{"id":4343,"date":"2014-03-12T00:35:40","date_gmt":"2014-03-12T00:35:40","guid":{"rendered":"http:\/\/truflun.net\/stefan\/?p=4343"},"modified":"2014-03-12T00:35:40","modified_gmt":"2014-03-12T00:35:40","slug":"varaskeifan-fotboltasaga-min-32100","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/03\/12\/varaskeifan-fotboltasaga-min-32100\/","title":{"rendered":"Varaskeifan: F\u00f3tboltasaga m\u00edn 32\/100"},"content":{"rendered":"<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00a0<\/span><strong>16. j\u00fal\u00ed 2009. Sigma Olomouc 1 : Fram 1<\/strong><\/p>\n<p><strong><\/strong>\u00c9g man ekkert hva\u00f0a li\u00f0i \u00e9g h\u00e9lt me\u00f0 \u00ed T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu sem pjakkur. \u00dea\u00f0 g\u00e6ti \u00fe\u00f3 hafa veri\u00f0 Sparta Prag. \u00deegar kom a\u00f0 Vestur-Evr\u00f3pu h\u00e9lt \u00e9g sjaldnast me\u00f0 bestu li\u00f0unum ef fr\u00e1 var tali\u00f0 PSV \u00ed Hollandi. \u00cd Austur-Evr\u00f3pu n\u00e1\u00f0u toppli\u00f0in frekar inn \u00e1 radarinn. \u00c9g h\u00e9lt a\u00f0 minnsta kosti ekki me\u00f0 Sigma Olomouc.<\/p>\n<p>Sigma Olomouc var eitt af \u00feessum \u00f3tal lei\u00f0inlegu Austur-Evr\u00f3puli\u00f0um sem \u00feeir sem l\u00fasl\u00e1su \u00farslitin \u00ed Evr\u00f3pukeppnunum \u00feekktu. \u00deetta var li\u00f0 n\u00famer 3-6 \u00ed T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu, af \u00feeirri ger\u00f0inni sem gjaldkerar \u00edslenskra li\u00f0a \u00f3ttu\u00f0ust mest a\u00f0 dragast gegn \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum. \u00c1 \u00feeim \u00e1rum \u00fe\u00fdddi \u00fe\u00e1tttaka \u00ed Evr\u00f3pukeppni nefnilega ekki sj\u00e1lfkrafa millj\u00f3nir \u00ed kassann. Tekjurnar skilu\u00f0u s\u00e9r bara ef fer\u00f0alagi\u00f0 v\u00e6ri n\u00f3gu stutt e\u00f0a andst\u00e6\u00f0ingarnir dr\u00e6gju \u00e1horfendur \u00e1 v\u00f6llinn. Sterk li\u00f0 fr\u00e1 austurblokkinni voru \u00e1v\u00edsun \u00e1 fer\u00f0akostna\u00f0, tapleiki og f\u00e1a \u00e1horfendur.<\/p>\n<p>2009 voru \u00f6nnur sj\u00f3narmi\u00f0 uppi. \u00deegar Fram komst \u00ed Evr\u00f3pudeildina hausti\u00f0 2008 g\u00e1tu menn strax fari\u00f0 a\u00f0 ey\u00f0a hagna\u00f0inum \u00ed huganum. \u00cd fyrstu umfer\u00f0 fengju Framarar v\u00e6nan skilding \u00ed vasann og li\u00f0 \u00far Nor\u00f0vestur-Evr\u00f3pu, sem g\u00f3\u00f0ir m\u00f6guleikar v\u00e6ru \u00e1 a\u00f0 vinna. Sigur \u00fe\u00fdddi svo enn\u00fe\u00e1 meira f\u00e9 og draumar um frekari sigra.<\/p>\n<p>\u00cd fyrstu umfer\u00f0 dr\u00f3st Fram gegn The New Saints fr\u00e1 Wales. L\u00e1ti\u00f0 sakleysislegt nafni\u00f0 ekki blekkja ykkur. Li\u00f0i\u00f0 h\u00e9t einhverju \u00f3skiljanlegu kymr\u00edsku nafni, uns fyrirt\u00e6ki\u00f0 Total Networks Solutions keypti sj\u00e1lft nafni\u00f0 \u00ed styrktarsamningi. \u00deegar UEFA reyndi a\u00f0 skerast \u00ed leikinn var nafninu breytt \u00ed The New Saints \u2013 til a\u00f0 skammst\u00f6funin h\u00e9ldist: TNS.<\/p>\n<p>Fram l\u00e9k ekki vel \u00ed fyrri leiknum gegn TNS \u00ed Laugardalnum og vann bara 2:1. Sj\u00e1lfur minnist \u00e9g leiksins einkum fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 var brakandi bl\u00ed\u00f0a og \u00e9g m\u00e6tti l\u00e9ttkl\u00e6ddur \u00e1 v\u00f6llinn \u2013 n\u00e1nar tilteki\u00f0 \u00ed gr\u00e6num og hv\u00edtum \u00feverr\u00f6nd\u00f3ttum p\u00f3l\u00f3bol. \u00dea\u00f0 var ekki fyrr en \u00e9g settist \u00ed st\u00fakunni a\u00f0 \u00e9g mundi a\u00f0 gestirnir spilu\u00f0u einmitt \u00ed Celtic-b\u00faningunum. Rats!<\/p>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir r\u00fdrt veganesti f\u00f3ru Framarar \u00e1fram. Unnu 1:2 \u00ed Wales og vi\u00f0 t\u00f3ku leikir gegn Sigma Olomouc.<\/p>\n<p>Fyrirfram hlj\u00f3ma\u00f0i \u00feokkalegt t\u00e9kkneskt li\u00f0 eins og \u00f3sigrandi andst\u00e6\u00f0ingur, einkum \u00fear sem Framli\u00f0i\u00f0 var r\u00e9tt fyrir ne\u00f0an mi\u00f0ja deild. En fyrri leikurinn var \u00fe\u00f3 \u00e1 \u00fativelli og \u00fea\u00f0 \u00feykir alltaf g\u00f3\u00f0s viti \u00ed \u00feessari keppni.<\/p>\n<p>Vi\u00f0ureignin var s\u00fdnd \u00e1 t\u00e9kkneskri sj\u00f3nvarpsst\u00f6\u00f0. Svo sem ekki \u00f3v\u00e6nt. \u00c1 meginlandinu eru menn f\u00f3tbolta\u00feyrstir \u00ed j\u00fal\u00edm\u00e1nu\u00f0i svo ekki \u00fearf miki\u00f0 til a\u00f0 leikir rati \u00ed beina \u00fatsendingu. Einhver Framararinn gr\u00f3f upp straum \u00e1 \u00fatsendinguna og deildi \u00e1 spjallbor\u00f0inu. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 l\u00e1gu svo tugir Framara um land allt yfir h\u00f6kt\u00f3ttri \u00fatsendingu fr\u00e1 Olomouc, sem smkv. Wikipediu er vinaborg Fl\u00f3rens. Fl\u00f3rens vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 heldur hafa dregi\u00f0 stutta str\u00e1i\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed sambandi.<\/p>\n<p>\u00cd gegnum skrykkj\u00f3tta \u00fatsendinguna m\u00e1tti auglj\u00f3slega sj\u00e1 a\u00f0 leikmenn Sigma voru flinkari, st\u00e6rri og sterkari. \u00deeir voru hins vegar ekki \u00ed fullri leik\u00e6fingu (enda h\u00e1sumar) og \u00ed \u00fev\u00ed var vonin f\u00f3lgin. Markmi\u00f0 Framara var a\u00f0 pakka \u00ed v\u00f6rn en \u00fear kom upp auglj\u00f3st vandam\u00e1l: bur\u00f0ar\u00e1s Framvarnarinnar \u00feetta sumari\u00f0 var Au\u00f0un Helgason sem l\u00e1 aftastur og st\u00fdr\u00f0i hinum mi\u00f0ver\u00f0inum, Kristj\u00e1ni Haukssyni.<\/p>\n<p>Au\u00f0un haf\u00f0i hins vegar n\u00e6lt s\u00e9r \u00ed \u00feriggja leikja bann \u00ed Evr\u00f3pukeppni fyrir einhver apakattal\u00e6ti me\u00f0 FH nokkrum misserum fyrr og var\u00f0 \u00fev\u00ed fyrst l\u00f6glegur \u00ed heimaleiknum. \u00cd hans sta\u00f0 kom J\u00f3n Gu\u00f0ni Fj\u00f3luson, frekar luralegur str\u00e1kur fr\u00e1 Su\u00f0urlandi sem leiki\u00f0 haf\u00f0i f\u00e1eina leiki \u00e1ri\u00f0 \u00e1\u00f0ur \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera s\u00e9rstaklega minnisst\u00e6\u00f0ur. \u00dea\u00f0 sem af var sumri haf\u00f0i J\u00f3n Gu\u00f0ni byrja\u00f0 \u00ed \u00feri\u00f0jungi leikjanna en annars veri\u00f0 \u00e1 bekknum e\u00f0a komi\u00f0 inn\u00e1 \u00feegar fari\u00f0 var a\u00f0 draga af eldri m\u00f6nnunum.<\/p>\n<p>\u00c9g held a\u00f0 engum Framara hafi sta\u00f0i\u00f0 \u00e1 sama me\u00f0 a\u00f0 J\u00f3n Gu\u00f0ni \u00feyrfti a\u00f0 vera \u00ed byrjunarli\u00f0inu \u00e1 erfi\u00f0um \u00fativelli. \u00de\u00e6r \u00e1hyggjur reyndust \u00fe\u00f3 \u00f3\u00fearfar. Framararnir p\u00f6kku\u00f0u \u00ed v\u00f6rn fr\u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu. Li\u00f0i\u00f0 var gr\u00ed\u00f0arlega aga\u00f0 og \u00deorvaldur \u00d6rlygsson vissi n\u00e1kv\u00e6mlega hvernig leika skyldi. Boltanum var neglt fram \u00ed s\u00edfellu og \u00fe\u00e1 sjaldan sem hornspyrnur e\u00f0a aukaspyrnur g\u00e1fust \u00e1 vallarhelmingi andst\u00e6\u00f0inganna \u00a0voru st\u00f3ru mennirnir sendir fram. Og \u00fea\u00f0 var einmitt eftir sl\u00edka hornspyrnu \u00e1 22. m\u00edn\u00fatu a\u00f0 J\u00f3n Gu\u00f0ni skalla\u00f0i \u00ed neti\u00f0.<\/p>\n<p>A\u00f0 svo miklu leyti sem h\u00e6gt er a\u00f0 \u00e6rast fyrir framan t\u00f6lvuskj\u00e1 og h\u00f6ktandi vef\u00fatsendingu, einn \u00e1 skrifstofunni sinni \u00e1 mi\u00f0jum vinnudegi, gekk \u00e9g af g\u00f6flunum. Vi\u00f0 t\u00f3k langur og taugatrekkjandi t\u00edmi\u2026<\/p>\n<p>Allt Framli\u00f0i\u00f0 dr\u00f3 sig \u00ed v\u00f6rn og T\u00e9kkarnir d\u00e6ldu \u00ed s\u00edfellu boltum inn \u00ed teiginn. Stj\u00e1ni Hauks og J\u00f3n Gu\u00f0ni sk\u00f6llu\u00f0u allt fr\u00e1 marki og Tillen og Halld\u00f3r Hermann t\u00e6klu\u00f0u hvern \u00feann andst\u00e6\u00f0ing sem h\u00e6tti s\u00e9r of n\u00e6rri v\u00edtateignum. Hannes var\u00f0i nokkrum sinnum fr\u00e1b\u00e6rlega og t\u00edminn lei\u00f0. \u00c1 lokam\u00edn\u00fatunni t\u00f3kst T\u00e9kkunum a\u00f0 jafna og einhvern veginn vissi ma\u00f0ur \u00fe\u00e1 a\u00f0 draumurinn v\u00e6ri \u00fati.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt T\u00e9kkarnir v\u00e6ru betra f\u00f3tboltali\u00f0, hef\u00f0i \u00e9g treyst Fr\u00f6murum til a\u00f0 verja 1:0 forystu \u00e1 Laugardalsvelli. 1:1 var einhvern veginn miklu veikara. \u00dea\u00f0 kom l\u00edka \u00e1 daginn. Eftir markalausan fyrri h\u00e1lfleik skoru\u00f0u T\u00e9kkarnir tv\u00edvegis eftir hl\u00e9. \u00de\u00e1 var \u00e9g staddur austur \u00e1 Neskaupsta\u00f0 og \u00feurfti a\u00f0 s\u00e6tta mig vi\u00f0 a\u00f0 lesa textal\u00fdsingar \u00e1 MBL og f\u00e1 SMS fr\u00e1 vinum \u00e1 vellinum. \u00dea\u00f0 var eitthva\u00f0 rangt vi\u00f0 a\u00f0 geta ekki horft \u00e1 Framarana \u00e1 heimavelli, eftir a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 \u00fatileikinn \u00ed fokk\u00edng Olomouc\u2026<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 kaldh\u00e6\u00f0nislega vi\u00f0 einv\u00edgi\u00f0 var \u00fe\u00f3 a\u00f0 b\u00fai\u00f0 var a\u00f0 draga \u00ed n\u00e6stu umfer\u00f0 og sigurvegararnir myndu m\u00e6ta Aberdeen fr\u00e1 Skotlandi. \u00dear me\u00f0 var til mikils a\u00f0 vinna \u00fev\u00ed Aberdeen er j\u00fa breskt f\u00f3tboltali\u00f0 og sl\u00edk vi\u00f0ureign hef\u00f0i tryggt b\u00e6\u00f0i \u00e1horfendafj\u00f6lda og sj\u00f3nvarpsfr\u00e6g\u00f0! A\u00f0 lokum f\u00f3r \u00fea\u00f0 samt svo a\u00f0 Sigma Olomouc skellti Aberdeen 8:1 samanlagt og trygg\u00f0i s\u00e9r leik gegn Everton \u00ed n\u00e6stu umfer\u00f0. \u00d3\u00f0inn m\u00e1 vita hvernig vi\u00f0ureign Fram og Aberdeen hef\u00f0i fari\u00f0.<\/p>\n<p>En anna\u00f0 breyttist eftir leikinn \u00ed Olomouc: J\u00f3n Gu\u00f0ni Fj\u00f3luson var\u00f0 n\u00fdr leikma\u00f0ur. Allt \u00ed einu f\u00f3r \u00feessi st\u00f3ri, en stundum d\u00e1l\u00edti\u00f0 klunnalegi unglingur, a\u00f0 f\u00e6ra sig upp \u00e1 stafti\u00f0. \u00deegar Fram f\u00e9kk horn tr\u00edtla\u00f0i hann ekki lengur fram \u00e1 vi\u00f0 af skyldur\u00e6kni eins og h\u00e1vaxinna varnarmanna er si\u00f0ur, heldur st\u00edmdi hann inn \u00ed markteiginn eins og \u00e1kafur framherji, sl\u00f3st og hrinti \u2013 og reyndi a\u00f0 skora.<\/p>\n<p>Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar f\u00f3r J\u00f3n Gu\u00f0ni, uppfullur af sj\u00e1lfstrausti, a\u00f0 spreyta sig \u00e1 aukaspyrnum l\u00edka \u2013 \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 b\u00e6\u00f0i Paul McShane og Hj\u00e1lmar \u00de\u00f3rarinsson v\u00e6ru fyrirfram l\u00edklegri kand\u00eddatar \u00ed \u00fe\u00e1 i\u00f0ju. Og \u00ed hvert sinn sem J\u00f3n Gu\u00f0ni stillti boltanum upp fyrir framan teiginn ur\u00f0u stu\u00f0ningsmennirnir spenntir, \u00fev\u00ed allir vissu a\u00f0 hann myndi ALDREI senda til hli\u00f0ar e\u00f0a vippa inn \u00ed teiginn, heldur yr\u00f0i ALLTAF neglt \u00e1 marki\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feeim fj\u00f3rt\u00e1n leikjum sem J\u00f3n Gu\u00f0ni kom vi\u00f0 s\u00f6gu eftir fyrri vi\u00f0ureignina gegn Olomouc sumari\u00f0 2009, skora\u00f0i hann sex m\u00f6rk, sem er f\u00e1r\u00e1nlega gott hj\u00e1 mi\u00f0ver\u00f0i. \u00dea\u00f0 dug\u00f0i og vel r\u00famlega \u00fea\u00f0 til a\u00f0 br\u00e6\u00f0a hj\u00f6rtu allra stu\u00f0ningsmannanna. Str\u00e1kurinn fr\u00e1 \u00deorl\u00e1ksh\u00f6fn er hiklaust einn af upp\u00e1haldsleikm\u00f6nnum m\u00ednum hj\u00e1 Fram \u00e1 21. \u00f6ldinni.<\/p>\n<p><em>(Mark Sigma Olomouc: Daniel Rossi. Mark Fram: J\u00f3n Gu\u00f0ni Fj\u00f3luson)<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00a016. j\u00fal\u00ed 2009. Sigma Olomouc 1 : Fram 1 \u00c9g man ekkert hva\u00f0a li\u00f0i \u00e9g h\u00e9lt me\u00f0 \u00ed T\u00e9kk\u00f3sl\u00f3vak\u00edu sem pjakkur. \u00dea\u00f0 g\u00e6ti \u00fe\u00f3 hafa veri\u00f0 Sparta Prag. \u00deegar kom a\u00f0 Vestur-Evr\u00f3pu h\u00e9lt \u00e9g sjaldnast me\u00f0 bestu li\u00f0unum ef fr\u00e1 var tali\u00f0 PSV \u00ed Hollandi. \u00cd Austur-Evr\u00f3pu n\u00e1\u00f0u toppli\u00f0in frekar inn \u00e1 radarinn. \u00c9g h\u00e9lt &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/03\/12\/varaskeifan-fotboltasaga-min-32100\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Varaskeifan: F\u00f3tboltasaga m\u00edn 32\/100<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-4343","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4343","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4343"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4343\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4343"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4343"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4343"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}