{"id":3975,"date":"2010-09-12T09:26:44","date_gmt":"2010-09-12T09:26:44","guid":{"rendered":"http:\/\/kaninka.net\/stefan\/?p=3975"},"modified":"2010-09-12T09:26:44","modified_gmt":"2010-09-12T09:26:44","slug":"manu%c3%b0ur-i-montevideo-ii-hluti-b","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2010\/09\/12\/manu%c3%b0ur-i-montevideo-ii-hluti-b\/","title":{"rendered":"M\u00e1nu\u00f0ur \u00ed Montevideo &#8211; II. hluti (b)"},"content":{"rendered":"<p><!--StartFragment--><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\"><em>Seinni hluti umfj\u00f6llunar um b\u00f3k Hyper Jawads um HM \u00ed Uruguay 1930:<\/em><\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">Keppnisli\u00f0in \u00ed Uruguay voru \u00ferett\u00e1n. A\u00f0eins tv\u00f6 \u00feeirra \u00e1ttu nokkra m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 hampa N\u00edke-styttunni: Uruguay og Argent\u00edna. \u00deri\u00f0ja besta li\u00f0i\u00f0 reyndust vera Bandar\u00edkjamenn. Li\u00f0 \u00feeirra var geysilega vins\u00e6lt hj\u00e1 heimam\u00f6nnum (enda Bandar\u00edkjamenn almennt mikils metnir \u00e1 \u00feessum t\u00edma). Bandar\u00edska li\u00f0i\u00f0 var skipa\u00f0 st\u00f3rum og st\u00e6\u00f0ilegum m\u00f6nnum, sem g\u00e1fu af s\u00e9r g\u00f3\u00f0an \u00feokka.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\u00dea\u00f0 er \u00fatbreiddur misskilningur a\u00f0 Bandar\u00edkjamenn hafi teflt fram samt\u00edningsli\u00f0i, einkum breskra innflytjenda, me\u00f0 s\u00e1ral\u00edtil tengsl vi\u00f0 hi\u00f0 n\u00fdja f\u00f6\u00f0urland. Hi\u00f0 r\u00e9tta er a\u00f0 bandar\u00edsk knattspyrna var \u00e1 g\u00f3\u00f0u r\u00f3li \u00e1 \u00feessum \u00e1rum og haf\u00f0i yfir a\u00f0 b\u00faa \u00e1g\u00e6tum f\u00e9lagsli\u00f0um. Landsli\u00f0i\u00f0 var hins vegar l\u00edtt samh\u00e6ft og haf\u00f0i ekki keppt opinberan landsleik \u00ed tv\u00f6 \u00e1r.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">HM 1930 var haldin undir lok \u00feess t\u00edma \u00feegar 2-3-5 var r\u00e1\u00f0andi leikkerfi. Bandar\u00edkjamennirnir l\u00e9ku hins vegar eitthva\u00f0 sem frekar m\u00e1tti l\u00fdsa sem 7-0-3, margir leikmenn v\u00f6r\u00f0ust mj\u00f6g dj\u00fapt \u2013 en svo var s\u00f3tt hratt fram \u00e1 m\u00f6rgum m\u00f6nnum \u00feegar boltinn vannst. \u00deetta leikkerfi var tali\u00f0 mj\u00f6g frumst\u00e6tt, n\u00e1nast barnalegt, en kanarnir komust upp me\u00f0 \u00fea\u00f0 vegna l\u00edkamlegs styrks.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">Besta v\u00edsbendingin um styrk bandar\u00edska li\u00f0sins var st\u00f3rsigur \u00feeirra \u00e1 Paraguay \u00ed ri\u00f0lakeppninni, 3:0. Paraguay var tali\u00f0 \u00feri\u00f0ja sterkasta Su\u00f0ur-Amer\u00edkuli\u00f0i\u00f0 og ger\u00f0i s\u00e9r vonir um gott gengi \u00e1 m\u00f3tinu. Jawad heldur \u00fev\u00ed fram a\u00f0 Bandar\u00edkin og Paraguay hafi b\u00e6\u00f0i veri\u00f0 sett \u00ed 1.styrkleikaflokk \u2013 en Brian Glanville talar bara um Paraguay \u00ed \u00feessu samhengi.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">Brasil\u00eda var fimmta li\u00f0i\u00f0 \u00ed efsta styrkleikaflokki (e\u00f0a fj\u00f3r\u00f0a eftir \u00fev\u00ed hvorum vi\u00f0 kj\u00f3sum a\u00f0 tr\u00faa). Enn var \u00fe\u00f3 langur vegur \u00ed a\u00f0 Brasil\u00edumenn n\u00e6\u00f0u \u00feeim styrk sem flestir tengja \u00fe\u00e1 vi\u00f0. Brasil\u00edska landsli\u00f0i\u00f0 var einungis skipa\u00f0 leikm\u00f6nnum fr\u00e1 Rio de Laneiro. Brasil\u00eda haf\u00f0i ekki leiki\u00f0 opinberan landsleik \u00ed fimm \u00e1r og \u00fej\u00e1lfarinn hitti li\u00f0i\u00f0 varla nema r\u00e9tt fyrir m\u00f3t. \u00der\u00e1tt fyrir \u00feetta skipulagsleysi var b\u00faist vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Brasil\u00edumenn f\u00e6ru h\u00e6glega \u00e1fram \u00ed undan\u00farslitin.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">J\u00fag\u00f3slav\u00eda (sem var \u00ed raun bara \u00farvalsli\u00f0 Serba) sl\u00f6kkti vonur Brasil\u00edumanna, sem voru fallnir \u00far keppni \u00e1\u00f0ur en setningarath\u00f6fnin f\u00f3r fram. J\u00fag\u00f3slavneska li\u00f0i\u00f0 var kornungt, me\u00f0 flesta leikmenn r\u00e9tt um tv\u00edtugt. \u00d3tvr\u00edr\u00e6tt er a\u00f0 heima \u00ed Evr\u00f3pu s\u00e1tu miklu sterkari landsli\u00f0.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\n<p class=\"MsoNormal\">Heimamenn \u00ed Uruguay voru \u00f3tv\u00edr\u00e6tt sigurstranglegastir. R\u00e9tttr\u00fana\u00f0armenn \u00ed fr\u00e6\u00f0unum vilja meina a\u00f0 Uruguay hafi fj\u00f3rum sinnum or\u00f0i\u00f0 heimsmeistari \u2013 \u00fear sem 1924 og 1928 \u00b4\u00d6L-leikarnir hafi haft formlega vi\u00f0urkenningu FIFA sem heimsmeistaram\u00f3t. Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur, \u00fe\u00e1 var liti\u00f0 svo \u00e1 a\u00f0 Uruguay m\u00e6tti til leiks sem r\u00edkjandi meistarar. Li\u00f0i\u00f0 var l\u00edti\u00f0 breytt fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1 \u00d3L 1928 \u2013 sem var kannski helsta vandam\u00e1li\u00f0: aldurinn var farinn a\u00f0 f\u00e6rast yfir marga leikmenn.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">Gengi Argent\u00ednu \u2013 segir Jawad \u2013 st\u00f3\u00f0 og fell me\u00f0 einum manni: Luisito Monti. Monti var fr\u00e6gasti en umdeildasti leikma\u00f0ur Su\u00f0ur-Amer\u00edku. Hann var gr\u00ed\u00f0arlega har\u00f0sn\u00fainn afturliggjandi mi\u00f0juma\u00f0ur sem t\u00f3k \u00fe\u00f3 oft fullan \u00fe\u00e1tt \u00ed s\u00f3kninni. \u00deegar Monti n\u00e1\u00f0i s\u00e9r \u00e1 strik, l\u00e1gu andst\u00e6\u00f0ingarnir eins og hr\u00e1vi\u00f0i \u2013 og \u00fea\u00f0 gat reynst d\u00fdrm\u00e6tt \u00e1 t\u00edmum \u00fear sem banna\u00f0 var a\u00f0 skipta inn\u00e1 varam\u00f6nnum.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\u00cd hugum n\u00fat\u00edmaf\u00f3tbolta\u00e1hugamannsins er \u00feessi regla n\u00e1nast \u00f3skiljanleg. Li\u00f0 voru beinl\u00ednis ver\u00f0launu\u00f0 fyrir gr\u00f3fan leik. \u00cd leikjunum \u00e1tj\u00e1n \u00e1 HM 1930 f\u00f3tbrotnu\u00f0u \u00fer\u00edr \u2013 sem er mj\u00f6g h\u00e1tt hlutfall. \u00dear til vi\u00f0b\u00f3tar \u00feurftu allnokkrir leikmenn a\u00f0 yfirgefa v\u00f6llinn vegna mei\u00f0sla e\u00f0a spila meiddir \u2013 stundum heilu og h\u00e1lfu leikina.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">Luisito Monti lag\u00f0i sitt af m\u00f6rkum vi\u00f0 \u00feessar limlestingar. Sigur Argent\u00ednumanna \u00e1 Fr\u00f6kkum \u00ed ri\u00f0lakeppninni, sem fyrirfram var tali\u00f0 formsatri\u00f0i, sk\u00fdr\u00f0ist fyrst og fremst af lj\u00f3tum brotum Su\u00f0ur-Amer\u00edkumannanna og herfilegum d\u00f3maramist\u00f6kum. \u00c1 sama h\u00e1tt \u00e1tti bandar\u00edska li\u00f0i\u00f0 \u00ed fullu tr\u00e9 vi\u00f0 Argent\u00ednu \u00ed undan\u00farslitunum \u00e1 me\u00f0an b\u00e6\u00f0i li\u00f0 voru fullskipu\u00f0.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\u00deegar kom a\u00f0 \u00farslitaleiknum var Monti hins vegar ekki nema skugginn af sj\u00e1lfum s\u00e9r. Hann haf\u00f0i fengi\u00f0 \u00edtreka\u00f0ar mor\u00f0h\u00f3tanir fyrir leikinn, sem beindust b\u00e6\u00f0i a\u00f0 honum og m\u00f3\u00f0ur hans. Vi\u00f0 \u00fea\u00f0 b\u00e6ttist a\u00f0 argent\u00ednski \u00fej\u00e1lfarinn ve\u00f0ja\u00f0i \u00e1 tvo t\u00e6pa menn \u00ed leikinum. S\u00fa tilraun misheppna\u00f0ist.<\/p>\n<p class=\"MsoNormal\">\n<p class=\"MsoNormal\">\u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 \u00f3\u00fearfi a\u00f0 gera l\u00edti\u00f0 \u00far afreki Uruguay-manna, sem voru kl\u00e1rlega besta li\u00f0i\u00f0. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur voru vonbrig\u00f0i heimamanna me\u00f0 a\u00f0 megnai\u00f0 af Evr\u00f3puli\u00f0unum hef\u00f0u neita\u00f0 a\u00f0 koma slik a\u00f0 landi\u00f0 neita\u00f0i a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed HM 1934 og 1938. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 mj\u00f6g fr\u00f3\u00f0legt a\u00f0 sj\u00e1 hva\u00f0a \u00e1rangri meistararnir hef\u00f0u n\u00e1\u00f0 \u00fear.<\/p>\n<p><!--EndFragment--><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Seinni hluti umfj\u00f6llunar um b\u00f3k Hyper Jawads um HM \u00ed Uruguay 1930: Keppnisli\u00f0in \u00ed Uruguay voru \u00ferett\u00e1n. A\u00f0eins tv\u00f6 \u00feeirra \u00e1ttu nokkra m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 hampa N\u00edke-styttunni: Uruguay og Argent\u00edna. \u00deri\u00f0ja besta li\u00f0i\u00f0 reyndust vera Bandar\u00edkjamenn. Li\u00f0 \u00feeirra var geysilega vins\u00e6lt hj\u00e1 heimam\u00f6nnum (enda Bandar\u00edkjamenn almennt mikils metnir \u00e1 \u00feessum t\u00edma). Bandar\u00edska li\u00f0i\u00f0 var skipa\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2010\/09\/12\/manu%c3%b0ur-i-montevideo-ii-hluti-b\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">M\u00e1nu\u00f0ur \u00ed Montevideo &#8211; II. hluti (b)<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-3975","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3975","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3975"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3975\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3975"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3975"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3975"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}