{"id":4380,"date":"2014-04-08T10:16:20","date_gmt":"2014-04-08T10:16:20","guid":{"rendered":"http:\/\/truflun.net\/stefan\/?p=4380"},"modified":"2014-04-08T10:16:20","modified_gmt":"2014-04-08T10:16:20","slug":"olafur-fotboltasaga-min-45100","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/04\/08\/olafur-fotboltasaga-min-45100\/","title":{"rendered":"\u00d3lafur: F\u00f3tboltasaga m\u00edn 45\/100"},"content":{"rendered":"<p><strong><span style=\"line-height: 1.5em\">5. \u00e1g\u00fast 1987. Fram 6 : V\u00f6lsungur 0<\/span><\/strong><\/p>\n<p><strong><\/strong>Er til miki\u00f0 g\u00f6fugri starfst\u00e9tt en varamarkver\u00f0ir? J\u00faj\u00fa, einhver kynni a\u00f0 nefna barnal\u00e6kna og hj\u00fakrunarf\u00f3lk sem starfar \u00e1 str\u00ed\u00f0shrj\u00e1\u00f0um sv\u00e6\u00f0um: en \u00feau f\u00e1 \u00fe\u00f3 a.m.k. a\u00f0 hafa eitthva\u00f0 fyrir stafni. Varamarkv\u00f6r\u00f0urinn m\u00e6tir \u00e1 allar \u00e6fingar, kl\u00e6\u00f0ir sig upp fyrir leikinn og situr svo bara og b\u00ed\u00f0ur. Hann er til taks ef a\u00f0almarkv\u00f6r\u00f0urinn mei\u00f0ist, en annars hefur hann engu hlutverki a\u00f0 gegna. Hinir varamennirnir geta \u00a0reikna\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 vera settir inn\u00e1 ef breyta \u00fearf leikskipulaginu en \u00fe\u00f3tt leikurinn s\u00e9 l\u00f6ngu unninn setur enginn varamarkmanninn inn\u00e1 \u00ed einhverju flippi.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er svo sem h\u00e6gt a\u00f0 botna \u00ed varamarkv\u00f6r\u00f0um sem eru ungir a\u00f0 \u00e1rum \u2013 hyggjast l\u00e6ra vi\u00f0 f\u00f3tsk\u00f6r a\u00f0almarkvar\u00f0arins og f\u00e1 sinn s\u00e9ns s\u00ed\u00f0ar. En hva\u00f0 \u00feegar varamarkver\u00f0irnir eru eldri og auglj\u00f3slega lakari en s\u00e1 n\u00famer eitt? Hver er \u00fe\u00e1 drifkrafturinn?<\/p>\n<p>\u00d3lafur K. \u00d3lafs var sl\u00edkur ma\u00f0ur. Hann \u00e1tti a\u00f0 baki heilt t\u00edmabil me\u00f0 \u00der\u00f3tti \u00ed efstu deild, en gekk til li\u00f0s vi\u00f0 Fram fyrir sumari\u00f0 1987. \u00dear sat hann \u00e1 bekknum hj\u00e1 Fri\u00f0riki Fri\u00f0rikssyni og s\u00ed\u00f0ar Birki Kristinssyni og kom aldrei vi\u00f0 s\u00f6gu. Utan einu sinni.<\/p>\n<p>V\u00f6lsungar m\u00e6ttu \u00ed heims\u00f3kn \u00ed Laugardalinn \u00feann fimmta \u00e1g\u00fast og l\u00e9ku fresta\u00f0an leik. Framararnir h\u00f6f\u00f0u ekki n\u00e1\u00f0 n\u00e6gilega vel a\u00f0 fylgja eftir \u00cdslandsmeistaratitlinum fr\u00e1 \u00e1rinu \u00e1\u00f0ur. Voru \u00ed fimmta s\u00e6ti \u00feegar \u00fearna var komi\u00f0 s\u00f6gu. Me\u00f0 V\u00f6lsungsleiknum snerist hins vegar str\u00ed\u00f0sg\u00e6fan. Fram vann fimm sinnum og ger\u00f0i tv\u00f6 jafntefli \u00ed sj\u00f6 s\u00ed\u00f0ustu deildarleikjunum og hafna\u00f0i \u00ed \u00f6\u00f0ru s\u00e6ti. Leikurinn gegn V\u00f6lsungi vannst me\u00f0 mestum mun, 6:0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var reyndar \u00f6\u00f0rum fremur einum V\u00f6lsungnum a\u00f0 \u00feakka a\u00f0 sigurinn var\u00f0 svo sannf\u00e6randi. Eftir h\u00e1lft\u00edma leik f\u00e9kk Fram billega v\u00edtaspyrnu \u00feegar boltinn hr\u00f6kk \u00far greipum markvar\u00f0ar H\u00fasv\u00edkinga og \u00ed h\u00f6nd eins samherjans. L\u00ednuv\u00f6r\u00f0urinn gaf merki um v\u00edtaspyrnu vi\u00f0 litla hrifningu gestanna. Einn \u00feeirra reifst og skamma\u00f0ist uns hann f\u00e9kk gult spjald. Ekki h\u00e6tti hann \u00fe\u00e1 heldur h\u00e9lt \u00e1fram uns d\u00f3marinn lyfti rau\u00f0a spjaldinu.<\/p>\n<p>D\u00f3marinn \u00ed \u00feessari vi\u00f0ureign var Kjartan \u00d3lafsson, KR-ingur. Vi\u00f0 kynntumst miklu s\u00ed\u00f0ar \u00feegar Kjartan var\u00f0 samstarfsma\u00f0ur minn \u00e1 Minjasafni Orkuveitunnar. Hann sinnti \u00feeim st\u00f6rfum af mikilli kostg\u00e6fni, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 eiga vi\u00f0 erfi\u00f0 veikindi a\u00f0 str\u00ed\u00f0a. \u00c6tli \u00fea\u00f0 hafi li\u00f0i\u00f0 s\u00e1 dagur \u00e1 safninu \u00e1n \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 Kjartan h\u00f6fum skrafa\u00f0 eitthva\u00f0 um f\u00f3tbolta?<\/p>\n<p>P\u00e9tur Ormslev skora\u00f0i \u00far v\u00edtinu og setti svo anna\u00f0 undir lok h\u00e1lfleiksins. \u00de\u00e1 voru \u00farslitin r\u00e1\u00f0in og spurningin bara hversu st\u00f3r sigurinn yr\u00f0i. \u00a0Gummi Steins b\u00e6tti tveimur m\u00f6rkum vi\u00f0 og Ragnar Margeirsson skora\u00f0i 5:0 \u00feegar meira en h\u00e1lft\u00edmi var eftir. Gr\u00e6\u00f0gisgr\u00edsinn \u00e9g var farinn a\u00f0 sj\u00e1 fyrir m\u00e9r tveggja stafa t\u00f6lu, en V\u00f6lsungarnir reyndu a\u00f0 halda andlitinu og Framararnir stigu af bens\u00edngj\u00f6finni \u00feegar lei\u00f0 \u00e1.<\/p>\n<p>\u00cd einni af f\u00e1um s\u00f3knum hv\u00edtkl\u00e6ddra (\u00fev\u00ed blessunarlega fengu V\u00f6lsungar ekki a\u00f0 leika \u00ed gr\u00e6nu treyjunum s\u00ednum) var\u00f0 Fri\u00f0rik Fri\u00f0riksson fyrir hnjaski og \u00feurfti a\u00f0 yfirgefa leikv\u00f6llinn. \u00d3lafur K. \u00d3lafs setti \u00e1 sig hanskana og hj\u00f3p inn\u00e1. \u00deetta \u00fe\u00f3ttu m\u00e9r gr\u00ed\u00f0arlega merkileg t\u00ed\u00f0indi.<\/p>\n<p>\u00c9g vona\u00f0i heitt og innilega a\u00f0 \u00d3lafur myndi n\u00fa halda hreinu \u00ed s\u00ednum fyrsta og m\u00f6gulega eina leik. \u00dea\u00f0 hafa \u00fe\u00f3 varla li\u00f0i\u00f0 nema 1-2 m\u00edn\u00fatur uns tveir V\u00f6lsungar komust \u00ed skyndis\u00f3kn. \u00d3lafur var\u00f0i gl\u00e6silega fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum, en kn\u00f6tturinn barst til hins sem \u00feurfti bara a\u00f0 r\u00falla honum \u00ed t\u00f3mt marki\u00f0. Hann skaut beint framhj\u00e1. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar \u00feurfti \u00d3lafur aftur a\u00f0 taka \u00e1 honum st\u00f3ra s\u00ednum og undir lokin skaut einn Nor\u00f0anma\u00f0urinn \u00ed st\u00f6ngina. Eins og til a\u00f0 fullkomna rangl\u00e6ti heimsins pota\u00f0i P\u00e9tur Arn\u00fe\u00f3rsson inn sj\u00f6tta markinu \u00ed uppb\u00f3tart\u00edma hinu megin.<\/p>\n<p>Leiknum var loki\u00f0 og \u00e9g klappa\u00f0i \u00ed st\u00fakunni me\u00f0an leikmennirnir sungu siggi-saki sigurs\u00f6nginn, sem \u00f6llum Fr\u00f6murum finnst rosalega t\u00f6ff en eru l\u00edklega einir um \u00fe\u00e1 sko\u00f0un. \u00c9g var s\u00e1ttur vi\u00f0 sigurinn en jafnvel enn gla\u00f0ari a\u00f0 \u00d3lafur K. \u00d3lafs hef\u00f0i haldi\u00f0 hreinu.<\/p>\n<p>\u00d3lafur l\u00e9k aldrei aftur deildarleik fyrir Framara, enda kom Birkir Kristinsson \u00ed marki\u00f0 sumari\u00f0 1988 og missti aldrei \u00fat leik. \u00dea\u00f0 var svo ekki fyrr en m\u00f6rgum \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar a\u00f0 \u00d3lafur skaut aftur upp kollinum \u00ed Framleik. \u00dea\u00f0 var sumari\u00f0 1999, \u00feegar hann sat nokkra leiki \u00e1 bekknum hj\u00e1 Valsm\u00f6nnum, \u00fe\u00e1 42 \u00e1ra gamall. Og \u00d3lafur kom einmitt inn\u00e1 gegn Fram eftir a\u00f0 hinn \u00e1tj\u00e1n \u00e1ra gamli Hj\u00f6rvar Hafli\u00f0ason l\u00e9t reka sig \u00fataf.<\/p>\n<p>\u00d3lafur f\u00e9kk strax \u00e1 sig mark \u00far v\u00edtinu og l\u00e9t s\u00ed\u00f0ar Hollendingin Oerlemans fara illa me\u00f0 sig \u00ed seinna marki Framara. Honum var ekki treyst til a\u00f0 byrja inn\u00e1 \u00ed n\u00e6sta leik me\u00f0an Hj\u00f6rvar t\u00f3k \u00fat leikbanni\u00f0, heldur var annar gamall markv\u00f6r\u00f0ur me\u00f0 Fram-tengingu, Haukur Bragason, s\u00f3ttur \u00ed sta\u00f0inn. \u00d3lafur f\u00f3r bara aftur \u00e1 bekkinn \u2013 v\u00e6ntanlega hinn s\u00e1ttasti. Lengi lifi varamarkver\u00f0ir!<\/p>\n<p><em>(M\u00f6rk Fram: P\u00e9tur Ormslev 2, Gu\u00f0mundur Steinsson 2, Ragnar Margeirsson, P\u00e9tur Arn\u00fe\u00f3rsson)<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>5. \u00e1g\u00fast 1987. Fram 6 : V\u00f6lsungur 0 Er til miki\u00f0 g\u00f6fugri starfst\u00e9tt en varamarkver\u00f0ir? J\u00faj\u00fa, einhver kynni a\u00f0 nefna barnal\u00e6kna og hj\u00fakrunarf\u00f3lk sem starfar \u00e1 str\u00ed\u00f0shrj\u00e1\u00f0um sv\u00e6\u00f0um: en \u00feau f\u00e1 \u00fe\u00f3 a.m.k. a\u00f0 hafa eitthva\u00f0 fyrir stafni. Varamarkv\u00f6r\u00f0urinn m\u00e6tir \u00e1 allar \u00e6fingar, kl\u00e6\u00f0ir sig upp fyrir leikinn og situr svo bara og b\u00ed\u00f0ur. Hann &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/04\/08\/olafur-fotboltasaga-min-45100\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">\u00d3lafur: F\u00f3tboltasaga m\u00edn 45\/100<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-4380","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4380","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4380"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4380\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4380"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4380"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4380"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}