{"id":3712,"date":"2010-04-16T11:10:52","date_gmt":"2010-04-16T11:10:52","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/?p=3712"},"modified":"2010-04-16T11:10:52","modified_gmt":"2010-04-16T11:10:52","slug":"toblerone-mytan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2010\/04\/16\/toblerone-mytan\/","title":{"rendered":"Toblerone-m\u00fdtan"},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 drepa m\u00fdtur \u00feegar \u00fe\u00e6r eru \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 komnar \u00e1 kreik. H\u00e1lf heimsbygg\u00f0in er t.d. me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 hreinu a\u00f0 Ner\u00f3 hafi spila\u00f0 \u00e1 fi\u00f0lu me\u00f0an R\u00f3marborg brann &#8211; sama hva\u00f0 pirra\u00f0ir sagnfr\u00e6\u00f0ingar reyna a\u00f0 malda \u00ed m\u00f3inn.<\/p>\n<p>\u00d6nnur l\u00edfseig m\u00fdta er Toblerone-m\u00fdtan um Monu Sahlin. J\u00f3hann Hauksson <a href=\"http:\/\/www.dv.is\/blogg\/johann-hauksson\/2010\/4\/15\/bjorgvin-g-til-fyrirmyndar\/\">endurtekur hana s\u00ed\u00f0ast \u00ed morgun<\/a>: <em>&#8222;Svona r\u00e9tt til samanbur\u00f0ar m\u00e1 geta \u00feess a\u00f0 Mona Sahlin, n\u00faverandi forma\u00f0ur s\u00e6nska jafna\u00f0armannaflokksins og hugsanlega n\u00e6sti fors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar, sag\u00f0i af s\u00e9r sem a\u00f0sto\u00f0arfors\u00e6tisr\u00e1\u00f0herra um mi\u00f0jan t\u00edunda \u00e1ratuinn vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i keypt Toblerone og bleyjur fyrir opinbert kr\u00edtarkort.<br \/>\nFyrir viki\u00f0 er h\u00fan greinilega talin tr\u00faver\u00f0ug heilindamanneskja\u00a0enda var\u00f0 h\u00fan\u00a0s\u00ed\u00f0ar forma\u00f0ur flokksins.&#8220;<\/em><\/p>\n<p>H\u00f6fum eitt \u00e1 hreinu: Mona Sahlin hr\u00f6kkla\u00f0ist ekki \u00far r\u00e1\u00f0herrast\u00f3l vegna \u00feess a\u00f0 h\u00fan keypti bleyjur og Toblerone fyrir b\u00f6rnin s\u00edn. \u00dea\u00f0 sem felldi Sahlin var ekki sm\u00e1v\u00e6gileg \u00f3n\u00e1kv\u00e6mni \u00ed b\u00f3khaldi me\u00f0 einhverja \u00fe\u00fasundkalla &#8211; heldur \u00fea\u00f0 sama og fellir langflesta stj\u00f3rnm\u00e1lamenn: h\u00fan byrja\u00f0i a\u00f0 lj\u00faga.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 a\u00f0 hver ma\u00f0ur \u00e9ti upp eftir \u00f6\u00f0rum a\u00f0 allt hafi \u00feetta sn\u00faist um bleyjur og s\u00fakkula\u00f0i er aflei\u00f0ing af fr\u00e1b\u00e6rum spuna. Sahlin sag\u00f0ist sj\u00e1lf \u00ed einhverju vi\u00f0talinu ekki hafa gert neitt anna\u00f0 af s\u00e9r en a\u00f0 &#8222;kaupa bleyjupakka og Toblerone fyrir b\u00f6rnin&#8220;. \u00deessi setning var\u00f0 fleyg &#8211; og eftir sm\u00e1t\u00edma f\u00f3ru menn a\u00f0 endurskrifa s\u00f6guna \u00e1 \u00feennan veg. (\u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9u veitt \u00d3skarsver\u00f0laun \u00ed PR-mennsku?)<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 r\u00e9tta er a\u00f0 Mona Sahlin hef\u00f0i aldrei \u00feurft a\u00f0 segja af s\u00e9r vegna s\u00fakkula\u00f0istykkis. Hins vegar komust fj\u00f6lmi\u00f0lar \u00e1 sno\u00f0ir um a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i broti\u00f0 reglur um me\u00f0fer\u00f0 grei\u00f0slukorts sem h\u00fan haf\u00f0i afnot af vegna vinnu sinnar. H\u00fan nota\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00ed einkaerindum en ger\u00f0i svo upp um hver m\u00e1na\u00f0arm\u00f3t &#8211; eins og um fyrirframgreidd laun v\u00e6ri a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00deetta var brot, en aldrei \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6ti r\u00fasta\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1laferli.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00e1 br\u00e1st Mona Sahlin vi\u00f0 \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem svo m\u00f6rgum stj\u00f3rnm\u00e1lam\u00f6nnum er tamt: \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 st\u00edga fram, uppl\u00fdsa m\u00e1li\u00f0 og k\u00e6fa \u00fea\u00f0 \u00feannig \u00ed f\u00e6\u00f0ingu, f\u00f3r h\u00fan undan \u00ed fl\u00e6mingi, hagr\u00e6ddi sannleikanum og var me\u00f0 sk\u00e6ting. Fyrir viki\u00f0 f\u00f3ru fj\u00f6lmi\u00f0lamenn a\u00f0 r\u00fdna betur \u00ed hennar m\u00e1l og \u00fe\u00e1 komu \u00fdmsar a\u00f0rar sm\u00e1syndir \u00ed lj\u00f3s: Sahlin haf\u00f0i t.d. ekki haft fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 borga afnotagj\u00f6ldin og var\u00f0 uppv\u00eds af \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa barnf\u00f3stru \u00ed svartri vinnu (hvort tveggja afar \u00f3heppilegt fyrir stj\u00f3rnm\u00e1lamann \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0).<\/p>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir \u00feetta m\u00e1 \u00e6tla a\u00f0 Mona Sahlin hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 geta sta\u00f0i\u00f0 m\u00e1li\u00f0 af s\u00e9r &#8211; ef h\u00fan hef\u00f0i ekki teki\u00f0 \u00fe\u00e1 f\u00e1r\u00e1nlegu \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 stinga af fr\u00e1 \u00feessari \u00f3\u00fe\u00e6gilegu umr\u00e6\u00f0u og fara me\u00f0 fj\u00f6lskylduna \u00ed fr\u00ed til M\u00e1ritus og l\u00e1ta ekki n\u00e1 \u00ed sig. \u00dear me\u00f0 gaf h\u00fan gagnr\u00fdnendum s\u00ednum fr\u00edtt spil (ekki b\u00e6tti \u00far sk\u00e1k a\u00f0 flokksf\u00e9lagar hennar voru ekkert s\u00e9rstaklega \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 verja hana) og \u00feegar h\u00fan kom heim aftur var litla kreditkortam\u00e1li\u00f0 or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 allsherjar skandal. \u00deegar vi\u00f0 \u00feetta b\u00e6ttust fr\u00e9ttir af \u00fev\u00ed a\u00f0 Sahlin haf\u00f0i teki\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r l\u00edfv\u00f6r\u00f0 \u00ed fer\u00f0alagi\u00f0 \u00e1 kostna\u00f0 skattgrei\u00f0enda (\u00e1 \u00feessum t\u00edma h\u00f6f\u00f0u s\u00e6nskir stj\u00f3rnm\u00e1lamenn sjaldnast l\u00edfver\u00f0i) var afs\u00f6gn hennar innsiglu\u00f0.<\/p>\n<p>Me\u00f0 \u00feessa fors\u00f6gu \u00ed huga er \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed hvimleitt a\u00f0 heyra aftur og aftur s\u00f6mu g\u00f6mlu \u00feuluna um a\u00f0 engillinn Mona Sahlin hafi stokki\u00f0 til og sagt af s\u00e9r um lei\u00f0 og h\u00fan var n\u00f6ppu\u00f0 fyrir a\u00f0 kaupa Toblerone-pakka.<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p><em>Uppf\u00e6rt kl. 16:00: J\u00f3hann Hauksson <\/em><a href=\"http:\/\/www.dv.is\/blogg\/johann-hauksson\/2010\/4\/16\/radherrar-afsagnir-og-stefan-palsson\/\"><em>hefur reki\u00f0 augun \u00ed f\u00e6rsluna m\u00edna<\/em><\/a><em>. Hann segir mig vera a\u00f0 skattyr\u00f0ast vi\u00f0 sig og bendir r\u00e9ttilega \u00e1 a\u00f0 athugasemdin um Monu Sahlin hafi veri\u00f0 algj\u00f6rt aukaatri\u00f0i \u00ed grein sinni. \u00de\u00e1 v\u00edsar hann \u00ed eldri grein eftir sj\u00e1lfan sig til a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 a\u00f0 hann \u00feekki vel s\u00f6gu Toblerone-m\u00e1lsins og hvetur mig til a\u00f0 lesa hana vandlega.<\/em><\/p>\n<p><em>Ekki s\u00e9 \u00e9g reyndar hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00ed greininni sem \u00e9g \u00e1 s\u00e9rstaklega a\u00f0 tileinka m\u00e9r. Kjarni m\u00e1lsins er a\u00f0 Mona Sahlin hr\u00f6kkla\u00f0ist fr\u00e1 &#8211; ekki vegna e\u00f0lis afbrots hennar, heldur hins a\u00f0 h\u00fan br\u00e1st vi\u00f0 \u00e1s\u00f6kununum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja \u00f3satt og hr\u00f6kklast undan spurningum fj\u00f6lmi\u00f0la (auk \u00feess sem margt bendir til \u00feess a\u00f0 \u00f6fundsj\u00fakir flokksbr\u00e6\u00f0ur hafi heldur grafi\u00f0 undan henni).<\/em><\/p>\n<p><em>M\u00e9r s\u00fdnist helst a\u00f0 J\u00f3hann haldi a\u00f0 \u00e9g hafi veri\u00f0 a\u00f0 gera einhvern s\u00e9rstakan \u00e1greining vi\u00f0 grein hans um Bj\u00f6rgvin G. \u00dea\u00f0 er hins vegar misskilningur. \u00d3n\u00e1kv\u00e6mnin \u00ed endurs\u00f6gnum manna af Sahlin-m\u00e1linu hefur einfaldlega pirra\u00f0 mig \u00ed m\u00f6rg \u00e1r og rifja\u00f0ist bara upp \u00feegar \u00e9g renndi yfir pistil J\u00f3hanns.<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 drepa m\u00fdtur \u00feegar \u00fe\u00e6r eru \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 komnar \u00e1 kreik. H\u00e1lf heimsbygg\u00f0in er t.d. me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 hreinu a\u00f0 Ner\u00f3 hafi spila\u00f0 \u00e1 fi\u00f0lu me\u00f0an R\u00f3marborg brann &#8211; sama hva\u00f0 pirra\u00f0ir sagnfr\u00e6\u00f0ingar reyna a\u00f0 malda \u00ed m\u00f3inn. \u00d6nnur l\u00edfseig m\u00fdta er Toblerone-m\u00fdtan um Monu Sahlin. J\u00f3hann Hauksson endurtekur hana s\u00ed\u00f0ast &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2010\/04\/16\/toblerone-mytan\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Toblerone-m\u00fdtan<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-3712","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3712","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3712"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3712\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3712"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3712"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3712"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}