<\/em>. \u00c1 greininni leitar GAT \u00ed\u00ad smi\u00f0ju b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0innar, s\u00e6kir saml\u00ed\u00adkingar til heimsb\u00f3kmenntanna og gr\u00ed\u00adpur jafnvel til or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreiningar \u00e1 vi\u00f0fangsefninu. Er \u00fev\u00ed\u00ad ekki bara vel til fundi\u00f0 a\u00f0 or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreina pistilinn \u00e1 m\u00f3ti?<\/p>\n<p>R\u00f6ksemdaf\u00e6rslu GAT s\u00fdnist m\u00e9r a\u00f0 megi draga saman \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt:<\/p>\n<p>i) Saving Iceland vir\u00f0ist hafa lag \u00e1 a\u00f0 fara \u00ed\u00ad taugarnar \u00e1 \u00cdslendingum.<\/p>\n<p>ii) \u00dea\u00f0 er \u00f3venjulegt vegna \u00feess a\u00f0 \u00cdslendingar eru almennt s\u00e9\u00f0 velvilja\u00f0ir \u00ed\u00ad gar\u00f0 f\u00f3lks sem m\u00f3tm\u00e6lir, eins og Birna \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir er gott d\u00e6mi um.<\/p>\n<p>iii) \u00d3vins\u00e6ldir \u00feessara tilteknu m\u00f3tm\u00e6lenda eru hins vegar skiljanlegar \u00fev\u00ed\u00ad \u00feetta eru mannger\u00f0ir sem \u00cdslendingar eiga ekkert sameiginlegt me\u00f0. \u00deetta eru n\u00ed\u00adhilistar. L\u00ed\u00adfslei\u00f0 au\u00f0mannab\u00f6rn sem hafa ekkert fyrir stafni. \u00cdslendingar eru hins vegar hei\u00f0virt millist\u00e9ttarf\u00f3lk sem aldrei fellur verk \u00far hendi.<\/p>\n<p>iv) (H\u00e9r kemur svo innskot \u00fear sem GAT rekur plotti\u00f0 \u00ed\u00ad dj\u00f6flunum eftir Dostojevsk\u00ed\u00ad &#8211; sem er v\u00e6ntanlega b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ibrandari e\u00f0a hugsa\u00f0 til a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 a\u00f0 h\u00f6fundur s\u00e9 v\u00ed\u00ad\u00f0lesinn frekar en hluti af r\u00f6ksemdaf\u00e6rslunni.)<\/p>\n<p>v) H\u00f6fundur vi\u00f0urkennir \u00ed\u00ad framhj\u00e1hlaupi a\u00f0 e.t.v. s\u00e9 einsleitni \u00ed\u00adslensks samf\u00e9lags eitthva\u00f0 a\u00f0 breytast og a\u00f0 kannski megi finna einhverja \u00feri\u00f0jukynsl\u00f3\u00f0ar kv\u00f3taerfingja sem s\u00e9u farnir a\u00f0 lei\u00f0ast \u00fat \u00ed\u00ad vinstrir\u00f3tt\u00e6kni af \u00fer\u00fagandi lei\u00f0indum lystisemdanna.<\/p>\n<p>vi) GAT finnur a\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 \u00fatlendingar s\u00e9u fyrirfer\u00f0armiklir \u00ed\u00ad m\u00f3tm\u00e6lendah\u00f3pnum. \u00de\u00f3 vissulega s\u00e9 bar\u00e1tta \u00feessi al\u00fej\u00f3\u00f0leg \u00ed\u00ad e\u00f0li s\u00ed\u00adnu, s\u00e9 \u00cdslendingum \u00e1 einhvern h\u00e1tt ger\u00f0 sk\u00f6mm til me\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 &#8222;flytja \u00feurfi inn&#8220; \u00fatlenda m\u00f3tm\u00e6lendur. \u00deetta er s\u00e9rkennileg birtingarmynd al\u00fej\u00f3\u00f0av\u00e6\u00f0ingarinnar.<\/p>\n<p>vii) L\u00ed\u00adklega eru m\u00f3tm\u00e6lendurnir \u00ed\u00ad Saving Iceland \u00ed\u00ad raun virkjana- og st\u00f3ri\u00f0jusinnar \u00ed\u00ad hjarta s\u00ed\u00adnu, \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 \u00fe\u00f3tt m\u00f3tm\u00e6li \u00feeirra beinist gegn K\u00e1rahnj\u00fakavirkjun og Alcoa-verksmi\u00f0junni, \u00fe\u00e1 byrju\u00f0u \u00feau svo seint a\u00f0 \u00f6llum m\u00e1tti lj\u00f3st vera a\u00f0 ekki yr\u00f0i aftur sn\u00fai\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed\u00ad &#8222;\u00f3h\u00e6tt&#8220; a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la, enda engin h\u00e6tta \u00e1 a\u00f0 a\u00f0ger\u00f0irnar skilu\u00f0u \u00e1rangri.<\/p>\n<p>viii) Saving Iceland er \u00fatlenska. \u00datlendu m\u00f3tm\u00e6lendurnir notast sem sagt vi\u00f0 ensku en ekki \u00ed\u00adslensku. \u00dea\u00f0 er kjaftsh\u00f6gg fyrir hreintungustefnuna og h\u00e1lfgert svindl vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0urkennd \u00ed\u00adslensk m\u00f3tm\u00e6li (t.d. \u00feessi sem Birna \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir st\u00f3\u00f0 fyrir og br\u00e6ddi me\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad hj\u00f6rtu \u00fej\u00f3\u00f0arinnar) eiga a\u00f0 byggjast \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0erniskennd og samtvinna \u00e1st \u00e1 landinu, \u00fej\u00f3\u00f0inni og tungunni.<\/p>\n<p>ix) H\u00f3purinn st\u00f3\u00f0 fyrir skringilegri upp\u00e1komu \u00ed\u00ad Kringlunni \u00fear sem var miki\u00f0 hopp og h\u00ed\u00ad &#8211; auk \u00feess sem einn m\u00f3tm\u00e6landinn flutti r\u00e6\u00f0u \u00ed\u00ad st\u00ed\u00adl pr\u00e9dikara \u00far Bibl\u00ed\u00adubeltinu \u00ed\u00ad BNA. \u00deessi a\u00f0ger\u00f0 ver\u00f0ur ekki t\u00falku\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00ed\u00adsi en sem skilabo\u00f0 til \u00ed\u00adslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar: \u00fei\u00f0 eru\u00f0 sk\u00ed\u00adtapakk og \u00e6ttu\u00f0 a\u00f0 drulla ykkur af \u00feessu fallega landi.<\/p>\n<p>x) \u00deess utan er nafni\u00f0 <em>Saving Iceland<\/em> hrokafullt, \u00fev\u00ed\u00ad \u00fea\u00f0 felur \u00ed\u00ad s\u00e9r hrokafulla yfirl\u00fdsingu um a\u00f0 h\u00f3purinn s\u00e9 a\u00f0 bjarga landinu. \u00d6\u00f0ru m\u00e1li gegndi ef nafni\u00f0 v\u00e6ri <em>Save Iceland!<\/em>, <em>Please, Save Iceland! <\/em>e\u00f0a jafnvel <em>Desperatly trying to Save Iceland<\/em>.<\/p>\n<p>xi) Annar t\u00falkunarm\u00f6guleiki er s\u00e1 a\u00f0 me\u00f0 slagor\u00f0inu Saving Iceland s\u00e9 \u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0 frysta eigi \u00cdsland \u00ed\u00ad n\u00faverandi mynd svo engu ver\u00f0i framar hnika\u00f0 til \u00fear.<\/p>\n<p>xii) A\u00f0ger\u00f0irnar \u00ed\u00ad Kringlunni voru l\u00e9tt\u00fa\u00f0ugar og ekki til \u00feess fallnar a\u00f0 skj\u00f3ta neinum skelk \u00ed\u00ad bringu nema l\u00f6ggunni. \u00dea\u00f0 er \u00ed\u00ad sj\u00e1lfu s\u00e9r engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 vera hr\u00e6ddur vi\u00f0 \u00feessa krakka sem standa bara fyrir hef\u00f0bundnum skemmdarverkum og eru &#8222;al ka\u00ed\u00adda kr\u00fattkynsl\u00f3\u00f0arinnar&#8220;.<\/p>\n<p>xiii) L\u00ed\u00adklega eru \u00feessir st\u00e6lar d\u00e6miger\u00f0 unglingauppreisn \u00fear sem millist\u00e9ttarkrakkarnir gera veikbur\u00f0a tilraunir til a\u00f0 \u00f6gra borgaralegum foreldrum s\u00ed\u00adnum. \u00deetta \u00e1 allt eftir a\u00f0 eldast af greyjunum, \u00feau ver\u00f0a komin \u00ed\u00ad Rotary eftir fimmt\u00e1n \u00e1r&#8230;<\/p>\n<p>\u00c9g held a\u00f0 \u00feetta dekki nokkurn veginn grein Gu\u00f0mundar Andra. Vi\u00f0 hana er sitthva\u00f0 a\u00f0 athuga.<\/p>\n<p>i) J\u00e1, um \u00feetta \u00e6ttu allir a\u00f0 geta veri\u00f0 samm\u00e1la.<\/p>\n<p>ii) \u00deessi a\u00f0d\u00e1un \u00feorra \u00cdslendinga \u00e1 kj\u00f6rku\u00f0um m\u00f3tm\u00e6lendum hefur a\u00f0 mestu fari\u00f0 framhj\u00e1 m\u00e9r. A\u00f0 taka Birnu \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttur sem d\u00e6mi um m\u00f3tm\u00e6landa sem slegi\u00f0 hefur \u00ed\u00ad gegn hj\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0inni er s\u00e9rstaklega fur\u00f0ulegt. Um \u00e1rabil m\u00e1tti Birna l\u00ed\u00ad\u00f0a fyrir afskipti s\u00ed\u00adn af stj\u00f3rnm\u00e1lum. H\u00fan \u00e1tti m.a. \u00ed\u00ad erfi\u00f0leikum me\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 vinnu og m\u00e1tti \u00feola \u00f3tr\u00falega illm\u00e6lgi og r\u00f3gbur\u00f0. S\u00f6mu s\u00f6gu er a\u00f0 segja um marga a\u00f0ra sem l\u00e1ti\u00f0 hafa til s\u00ed\u00adn taka \u00ed\u00ad r\u00f3tt\u00e6kri p\u00f3lit\u00ed\u00adk.<\/p>\n<p>iii) \u00d3skaplega eru \u00feetta einfaldar alh\u00e6fingar. \u00c1 fyrsta lagi eru \u00feessir m\u00f3tm\u00e6lendur engir n\u00ed\u00adhilistar (og raunar gengur restin af grein GAT \u00fat \u00e1 hversu miklir sm\u00e1borgarar \u00feeir s\u00e9u \u00ed\u00ad raun og veru) og sta\u00f0almyndin af \u00ed\u00adslensku \u00fej\u00f3\u00f0inni sem einsleitu samansafni l\u00fasi\u00f0inna millist\u00e9ttarmanna er billeg. Annars endur\u00f3mar h\u00fan hina g\u00f6mlu hugmynd Frams\u00f3knarflokksins um a\u00f0 allskonar -ismar \u00e6ttu ekkert erindi vi\u00f0 \u00ed\u00adslenska \u00fej\u00f3\u00f0ars\u00e1l. Hriflu-J\u00f3nas hef\u00f0i \u00ed\u00ad \u00fea\u00f0 minnsta or\u00f0i\u00f0 \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 \u00feessa r\u00f6ksemdaf\u00e6rslu.<\/p>\n<p>iv) \u00deetta hl\u00fdtur a\u00f0 vera b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingadj\u00f3kur, sem fyrr segir.<\/p>\n<p>v) \u00dea\u00f0 er dj\u00f6rf kenning a\u00f0 r\u00f3tt\u00e6klingasellur samt\u00ed\u00admans s\u00e6ki s\u00e9rstaklega li\u00f0smenn \u00far r\u00f6\u00f0um kv\u00f3taerfingja. Leyfi m\u00e9r \u00fe\u00f3 a\u00f0 draga \u00fea\u00f0 \u00ed\u00ad efa.<\/p>\n<p>vi) \u00c1 s\u00ed\u00adnum t\u00ed\u00adma t\u00f3k \u00e9g \u00fe\u00e1tt \u00ed\u00ad m\u00f3tm\u00e6lum skoskra kjarnorkuvopnaandst\u00e6\u00f0inga gegn breska kafb\u00e1taflotanum. Var \u00fe\u00e1tttaka m\u00ed\u00adn \u00e1 einhvern h\u00e1tt ni\u00f0url\u00e6gjandi fyrir Skota? Var \u00fea\u00f0 skammarlegt fyrir k\u00ed\u00adnverska stj\u00f3rnarandst\u00e6\u00f0inga \u00feegar m\u00f6rghundru\u00f0 \u00cdslendingar m\u00f3tm\u00e6ltu K\u00ed\u00adnaforseta vegna mannr\u00e9ttindabrota \u00ed\u00ad heimalandi hans? Af hverju er \u00fe\u00e1tttaka \u00fatlendinga \u00ed\u00ad p\u00f3lit\u00ed\u00adskum m\u00f3tm\u00e6laa\u00f0ger\u00f0um \u00e1m\u00e6lisver\u00f0 og \u00e1 hva\u00f0a h\u00e1tt er h\u00fan &#8222;s\u00e9rkennileg birtingarmynd al\u00fej\u00f3\u00f0av\u00e6\u00f0ingarinnar&#8220;? \u00c1 m\u00ed\u00adnum huga er \u00fea\u00f0 einmitt \u00e6skilegt a\u00f0 me\u00f0 al\u00fej\u00f3\u00f0av\u00e6\u00f0ingunni flytjist hugmyndir og stj\u00f3rnm\u00e1labar\u00e1tta milli landa en ekki bara fj\u00e1rmagn og vinnuafl. \u00datsk\u00fdringu takk!<\/p>\n<p>Og skyldi GAT nota viljandi or\u00f0alagi\u00f0 &#8222;a\u00f0 flytja inn&#8220; m\u00f3tm\u00e6lendur? Tr\u00fair hann e.t.v. \u00e1 go\u00f0s\u00f6gnina um &#8222;atvinnum\u00f3tm\u00e6lendur&#8220; &#8211; m\u00e1lali\u00f0a sem r\u00e1\u00f0nir s\u00e9u til m\u00f3tm\u00e6lastarfs \u00ed\u00ad fjarl\u00e6gum l\u00f6ndum? Au\u00f0vita\u00f0 eru erlendir m\u00f3tm\u00e6lendur ekki &#8222;fluttir inn&#8220; frekar en h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 tala um a\u00f0 su\u00f0r\u00e6nar \u00fej\u00f3\u00f0ir &#8222;flytji inn&#8220; erlenda fer\u00f0amenn.<\/p>\n<p>vii) Rassvasas\u00e1lfr\u00e6\u00f0in kemst \u00ed\u00ad n\u00fdjar h\u00e6\u00f0ir me\u00f0 \u00feeirri kenningu a\u00f0 erlendu m\u00f3tm\u00e6lendurnir g\u00e6ti \u00feess s\u00e9rstaklega a\u00f0 velja s\u00e9r fyrirframtapa\u00f0an m\u00e1lsta\u00f0 til a\u00f0 berjast fyrir og eiga \u00fea\u00f0 \u00e1 h\u00e6ttu a\u00f0 f\u00e1 \u00e1 baukinn fr\u00e1 l\u00f6greglunni og h\u00e1ar sektir fyrir d\u00f3mst\u00f3lum. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed\u00ad \u00fea\u00f0 minnsta merki um afar s\u00e9rst\u00e6\u00f0a p\u00ed\u00adslarv\u00e6ttis\u00fe\u00f6rf.<\/p>\n<p>Annars er bar\u00e1ttan gegn st\u00f3ri\u00f0justefnu og virkjana\u00e1formum \u00e1 Austurlandi afar vont d\u00e6mi fyrir kenninguna um hin s\u00ed\u00ad\u00f0b\u00fanu m\u00f3tm\u00e6li. Segja m\u00e1 a\u00f0 \u00feessi bar\u00e1tta hafi sta\u00f0i\u00f0 samfellt fr\u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 tekist var \u00e1 um \u00e1form Landsvirkjunar um Eyjabakkavirkjun &#8211; en \u00fe\u00e1 var enginn farinn a\u00f0 tala um K\u00e1rahnj\u00fakavirkjun. N\u00e1kv\u00e6mlega hven\u00e6r telur Gu\u00f0mundur Andri a\u00f0 hafi veri\u00f0 r\u00e9tti t\u00ed\u00adminn til a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la virkjuninni &#8211; \u00e1 \u00e1ttunda \u00e1ratugnum \u00feegar verkfr\u00e6\u00f0ingar lj\u00f3stru\u00f0u upp um s\u00ed\u00adna villtustu virkjanadrauma?<\/p>\n<p>Segjum t.d. a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00e1 m\u00f3ti ger\u00f0 Nor\u00f0fjar\u00f0arganga (sem \u00e9g er ekki &#8211; \u00e9g er malbiksn\u00f6rd og finnst jar\u00f0g\u00f6ng \u00e6\u00f0i), v\u00e6ri \u00e9g \u00fe\u00e1 or\u00f0inn of seinn a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la \u00feeim n\u00fana \u00fear sem stj\u00f3rnm\u00e1lamenn hafa l\u00fdst yfir a\u00f0 af framkv\u00e6mdum ver\u00f0i og byrja\u00f0 er a\u00f0 pjakka \u00ed\u00ad j\u00f6r\u00f0ina? Er e.t.v. h\u00e6gt a\u00f0 skilgreina m\u00f3tm\u00e6lafrest var\u00f0andi st\u00f3rframkv\u00e6mdir \u00e1 sama h\u00e1tt og k\u00e6rufrestur virkar \u00ed\u00ad stj\u00f3rns\u00fdslunni?<\/p>\n<p><span style=\"font-family: Georgia\">viii) Saving <\/span><span style=\"font-family: Georgia\"><br \/>\nIceland er vissulega \u00fatlenska. \u00dea\u00f0 kann vel a\u00f0 vera a\u00f0 sumum finnist rangt a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6li \u00e1 \u00cdslandi spretti af \u00f6\u00f0rum r\u00f3tum en \u00fej\u00f3\u00f0ernissinnu\u00f0um. Pers\u00f3nulega er \u00e9g ekki samm\u00e1la \u00fev\u00ed\u00ad. Innan fri\u00f0arhreyfingarinnar hafa t.d. alla t\u00ed\u00ad\u00f0 veri\u00f0 margir g\u00f3\u00f0ir \u00fej\u00f3\u00f0ernissinnar, en einnig fj\u00f6ldi f\u00f3lks sem s\u00f3tt hefur hugsj\u00f3nir s\u00ed\u00adnar \u00ed\u00ad almenna fri\u00f0arstefnu og kann engin lj\u00f3\u00f0 eftir Snorra Hjartar.<\/p>\n<p><\/span><span style=\"font-family: Georgia\">ix) Pr\u00e9dikaragr\u00ed\u00adni\u00f0 \u00ed\u00ad Kringlunni var vissulega skringilegur gj\u00f6rningur og hef\u00f0i l\u00ed\u00adklega falli\u00f0 betur \u00ed\u00ad krami\u00f0 vestan hafs, \u00fear sem sl\u00ed\u00adkar Billy Graham-t\u00fdpur eru betur \u00feekktar. Er \u00fea\u00f0 samt ekki \u00f3\u00fearfa vi\u00f0kv\u00e6mni a\u00f0 t\u00falka slappan brandara sem st\u00f3rt fokkj\u00fa-merki til \u00ed\u00adslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar?<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-family: Georgia\"><\/span><span style=\"font-family: Georgia\">x &amp; xi) J\u00faj\u00fa, \u00feetta er \u00f6rugglega br\u00e1\u00f0skemmtileg umr\u00e6\u00f0a. \u00c9g \u00e6tla samt a\u00f0 segja pass.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-family: Georgia\"><\/span><span style=\"font-family: Georgia\">xii) \u00deetta er satt og r\u00e9tt. S\u00e6milega skynsamt f\u00f3lk ger\u00f0i s\u00e9r fyllilega grein fyrir a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6lendah\u00f3purinn var ekki mann\u00fdgur, en l\u00f6ggan f\u00f3r \u00e1 taugum a\u00f0 venju. S\u00e9 samt ekki alveg hvert GAT \u00e6tlar me\u00f0 \u00feessa r\u00f6ksemdaf\u00e6rslu. Hef\u00f0i veri\u00f0 betra ef h\u00f3purinn hef\u00f0i \u00ed\u00ad raun veri\u00f0 \u00feau st\u00f3rh\u00e6ttulegu hry\u00f0juverkasamt\u00f6k sem Stef\u00e1n Eir\u00ed\u00adksson l\u00e9t sig dreyma um? E\u00f0a hefur m\u00e1lsgreinin e.t.v. \u00feann tilgang einan a\u00f0 koma a\u00f0 hnyttnu uppnefni um al ka\u00ed\u00adda-kr\u00fattin?<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-family: Georgia\"><\/span><span style=\"font-family: Georgia\">xiii) Jamm, unglingauppreisnarr\u00f6kin hafa l\u00f6ngum reynst drj\u00fag \u00feegar eldra og mi\u00f0aldra f\u00f3lk nennir ekki a\u00f0 kynna s\u00e9r n\u00fdjustu hr\u00e6ringarnar me\u00f0al unga f\u00f3lksins. Oft eiga \u00feau r\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r, en \u00fe\u00f3 ekki alltaf. Og \u00feess utan er yfirleitt skemmtilegra a\u00f0 fylgjast me\u00f0 sl\u00ed\u00adku umr\u00f3ti (\u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 lei\u00f0i ekki til heimsbyltingar) en a\u00f0 sitja bara heima fyrir framan sj\u00f3nvarpi\u00f0, hvort sem \u00fea\u00f0 er bila\u00f0 e\u00f0a ekki.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-family: Georgia\"><\/span>* * *<\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0a: \u00dea\u00f0 er ekki miki\u00f0 \u00e1 greiningu GAT \u00e1 Saving Iceland-h\u00f3pnum a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a &#8211; fyrir utan \u00fe\u00e1 auglj\u00f3su \u00e1bendingu a\u00f0 \u00feau tala \u00fatlensku. Pistlah\u00f6fundinum afturgengna hef\u00f0i \u00fe\u00f3 m\u00e1tt vera \u00ed\u00ad l\u00f3fa lagi\u00f0 a\u00f0 benda \u00e1 alvarlega veikleika vi\u00f0 skipulag og bar\u00e1ttu Saving Iceland-h\u00f3psins. Eru \u00feessir einna helstir:<\/p>\n<p>* Margar a\u00f0ger\u00f0anna eru vissulega fr\u00ed\u00adskar og frumlegar, en a\u00f0rar eru slappar og spilla fyrir. L\u00e1tum alveg liggja \u00e1 milli hluta umr\u00e6\u00f0una um r\u00e9ttm\u00e6ti \u00feess a\u00f0 krota \u00e1 byggingar &#8211; en ef veri\u00f0 er a\u00f0 skrifa slagor\u00f0 er algj\u00f6rt l\u00e1gmark a\u00f0 \u00feau s\u00e9u hnyttin, beinskeytt e\u00f0a feli \u00ed\u00ad s\u00e9r sk\u00fdran bo\u00f0skap. &#8222;Greedy Alcoa-Bastards!&#8220; fellur ekki a\u00f0 \u00feeim skilyr\u00f0um.<\/p>\n<p>* \u00deau vantar betri talsmenn. Tilgangur \u00f3hef\u00f0bundinna m\u00f3tm\u00e6laa\u00f0ger\u00f0a hl\u00fdtur a\u00f0 vera s\u00e1 a\u00f0 vekja athygli og f\u00e1 f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 koma m\u00e1lsta\u00f0 s\u00ed\u00adnum \u00e1 framf\u00e6ri. \u00deegar \u00feau t\u00e6kif\u00e6ri gefast ver\u00f0ur talsf\u00f3lki\u00f0 a\u00f0 geta komi\u00f0 m\u00e1li s\u00ed\u00adnu fr\u00e1 s\u00e9r svo vel s\u00e9.<\/p>\n<p>* \u00dea\u00f0 vantar str\u00fakt\u00far. \u00ed\u0081n hans getur engin reynsla safnast upp \u00ed\u00ad hreyfingunni og f\u00e9lagarnir eru d\u00e6mdir til a\u00f0 gera s\u00f6mu mist\u00f6kin aftur og aftur.<\/p>\n<p>* \u00deau m\u00e6ttu fara oftar \u00ed\u00ad ba\u00f0. \u00c9g held a\u00f0 Gu\u00f0mundur Andri s\u00e9 \u00ed\u00ad raun hr\u00e6ddari vi\u00f0 fitugt h\u00e1r n\u00ed\u00adtj\u00e1n \u00e1ra str\u00e1ka en allt veggjakroti\u00f0 og kranaklifri\u00f0.<\/p>\n<p>* \u00deau mega ekki detta \u00ed\u00ad \u00feann pytt a\u00f0 vir\u00f0ast berjast \u00e1 m\u00f3ti rafmagni og \u00e1li sem sl\u00ed\u00adku. \u00dea\u00f0 er enginn \u00ed\u00ad raun og veru \u00e1 m\u00f3ti frumefninu \u00e1li, alltaf &#8211; alls sta\u00f0ar.<\/p>\n<p>Og svo er n\u00fa \u00fea\u00f0&#8230;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gu\u00f0mundur Andri Thorsson (sem \u00e9g myndi l\u00ed\u00adklega kalla Egil Helgason f\u00e1t\u00e6ka mannsins ef \u00e9g v\u00e6ri g\u00e1rungur) er farinn a\u00f0 skrifa pistla \u00ed\u00ad Fr\u00e9ttabla\u00f0i\u00f0 \u00e1 n\u00fd. Kannski er langt s\u00ed\u00ad\u00f0an hann byrja\u00f0i aftur, \u00e9g er ekkert s\u00e9rstaklega athugull bla\u00f0alesandi og mundi bara eftir \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 Gu\u00f0mundur Andri var\u00f0 f\u00fall \u00feegar honum var sagt upp pistlah\u00f6fundarst\u00f6\u00f0unni s\u00ed\u00ad\u00f0ast. &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2007\/08\/13\/pistlahofundurinn-or%c3%b0r%c3%a6%c3%b0ugreindur\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Pistlah\u00f6fundurinn or\u00f0r\u00e6\u00f0ugreindur<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-1951","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1951","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1951"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1951\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1951"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1951"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1951"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}