{"id":4438,"date":"2014-08-02T17:45:30","date_gmt":"2014-08-02T17:45:30","guid":{"rendered":"http:\/\/truflun.net\/stefan\/?p=4438"},"modified":"2014-08-02T17:45:30","modified_gmt":"2014-08-02T17:45:30","slug":"fotboltasaga-min-67100-baulid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/08\/02\/fotboltasaga-min-67100-baulid\/","title":{"rendered":"F\u00f3tboltasaga m\u00edn 67\/100: Bauli\u00f0"},"content":{"rendered":"<p><strong><span style=\"line-height: 1.5em\">5. apr\u00edl 2009. Luton 3 : Scunthorpe 2<\/span><\/strong><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00dea\u00f0 var magna\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 \u00e1horfendaskarann \u00e1 \u00farslitaleiknum \u00e1 HM \u00ed Brasil\u00edu gefa s\u00e9r t\u00edma \u00ed \u00f6llum hamagangnum og l\u00e1tunum eftir a\u00f0 \u00farslitin l\u00e1gu fyrir, til a\u00f0 baula hraustlega \u00e1 Sepp Blatter, hinn alr\u00e6mda forseta Al\u00fej\u00f3\u00f0aknattspyrnusambandsins. Vi\u00f0 Luton-stu\u00f0ningsmenn eigum samb\u00e6rilegt augnablik. \u00dea\u00f0 var sunnudaginn fimmta apr\u00edl 2009 \u00e1 Wembley.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Allir muna eftir \u00fev\u00ed \u00feegar Gu\u00f0j\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson leiddi Stoke City til sigurs \u00ed Framr\u00fa\u00f0ubikarnum. S\u00ed\u00f0ar skipti keppnin um styrktara\u00f0ila og var kennd vi\u00f0 v\u00f6rub\u00edlafyrirt\u00e6ki. S\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin hefur Johnstone\u00b4s m\u00e1lningarfyrirt\u00e6ki\u00f0 kosta\u00f0 m\u00f3ti\u00f0, ver\u00f0launagripurinn er \u00fev\u00ed e\u00f0lilega uppnefndur \u201em\u00e1lningard\u00f3sin\u201c.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a bikarkeppni li\u00f0anna \u00ed \u00feri\u00f0ju og fj\u00f3r\u00f0u efstu deild. Leiki\u00f0 er \u00ed mi\u00f0ri viku og allir l\u00edta \u00e1 m\u00f3ti\u00f0 sem truflun e\u00f0a \u00ed besta falli t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 nota varali\u00f0smenn \u00fear til komi\u00f0 er \u00ed lokaumfer\u00f0irnar, \u00fear sem vonin um \u00farslitaleik \u00e1 Wembley fer a\u00f0 spila inn\u00ed. \u00deetta er l\u00edka \u00e1g\u00e6tt m\u00f3t fyrir mi\u00f0jumo\u00f0sli\u00f0in sem hafa \u00ed raun ekki a\u00f0 neinu a\u00f0 keppa \u00feegar komi\u00f0 er fram yfir \u00e1ram\u00f3t. Bikar er bikar, \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 m\u00e1lningard\u00f3s.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">En veturinn 2008-09 var ekkert andskotans mi\u00f0jumo\u00f0 hj\u00e1 Luton. \u00deetta var \u00e1r satans. Vori\u00f0 2007 f\u00e9ll Luton \u00far n\u00e6stefstu deild og um svipa\u00f0 leyti kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 fj\u00e1rm\u00e1lin voru \u00ed steik. G\u00f6mlu eigendurnir voru h\u00e1lfger\u00f0ir gl\u00e6pamenn og b\u00f3khaldi\u00f0 \u00ed t\u00f3mu rugli. N\u00e6sta \u00e1r einkenndist af bruna\u00fats\u00f6lum og grei\u00f0slust\u00f6\u00f0vunum og li\u00f0i\u00f0 f\u00e9ll aftur.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">F\u00e9lagi\u00f0 f\u00f3r \u00far grei\u00f0slust\u00f6\u00f0vun eftir nau\u00f0arsamninga vi\u00f0 kringumst\u00e6\u00f0ur sem Joseph Heller hef\u00f0i kunna\u00f0 vel a\u00f0 meta: enska deildin ger\u00f0i kr\u00f6fu um a\u00f0 li\u00f0 fengju stigafr\u00e1dr\u00e1tt ef \u00feau f\u00e6ru \u00far grei\u00f0slust\u00f6\u00f0vun \u00e1n \u00feess a\u00f0 allir kr\u00f6fuhafar sam\u00feykktu nau\u00f0arsamninganna. \u00c1 sama t\u00edma ger\u00f0i deildin og knattspyrnusambandi\u00f0 kr\u00f6fu til \u00feess a\u00f0 allar skuldir vi\u00f0 \u201ea\u00f0ila innan knattspyrnufj\u00f6lskyldunnar\u201c yr\u00f0i greiddar 100%. Ergo: kr\u00f6fuhafar ur\u00f0u a\u00f0 s\u00e6tta sig vi\u00f0 samninga \u00fear sem \u00feeir fengju skertan hlut krafna sinna, en \u00e1kve\u00f0nir a\u00f0ilar fengju sitt a\u00f0 fullu. Breski skatturinn sag\u00f0ist \u00ed prinsipinu ekki geta felt sig vi\u00f0 sl\u00edkt (skiljanlega) og \u00fear af lei\u00f0andi f\u00e9kk hvert einasta li\u00f0 sem f\u00f3r \u00far grei\u00f0slust\u00f6\u00f0vun stigafr\u00e1dr\u00e1tt. (\u00c1\u00f0ur h\u00f6f\u00f0u s\u00f6mu li\u00f0 fengi\u00f0 stigafr\u00e1dr\u00e1tt fyrir a\u00f0 lenda \u00ed grei\u00f0slust\u00f6\u00f0vun.)<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Luton f\u00e9kk 20 stig \u00ed m\u00ednus fr\u00e1 ensku deildinni og t\u00edu \u00ed vi\u00f0b\u00f3t fr\u00e1 enska knattspyrnusambandinu. S\u00fa refsing var sett \u00e1 \u00ed kj\u00f6lfar \u00feess a\u00f0 starfsma\u00f0ur Luton Town haf\u00f0i a\u00f0 fyrra brag\u00f0i tilkynnt um misferli fyrri eigenda, sem horfnir voru fr\u00e1 f\u00e9laginu. M\u00f3ti\u00f0 h\u00f3fst \u00fev\u00ed me\u00f0 30 stig \u00ed m\u00ednus, sem mun vera met \u00ed knattspyrnus\u00f6gunni. A\u00f0 kalla Luton-menn bitra yfir \u00feessum m\u00e1lalokum er understeitment \u00e1ratugarins. Fj\u00f6lmargir stu\u00f0ningsmenn hafa upp fr\u00e1 \u00feessu sn\u00faist alfari\u00f0 gegn enska landsli\u00f0inu og halda alltaf me\u00f0 andst\u00e6\u00f0ingum \u00feess. \u00dea\u00f0 er harka!<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Ekkert li\u00f0 \u00e1 s\u00e9ns me\u00f0 30 stig \u00ed m\u00ednus. \u00deri\u00f0ja \u00e1ri\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0 f\u00e9ll Luton og f\u00f3r ni\u00f0ur \u00ed utandeildina eftir meira en aldardv\u00f6l \u00ed deildarkeppninni. \u00dear m\u00e1ttum vi\u00f0 d\u00fasa \u00ed fimm \u00e1r. Fimm l\u00f6ng og fr\u00fastrerandi \u00e1r, sem \u00fe\u00f3 hafa gert \u00f3tr\u00falega miki\u00f0 fyrir stemninguna og samheldnina me\u00f0al stu\u00f0ningsmannanna.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Leikt\u00ed\u00f0in 2008-09 var langdregin aftaka. Margir h\u00f6f\u00f0u \u00e1 or\u00f0i a\u00f0 hreinlegra hef\u00f0i veri\u00f0 a\u00f0 fella okkur beint ni\u00f0ur um deild og leyfa Luton a\u00f0 byrja m\u00f3ti\u00f0 \u00fear \u00e1 n\u00fall stigum, frekar en a\u00f0 l\u00e1ta leikmenn og stu\u00f0ningsf\u00f3lk engjast \u00ed heilt \u00e1r a\u00f0 b\u00ed\u00f0a eftir hinu \u00f3umfl\u00fdjanlega.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Og vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um allt l\u00e1nleysi fallkand\u00eddatanna. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fengum vi\u00f0 \u00e1 okkur j\u00f6fnunarm\u00f6rk, sigurm\u00f6rk e\u00f0a hvort tvegga \u00e1 lokam\u00edn\u00fatunum. Enn oftar kom \u00fe\u00f3 eitthvert sk\u00edtamarki\u00f0 \u00e1 upphafsm\u00edn\u00fatunum og s\u00ed\u00f0an ekki s\u00f6guna meir allt til loka.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Nema \u00ed keppninni um m\u00e1lningard\u00f3sina. \u00dear t\u00f3kst Luton a\u00f0 vinna Brentford \u00e1 heimavelli \u00ed v\u00edtakeppni \u00ed fyrsta leik, sem var \u00f3venjuleg lukka fyrir \u00feetta keppnist\u00edmabil. Einhvern veginn unnum vi\u00f0 Walsall \u00fati og svo Colchester heima, hvort tveggja 1:0. \u00cd \u00farslitum su\u00f0ursv\u00e6\u00f0isins (m\u00f3ti\u00f0 er landshlutaskipt) vann Luton svo Brighton \u00e1 heimavelli og aftur \u00ed v\u00edtakeppni.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Og allt \u00ed einu var Luton komi\u00f0 \u00e1 Wembley. Andst\u00e6\u00f0ingarnir voru Scunthorpe, sem l\u00e9ku einni deild ofar og voru \u00e1 fleygifer\u00f0 upp \u00ed n\u00e6stefstu deild. (Unnu s\u00e9r \u00fear s\u00e6ti f\u00e1einum d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar, l\u00edka eftir \u00farslitaleik \u00e1 Wembley.)<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00dea\u00f0 er merkileg hef\u00f0 hj\u00e1 Englendingunum a\u00f0 leika helst alla \u00farslitaleiki \u00e1 Wembley og \u00fea\u00f0 \u00feykir alltaf miki\u00f0 \u00e6vint\u00fdri a\u00f0 spila \u00fear. Stu\u00f0ningsmenn Scunthorpe eru hins vegar f\u00e1ir, eiga um langan veg a\u00f0 fara og \u00e1ttu von \u00e1 annarri og veigameiri Wembley-fer\u00f0 innan skamms. \u00deeim t\u00f3kst \u00fev\u00ed varla a\u00f0 selja nema t\u00edu\u00fe\u00fasund mi\u00f0a.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">F\u00e1bj\u00e1narnir hj\u00e1 enska knattspyrnusambandinu \u00e1kv\u00e1\u00f0u \u00fe\u00f3 a\u00f0 skipta vellinum \u00ed tvennt, \u00feannig a\u00f0 \u00feegar Luton haf\u00f0i selt s\u00edna fj\u00f6rut\u00edu\u00fe\u00fasund mi\u00f0a og \u00f3ska\u00f0i eftir fleirum, \u00fe\u00e1 var ekki h\u00e6gt a\u00f0 ver\u00f0a vi\u00f0 \u00feeirri \u00f3sk. \u00dea\u00f0 taldist \u00fev\u00ed uppselt \u00e1 v\u00f6llinn, \u00fe\u00f3tt \u00e1horfendurnir hef\u00f0u ekki veri\u00f0 nema 55 \u00fe\u00fasund \u00ed allt. Stj\u00f3rnendur Luton s\u00f6g\u00f0ust h\u00e6glega hef\u00f0u geta\u00f0 selt t\u00edu til fimmt\u00e1n\u00fe\u00fasund mi\u00f0a \u00ed vi\u00f0b\u00f3t.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Og \u00feegar Brian Mawhinney bar\u00f3n, forma\u00f0ur ensku deildarinnar og fyrrum r\u00e1\u00f0herra \u00cdhaldsflokksins, gekk inn \u00e1 v\u00f6llinn a\u00f0 heilsa li\u00f0unum baula\u00f0i hver einn og einasti \u00feessara fj\u00f6rut\u00edu\u00fe\u00fasund Luton-manna \u00e1 hann af sama krafti og \u00feegar B\u00edtlarnir hr\u00f3pu\u00f0u ni\u00f0ur Tarzan \u00ed kv\u00e6\u00f0i \u00d3mars Ragnarssonar. D\u00e6mdari mann hef \u00e9g varla s\u00e9\u00f0 en \u00edhaldsskarfinn me\u00f0 yfirgreidda skallann \u00feykjast lei\u00f0a hj\u00e1 s\u00e9r baul, hr\u00f3p og sv\u00edvir\u00f0ingar fyrir framan sj\u00f3nvarpsmyndav\u00e9larnar a\u00f0 reyna a\u00f0 heilsa leikm\u00f6nnum me\u00f0 handabandi. Og Luton-leikmennirnir voru ekkert a\u00f0 gera honum l\u00edfi\u00f0 au\u00f0veldara me\u00f0 fle\u00f0ul\u00e1tum e\u00f0a s\u00fdndarkurteisi \u2013 heldur r\u00e9ttu fram l\u00fakurnar me\u00f0 fyrirlitningarsvip en virtu hann annars ekki vi\u00f0lits.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Leikurinn var f\u00ednn, en samt man eiginlega enginn eftir neinu \u00f6\u00f0ru en baulinu \u00ed byrjun. Scunthorpe komst yfir snemma leiks en ekki l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar jafna\u00f0i ma\u00f0urinn me\u00f0 st\u00f3ra nafni\u00f0: Chris Martin (engin \u00e6ttartengsl). Hann var um \u00feessar mundir \u00ed l\u00e1ni fr\u00e1 Norwich en er v\u00edst hj\u00e1 Derby n\u00fana.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00cd seinni h\u00e1lfleik kom Tom Craddock okkur \u00ed 2:1 og s\u00ed\u00f0ustu tuttugu m\u00edn\u00faturnar var nau\u00f0v\u00f6rn \u00ed teignum hj\u00e1 Luton. Scunthorpe s\u00f3tti linnul\u00edti\u00f0 og \u00fea\u00f0 var fari\u00f0 a\u00f0 fara verulega um okkur \u00e1 \u00d6lveri. \u00c1 88. m\u00edn\u00fatu jafna\u00f0i Scunthorpe og ekkert nema snilldarmarkvarsla Deans Brill (engin ver\u00f0laun fyrir a\u00f0 giska \u00e1 upp\u00e1haldsor\u00f0aleiki \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttamanna me\u00f0 nafni\u00f0 hans) kom \u00ed veg fyrir \u00farslit r\u00e9\u00f0ust fyrir lok venjulegs leikt\u00edma.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">M\u00e9r fannst skrifa\u00f0 \u00ed sk\u00fdin a\u00f0 leikurinn myndi tapast. Tapa ekki li\u00f0 sem missa leiki ni\u00f0ur \u00e1 lokasek\u00fandunum alltaf \u00ed framlengingu? En alveg \u00ed byrjun hennar kom l\u00f6ng sending innfyrir Scunthorpe-v\u00f6rnina sem franski varama\u00f0urinn Claude Gnapka elti. Gnapka var me\u00f0 varnarmann \u00ed bakinu og Scunthorpe-markv\u00f6r\u00f0urinn hlj\u00f3p langt \u00fat \u00e1 m\u00f3ti, en einhvern veginn n\u00e1\u00f0i hann a\u00f0 teygja fram t\u00e1na og vippa knettinum \u00ed fallegum boga \u00ed t\u00f3mt marki\u00f0.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Luton n\u00e1\u00f0i a\u00f0 verjast \u00fea\u00f0 sem eftir var, enda allur vindur \u00far leikm\u00f6nnum beggja li\u00f0a. <a title=\"Svipmyndir\" href=\"https:\/\/www.youtube.com\/watch?v=06QKfon4JnM&amp;list=PLnUjbJyJPz-PBHl6q-fNvkD9Ujb12Msfe\" target=\"_blank\">Vi\u00f0 unnum m\u00e1lningard\u00f3sina<\/a> og til a\u00f0 b\u00f6gga ensku deildina enn frekar s\u00f3ttum vi\u00f0 formlega um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 reyna a\u00f0 verja hana \u00e1ri\u00f0 eftir sem utandeildarli\u00f0. F\u00f3li\u00f0 Mahwhinney sag\u00f0i nei.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\"><em>(M\u00f6rk Luton: Chris Martin, Tom Craddock. M\u00f6rk Scunthorpe: Gary Hooper, Grant McCann)<\/em><\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>5. apr\u00edl 2009. Luton 3 : Scunthorpe 2 \u00dea\u00f0 var magna\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 \u00e1horfendaskarann \u00e1 \u00farslitaleiknum \u00e1 HM \u00ed Brasil\u00edu gefa s\u00e9r t\u00edma \u00ed \u00f6llum hamagangnum og l\u00e1tunum eftir a\u00f0 \u00farslitin l\u00e1gu fyrir, til a\u00f0 baula hraustlega \u00e1 Sepp Blatter, hinn alr\u00e6mda forseta Al\u00fej\u00f3\u00f0aknattspyrnusambandsins. Vi\u00f0 Luton-stu\u00f0ningsmenn eigum samb\u00e6rilegt augnablik. \u00dea\u00f0 var sunnudaginn fimmta apr\u00edl &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/08\/02\/fotboltasaga-min-67100-baulid\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">F\u00f3tboltasaga m\u00edn 67\/100: Bauli\u00f0<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-4438","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4438","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4438"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4438\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4438"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4438"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4438"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}