{"id":405,"date":"2003-09-10T16:08:48","date_gmt":"2003-09-10T16:08:48","guid":{"rendered":"http:\/\/192.168.1.4\/stefan\/2003\/09\/10\/6-strik-seinni-hluti-%c2%96-italskur-sjarmor-og-alvoru-bio\/"},"modified":"2003-09-10T16:08:48","modified_gmt":"2003-09-10T16:08:48","slug":"6-strik-seinni-hluti-%c2%96-italskur-sjarmor-og-alvoru-bio","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2003\/09\/10\/6-strik-seinni-hluti-%c2%96-italskur-sjarmor-og-alvoru-bio\/","title":{"rendered":"6. strik (seinni hluti) ? \u00cdtalskur sjarm\u00f6r og alv\u00f6ru b\u00ed\u00f3"},"content":{"rendered":"<p>(Framhald fr\u00e1 s\u00ed\u00ad\u00f0ustu f\u00e6rslu)<br \/>\nSteinunn og Stef\u00e1n sleppa naumlega inn \u00e1 einn af betri sm\u00f6rrebr\u00f6d-st\u00f6\u00f0um borgarinnar \u00e1\u00f0ur en h\u00e6tt er a\u00f0 afgrei\u00f0a frokost. Engin ver\u00f0laun \u00ed\u00ad bo\u00f0i fyrir a\u00f0 giska \u00e1 hva\u00f0 Steinunn velur s\u00e9r. &#8211; \u00deeir hlj\u00f3ta a\u00f0 blanda einhverju \u00e1vanabindandi \u00fat \u00ed\u00ad lifrark\u00e6funa&#8230; Stef\u00e1n \u00e9tur s\u00ed\u00adld sem veitingasta\u00f0urinn tekur s\u00e9rstaklega fram a\u00f0 s\u00e9 fr\u00e1 \u00cdslandi. Eflaust yr\u00f0u Danir hissa a\u00f0 heyra a\u00f0 \u00cdslendingar \u00e9ti einkum s\u00ed\u00adld fr\u00e1 Sv\u00ed\u00adum.<\/p>\n<p>\u00c1 Str\u00e6det, fyrir ne\u00f0an Striki\u00f0 eru margar kyndugar b\u00fa\u00f0ir, s.s. fornb\u00f3kaverslanir. Ein b\u00fa\u00f0in s\u00e9rh\u00e6fir sig \u00ed\u00ad Star Wars-k\u00f6rlum og Stef\u00e1n rambar \u00e1 barmi nostalg\u00ed\u00adukasts. \u00d3, hva\u00f0 \u00fearna er margt merkilegt a\u00f0 finna! Best a\u00f0 l\u00e6sa Visa-korti\u00f0 ni\u00f0ri, annars bi\u00f0i ekkert nema skuldafangelsi \u00e1 Kv\u00ed\u00adabryggju.<\/p>\n<p><i>Skr\u00ed\u00adp\u00f3<\/i><\/p>\n<p>\u00d6nnur verslun selur gamlar teiknimyndas\u00f6gur, s.s. f\u00e1g\u00e6t Andr\u00e9sbl\u00f6\u00f0, frum\u00fatg\u00e1fur af Tinna o.s.frv. \u00dearna m\u00e6tti h\u00e6glega brenna upp vi\u00f0b\u00f3tarl\u00ed\u00adfeyrissparna\u00f0inum ef hann v\u00e6ri handb\u00e6r. Stef\u00e1n \u00e1kve\u00f0ur \u00fe\u00f3 a\u00f0 leita bara \u00ed\u00ad \u00f3d\u00fdru deildinni og ey\u00f0a ekki nema hundra\u00f0kalli. \u00dea\u00f0 dugar fyrir fj\u00f3rum b\u00f3kum. Tveimur um Lukku L\u00e1ka (annars vegar b\u00f3kinni um Jesse James og hins vegar b\u00f3k um einhvern skottul\u00e6kni &#8211; hvorug komi\u00f0 \u00fat \u00e1 \u00ed\u00adslensku) og tveimur um Samma og Kobba. Ekki sl\u00e6mt og \u00e6tti a\u00f0 duga Steinunni sem lesefni \u00ed\u00ad v\u00e9linni heim og vel r\u00ed\u00adflega \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>Hvernig er best a\u00f0 drepa t\u00ed\u00admann \u00ed\u00ad mi\u00f0borg Kaupmannahafnar fram a\u00f0 kvikmyndas\u00fdningu, \u00e1n \u00feess a\u00f0 drekka of marga bj\u00f3ra ofan \u00ed\u00ad verkjalyfin? Ekki b\u00e6tir \u00far sk\u00e1k a\u00f0 gula \u00f3ge\u00f0i\u00f0 sk\u00ed\u00adn \u00e1 r\u00e9ttl\u00e1ta og rangl\u00e1ta. Stef\u00e1ni er heitt og kl\u00e6jar \u00feess utan \u00ed\u00ad kjammana, enda er hann aftur byrja\u00f0ur a\u00f0 koma s\u00e9r upp skegginu sem Kolbeinn Propp\u00e9 kallar &#8222;aparass&#8220;, auk barta eins og m\u00f3\u00f0ir besta bloggarans hatar.<\/p>\n<p><i>L\u00ed\u00adtill leik\u00fe\u00e1ttur<\/i><\/p>\n<p>Steinunn og Stef\u00e1n r\u00f6lta \u00e1 r\u00e1\u00f0h\u00fastorgi\u00f0 \u00fear sem \u00feau kynnast \u00ed\u00adtalska sjarm\u00f6rnum. Til a\u00f0 innihald \u00feessa fundar fari ekki fram hj\u00e1 neinum er r\u00e9tt a\u00f0 setja \u00fea\u00f0 upp sem leik\u00fe\u00e1tt:<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p><b>Svi\u00f0i\u00f0<\/b>: R\u00e1\u00f0h\u00fastorg Kaupmannahafnar \u00e1 sj\u00f3\u00f0heitum fimmtudagseftirmi\u00f0degi. H\u00f3pur Ind\u00ed\u00ad\u00e1na (e\u00f0a \u00ed\u00ad \u00fea\u00f0 minnsta leikara \u00ed\u00ad ind\u00ed\u00ad\u00e1nab\u00faningum) leikur listir s\u00ed\u00adnar \u00e1 mi\u00f0ju torginu vi\u00f0 g\u00f3\u00f0ar undirtektir japanskra t\u00farista sem telja sig heppna a\u00f0 ver\u00f0a vitni a\u00f0 tr\u00faarath\u00f6fnum danskra frumbyggja.<\/p>\n<p>Steinunn situr \u00e1 tr\u00f6ppunum fyrir framan r\u00e1\u00f0h\u00fasi\u00f0, Stef\u00e1n reynir a\u00f0 halda sig \u00ed\u00ad fors\u00e6lunni nokku\u00f0 fjarri. \u00ed\u008dtalskur sjarm\u00f6r s\u00e9r blond\u00ed\u00adnu eina s\u00ed\u00adns li\u00f0s og hugsar: &#8222;H\u00e9r ber vel \u00ed\u00ad vei\u00f0i&#8230;&#8220;<\/p>\n<p>(\u00c1 lauslegri \u00ed\u00adslenskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu)<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: Hva\u00f0a sta\u00f0i \u00e1 ma\u00f0ur a\u00f0 sko\u00f0a!<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: Uhh&#8230; Ha, sta\u00f0i?<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: J\u00e1, hva\u00f0a sta\u00f0i er best a\u00f0 sko\u00f0a. \u00c9g er fr\u00e1 \u00ed\u008dtal\u00ed\u00adu.<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: Ha, uhh&#8230; s\u00e6ll vertu.<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: \u00ed\u0081\u00f0ur en vi\u00f0 h\u00f6ldum lengra, \u00fe\u00e1 ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 benda \u00fe\u00e9r \u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00fa ert of h\u00e1v\u00e6r.<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: Ha, afsaka\u00f0u&#8230;<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: J\u00e1, \u00fe\u00fa talar of h\u00e1tt. Eins og Amer\u00ed\u00adkani. Amer\u00ed\u00adkanar tala og h\u00e1tt, \u00fea\u00f0 er ekki gott.<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: \u00d3, &#8211; uhh&#8230; \u00e9g er fr\u00e1 \u00cdsl&#8230;<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: J\u00e1, mun betra. Ekki tala svona h\u00e1tt. \u00c9g er sem sagt \u00ed\u008dtali. Hva\u00f0 er best a\u00f0 sko\u00f0a?<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: Tja, \u00fea\u00f0 er n\u00fa svo margt&#8230;<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: J\u00e1, nefndu eitthva\u00f0. Hva\u00f0 er best a\u00f0 sko\u00f0a?<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: \u00c9g er n\u00fa eiginlega bara t\u00faristi h\u00e9rna \u00feannig a\u00f0&#8230;<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: \u00dea\u00f0 er bara betra. Alltaf best a\u00f0 spyrja \u00fe\u00e1. Danir eru svo miklir plebbar.<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: \u00d6hh&#8230; \u00fea\u00f0 er gaman a\u00f0 fara \u00ed\u00ad Kristjan\u00ed\u00adu.<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: B\u00fainn a\u00f0 \u00fev\u00ed\u00ad. N\u00e6sta!<br \/>\n<b>Steinunn<\/b>: \u00d6hh&#8230; svo er listasafn fyrir utan b\u00e6inn&#8230;<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: Iss, listas\u00f6fn! Miklu betri listas\u00f6fn \u00e1 \u00ed\u008dtal\u00ed\u00adu. Af hverju f\u00f3rstu ekki \u00feanga\u00f0? Hvers vegna komstu hinga\u00f0?<br \/>\n(Stef\u00e1n tr\u00ed\u00adtlar til \u00feeirra, \u00e6tlar a\u00f0 blanda s\u00e9r \u00ed\u00ad samr\u00e6\u00f0urnar. \u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6rinn setur upp \u00e6gilega grettu.)<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: Hva\u00f0 segi\u00f0i, viti\u00f0 \u00fei\u00f0 sem sagt ekki um neitt sem h\u00e6gt er a\u00f0 sko\u00f0a h\u00e9rna?<br \/>\n<b>Steinunn &amp; Stef\u00e1n<\/b>: Uml, ha, h\u00f3st, tja &#8211; varla&#8230;<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: J\u00e6ja, gott og vel. (B\u00fdr sig undir a\u00f0 ganga brott, en sn\u00fdr s\u00e9r svo vi\u00f0.) \u00c1 \u00ed\u008dtal\u00ed\u00adu eru p\u00f6r samr\u00fdmdari.<br \/>\n<b>Steinunn &amp; Stef\u00e1n<\/b>: Ha?<br \/>\n<b>\u00ed\u008dtalski sjarm\u00f6r<\/b>: J\u00e1, \u00e1 \u00ed\u008dtal\u00ed\u00adu myndu menn ekki skilja k\u00e6rusturnar s\u00ed\u00adnar einar eftir \u00e1 v\u00ed\u00ad\u00f0avangi. \u00dear eru p\u00f6r hli\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0. \u00dea\u00f0 er betra \u00feannig. (Sendir Steinunni manndr\u00e1psaugnar\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 hafa s\u00f3a\u00f0 tveimur d\u00fdrm\u00e6tum m\u00ed\u00adn\u00fatum af l\u00ed\u00adfi hans. Fer \u00e1n \u00feess a\u00f0 kve\u00f0ja.)<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>Nokku\u00f0 undrandi \u00e1 h\u00e1ttalagi \u00ed\u008dtalans \u00e1kve\u00f0a Stef\u00e1n og Steinunn a\u00f0 tygja sig til b\u00ed\u00ad\u00f3farar. Dogville, n\u00fdjasta mynd Lars von Trier me\u00f0 Nicole Kidman \u00ed\u00ad a\u00f0alhlutverki ver\u00f0ur fyrir valinu. Myndin er m\u00f6gnu\u00f0. Svi\u00f0smyndin og myndatakan fr\u00e1b\u00e6r, leikurinn afbrag\u00f0 og plotti\u00f0 flott. Von Trier hefur greinilega s\u00e9\u00f0 sinn slatta af Bertold Brecht, en \u00fe\u00f3tt setja megi spurningamerki vi\u00f0 margt \u00ed\u00ad bo\u00f0skapnum eru \u00fearna verulega flokkar vangaveltur um \u00e1rekstranna milli hugsj\u00f3na annars vegar og \u00feess \u00feegar breyskleiki mannsins gengur \u00ed\u00ad berh\u00f6gg vi\u00f0 \u00fe\u00e6r hins vegar. Skyldu\u00e1horf!<\/p>\n<p><i>Amm\u00e6lisp\u00ed\u00adtsur<\/i><\/p>\n<p>Myndin er l\u00f6ng og klukkan or\u00f0in margt \u00feegar Steinunn og Stef\u00e1n yfirgefa b\u00ed\u00ad\u00f3i\u00f0. Steinunn \u00fearf a\u00f0 n\u00e1 heim \u00e1 h\u00f3tel og s\u00e6kja lyf \u00ed\u00ad \u00ed\u00adssk\u00e1pinn \u00ed\u00ad m\u00f3tt\u00f6kunni \u00e1\u00f0ur en klukkan ver\u00f0ur of margt, \u00feannig a\u00f0 ekki er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a a\u00f0 \u00e9ta \u00ed\u00ad mi\u00f0b\u00e6num. Lendingin ver\u00f0ur pizzasnei\u00f0 \u00ed\u00ad s\u00fapermarka\u00f0i. Stef\u00e1n fyllist nostalg\u00ed\u00adu \u00fev\u00ed\u00ad brag\u00f0i\u00f0 er eins og af heimab\u00f6ku\u00f0u &#8222;afm\u00e6lispizzunum&#8220; \u00ed\u00ad gamla daga sem voru me\u00f0 svampkenndan botn. Hvers vegna var hakk nota\u00f0 svona miki\u00f0 \u00e1 pizzur \u00e1\u00f0ur fyrr \u00e1n \u00feess a\u00f0 neinum \u00fe\u00e6tti \u00fea\u00f0 gott?<\/p>\n<p>Kv\u00f6ldinu sl\u00fatta\u00f0 \u00e1 \u00ed\u00adrska p\u00f6bbnum. Breska r\u00ed\u00adkisstj\u00f3rnin enn \u00ed\u00ad vondum m\u00e1lum. Danir enn a\u00f0 skrafa um prinsa og prinsessur &#8211; kannski haf\u00f0i s\u00e1 \u00ed\u00adtalski \u00e1 r\u00e9ttu a\u00f0 standa eftir allt saman? &#8211; Tjaldi\u00f0 fellur, 6. og n\u00e6sts\u00ed\u00ad\u00f0asta \u00fe\u00e6tti l\u00fdkur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>(Framhald fr\u00e1 s\u00ed\u00ad\u00f0ustu f\u00e6rslu) Steinunn og Stef\u00e1n sleppa naumlega inn \u00e1 einn af betri sm\u00f6rrebr\u00f6d-st\u00f6\u00f0um borgarinnar \u00e1\u00f0ur en h\u00e6tt er a\u00f0 afgrei\u00f0a frokost. Engin ver\u00f0laun \u00ed\u00ad bo\u00f0i fyrir a\u00f0 giska \u00e1 hva\u00f0 Steinunn velur s\u00e9r. &#8211; \u00deeir hlj\u00f3ta a\u00f0 blanda einhverju \u00e1vanabindandi \u00fat \u00ed\u00ad lifrark\u00e6funa&#8230; Stef\u00e1n \u00e9tur s\u00ed\u00adld sem veitingasta\u00f0urinn tekur s\u00e9rstaklega fram a\u00f0 s\u00e9 &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2003\/09\/10\/6-strik-seinni-hluti-%c2%96-italskur-sjarmor-og-alvoru-bio\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">6. strik (seinni hluti) ? \u00cdtalskur sjarm\u00f6r og alv\u00f6ru b\u00ed\u00f3<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-405","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/405","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=405"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/405\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=405"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=405"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=405"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}