{"id":3456,"date":"2009-11-25T00:30:33","date_gmt":"2009-11-25T00:30:33","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/?p=3456"},"modified":"2009-11-25T00:30:33","modified_gmt":"2009-11-25T00:30:33","slug":"halendingurinn-2010-stund-akvor%c3%b0unar-iiihluti-b","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2009\/11\/25\/halendingurinn-2010-stund-akvor%c3%b0unar-iiihluti-b\/","title":{"rendered":"H\u00e1lendingurinn 2010 \u2013 stund \u00e1kv\u00f6r\u00f0unar: III.hluti (b)"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fa er komi\u00f0 a\u00f0 kan\u00f3num \u00e1 HM, \u00feremur li\u00f0um sem stefna v\u00e6ntanlega \u00e1 heimsmeistaratitilinn sj\u00e1lfan. Leynist upp\u00e1haldsli\u00f0 \u00ed \u00feessum potti? Hvar er Valli?<\/p>\n<p><strong>12. Frakkland<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g h\u00e9lt me\u00f0 Fr\u00f6kkum \u00e1 EM 1996, aftur \u00e1 HM tveimur \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar, l\u00edka \u00e1 EM 2000 og loks \u00ed lei\u00f0indakeppninni \u00ed Japan og Su\u00f0ur-K\u00f3reu 2002. Hin \u00f6murlega spilamennska Frakkanna \u00e1 s\u00ed\u00f0asttalda m\u00f3tinu var sl\u00edk svik a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur aldrei fyrirgefi\u00f0. Til a\u00f0 b\u00e6ta gr\u00e1u ofan \u00e1 svart eru Frakkarnir me\u00f0 rugludall sem tr\u00fair \u00e1 stj\u00f6rnuspeki sem \u00fej\u00e1lfara, sem \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 unnendur v\u00edsinda hlj\u00f3ta a\u00f0 \u00f3ska \u00feeim \u00f3farna\u00f0ar.<\/p>\n<p><em>Ni\u00f0ursta\u00f0a:<\/em> Frakkland ver\u00f0ur ekki upp\u00e1haldsli\u00f0, m\u00e1 detta \u00fat fyrr en s\u00ed\u00f0ar<\/p>\n<p><strong>13.Holland<\/strong><\/p>\n<p>Afsta\u00f0a m\u00edn til Hollendinga m\u00f3tast nokku\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra st\u00e6rsta stund var EM sigurinn 1988. \u00de\u00e1 h\u00e9lt \u00e9g hins vegar me\u00f0 sov\u00e9ska li\u00f0inu og kunni Hollendingum litlar \u00feakkir fyrir a\u00f0 sigra Dassajeff og f\u00e9laga \u00ed \u00farslitaleiknum. \u00der\u00e1tt fyrir \u00feessa fors\u00f6gu ver\u00f0ur ekki fram hj\u00e1 \u00fev\u00ed liti\u00f0 a\u00f0 Hollendingar leika yfirleitt einna skemmtilegasta boltann af st\u00f3ru \u00fej\u00f3\u00f0unum. \u00c1 m\u00f3ti li\u00f0um eins og Fr\u00f6kkum, \u00dej\u00f3\u00f0verjum og Brasil\u00edu er ekki spurning hvar hjarta\u00f0 myndi sl\u00e1.<\/p>\n<p><em>Ni\u00f0ursta\u00f0a:<\/em> Holland ver\u00f0ur ekki upp\u00e1haldsli\u00f0, en \u00e9g myndi una \u00feeim betur en flestum \u00f6\u00f0rum a\u00f0 fara alla lei\u00f0<\/p>\n<p><strong>14. Hond\u00faras<\/strong><\/p>\n<p>Menn d\u00f6nsu\u00f0u af gle\u00f0i \u00e1 g\u00f6tum \u00fati \u00ed Hond\u00faras \u00feegar li\u00f0i\u00f0 komst \u00e1 HM \u00ed fyrsta sinn fr\u00e1 1982. \u00c6tli s\u00e1 eini sem b\u00f6lva\u00f0i \u00farslitunum hafi ekki veri\u00f0 brottrekni forsetinn? F\u00e1tt hj\u00e1lpar herforingjastj\u00f3rnum eins vel til a\u00f0 halda v\u00f6ldum og velgengni \u00e1 f\u00f3tboltavellinum.<\/p>\n<p>Hin auglj\u00f3sa s\u00f6gulega v\u00edsun h\u00e9r er vitaskuld f\u00f3tboltastr\u00ed\u00f0i\u00f0 milli Hond\u00faras og El Salvador sem braust \u00fat eftir leik \u00feeirra \u00ed forkeppni HM 1970. En \u00e9g sem fri\u00f0arsinni get au\u00f0vita\u00f0 ekki lofsungi\u00f0 sl\u00edkt framfer\u00f0i. Hond\u00faras \u00e1 samt allt gott skili\u00f0 sem sm\u00e1r\u00edki me\u00f0 gr\u00ed\u00f0arlega f\u00f3tboltahef\u00f0 (\u00e6tli \u00fea\u00f0 m\u00e6ti ekki fleiri \u00e1 landsleiki Hond\u00faras sem spila\u00f0ir eru \u00ed Bandar\u00edkjunum en \u00e1 leiki bandar\u00edska landsli\u00f0sins?)<\/p>\n<p><em>Ni\u00f0ursta\u00f0a:<\/em> Hond\u00faras ver\u00f0ur ekki upp\u00e1haldsli\u00f0, en \u00e9g myndi fagna \u00fev\u00ed ef \u00feeim t\u00e6kist a\u00f0 stela stigi af einhverri st\u00f3r\u00fej\u00f3\u00f0inni<\/p>\n<p><strong>15. \u00cdtal\u00eda<\/strong><\/p>\n<p>Hmm\u2026 getur nokkur hei\u00f0vir\u00f0ur vinstrima\u00f0ur \u00f3ska\u00f0 \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 \u00cdtali verja heimsmeistaratitilinn og Berlusconi brosa \u00fat a\u00f0 eyrum \u00ed hei\u00f0ursst\u00fakunni? H\u00e9lt ekki. \u00cdtalir eru au\u00f0vita\u00f0 fr\u00e1b\u00e6r knattspyrnu\u00fej\u00f3\u00f0, en manni finnst samt eitthva\u00f0 rangt vi\u00f0 a\u00f0 \u00feeir geti st\u00e1ta\u00f0 af fj\u00f3rum titlum. \u00dea\u00f0 er l\u00edka alltaf eitthva\u00f0 f\u00falt vi\u00f0 li\u00f0 \u00fear sem a\u00f0algaurinn er markv\u00f6r\u00f0urinn (segi \u00e9g sem h\u00e9lt me\u00f0 Sov\u00e9tm\u00f6nnum \u00fataf Dassajeff.)<\/p>\n<p><em>Ni\u00f0ursta\u00f0a:<\/em> \u00cdtal\u00eda ver\u00f0ur ekki upp\u00e1haldsli\u00f0, m\u00e6tti helst falla \u00fat \u00e1\u00f0ur en \u00ed undan\u00farslitin er komi\u00f0 (\u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00feeim nefnilega tr\u00faandi til a\u00f0 fara alla lei\u00f0)<\/p>\n<p><strong>16. Japan<\/strong><\/p>\n<p>Sl\u00f6ppustu gestgjafar s\u00f6gunnar (\u00feanga\u00f0 til Su\u00f0ur-Afr\u00edka sl\u00e6r \u00fea\u00f0 met). Japan er \u00e1l\u00edka \u00f3spennandi og \u00c1stral\u00eda. \u00dea\u00f0 er kr\u00fattlegt \u00feegar f\u00e1t\u00e6k \u00feri\u00f0ja heims \u00fej\u00f3\u00f0 kemur \u00e1 \u00f3vart \u00e1 HM og n\u00e6r a\u00f0 skj\u00f3ta vondu, r\u00edku Evr\u00f3pub\u00faunum skelk \u00ed bringu \u2013 en hver \u00e1 a\u00f0 gle\u00f0jast yfir \u00fev\u00ed \u00feegar eitt r\u00edkasta samf\u00e9lag heims m\u00e6tir sem underdog \u00e1 m\u00f3ti sk\u00edtbl\u00f6nku Austur-Evr\u00f3pulandi?<\/p>\n<p>Svo er \u00fea\u00f0 svo \u00e6pandi auglj\u00f3st \u00e1 leikjum me\u00f0 Japan, a\u00f0 \u00e1horfendurnir eru t\u00faristar sem kunna ekkert a\u00f0 haga s\u00e9r \u00e1 f\u00f3tboltaleikjum. (Eru \u00feetta sta\u00f0almyndir og sleggjud\u00f3mar? You bet!)<\/p>\n<p><em>Ni\u00f0ursta\u00f0a:<\/em> Japan ver\u00f0ur ekki upp\u00e1haldsli\u00f0, tilvali\u00f0 fallbyssuf\u00f3\u00f0ur<\/p>\n<p><strong>17. Kamer\u00fan<\/strong><\/p>\n<p>\u00deeir eru til sem halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 P\u00e9le hafi drepi\u00f0 afr\u00edska knattspyrnu me\u00f0 jinxinu 1990, \u00feess efnis a\u00f0 1998 yr\u00f0i li\u00f0 fr\u00e1 Afr\u00edku heimsmeistari. A\u00f0rir benda \u00e1 a\u00f0 P\u00e9le hafi alltaf tala\u00f0 \u00fat um rassgati\u00f0 \u00e1 s\u00e9r og enginn hlusti \u00e1 hann.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur, hefur Kamer\u00fan aldrei tekist a\u00f0 standa undir \u00e1rangrinum 1990. \u00deeir eru \u00fe\u00f3 m\u00f6gulega \u00f6flugasta knattspyrnu\u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1lfunnar \u2013 \u00e1samt Ghana. \u00cd lj\u00f3si \u00feessa \u2013 og a\u00f0 keppnin fer n\u00fa fram \u00ed Afr\u00edku, \u00fe\u00e1 er \u00feetta st\u00f3ri s\u00e9nsinn fyrir Kamer\u00fan. Eitthva\u00f0 segir m\u00e9r \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feetta endi allt \u00ed t\u00e1rum.<\/p>\n<p><em>Ni\u00f0ursta\u00f0a:<\/em> Kamer\u00fan ver\u00f0ur ekki upp\u00e1haldsli\u00f0, eiginlega stendur m\u00e9r alveg \u00e1 sama um li\u00f0i\u00f0<\/p>\n<p>Og enn er m\u00e6lendaskr\u00e1 opin\u2026<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa er komi\u00f0 a\u00f0 kan\u00f3num \u00e1 HM, \u00feremur li\u00f0um sem stefna v\u00e6ntanlega \u00e1 heimsmeistaratitilinn sj\u00e1lfan. Leynist upp\u00e1haldsli\u00f0 \u00ed \u00feessum potti? Hvar er Valli? 12. Frakkland \u00c9g h\u00e9lt me\u00f0 Fr\u00f6kkum \u00e1 EM 1996, aftur \u00e1 HM tveimur \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar, l\u00edka \u00e1 EM 2000 og loks \u00ed lei\u00f0indakeppninni \u00ed Japan og Su\u00f0ur-K\u00f3reu 2002. Hin \u00f6murlega spilamennska Frakkanna &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2009\/11\/25\/halendingurinn-2010-stund-akvor%c3%b0unar-iiihluti-b\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">H\u00e1lendingurinn 2010 \u2013 stund \u00e1kv\u00f6r\u00f0unar: III.hluti (b)<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-3456","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3456","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3456"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3456\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3456"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3456"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3456"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}