{"id":2241,"date":"2008-02-19T10:00:37","date_gmt":"2008-02-19T10:00:37","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/2008\/02\/19\/skilja-e%c3%b0a-skilvinda\/"},"modified":"2008-02-19T10:00:37","modified_gmt":"2008-02-19T10:00:37","slug":"skilja-e%c3%b0a-skilvinda","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2008\/02\/19\/skilja-e%c3%b0a-skilvinda\/","title":{"rendered":"Skilja e\u00f0a skilvinda"},"content":{"rendered":"<p>Mara\u00feon-svarhalinn vi\u00f0 s\u00ed\u00ad\u00f0ustu Gettu betur-f\u00e6rslu er kominn upp yfir 40 athugasemdir. N\u00f6rdunum hefur greinilega veri\u00f0 sleppt lausum. Umr\u00e6\u00f0urnar eru raunar komnar \u00fat \u00ed\u00ad t\u00f3ma vitleysu, vegna mistaka sem auglj\u00f3slega eru flj\u00f3tf\u00e6rnisleg innsl\u00e1ttarvilla. \u00deannig gerist bara.<\/p>\n<p>En Stein\u00fe\u00f3r Helgi, gamla Borgarholtssk\u00f3lastjarnan, vill draga mig meira inn \u00ed\u00ad umr\u00e6\u00f0una og spyr:<\/p>\n<p><em>&#8222;Af hverju tj\u00e1ir helsti sagnfr\u00e6\u00f0ingur \u00fej\u00f3\u00f0arinnar um t\u00e6ki og t\u00f3l sig ekki um skilvindi\/skilju? Stebbi? Man a\u00f0 \u00fe\u00fa lentir \u00ed\u00ad svipu\u00f0u atviku \u00ed\u00ad keppni okkar Borghyltinga gegn MH, \u00feegar spurt var um ta\u00f0kv\u00f6rnina en \u00fe\u00fa gafst okkur r\u00e9tt fyrir a\u00f0 segja einfaldlega ,,kv\u00f6rn\u00e2\u20ac\u009d.&#8220;<\/em><\/p>\n<p>Humm&#8230;<\/p>\n<p>\u00c1 fyrsta lagi er \u00e9g enginn t\u00e6kjas\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur &#8211; ver\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 segja a\u00f0 \u00fat fr\u00e1 minni m\u00e1lkennd er eiginlega \u00fat \u00ed\u00ad h\u00f6tt a\u00f0 kalla mj\u00f3lkurskilvindu &#8222;skilju&#8220;. En \u00feetta tengist \u00fe\u00f3 klass\u00ed\u00adsku vandam\u00e1li spurningah\u00f6funda &#8211; sem \u00e9g hef vissulega lent \u00ed\u00ad sj\u00e1lfur.<\/p>\n<p>Spurningakeppni eins og Gettu betur hefur tilhneigingu til a\u00f0 sn\u00faast ansi miki\u00f0 um h\u00f6fu\u00f0borgir og k\u00f3ngan\u00f6fn. \u00dea\u00f0 gerir \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 keppnin f\u00e6r \u00e1 sig stimpil fyrir a\u00f0 ganga bara \u00fat \u00e1 f\u00e1n\u00fdtan fr\u00f3\u00f0leik sem ungmenni leggja \u00e1 minni\u00f0. Vegna \u00feessa er talsver\u00f0ur \u00fer\u00fdstingur \u00e1 a\u00f0 hafa me\u00f0 spurningar um &#8222;hagn\u00fdtari&#8220; hluti &#8211; verklag, verkf\u00e6ri o.\u00fe.h. \u00deannig hafa sk\u00f3lastj\u00f3rar \u00ed\u00ad verkn\u00e1mssk\u00f3lum hvatt til \u00feess a\u00f0 reynt s\u00e9 a\u00f0 leggja meiri \u00e1herslu \u00e1 sl\u00ed\u00adkt.<\/p>\n<p>\u00deessar spurningar reynast hins vegar mestu gallagripirnir \u00feegar \u00e1 h\u00f3lminn er komi\u00f0.<\/p>\n<p>Kosturinn vi\u00f0 a\u00f0 spyrja um s\u00e9rnafn er s\u00e1 a\u00f0 yfirleitt kemur bara eitt svar til greina. Ef spurt er: &#8222;hvernig er \u00feetta t\u00e6ki nota\u00f0?&#8220; e\u00f0a jafnvel &#8222;hva\u00f0 heitir \u00fea\u00f0?&#8220; geta m\u00e1lin or\u00f0i\u00f0 fl\u00f3knari.<\/p>\n<p>D\u00f3mari semur t.d. spurningu tengda b\u00ed\u00adlum, sem hann telur \u00f3skaplega sni\u00f0uga: s\u00fdnir mynd af vatnskassa og spyr hva\u00f0 \u00feetta s\u00e9. Honum til skelfingar byrja keppendurnir a\u00f0 h\u00f3sta og stynja, \u00e1\u00f0ur en \u00feeir aula \u00fat \u00far s\u00e9r einhverju \u00ed\u00ad l\u00ed\u00adkingu vi\u00f0: &#8222;uuu&#8230; \u00feetta er dunkur &#8211; svona fyrir vatn e\u00f0a v\u00f6kva, j\u00e1 &#8211; \u00feetta er svona til a\u00f0 k\u00e6la&#8230; eins og er \u00ed\u00ad b\u00ed\u00adlum&#8230;&#8220;<\/p>\n<p>Hva\u00f0 gerir d\u00f3marinn \u00fe\u00e1? Ef hann gefur r\u00e9tt, \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 keppendurnir \u00e1tti sig \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 um s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a &#8211; trompast hitt li\u00f0i\u00f0 af \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 or\u00f0i\u00f0 &#8222;vatnskassi&#8220; kom ekki fram. Ef d\u00f3marinn segir hins vegar: &#8222;nei, \u00fev\u00ed\u00ad mi\u00f0ur &#8211; \u00fei\u00f0 ur\u00f0u\u00f0 a\u00f0 segja vatnskassi&#8220;, \u00fe\u00e1 getur hann treyst \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 daginn eftir ver\u00f0ur fj\u00f6ldi f\u00f3lks b\u00fainn a\u00f0 hringja \u00ed\u00ad \u00dej\u00f3\u00f0ars\u00e1lina til a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 \u00e1 Austurlandi s\u00e9 \u00feetta alls ekki kalla\u00f0 vatnskassi og a\u00f0 or\u00f0anefnd b\u00ed\u00adlgreinasambandsins gefi upp \u00e1tta mismunandi or\u00f0 yfir \u00feetta fyrirb\u00e6ri.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er nefnilega alltaf h\u00e6ttulegt a\u00f0 bi\u00f0ja um \u00e1kve\u00f0i\u00f0 heiti \u00e1 hlut sem hefur ekki s\u00e9rnafn. \u00dear skiptir ekki m\u00e1li hvort um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vatnskassa, skilvindu &#8211; n\u00fa e\u00f0a ta\u00f0kv\u00f6rn&#8230;<\/p>\n<p>T\u00f6kum ta\u00f0kv\u00f6rnina alr\u00e6mdu sem d\u00e6mi. \u00dear var \u00e9g a\u00f0 sko\u00f0a vef B\u00fav\u00e9lasafnsins \u00e1 Hvanneyri, sta\u00f0r\u00e1\u00f0inn \u00ed\u00ad a\u00f0 finna sni\u00f0uga spurningu um b\u00fav\u00e9l og pl\u00f6gga \u00feetta skemmtilega safn \u00ed\u00ad lei\u00f0inni. \u00c1 s\u00ed\u00ad\u00f0unni var li\u00f0urinn &#8222;gr\u00e6ja vikunnar&#8220; sem var mynd af b\u00fav\u00e9l \u00e1samt uppl\u00fdsingum. \u00dear var forkostuleg mynd af kv\u00f6rn til a\u00f0 mylja ni\u00f0ur d\u00fdra\u00fargang &#8211; ta\u00f0kv\u00f6rn.<\/p>\n<p>\u00c9g var ekki seinn \u00e1 m\u00e9r a\u00f0 semja spurningu og bi\u00f0ja Andr\u00e9s Indri\u00f0ason um a\u00f0 redda g\u00f3\u00f0u eintaki af myndinni. \u00c1 huganum ger\u00f0i \u00e9g r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 li\u00f0in myndu berjast um bj\u00f6lluna og svo k\u00e6mi anna\u00f0 hvort \u00fat \u00far \u00feessu kostuleg r\u00f6ng \u00e1giskun e\u00f0a flottur fyrirlestur um \u00e1bur\u00f0ardreifingu fyrr \u00e1 \u00f6ldum&#8230; Spurningin \u00e1tti l\u00ed\u00adka a\u00f0 hafa fr\u00e6\u00f0slugildi fyrir \u00e1horfendur heima \u00ed\u00ad stofu &#8211; \u00fev\u00ed\u00ad \u00fear g\u00e6ti komi\u00f0 fram a\u00f0 \u00cdslendingar byrju\u00f0u miklu seinna a\u00f0 nota h\u00fasd\u00fdra\u00e1bur\u00f0 en flestir halda. Sem sagt: vo\u00f0a sni\u00f0ugt.<\/p>\n<p>Nema hva\u00f0 &#8211; \u00feegar spurningin er borin upp \u00ed\u00ad keppninni byrja keppendurnir a\u00f0 fimbulfamba og umla svo a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 kv\u00f6rn. Og \u00fe\u00e1 \u00e1tta\u00f0i d\u00f3marinn sig \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 hann v\u00e6ri \u00ed\u00ad vondum m\u00e1lum.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 var \u00feetta kv\u00f6rn &#8211; kv\u00f6rn til a\u00f0 brytja ni\u00f0ur d\u00fdra\u00fargang \u00ed\u00ad \u00e1bur\u00f0. Hvort h\u00fan v\u00e6ri k\u00f6llu\u00f0 ta\u00f0kv\u00f6rn, \u00e1bur\u00f0arkv\u00f6rn e\u00f0a bara kv\u00f6rn, hlaut a\u00f0 fara eftir landsv\u00e6\u00f0um og t\u00ed\u00admabilum. T\u00e6ki og t\u00f3l eiga s\u00e9r sjaldnast eins sk\u00fdr s\u00e9rn\u00f6fn og b\u00ed\u00ad\u00f3myndir e\u00f0a manneskjur.<\/p>\n<p>Fyrsta hugsunin var: &#8222;Af hverju \u00ed\u00ad andskotanum s\u00fdndi \u00e9g ekki t\u00e6ki\u00f0 og spur\u00f0i: hva\u00f0 var mala\u00f0 \u00ed\u00ad \u00feessari kv\u00f6rn?&#8220; &#8211; H\u00e9r voru tveir kostir og b\u00e1\u00f0ir vondir. Annar a\u00f0 gefa r\u00e9tt \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 v\u00e6ri \u00feetta bara kv\u00f6rn og \u00fe\u00f3tt \u00e9g hef\u00f0i upphaflega hugsa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 f\u00e1 svar vi\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 h\u00fan\u00c2\u00a0\u00e6tti a\u00f0 mala, \u00fe\u00e1 hef\u00f0i gleymst a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 fram \u00ed\u00ad spurningunni. Hinn kosturinn var a\u00f0 gefa rangt \u00e1 s\u00f6mu forsendu &#8211; a\u00f0 svari\u00f0 v\u00e6ri \u00f3n\u00e1kv\u00e6mt og a\u00f0 li\u00f0i\u00f0 hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 taka fram atri\u00f0i sem reyndar var ekki spurt um&#8230;<\/p>\n<p>Hvor kosturinn sem yr\u00f0i ofan \u00e1, myndi hitt li\u00f0i\u00f0 ver\u00f0a \u00f3\u00e1n\u00e6gt. Skiljanlega.<\/p>\n<p>Fyrri kosturinn var \u00fe\u00f3 kl\u00e1rlega sanngjarnari, enda v\u00f6ldum vi\u00f0 hann. St\u00e6rstu mist\u00f6kin voru l\u00ed\u00adklega \u00feau hversu miki\u00f0 f\u00e1t kom \u00e1 okkur Loga. Ef vi\u00f0 hef\u00f0um bara sagt sk\u00fdrt og afdr\u00e1ttarlaust &#8222;r\u00e9tt&#8220; e\u00f0a &#8222;rangt&#8220; hef\u00f0u li\u00f0in ekki or\u00f0i\u00f0 svona tortryggin.<\/p>\n<p>En kl\u00fa\u00f0ri\u00f0 l\u00e1 ekki \u00ed\u00ad d\u00f3mg\u00e6slunni heldur spurningunni sj\u00e1lfri. H\u00fan var \u00f3l\u00e1n. \u00deessi tegund spurninga getur alltaf or\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0. &#8211; \u00deess vegna m\u00e6li \u00e9g ekki me\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad vi\u00f0 nokkurn mann a\u00f0 semja GB-spurningar um notkun hluta, handbr\u00f6g\u00f0 og verklag. \u00de\u00e1 eru n\u00fa helv. h\u00f6fu\u00f0borgirnar og k\u00f3ngan\u00f6fnin au\u00f0veldari vi\u00f0fangs&#8230;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Mara\u00feon-svarhalinn vi\u00f0 s\u00ed\u00ad\u00f0ustu Gettu betur-f\u00e6rslu er kominn upp yfir 40 athugasemdir. N\u00f6rdunum hefur greinilega veri\u00f0 sleppt lausum. Umr\u00e6\u00f0urnar eru raunar komnar \u00fat \u00ed\u00ad t\u00f3ma vitleysu, vegna mistaka sem auglj\u00f3slega eru flj\u00f3tf\u00e6rnisleg innsl\u00e1ttarvilla. \u00deannig gerist bara. En Stein\u00fe\u00f3r Helgi, gamla Borgarholtssk\u00f3lastjarnan, vill draga mig meira inn \u00ed\u00ad umr\u00e6\u00f0una og spyr: &#8222;Af hverju tj\u00e1ir helsti sagnfr\u00e6\u00f0ingur \u00fej\u00f3\u00f0arinnar &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2008\/02\/19\/skilja-e%c3%b0a-skilvinda\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Skilja e\u00f0a skilvinda<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-2241","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2241","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2241"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2241\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2241"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2241"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2241"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}