{"id":3916,"date":"2010-08-17T00:39:16","date_gmt":"2010-08-17T00:39:16","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/?p=3916"},"modified":"2010-08-17T00:39:16","modified_gmt":"2010-08-17T00:39:16","slug":"gongurnar-kloaki%c3%b0-og-namskei%c3%b0i%c3%b0","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2010\/08\/17\/gongurnar-kloaki%c3%b0-og-namskei%c3%b0i%c3%b0\/","title":{"rendered":"G\u00f6ngurnar, kl\u00f3aki\u00f0 og n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0"},"content":{"rendered":"<p>Einhverra hluta vegna er alltaf mest hj\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 gera \u00e1 t\u00edmabilinu fr\u00e1 mi\u00f0jum \u00e1g\u00fast og fram \u00ed lok okt\u00f3ber. \u00d6ll verkefni vir\u00f0ast meira og minna lenda \u00e1 \u00feessum vikum og \u00fe\u00f3tt \u00e9g lofi m\u00e9r \u00e1 hverju \u00e1ri a\u00f0 reyna a\u00f0 dreifa verkefnunum skynsamlegar \u00fe\u00e1 tekst \u00fea\u00f0 aldrei. Ekki a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 a\u00f0 kvarta &#8211; \u00fea\u00f0 er alltaf betra a\u00f0 hafa of miki\u00f0 a\u00f0 gera en of l\u00edti\u00f0.<\/p>\n<p>\u00derj\u00fa verkefni taka einna mestan t\u00edma n\u00e6stu daga og vaskir lesendur s\u00ed\u00f0unnar geta margir hverjir teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feeim me\u00f0 m\u00e9r.<\/p>\n<p>Fyrst eru \u00fea\u00f0 <strong>g\u00f6ngurnar<\/strong>. Eitt \u00fea\u00f0 skemmtilegasta sem \u00e9g geri \u00ed vinnunni minni hj\u00e1 Orkuveitunni, eru fr\u00e6\u00f0slug\u00f6ngurnar. Einar Gunnlaugsson jar\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur hj\u00e1 OR og Kristinn \u00deorsteinsson, sem stj\u00f3rna\u00f0i lengi gar\u00f0yrkjudeild fyrirt\u00e6kisins, f\u00f3ru af sta\u00f0 me\u00f0 \u00feessar g\u00f6ngur fyrir allnokkrum \u00e1rum. Eitt \u00e1ri\u00f0 fengu \u00feeir mig til a\u00f0 st\u00fdra s\u00f6gug\u00f6ngu um Elli\u00f0a\u00e1rdalinn og \u00fe\u00e1 var\u00f0 ekki aftur sn\u00fai\u00f0.<\/p>\n<p>N\u00fana er \u00fea\u00f0 fastur li\u00f0ur hj\u00e1 m\u00e9r \u00e1 sumrin a\u00f0 stj\u00f3rna tveimur s\u00f6gug\u00f6ngum \u00ed Elli\u00f0a\u00e1rdalnum (efra og ne\u00f0ra sv\u00e6\u00f0i) \u00e1 vegum Orkuveitunnar. \u00cd kringum J\u00f3nsmessuna tek \u00e9g svo \u00feri\u00f0ju s\u00f6gug\u00f6nguna \u00e1samt g\u00f6mlum sk\u00f3labr\u00f3\u00f0ur, Gu\u00f0brandi Benediktssyni fr\u00e1 \u00c1rb\u00e6jarsafni. \u00de\u00e1 kem \u00e9g a\u00f0 l\u00f6ngu Elli\u00f0a\u00e1rdalsg\u00f6ngunni, \u00fear sem gengi\u00f0 er fr\u00e1 Minjasafninu a\u00f0 Gvendarbrunnum.<\/p>\n<p>\u00cd fyrra pr\u00f3fu\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 halda s\u00f6gug\u00f6ngu \u00ed Laugardalnum og h\u00fan ver\u00f0ur endurtekin anna\u00f0 kv\u00f6ld, \u00feri\u00f0judagskv\u00f6ld. (Lagt af sta\u00f0 fra\u00e1 \u00devottalaugunum kl. 19:30, allir velkomnir.) Laugardalssv\u00e6\u00f0i\u00f0 er \u00ferungi\u00f0 s\u00f6gu, en a\u00f0al\u00e1herslan ver\u00f0ur l\u00f6g\u00f0 \u00e1 s\u00f6gu orkun\u00fdtingar, \u00fe\u00f3tt fleira beri \u00e1 g\u00f3ma s.s. d\u00f3nalegar styttur, s\u00edgaunar og dr. Helgi Pjeturs.<\/p>\n<p>Eftir viku \u00e6tlum vi\u00f0 Einar Gunnlaugsson svo a\u00f0 brydda upp \u00e1 n\u00fdjung hj\u00e1 Orkuveitunni: fr\u00e6\u00f0slug\u00f6ngu um \u00d6skjuhl\u00ed\u00f0ina. Fyrr \u00ed sumar t\u00f3k \u00e9g a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 l\u00f3\u00f0sa h\u00f3p kvenna \u00far orkugeiranum um \u00d6skjuhl\u00ed\u00f0, me\u00f0 \u00e1herslu \u00e1 herminjar. \u00dea\u00f0 gekk \u00fer\u00e6lvel og \u00e9g bind miklar vonir vi\u00f0 \u00feessa g\u00f6ngu. N\u00e1nar pl\u00f6gga\u00f0 s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>Fr\u00e6\u00f0slug\u00f6ngur eru eiginlega \u00fea\u00f0 skemmtilegasta sem \u00e9g veit. (J\u00e1, l\u00edklega er \u00fea\u00f0 aldurinn sem er h\u00e9r a\u00f0 tala.) Og mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 m\u00e6tinguna hj\u00e1 okkur \u00ed OR-g\u00f6ngunum er eftirspurnin n\u00e6g. G\u00f6ngufer\u00f0ir me\u00f0 lei\u00f0s\u00f6gn eru einhver \u00f6flugasta lei\u00f0 sem til er \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 mi\u00f0la s\u00f6gu og fr\u00f3\u00f0leik.<\/p>\n<p><strong>Kl\u00f3aki\u00f0<\/strong> kemur vi\u00f0 s\u00f6gu \u00e1 Menningarn\u00f3tt, n.k. laugardag. A\u00f0 \u00feessu sinni ver\u00f0 \u00e9g Off venue (ver\u00f0a Off venue-samkomurnar ekki alltaf a\u00f0 lokum miklu st\u00e6rri og flottari en a\u00f0alh\u00e1t\u00ed\u00f0arnar?)<\/p>\n<p>Fyrir \u00feremur \u00e1rum, 2007, settu Orkuveitumenn upp sm\u00e1listvi\u00f0bur\u00f0i \u00ed g\u00f6mlu a\u00f0veitust\u00f6\u00f0inni vi\u00f0 Austurb\u00e6jarsk\u00f3lann \u00e1 Menningarn\u00f3tt. \u00c9g kom ekki miki\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed &#8211; nema j\u00fa, \u00e9g s\u00e1 um s\u00f6gug\u00f6ngu (surprise, surprise!) \u00far \u00devottalaugunum a\u00f0 Austurb\u00e6jarsk\u00f3la. 2008 \u00e1kv\u00e1\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 fara \u00ed hina \u00e1ttina og st\u00f3\u00f0um (\u00e1samt \u00c1rb\u00e6jarsafni) fyrir s\u00f6gug\u00f6ngu fr\u00e1 Hlemmi (g\u00f6mlu Gasst\u00f6\u00f0inni) a\u00f0 \u00devottalaugunum og \u00ed Grasagar\u00f0inn. \u00dear var gamla d\u00e6lust\u00f6\u00f0in \u00ed \u00devottalaugunum opnu\u00f0 almenningi, einu sinni sem oftar.<\/p>\n<p>\u00cd fyrra var \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 halda s\u00ednu striki og a\u00f0 Orkuveitan myndi opna eitt af fj\u00f6lm\u00f6rgum mannvirkjum s\u00ednum \u00e1 Menningarn\u00f3tt. \u00deetta verkefni var fyrst og fremst hugarf\u00f3stur okkar Baldurs Sigur\u00f0ssonar kollega m\u00edns, sem vinnur \u00e1 ums\u00fdslu fasteigna. Vi\u00f0 s\u00fdndum vatnsgeyminn \u00e1 Litluhl\u00ed\u00f0, fengum listfenga vinnuf\u00e9laga til a\u00f0 s\u00fdna myndir, m\u00e1lverk og spila \u00e1 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri og gestir fengu kaffi og pipark\u00f6kur. Landsnet opna\u00f0i stj\u00f3rnst\u00f6\u00f0 s\u00edna \u00ed n\u00e6sta h\u00fasi, en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur af\u00feakka\u00f0i Ve\u00f0urstofan a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt.<\/p>\n<p>\u00deegar kom a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 velja starfst\u00f6\u00f0 Orkuveitunnar til a\u00f0 s\u00fdna \u00e1 Menningarn\u00f3tt 2010, var vali\u00f0 ekki erfitt. Hreinsi- og d\u00e6lust\u00f6\u00f0in Klettag\u00f6r\u00f0um er kl\u00e1rlega \u00e1 topp 10-listanum yfir sv\u00f6lustu mannvirki Reykjav\u00edkur. \u00deanga\u00f0 er sk\u00f3lpinu fr\u00e1 eystribygg\u00f0um Reykjav\u00edkur safna\u00f0 saman, \u00fea\u00f0 hreinsa\u00f0 og svo d\u00e6lt \u00e1 haf \u00fat. A\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 fara \u00fearna inn, l\u00edta \u00e1 gr\u00e6jurnar og rabba vi\u00f0 stj\u00f3rnendurnar er ra\u00f0fulln\u00e6ging t\u00e6knin\u00f6rdsins.<\/p>\n<p>Og ef ma\u00f0ur er me\u00f0 svona flottar d\u00e6lur og p\u00edpur, me\u00f0 st\u00f3r og mikil b\u00edlast\u00e6\u00f0i \u00e1 besta sta\u00f0 \u00ed Reykajv\u00edk me\u00f0 \u00fats\u00fdni yfir sundin&#8230; hva\u00f0 vantar \u00fe\u00e1 bara? J\u00fa, au\u00f0vita\u00f0 kagga! Svo vi\u00f0 hnipptum \u00ed Kadda-kl\u00fabbinn og s\u00f6mdum vi\u00f0 hann um a\u00f0 m\u00e6ta me\u00f0 K\u00e1dilj\u00e1kana s\u00edna og stilla \u00feeim upp me\u00f0an \u00e1 opna h\u00fasinu stendur, fr\u00e1 kl. 16 til 18. Fr\u00e6gasti kadda-kall landsins er au\u00f0vita\u00f0 \u00d3lafur Gunnarsson rith\u00f6fundur sem m\u00e6tir og les \u00far verkum s\u00ednum. Hann er svo aftur vinur hans D\u00f3ra &#8211; svo au\u00f0vita\u00f0 m\u00e6tir D\u00f3ri sj\u00e1lfur og spilar bl\u00fas.<\/p>\n<p>\u00deetta ver\u00f0ur svakalega flott dagskr\u00e1, en sem fyrr segir ver\u00f0ur h\u00fan Off venue og \u00fev\u00ed ekki kynnt \u00e1 opinberri dagskr\u00e1 Menningarn\u00e6tur &#8211; enda hefur h\u00fan veri\u00f0 skilgreind \u00feannig a\u00f0 allir atbur\u00f0ir skuli gerast vestan Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgs. Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgur-Schmau\u00f0ar\u00e1rst\u00edgur&#8230;. straumurinn ver\u00f0ur \u00ed Laugarnesi\u00f0 \u00a0\u00e1 dagskr\u00e1nna: <em>Kl\u00f3ak og kadilak \u00ed Klettag\u00f6r\u00f0um<\/em>.<\/p>\n<p><strong>N\u00e1mskei\u00f0i\u00f0<\/strong> er svo st\u00f3ra verkefni haustsins. Minjasafn Orkuveitunnar og Sagnfr\u00e6\u00f0ideild H\u00e1sk\u00f3lans hafa \u00ed haust samstarf um n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0 <em>T\u00e6kni og saga: \u00der\u00f3un borgarmenningar \u00e1 \u00cdslandi 1909-2009<\/em>, sem er almennt valn\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 BA-stigi vi\u00f0 sagnfr\u00e6\u00f0ina \u00ed H\u00cd.<\/p>\n<p>\u00c9g er \u00e1kaflega spenntur fyrir \u00feessu verkefni, enda ver\u00f0ur \u00feetta \u00ed fyrsta sinn sem \u00e9g s\u00e9 um h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1mskei\u00f0 fr\u00e1 a-\u00f6 (skipulegg fr\u00e1 grunni og kenni). Efni\u00f0 er fyrst og fremst \u00fer\u00f3unarsaga Reykjav\u00edkur sem borgar, me\u00f0 h\u00f6fu\u00f0\u00e1herslu \u00e1 t\u00e6knikerfi (og \u00fe\u00e1 einkum orkukerfi), auk \u00feess sem nemendur f\u00e1 inns\u00fdn inn \u00ed almenna t\u00e6knis\u00f6gu \u00fear sem tv\u00f6 amer\u00edsk \u00f6ndvegisrit \u00ed faginu ver\u00f0a til grundvallar.<\/p>\n<p>\u00deetta er n\u00e1mskei\u00f0 sem mig hefur \u00ed t\u00edu \u00e1r dreymt um a\u00f0 kenna. Sagnfr\u00e6\u00f0ideildin f\u00e6r vins\u00e6lt valn\u00e1mskei\u00f0 (t\u00e6plega 30 skr\u00e1\u00f0ir) me\u00f0 f\u00ednum akadem\u00edskum standard. Og Orkuveitan vinnur a\u00f0 settum markmi\u00f0um s\u00ednum um stu\u00f0ning vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lastigi\u00f0 og hl\u00fdtur a\u00f0 fagna \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fd\u00fatkomin saga hennar s\u00e9 notu\u00f0 sem lykilkennsluefni \u00ed h\u00e1sk\u00f3lan\u00e1mskei\u00f0i. Allir gr\u00e6\u00f0a.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einhverra hluta vegna er alltaf mest hj\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 gera \u00e1 t\u00edmabilinu fr\u00e1 mi\u00f0jum \u00e1g\u00fast og fram \u00ed lok okt\u00f3ber. \u00d6ll verkefni vir\u00f0ast meira og minna lenda \u00e1 \u00feessum vikum og \u00fe\u00f3tt \u00e9g lofi m\u00e9r \u00e1 hverju \u00e1ri a\u00f0 reyna a\u00f0 dreifa verkefnunum skynsamlegar \u00fe\u00e1 tekst \u00fea\u00f0 aldrei. Ekki a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 a\u00f0 kvarta &#8211; &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2010\/08\/17\/gongurnar-kloaki%c3%b0-og-namskei%c3%b0i%c3%b0\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">G\u00f6ngurnar, kl\u00f3aki\u00f0 og n\u00e1mskei\u00f0i\u00f0<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-3916","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3916","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3916"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3916\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3916"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3916"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3916"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}