{"id":196,"date":"2002-12-05T14:06:36","date_gmt":"2002-12-05T14:06:36","guid":{"rendered":"http:\/\/192.168.1.4\/stefan\/2002\/12\/05\/aras-a-bloggheiminn-j%c3%a6ja-nu\/"},"modified":"2020-04-05T21:11:56","modified_gmt":"2020-04-05T21:11:56","slug":"aras-a-bloggheiminn-j%c3%a6ja-nu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2002\/12\/05\/aras-a-bloggheiminn-j%c3%a6ja-nu\/","title":{"rendered":"\u00c1r\u00e1s \u00e1 bloggheiminn? J\u00e6ja, n\u00fa"},"content":{"rendered":"<p><b>\u00c1r\u00e1s \u00e1 bloggheiminn?<\/b><\/p>\n<p>J\u00e6ja, n\u00fa liggur \u00ed\u00adslenska bloggsamf\u00e9lagi\u00f0 svo sannarlega \u00ed\u00ad \u00fev\u00ed\u00ad. Vefriti\u00f0 Kreml <a href=\"http:\/\/www.kreml.is\/?o=1283\">hj\u00f3lar \u00ed\u00ad bloggara<\/a> og kallar okkur sorglega \u00fatg\u00e1fu af raunveruleikasj\u00f3nvarpi. \u00dea\u00f0 er raunar hin mesta synd a\u00f0 h\u00f6fundur greinarinnar, Svanborg Sigmarsd\u00f3ttir, skuli l\u00e1ta blogg-formi\u00f0 fara svona \u00ed\u00ad taugarnar \u00e1 s\u00e9r \u00fev\u00ed\u00ad allt anna\u00f0 \u00ed\u00ad pistlinum hennar er eins og klippt \u00fat \u00far pr\u00fd\u00f0ilegustu bloggf\u00e6rslu \u00fear sem h\u00fan rasar \u00fat yfir \u00fev\u00ed\u00ad sem mest fer \u00ed\u00ad taugarnar \u00e1 henni.<\/p>\n<p>Or\u00f0r\u00e9tt segir Svanborg:<\/p>\n<p><i>Einhver ritstj\u00f3rnarme\u00f0limur linka\u00f0i \u00e1 bloggs\u00ed\u00ad\u00f0u, \u00feannig a\u00f0 \u00e9g k\u00ed\u00adkti&#8230; og rak mig \u00e1fram \u00e1 fleiri \u00feekkta sem \u00f3\u00feekkta bloggara. Hverskonar ego-tripp er \u00feetta eiginlega?!?!? \u00deetta er \u00e1 sama stigi og &#8222;raunveruleikasj\u00f3nvarp&#8220; &#8211; bara <b>sorglegra<\/b>. Amk, hefur reality TV einhvers konar ritstj\u00f3rn sem hefur sans fyrir \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 er \u00e1hugavert fyrir almenning og hva\u00f0 ekki. A\u00f0 horfa \u00e1 raunveruleikasj\u00f3nvarp \u00e1 a\u00f0 l\u00fdsa einhvers konar &#8222;g\u00e6gjuhneig\u00f0&#8220;. En hvort \u00e6tli s\u00e9 verra a\u00f0 l\u00e1ta undan gengdarlausum augl\u00fdsingum til a\u00f0 horfa \u00e1 f\u00f3lk gera sig a\u00f0 f\u00ed\u00adfli &#8211; e\u00f0a vera haldin \u00fea\u00f0 mikilli s\u00fdnihneig\u00f0 a\u00f0 ma\u00f0ur bara ver\u00f0i a\u00f0 augl\u00fdsa \u00f6ll s\u00ed\u00adn helstu axarsk\u00f6ft \u00e1 netinu? A\u00f0 \u00e9g tali n\u00fa ekki um \u00fe\u00e1 bloggara sem skrifa oft \u00e1 dag. Eigi\u00f0 \u00fei\u00f0 enga vini til a\u00f0 tala vi\u00f0? Ef ekki \u00fe\u00e1 er rau\u00f0i krossinn a\u00f0 augl\u00fdsa vinal\u00ed\u00adnu &#8211; notf\u00e6ri\u00f0 ykkur \u00fea\u00f0 \u00ed\u00ad ney\u00f0. F\u00e1i\u00f0 ykkur vinnu, fari\u00f0 \u00fat \u00e1 me\u00f0al f\u00f3lks, geri\u00f0 eitthva\u00f0! \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00ed\u00adklega komast a\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 f\u00f3lki er almennt alveg n\u00e1kv\u00e6mlega sama hva\u00f0a fr\u00e6ga f\u00f3lk \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 hitt, hva\u00f0a heimilist\u00e6ki er bila\u00f0 hj\u00e1 ykkur e\u00f0a hva\u00f0a teiknimyndas\u00f6gur eru \u00ed\u00ad upp\u00e1haldi. Pl\u00ed\u00ads, get a l\u00e6f!!!!<\/i><\/p>\n<p>Hmmm&#8230; \u00feetta er vissulega \u00e1hugavert sj\u00f3narmi\u00f0. Raunar er langt s\u00ed\u00ad\u00f0an \u00e9g sp\u00e1\u00f0i \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 &#8222;raunveruleikasj\u00f3nvarp&#8220; myndi tapa fyrir netinu, einmitt vegna \u00feess a\u00f0 raunveruleikasj\u00f3nvarpi\u00f0 er ritst\u00fdrt og mi\u00f0illinn \u00feolir ekki dau\u00f0a punkta. Meginmarkmi\u00f0 \u00feeirra sem a\u00f0 raunveruleikasj\u00f3nvarpi standa er a\u00f0 fela ritstj\u00f3rnina og l\u00e1ta \u00e1horfandann \u00ed\u00ad \u00fea\u00f0 minnsta halda a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 ekki fyrir hendi. \u00dea\u00f0 sem drepur alla sl\u00ed\u00adka sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6tti er hins vegar a\u00f0 til lengdar ver\u00f0a \u00feeir form\u00falukenndir og reglurnar sem \u00fe\u00e1tttakendur \u00feurfa a\u00f0 fylgja ver\u00f0a of takmarkandi.<\/p>\n<p>Annars stingur Svanborg upp \u00e1 \u00e1hugaver\u00f0um hlutum sem vert er a\u00f0 blogga um, \u00fe.e. fr\u00e6gt f\u00f3lk \u00ed\u00ad hversdagsl\u00ed\u00adfinu, bilu\u00f0 heimilist\u00e6ki og eftirl\u00e6tis teiknimyndas\u00f6gur. \u00d6ll \u00feessi efni eiga \u00fea\u00f0 hins vegar sameiginlegt a\u00f0 vera alltof v\u00ed\u00ad\u00f0fem til a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 gera grein fyrir \u00feeim \u00e1 t\u00e6mandi h\u00e1tt. \u00deess \u00ed\u00ad sta\u00f0 \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 b\u00faa til &#8222;topp 5&#8220; lista yfir hvert \u00feessara atri\u00f0a:<\/p>\n<p><i>5 fr\u00e6gir einstaklingar sem \u00e9g hef hitt:<\/i><\/p>\n<p>i) Mike Pollock. Einu sinni \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 kaupa af honum \u00ed\u00adb\u00fa\u00f0 og var meira a\u00f0 segja kominn me\u00f0 bindandi kauptilbo\u00f0. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i ekki veri\u00f0 d\u00f3nalegt a\u00f0 geta monta\u00f0 sig a\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad vi\u00f0 gesti a\u00f0 b\u00faa \u00e1 sama sta\u00f0 og Pollock.<\/p>\n<p>ii) Salih Heimir Porca. Kom eitt sinn \u00e1 Minjasafni\u00f0 me\u00f0 unglingavinnuh\u00f3p sem hann var verkstj\u00f3ri yfir. Porca er einn af betri knattspyrnum\u00f6nnum sem h\u00e9r hafa spila\u00f0 og greinilega algj\u00f6r har\u00f0jaxl \u00feegar kom a\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 verkst\u00fdra kr\u00f6kkum.<\/p>\n<p>iii) Siggi Johnny. Hitti hann einu sinni \u00e1 Rau\u00f0a lj\u00f3ninu og r\u00e6ddi vi\u00f0 hann lengi kv\u00f6lds. Siggi var landsli\u00f0sma\u00f0ur \u00ed\u00ad handbolta og a\u00f0alrokkstjarna landsins \u00e1 sama t\u00ed\u00adma. Megat\u00f6ffari.<\/p>\n<p>iv) Einar Vilhj\u00e1msson. Hitti hann l\u00ed\u00adka \u00e1 Rau\u00f0a lj\u00f3ninu \u00fear sem hann tefldi vi\u00f0 \u00d3la J\u00f3 eina sk\u00e1k. \u00d3lafur mala\u00f0i hann eins og vi\u00f0 var a\u00f0 b\u00faast og lauk vi\u00f0ureigninni \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 Einar r\u00e9tti fram spa\u00f0ann og sag\u00f0i: &#8222;N\u00fa getur \u00fe\u00fa sagt f\u00f3lki a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir sigra\u00f0 heimsmeistarann \u00ed\u00ad spj\u00f3tkasti \u00f6rvhentra \u00ed\u00ad sk\u00e1k!&#8220;<\/p>\n<p>v) Luther Blisset. \u00deegar Watford spila\u00f0i \u00e6fingarleik gegn Reykjav\u00ed\u00adkur\u00farvalinu \u00e1 gervigrasinu \u00ed\u00ad Laugardal \u00ed\u00ad gamla daga, m\u00e6tti \u00e9g a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u me\u00f0 bla\u00f0 og penna til a\u00f0 f\u00e1 eiginhandar\u00e1ritanir. A\u00f0 leik loknum \u00feyrptust allir krakkar \u00ed\u00ad sl\u00ed\u00adkum huglei\u00f0ingum inn \u00e1 v\u00f6llinn en lj\u00f3st var fr\u00e1 upphafi a\u00f0 ekki v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1 \u00ed\u00ad b\u00e1\u00f0a fr\u00e6gu leikmennina \u00ed\u00ad Watfordli\u00f0inu, \u00fea\u00f0 yr\u00f0i a\u00f0 velja annan. \u00c9g valdi Luther Blisset sem \u00fe\u00e1 var n\u00fdlega kominn fr\u00e1 AC Milan og var st\u00e6rsta stjarnan \u00ed\u00ad li\u00f0inu. Hinn var ungur og efnilegur leikma\u00f0ur, John Barnes. \u00d3skaplega var\u00f0 \u00e9g seinna sp\u00e6ldur \u00feegar \u00e9g ger\u00f0i m\u00e9r grein fyrir a\u00f0 Blisset v\u00e6ri gamall og \u00fatbrunninn en fr\u00e6g\u00f0ars\u00f3l Barnes reis st\u00f6\u00f0ugt.<\/p>\n<p><i>5 heimilist\u00e6ki sem eru bilu\u00f0 heima hj\u00e1 m\u00e9r:<\/i><\/p>\n<p>i) Kl\u00f3setti\u00f0. Jamm, \u00fer\u00e1tt fyrir vi\u00f0leitni og g\u00f3\u00f0a tilbur\u00f0i Kristbjarnar \u00fe\u00e1 vir\u00f0ist ekki a\u00f0 fullu komi\u00f0 fyrir bilunina.<\/p>\n<p>ii) Rafmagnstaflan (\u00fe\u00f3 strangt til teki\u00f0 ekki heimilist\u00e6ki). Rafvirkinn kom \u00ed\u00ad g\u00e6r og tilkynnti a\u00f0 hann g\u00e6ti ekki gert vi\u00f0 rafmagnst\u00f6fluna eins og sta\u00f0an v\u00e6ri n\u00fana. Fyrir \u00fev\u00ed\u00ad er s\u00fa asnalega \u00e1st\u00e6\u00f0a a\u00f0 ef vi\u00f0ger\u00f0in \u00e1 t\u00f6flunni krefst \u00feess a\u00f0 rafmagnsm\u00e6lirinn ver\u00f0i f\u00e6r\u00f0ur \u00far sta\u00f0 \u00fe\u00e1 er \u00f3heimilt a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 nema honum s\u00e9 komi\u00f0 fyrir inni \u00ed\u00ad rafmagnskassa, sem ekki er gerlegt vi\u00f0 \u00feessar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur. Hins vegar m\u00e1 l\u00e1ta t\u00f6fluna standa \u00f3hreyf\u00f0a. Me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um &#8211; \u00fea\u00f0 m\u00e1 l\u00e1ta t\u00f6fluna vera \u00f3n\u00fdta \u00ed\u00ad fri\u00f0i, en ef byrja\u00f0 er a\u00f0 laga eitthva\u00f0 \u00ed\u00ad henni \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur a\u00f0 laga hana fullkomlega. &#8211; Skr\u00ed\u00adti\u00f0!<\/p>\n<p>iii) \u00datvarpi\u00f0 \u00ed\u00ad gr\u00e6junum \u00ed\u00ad stofunni. \u00c1 gamla sta\u00f0num var s\u00e9rst\u00f6k innstunga fyrir \u00fatvarpsloftnet vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 sj\u00f3nvarpsloftnetstenglinum. \u00c9g nota\u00f0i \u00fe\u00e1 innstungu og t\u00fdndi \u00fev\u00ed\u00ad gamla loftnetinu \u00e1 gr\u00e6junum. Eftir flutninganna heyri \u00e9g \u00fev\u00ed\u00ad ekkert \u00ed\u00ad \u00fatvarpinu inni \u00ed\u00ad stofu. \u00dea\u00f0 er svekkjandi \u00ed\u00ad h\u00e1deginu.<\/p>\n<p>iv) Sturtan. \u00deetta helv\u00ed\u00adti \u00e1 eftir a\u00f0 ver\u00f0a minn bani. Skyndilega breytist ylvolga og g\u00f3\u00f0a vatnsbunan \u00ed\u00ad brennandi skr\u00ed\u00admsli. Til a\u00f0 b\u00e6ta gr\u00e1u ofan \u00e1 svart \u00fe\u00e1 st\u00ed\u00adflast ni\u00f0urfalli\u00f0 st\u00f6\u00f0ugt og hefur \u00fear l\u00ed\u00adti\u00f0 a\u00f0 segja \u00fe\u00f3tt reglulega s\u00e9 \u00e6tandi s\u00fdru sem seld er \u00ed\u00ad verslunum undir v\u00f6rumerkinu Grettir sterki helt ni\u00f0ur \u00ed\u00ad \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>v) \u00d6rbylgjuofninn. F\u00e9kk hann fr\u00e1 Sk\u00fala Sigur\u00f0ssyni fyrir 2-3 \u00e1rum s\u00ed\u00ad\u00f0an. \u00de\u00e1 var ofninn \u00f3nota\u00f0ur, beint \u00far kassanum. (En haf\u00f0i \u00fev\u00ed\u00ad mi\u00f0ur veri\u00f0 \u00ed\u00ad kassanum \u00ed\u00ad 10 \u00e1r og var \u00fev\u00ed\u00ad \u00f3svikinn forngripur.) Strangt til teki\u00f0 er ofninn ekki bila\u00f0ur, en hann er f\u00e1r\u00e1nlega kraftl\u00ed\u00adtill og notkunarlei\u00f0beiningar \u00e1 matarumb\u00fa\u00f0um n\u00fdtast ekki \u00fear sem hann kemst ekki h\u00e6rra en \u00ed\u00ad 600 w\u00f6tt.<\/p>\n<p><i>5 teiknimyndas\u00f6gur sem m\u00e9r finnst skemmtilegar:<\/i><\/p>\n<p>i) \u00ed\u0081str\u00ed\u00adkur skylmingakappi. &#8222;Afi Sesars var m\u00f3rau\u00f0ur saltfiskur!&#8220; &#8211; segja skylmingakapparnir \u00ed\u00ad hringleikah\u00fasinu. \u00dearf a\u00f0 segja meira? \u00c9g hl\u00e6 alltaf \u00feegar \u00e9g les \u00feessa b\u00f3k og ekki spillir fyrir a\u00f0 eiga hana l\u00ed\u00adka \u00e1 lat\u00ed\u00adnu.<\/p>\n<p>ii) Falur \u00ed\u00ad Argent\u00ed\u00adnu. F\u00f3tboltaf\u00e9lagi\u00f0 Falur tekur \u00fe\u00e1tt \u00ed\u00ad heimsmeistarakeppninni \u00ed\u00ad Argent\u00ed\u00adnu me\u00f0 vi\u00f0komu \u00e1 \u00cdslandi. L\u00fdsingarnar \u00e1 herforingjastj\u00f3rninni \u00ed\u00ad Argent\u00ed\u00adnu og p\u00f3temk\u00ed\u00adntj\u00f6ldum hennar eru kostulegar.<\/p>\n<p>iii) Svalur \u00ed\u00ad Moskvu. Hef altaf veri\u00f0 Tom &amp; Janry-ma\u00f0ur var\u00f0andi Sval og Val. L\u00fdsingin \u00e1 r\u00fassnesku maf\u00ed\u00ad\u00f3sunum er \u00f3borganleg.<\/p>\n<p>iv) Alli Kalli \u00ed\u00ad eldl\u00ed\u00adnunni. Ma\u00f0urinn me\u00f0 st\u00f3ra nefi\u00f0 er fr\u00e1b\u00e6r. Hvers vegna \u00ed\u00ad \u00f3sk\u00f6\u00f0unum komu ekki \u00fat fleiri b\u00e6kur um Alla Kalla? Enn ein s\u00f6nnun \u00feess a\u00f0 kap\u00ed\u00adtalisminn veit ekkert hva\u00f0 hann er a\u00f0 gera. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 stofna n\u00fdtt fyrirt\u00e6ki: R\u00ed\u00adkis\u00fatg\u00e1fu teiknimyndasagna.<\/p>\n<p>v) Strumparnir og eggi\u00f0. \u00c1 \u00feessari skemmtilegu b\u00f3k er m.a. birt sagan &#8222;Hundra\u00f0asti strumpurinn&#8220; sem tekur \u00e1 m\u00f6rgum \u00e1leitnum tilvistarlegum spurningum, me\u00f0al annars var\u00f0andi muninn \u00e1 frummynd og heilmynd.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1r\u00e1s \u00e1 bloggheiminn? J\u00e6ja, n\u00fa liggur \u00ed\u00adslenska bloggsamf\u00e9lagi\u00f0 svo sannarlega \u00ed\u00ad \u00fev\u00ed\u00ad. Vefriti\u00f0 Kreml hj\u00f3lar \u00ed\u00ad bloggara og kallar okkur sorglega \u00fatg\u00e1fu af raunveruleikasj\u00f3nvarpi. \u00dea\u00f0 er raunar hin mesta synd a\u00f0 h\u00f6fundur greinarinnar, Svanborg Sigmarsd\u00f3ttir, skuli l\u00e1ta blogg-formi\u00f0 fara svona \u00ed\u00ad taugarnar \u00e1 s\u00e9r \u00fev\u00ed\u00ad allt anna\u00f0 \u00ed\u00ad pistlinum hennar er eins og klippt \u00fat &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2002\/12\/05\/aras-a-bloggheiminn-j%c3%a6ja-nu\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00c1r\u00e1s \u00e1 bloggheiminn? J\u00e6ja, n\u00fa<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-196","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/196","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=196"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/196\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":4592,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/196\/revisions\/4592"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=196"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=196"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=196"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}