{"id":4446,"date":"2014-08-15T23:34:04","date_gmt":"2014-08-15T23:34:04","guid":{"rendered":"http:\/\/truflun.net\/stefan\/?p=4446"},"modified":"2014-08-15T23:34:04","modified_gmt":"2014-08-15T23:34:04","slug":"fotboltasaga-min-69100-veislustjorinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/08\/15\/fotboltasaga-min-69100-veislustjorinn\/","title":{"rendered":"F\u00f3tboltasaga m\u00edn 69\/100: Veislustj\u00f3rinn"},"content":{"rendered":"<p><strong><span style=\"line-height: 1.5em\">3. okt\u00f3ber 2009. Fram 2 : Brei\u00f0ablik 2 (6:7 eftir v\u00edtakeppni og br\u00e1\u00f0abana)<\/span><\/strong><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00c9g tek ekki a\u00f0 m\u00e9r veislustj\u00f3rnun. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum hef \u00e9g nokkrum sinnum fengi\u00f0 fyrirspurnir um hvort \u00e9g v\u00e6ri til \u00ed a\u00f0 veislust\u00fdra fyrir hina e\u00f0a \u00feessa. Oft hafa g\u00f3\u00f0 laun veri\u00f0 \u00ed bo\u00f0i og yfirleitt svart. \u00c9g hef alltaf neita\u00f0.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00c9g er til \u00ed a\u00f0 vera r\u00e6\u00f0uma\u00f0ur. Semja r\u00e6\u00f0u og flytja hana \u00e1 fyrirfram\u00e1kve\u00f0num sta\u00f0 \u00ed dagskr\u00e1nni. \u00dea\u00f0 er afmarka\u00f0 verkefni me\u00f0 skilgreindan upphafs- og lokapunkt og \u00e9g geri \u00fea\u00f0 \u00e1g\u00e6tlega. Veislustj\u00f3rinn \u00fearf hins vegar a\u00f0 hafa \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed hvort eldh\u00fasi\u00f0 s\u00e9 tilb\u00fai\u00f0 me\u00f0 s\u00fapuna \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma, stoppa af lei\u00f0inlega veislugesti og redda stemningunni ef eitthva\u00f0 fer \u00f6\u00f0ruv\u00edsi en \u00e6tla\u00f0 var. Og svo \u00feurfa veislustj\u00f3rar helst a\u00f0 segja brandara. Brandarar eru \u00f6murlegasta tegund fyndni.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Au\u00f0vita\u00f0 kemur fyrir a\u00f0 \u00e9g segi j\u00e1. En \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00e1 bara fyrir vini m\u00edna og \u00e6ttingja \u2013 aldrei fyrir borgun. \u00deannig var \u00e9g veislustj\u00f3ri \u00feegar Valur f\u00e9lagi minn og Laufey giftust. L\u00edka \u00feegar \u00d3l\u00edna, amma Steinunnar \u00e1tti st\u00f3rafm\u00e6li.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Og svo eru \u00fea\u00f0 skiptin \u00feegar Framararnir hringja.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hefur Fram haft samband og be\u00f0i\u00f0 um r\u00e6\u00f0u e\u00f0a greinarst\u00faf. \u00c9g reyni a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00feegar \u00e9g m\u00f6gulega get. M\u00e9r finnst \u00e9g \u00feannig eiga a\u00f0eins meira \u00ed \u00fev\u00ed \u00feegar vel gengur. Eins og \u00e9g eigi einhvern \u00fe\u00e1tt \u00ed starfinu annan en a\u00f0 borga \u00e1rsmi\u00f0ann og norpa \u00e1 \u00fativelli \u00ed Grindav\u00edk \u00ed enn einum tapleiknum.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Sk\u00f6mmu fyrir bikar\u00farslitaleikinn gegn Brei\u00f0ablik hausti\u00f0 2009 f\u00e9kk \u00e9g hringingu. Stj\u00f3rnarma\u00f0ur \u00ed knattspyrnudeildinni ba\u00f0 mig um a\u00f0 veislust\u00fdra \u00ed lokah\u00f3fi deildarinnar, sem f\u00e6ri fram sama kv\u00f6ld og \u00farslitaleikurinn. B\u00fai\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 reyna alla a\u00f0ra m\u00f6guleika og \u00e9g yr\u00f0i a\u00f0 redda \u00feeim. Og \u00e9g sag\u00f0i j\u00e1.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00c9g var \u00e1 kafi \u00ed vinnu e\u00f0a \u00f6\u00f0rum verkefnum og gat \u00fev\u00ed l\u00edti\u00f0 hugsa\u00f0 um hva\u00f0 segja skyldi. R\u00e9tt daginn \u00e1\u00f0ur gaf \u00e9g m\u00e9r t\u00edma \u00ed undirb\u00faning, en var \u00fe\u00e1 or\u00f0inn svo stressa\u00f0ur fyrir leiknum a\u00f0 ekkert anna\u00f0 komst a\u00f0.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Fram haf\u00f0i tapa\u00f0 \u00feremur s\u00ed\u00f0ustu bikar\u00farslitaleikjum s\u00ednum: gegn KR, Fylki og Val. En \u00ed \u00feau skiptin voru andst\u00e6\u00f0ingarnir alltaf taldir sigurstranglegri fyrirfram. A\u00f0 \u00feessu sinni var jafnt \u00e1 me\u00f0 li\u00f0um komi\u00f0. Fram hafna\u00f0i \u00ed fj\u00f3r\u00f0a s\u00e6ti en Blikar \u00ed \u00fev\u00ed fimmta me\u00f0 s\u00f6mu stigat\u00f6lu. Deildarleikjunum lauk b\u00e1\u00f0um me\u00f0 jafntefli, 1:1 og 3:3 \u00ed makalausum leik.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Leikdagurinn rann upp og \u00e9g haf\u00f0i ekki hugmynd um hva\u00f0 \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 segja um kv\u00f6ldi\u00f0. \u00dea\u00f0 var l\u00edka minnsta \u00e1hyggjuefni mitt. \u00c9g gat bara hugsa\u00f0 um leikinn og hvort Fram t\u00e6kist a\u00f0 vinna fyrsta st\u00f3ra titilinn fr\u00e1 1990\u2026<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Alfre\u00f0 Finnbogason kom Blikum yfir um mi\u00f0jan seinni h\u00e1lfleik en Ingvar \u00d3lason af \u00f6llum m\u00f6nnum jafna\u00f0i sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar. \u00deetta var s\u00ed\u00f0asta t\u00edmabil Ingvars hj\u00e1 Fram. Hann var einn af s\u00ed\u00f0ustu geirfuglunum \u2013 leikm\u00f6nnunum sem ma\u00f0ur var vanur fr\u00e1 n\u00edunda \u00e1ratugnum \u2013 sem voru l\u00edklegri til a\u00f0 dr\u00edfa sig \u00fat \u00far klefanum til a\u00f0 n\u00e1 s\u00edgarettu \u00e1 b\u00edlaplaninu me\u00f0 stu\u00f0ningsm\u00f6nnunum en a\u00f0 pjatta sig fyrir framan spegilinn me\u00f0 grei\u00f0una og \u00ferj\u00e1r \u00f3l\u00edkar tegundir af h\u00e1rgeli a\u00f0 vopni.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Leikurinn f\u00f3r \u00ed framlengingu. Framarar fengu v\u00edti og Sam Tillen skora\u00f0i af \u00f6ryggi. Hjarta\u00f0 t\u00f3k kipp, en aftur \u00feurfti helv\u00edti\u00f0 hann Alfre\u00f0 a\u00f0 skora, 2:2, \u00far soft v\u00edti. \u00c1 lokasek\u00fandunni f\u00e9kk Gu\u00f0mundur Magn\u00fasson f\u00e1r\u00e1nlega gott f\u00e6ri til a\u00f0 kl\u00e1ra leikinn, en skoti\u00f0 f\u00f3r einhvern veginn r\u00f6ngu meginn vi\u00f0 st\u00fakuna. Eitthva\u00f0 segir m\u00e9r a\u00f0 ferill hans hef\u00f0i \u00fer\u00f3ast \u00f6\u00f0ru v\u00edsi ef boltinn hef\u00f0i r\u00falla\u00f0 \u00f6rf\u00e1a sentimetra \u00ed hina \u00e1ttina.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Gu\u00f0mundi t\u00f3kst hins vegar a\u00f0 skora \u00ed v\u00edtakeppninni. \u00dea\u00f0 ger\u00f0u l\u00edka Tillen-br\u00e6\u00f0urnir og Ingvar \u00d3la. Hj\u00e1lmar \u00de\u00f3rarinsson l\u00e9t verja fr\u00e1 s\u00e9r. \u00deetta sumar skora\u00f0i hann sj\u00f6 m\u00f6rk fyrir Fram og var \u00e1 g\u00f3\u00f0um degi flottasti senter deildarinnar. \u00deess \u00e1 milli datt hann ni\u00f0ur \u00ed me\u00f0almennsku.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Hannes var\u00f0i eitt v\u00edti\u00f0 fr\u00e1 Blikunum og gripi\u00f0 var til br\u00e1\u00f0abana. Fyrsti Blikinn skora\u00f0i og \u00fe\u00e1 var komi\u00f0 a\u00f0 Paul McShane. \u00d6fugt vi\u00f0 flest hinna v\u00edtanna haf\u00f0i \u00e9g engar \u00e1hyggjur. Paul var alltaf a\u00f0 fara a\u00f0 skora, \u00e1 sama h\u00e1tt og Sam. En nei \u2013 Paul negldi upp \u00ed marksl\u00e1 og ni\u00f0ur\u2026 boltinn lenti \u00e1 l\u00ednunni\u2026 og \u00fat.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">Blikar \u00e6r\u00f0ust en vi\u00f0 Framararnir st\u00f3\u00f0um stjarfir \u00ed st\u00fakunni. \u00c9g var dofinn, eiginlega frekar \u00ed losti en svekktur, s\u00e1r e\u00f0a rei\u00f0ur. Vi\u00f0 Valur l\u00f6bbu\u00f0um \u00feegjandi \u00e1 barinn, ef \u00e9g man r\u00e9tt og drukkum hvor sinn bj\u00f3rinn \u00ed \u00fe\u00f6gn. Kv\u00f6ddumst svo \u00feegjandalegir. Hann f\u00f3r heim a\u00f0 sleikja s\u00e1rin\u2026 en \u00e9g mundi sm\u00e1tt og sm\u00e1tt eftir giggi kv\u00f6ldsins.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"line-height: 1.5em\">\u00c9g m\u00e6tti snemma \u00ed Framheimili\u00f0, \u00fear sem \u00f6llum lei\u00f0 eins og m\u00e9r. Eftir einhvern t\u00edma haf\u00f0i \u00e9g r\u00e6nu \u00e1 a\u00f0 spjalla vi\u00f0 veitingamanninn og n\u00e1\u00f0i einhvern veginn a\u00f0 koma fr\u00e1 m\u00e9r mikilv\u00e6gustu prakt\u00edsku uppl\u00fdsingum \u2013 en br\u00f6ndurum var ekki til a\u00f0 dreifa. Sumum str\u00e1kanna t\u00f3kst a\u00f0 sl\u00e1 \u00e1 l\u00e9tta strengi og \u00fea\u00f0 voru skemmtiatri\u00f0i\u2026 en \u00e9g var \u00fati \u00e1 \u00feekju allan t\u00edmann. Muna: ekki r\u00e1\u00f0a veislustj\u00f3ra \u00ed tauga\u00e1falli.<\/span><\/p>\n<p><em>(M\u00f6rk Fram: Ingvar \u00de\u00f3r \u00d3lason, Sam Tillen. M\u00f6rk Brei\u00f0abliks: Alfre\u00f0 Finnbogason 2)<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>3. okt\u00f3ber 2009. Fram 2 : Brei\u00f0ablik 2 (6:7 eftir v\u00edtakeppni og br\u00e1\u00f0abana) \u00c9g tek ekki a\u00f0 m\u00e9r veislustj\u00f3rnun. \u00c1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum hef \u00e9g nokkrum sinnum fengi\u00f0 fyrirspurnir um hvort \u00e9g v\u00e6ri til \u00ed a\u00f0 veislust\u00fdra fyrir hina e\u00f0a \u00feessa. Oft hafa g\u00f3\u00f0 laun veri\u00f0 \u00ed bo\u00f0i og yfirleitt svart. \u00c9g hef alltaf neita\u00f0. \u00c9g &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/08\/15\/fotboltasaga-min-69100-veislustjorinn\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">F\u00f3tboltasaga m\u00edn 69\/100: Veislustj\u00f3rinn<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-4446","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4446","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4446"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4446\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4446"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4446"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4446"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}