{"id":4453,"date":"2014-09-03T01:11:12","date_gmt":"2014-09-03T01:11:12","guid":{"rendered":"http:\/\/truflun.net\/stefan\/?p=4453"},"modified":"2014-09-03T01:11:12","modified_gmt":"2014-09-03T01:11:12","slug":"fotboltasaga-min-72100-beysi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/09\/03\/fotboltasaga-min-72100-beysi\/","title":{"rendered":"F\u00f3tboltasaga m\u00edn 72\/100: Beysi"},"content":{"rendered":"<p><strong><span style=\"line-height: 1.5em\">21. september 2001. KA 0 : Fram 3<\/span><\/strong><\/p>\n<p><strong><\/strong>Sumari\u00f0 2002 var skemmtilegt. \u00dea\u00f0 var gaman \u00ed vinnunni, \u00fear sem vi\u00f0 \u00d3lafur Gu\u00f0mundsson heitinn vorum \u00e1 fullu a\u00f0 byggja upp Rafheima. \u00c9g var \u00e1 kafi \u00ed f\u00e9lagsm\u00e1lunum, b\u00e6\u00f0i a\u00f0 r\u00edfa kjaft um p\u00f3lit\u00edk \u00e1 vefritinu M\u00farnum og svo \u00ed fri\u00f0arbar\u00e1ttunni \u2013 miki\u00f0 til me\u00f0 s\u00f6mu m\u00f6nnum. \u00dea\u00f0 var miki\u00f0 djamma\u00f0 og alltaf enda\u00f0 \u00e1 N\u00e6sta bar, me\u00f0 vi\u00f0komu \u00e1 Kebabh\u00fasinu eftir lokun. \u00c1 h\u00e6\u00f0inni fyrir ofan mig bj\u00f3 f\u00e9lagi Stein\u00fe\u00f3r Hei\u00f0arsson sem var \u00e6t\u00ed\u00f0 til \u00ed a\u00f0 l\u00edta ni\u00f0ur \u00ed p\u00f3lit\u00edsk plott og \u00e1 h\u00e6\u00f0inni fyrir ne\u00f0an mig bj\u00f3 f\u00e9lagi Valur Nor\u00f0ri, forma\u00f0ur h\u00fasf\u00e9lagsins, sem \u00e1tti alltaf \u00farvals visk\u00fd.<\/p>\n<p>\u00c9g blogga\u00f0i l\u00edka eins og berserkur. \u00dearna um hausti\u00f0 datt m\u00e9r \u00ed hug a\u00f0 l\u00fdsa \u00fev\u00ed yfir \u00e1 s\u00ed\u00f0unni minni a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u201ebesti og fr\u00e6gasti bloggarinn\u201c, me\u00f0 \u00feeim r\u00f6kum a\u00f0 s\u00e1 titill l\u00e6gi \u00e1 lausu \u00fear sem enginn hef\u00f0i helga\u00f0 s\u00e9r hann. H\u00e1lfum m\u00e1nu\u00f0i seinna var \u00e9g kalla\u00f0ur \u00ed sj\u00f3nvarpi\u00f0 \u00e1samt Salv\u00f6ru Gissurard\u00f3ttur til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um fyrirb\u00e6ri\u00f0 blogg. \u00c9g var stoppa\u00f0ur af f\u00f3lki \u00e1 g\u00f6tum \u00fati og spur\u00f0ur hvernig ma\u00f0ur \u00e6tti eiginlega a\u00f0 fara a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 blogga. (\u00d3key, kannski ekki stoppa\u00f0ur \u00e1 g\u00f6tum \u00fati \u2013 en spur\u00f0ur af stelpu sem var a\u00f0 afgrei\u00f0a mig \u00ed R\u00edkinu.)<\/p>\n<p>Og svo \u00e1tti \u00e9g k\u00e6rustu. Vi\u00f0 Steinunn vorum k\u00e6rustupar en ekki \u00feessi r\u00e1\u00f0settu mi\u00f0aldra hj\u00f3n sem s\u00ed\u00f0ar var\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00e1kve\u00f0inn sjarmi yfir a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a \u00ed lok hvers kv\u00f6lds hvort vi\u00f0 \u00e6tlu\u00f0um a\u00f0 tr\u00edtla \u00e1 M\u00e1nag\u00f6tuna til hennar e\u00f0a \u00e1 Hringbrautina til m\u00edn.<\/p>\n<p>\u00cd f\u00f3tboltanum h\u00e9ldu Framararnir manni hins vegar vi\u00f0 efni\u00f0. Vi\u00f0 vorum meistarar fallbar\u00e1ttunnar \u00e1 \u00feessum \u00e1rum. Dr\u00f3gumst ni\u00f0ur \u00ed har\u00f0a fallbar\u00e1ttu n\u00e1nast \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed hvort mannskapurinn v\u00e6ri veikur e\u00f0a sterkur, en reddu\u00f0um okkur oftast n\u00e6r \u00ed s\u00ed\u00f0ustu umfer\u00f0. 2002 var eitt af \u00feessum \u00e1rum.<\/p>\n<p>\u00deetta var reyndar skr\u00edti\u00f0 \u00cdslandsm\u00f3t. Fylkir og KR sl\u00f3gust ein um titilinn. Eftir fj\u00f3rt\u00e1n umfer\u00f0ir af \u00e1tj\u00e1n skildu hins vegar bara fj\u00f6gur stig a\u00f0 li\u00f0i\u00f0 \u00ed fimmta s\u00e6ti, FH og botnli\u00f0 \u00de\u00f3rs, Fram og \u00cdBV.<\/p>\n<p>Fram tapa\u00f0i naumlega fyrir KR og ger\u00f0i jafntefli vi\u00f0 Skagamenn \u00ed n\u00e6stu tveimur leikjum. \u00dea\u00f0 m\u00e1tti \u00fev\u00ed heita lj\u00f3st a\u00f0 vi\u00f0 yr\u00f0um a\u00f0 vinna tvo s\u00ed\u00f0ustu leikina, gegn FH \u00e1 heimavelli og KA \u00e1 \u00fativelli. Jafnvel \u00feau \u00farslit kynnu ekki a\u00f0 duga.<\/p>\n<p>Leikurinn gegn FH var f\u00e1r\u00e1nlegur. \u00deorbj\u00f6rn Atli skora\u00f0i \u00e1 fyrstu m\u00edn\u00fatu. FH skora\u00f0i \u00ferj\u00fa n\u00e6stu m\u00f6rk, \u00e1\u00f0ur en Bjarni H\u00f3lm minnka\u00f0i muninn fyrir hl\u00e9. \u00cd seinni h\u00e1lfleik Jafna\u00f0i Kristj\u00e1n Brooks, ma\u00f0urinn sem kunni b\u00e6\u00f0i \u00e1 talh\u00f3lf og interneti\u00f0, en FH komst \u00ed 3:4 og vi\u00f0 \u00ed raun fallnir \u00feegar kort\u00e9r var eftir. Andri Fannar jafna\u00f0i og svo braut einn FH-ingurinn \u00e1 Bj\u00f6ssa (minnir reyndar a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 soft v\u00edti) og G\u00fasti Gylfa skora\u00f0i 5:4. Hv\u00edl\u00edkur leikur!<\/p>\n<p>Fyrir lokaumfer\u00f0ina var sta\u00f0an \u00fev\u00ed \u00feessi: Keflav\u00edk var \u00ed falls\u00e6tinu me\u00f0 \u00e1tta m\u00f6rk \u00ed m\u00ednus. Fram me\u00f0 jafnm\u00f6rg stig og sj\u00f6 m\u00f6rk \u00ed m\u00ednus. \u00de\u00e1 voru Framarar me\u00f0 fleiri m\u00f6rk skoru\u00f0. Keflav\u00edk h\u00e9lt til Grindav\u00edkur, sem var \u00ed \u00feri\u00f0ja s\u00e6ti og haf\u00f0i ekki a\u00f0 neinu a\u00f0 keppa \u2013 ekki frekar en KA sem var \u00ed fj\u00f3r\u00f0a s\u00e6ti og t\u00f3k \u00e1 m\u00f3ti okkur Fr\u00f6murum.<\/p>\n<p>\u00c9g reyndi a\u00f0 tala fyrir \u00fev\u00ed innan f\u00e9lagsins a\u00f0 efnt yr\u00f0i til r\u00fatufer\u00f0ar nor\u00f0ur, \u00f6\u00f0rum \u00fer\u00e6\u00f0i til a\u00f0 geta drukki\u00f0 bj\u00f3r \u00e1 lei\u00f0inni. \u00dea\u00f0 gekk ekki eftir og vi\u00f0 Valur h\u00fasf\u00e9lagsforma\u00f0ur \u00f3kum snemma af sta\u00f0. E\u00f0a \u00f6llu heldur \u2013 Valur \u00f3k. \u00c9g kunni \u00fe\u00f3 ekki vi\u00f0 a\u00f0 taka me\u00f0 m\u00e9r bj\u00f3r af tillitsemi vi\u00f0 b\u00edlstj\u00f3rann.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru pylsustopp \u00e1 mikilv\u00e6gustu st\u00f6\u00f0um. Geisladiskarnir \u00ed fer\u00f0inni hafa v\u00e6ntanlega flestir veri\u00f0 me\u00f0 Smiths og Morrissey. Og \u00e1 t\u00edu m\u00edn\u00fatna fresti sag\u00f0i annar okkar upp \u00far eins manns hlj\u00f3\u00f0i: \u201eVi\u00f0 veeer\u00f0um a\u00f0 vinna \u00feetta!\u201c; \u201e\u00c9g meika \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 keyra heim ef vi\u00f0 t\u00f6pum!\u201c; \u201eDj\u00f6full hef \u00e9g vonda tilfinningu fyrir \u00feessum leik\u2026\u201c<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt opinberum t\u00f6lum voru 322 \u00e1 leiknum. Framarar \u00ed meirihluta. Kristinn Jakobsson d\u00e6mdi. \u00dea\u00f0 hefur m\u00e9r sjaldnast \u00fe\u00f3tt g\u00f3\u00f0 t\u00ed\u00f0indi. Hins vegar var auglj\u00f3st a\u00f0 KA-menn voru andlega b\u00fanir a\u00f0 lj\u00faka keppni \u00feetta \u00e1ri\u00f0. \u00deeir g\u00e1tu hvorki lent ofar n\u00e9 ne\u00f0ar \u00ed \u00feessu fj\u00f3r\u00f0a s\u00e6ti. Hvernig \u00feetta li\u00f0 gat hafna\u00f0 svona ofarlega er raunar en nein skrautfj\u00f6\u00f0rin \u00ed hatt \u00deorvaldar \u00d6rlygssonar.<\/p>\n<p>Framarar s\u00f3ttu fr\u00e1 byrjun og eftir t\u00e6par tuttugu m\u00edn\u00fatur var Bj\u00f6ssi felldur \u00ed teignum. G\u00fasti Gylfa t\u00f3k v\u00edti\u00f0 og skora\u00f0i. Kunnugleg uppskrift. Eftir marki\u00f0 voru allir frekar r\u00f3legir. Grindav\u00edk komst yfir gegn Keflv\u00edkingum sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar, svo efstudeildars\u00e6ti\u00f0 virtist tryggt. \u00dea\u00f0 var l\u00e9tt yfir \u00f6llum \u00ed h\u00e1lfleik. H\u00e1lfger\u00f0ur \u00e6ttarm\u00f3tsf\u00edlingur \u00fear sem Framarar og KA-menn skiptust \u00e1 hr\u00f3syr\u00f0um. Vi\u00f0 skj\u00f6llu\u00f0um \u00fe\u00e1 fyrir g\u00f3\u00f0a frammist\u00f6\u00f0u og \u00feeir s\u00f6g\u00f0ust miklu frekar vilja okkur uppi en helv\u00edtis Keflv\u00edkingana, sem var lygi. Landsbygg\u00f0arf\u00f3lk heldur ALDREI me\u00f0 Reykjav\u00edkurf\u00e9l\u00f6gum. \u00dea\u00f0 sty\u00f0ur jafnvel FH \u00e1 m\u00f3ti li\u00f0um fr\u00e1 Reykjav\u00edk og telur \u00fea\u00f0 bygg\u00f0astefnu.<\/p>\n<p>\u00deegar um kort\u00e9r var li\u00f0i\u00f0 af seinni h\u00e1lfleik komu fr\u00e9ttir \u00far Grindav\u00edk. Keflav\u00edk var b\u00fai\u00f0 a\u00f0 jafna. Vi\u00f0 grettum okkur a\u00f0eins, en h\u00f6f\u00f0um svo sem engar \u00e1hyggjur. Sk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar skora\u00f0i Fram anna\u00f0 mark. \u00dea\u00f0 ger\u00f0i Beysi, Freyr Karlsson. Freyr var enginn s\u00e9rstakur markahr\u00f3kur, enda ekki til \u00feess \u00e6tlast. Hann var leikstj\u00f3rnandinn \u00e1 mi\u00f0junni, en haf\u00f0i ekki veri\u00f0 \u00ed byrjunarli\u00f0inu fj\u00f3ra leiki \u00e1 undan. \u00deetta var hans anna\u00f0 deildarmark um sumari\u00f0.<\/p>\n<p>Freyr er einn af upp\u00e1haldsfr\u00f6murunum m\u00ednum fr\u00e1 upphafi. \u00c1st\u00e6\u00f0an var s\u00fa a\u00f0 \u00e9g fylgdist me\u00f0 honum strax \u00ed \u00f6\u00f0rum flokki \u00ed gegnum G\u00fasta f\u00e9laga minn, sem \u00e1tti br\u00f3\u00f0ur \u00ed yngri flokkunum (eins og fram hefur komi\u00f0). \u00dea\u00f0 er l\u00edka einhvern veginn \u00feannig \u00ed boltanum, a\u00f0 f\u00f3lk hefur tilhneigingu til a\u00f0 sitja alltaf \u00e1 sama sta\u00f0 \u00e1 vellinum. Foreldrar Freys m\u00e6ttu \u00e1 velflesta leiki og s\u00e1tu n\u00e1nast vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 m\u00e9r, svo ma\u00f0ur haf\u00f0i margoft spjalla\u00f0 vi\u00f0 \u00feau um gang m\u00e1la.<\/p>\n<p>Marki\u00f0 mikilv\u00e6ga var \u00far f\u00f6stu og g\u00f3\u00f0u skoti af allnokkru f\u00e6ri. Fr\u00f6murunum \u00e1 p\u00f6llunum var gr\u00ed\u00f0arlega l\u00e9tt. N\u00fa v\u00e6ri leikurinn dau\u00f0ur og grafinn. Keflav\u00edk myndi aldrei skora svo m\u00f6rg m\u00f6rk \u00ed Grindav\u00edk a\u00f0 \u00fea\u00f0 dyg\u00f0i til! \u00dea\u00f0 var \u00fev\u00ed bara gle\u00f0ilegur b\u00f3nus \u00feegar Beysi skora\u00f0i \u00f6rf\u00e1um m\u00edn\u00fatum s\u00ed\u00f0ar anna\u00f0 mark, sem \u00ed minningunni var n\u00e1kv\u00e6m endurtekning \u00e1 \u00fev\u00ed fyrra. 0:3, \u00farslit sem endurspeglu\u00f0u gang leiksins ekkert s\u00e9rstaklega vel.<\/p>\n<p>N\u00e1nast um lei\u00f0 og Freyr breytti st\u00f6\u00f0unni \u00ed 0:3, komust Keflv\u00edkingar yfir og \u00f6rsk\u00f6mmu s\u00ed\u00f0ar breytti Gu\u00f0mundur Steinarsson st\u00f6\u00f0unni \u00ed Keflav\u00edk \u00ed 1:3. Og \u00fe\u00e1 f\u00f3rum vi\u00f0 a\u00f0 reikna\u2026 N\u00fa \u00feyrfti \u00feriggja marka sveiflu. Fjandinn, \u00fea\u00f0 f\u00e6ri \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 gerast.<\/p>\n<p>Einhver var me\u00f0 vasa\u00fatvarp \u00e1 vellinum. Vi\u00f0 g\u00e1tum \u00fev\u00ed hlusta\u00f0 \u00e1 innsl\u00f6g fr\u00e1 Grindav\u00edk \u00fear sem gestirnir s\u00f3ttu og s\u00f3ttu, en n\u00e1\u00f0u bara a\u00f0 skora eitt mark \u00ed vi\u00f0b\u00f3t, 1:4. Framarar voru uppi og Keflv\u00edkingar fallnir.<\/p>\n<p>Eftir v\u00e6nan skammt af Siggi-Saggi, fa\u00f0ml\u00f6gum og sigur\u00f6skrum stukkum vi\u00f0 Valur upp \u00ed b\u00edlinn og \u00f3kum aftur af sta\u00f0 su\u00f0ur. E\u00f0a \u00f6llu heldur, Valur \u00f3k. Mitt framlag f\u00f3lst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vera ekki a\u00f0 drekka bj\u00f3r. Og vi\u00f0 hlustu\u00f0um \u00e1 \u00fatvarpi\u00f0 \u00e1 milli \u00feess sem vi\u00f0 hr\u00f3pu\u00f0um \u00e1 t\u00edu m\u00edn\u00fatna fresti: \u201e\u00cdha!\u201c; \u201e\u00deetta breytir \u00f6llu!\u201c; \u201eEinhvern veginn haf\u00f0i \u00e9g alltaf g\u00f3\u00f0a tilfinningu fyrir \u00feessum leik!\u201c<\/p>\n<p>\u00cd \u00fatvarpinu var vi\u00f0tal vi\u00f0 Kjartan M\u00e1sson \u00fej\u00e1lfara Keflv\u00edkinga, sem var \u00e1l\u00edka hress og Geir Hallgr\u00edmsson \u00ed vi\u00f0talinu \u00ed nepjunni \u00feegar Dr. Gunnar mynda\u00f0i stj\u00f3rnina me\u00f0 Frams\u00f3kn og kommunum um \u00e1ri\u00f0. Kjartan l\u00fdsti \u00fev\u00ed strax yfir a\u00f0 h\u00e9r v\u00e6ri ma\u00f0kur \u00ed mysunni. Hvernig \u00ed \u00f3sk\u00f6punum hef\u00f0i Fram, fallbar\u00e1ttuli\u00f0, \u00e1tt a\u00f0 geta unni\u00f0 li\u00f0i\u00f0 \u00ed fj\u00f3r\u00f0a s\u00e6ti \u00e1 \u00fativelli me\u00f0 \u00feriggja marka mun??? \u2013 S\u00fa sta\u00f0reynd a\u00f0 hans eigi\u00f0 li\u00f0 haf\u00f0i stundarfj\u00f3r\u00f0ungi fyrr unni\u00f0 li\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feri\u00f0ja s\u00e6ti \u00e1 \u00fativelli me\u00f0 \u00feriggja marka mun virtist ekki vefjast fyrir honum.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 Valur hl\u00f3gum eins og dr\u00fdslar.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 hl\u00f3gum ekki jafn miki\u00f0 \u00feegar kom a\u00f0 fr\u00e9ttum Bylgjunnar og St\u00f6\u00f0var 2, \u00fear sem Gu\u00f0j\u00f3n Gu\u00f0mundsson ger\u00f0i upp leiki dagsins. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 byrja umfj\u00f6llun s\u00edna um fallbar\u00e1ttuna \u00e1 a\u00f0 stinga upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 reist yr\u00f0i stytta af Frey Karlssyni \u00ed fullri l\u00edkamsst\u00e6r\u00f0 \u00far gulli og sett smar\u00f6g\u00f0um, var\u00f0 Gaupi alvarlegur \u00ed r\u00f6ddinni. \u201eKA-menn hv\u00edldu \u00e1tta leikmenn \u00e1 m\u00f3ti Fram fyrir nor\u00f0an fr\u00e1 s\u00ed\u00f0asta leik!\u201c \u2013 Eitthva\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0 byrja\u00f0i fr\u00e1s\u00f6gnin. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 komu vangaveltur um \u00ed\u00fer\u00f3ttamannslega heg\u00f0un og a\u00f0 Keflv\u00edkingar hef\u00f0u fyllstu \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 vera s\u00e1rir \u00fat \u00ed nor\u00f0anmenn.<\/p>\n<p>Uhh\u2026 hugsu\u00f0um vi\u00f0. Getur \u00feetta veri\u00f0 r\u00e9tt? Vissulega vorum vi\u00f0 engir s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar \u00ed leikmannah\u00f3pi KA, en li\u00f0i\u00f0 sem spila\u00f0i \u00e1 m\u00f3ti okkur virtist ekkert s\u00e9rstaklega laska\u00f0 e\u00f0a illa skipa\u00f0. \u00dea\u00f0 voru engin b\u00f6rn inn\u00e1. Var \u00deorvaldur \u00d6rlygsson a\u00f0 reyna a\u00f0 hj\u00e1lpa g\u00f6mlum f\u00e9l\u00f6gum? Og hva\u00f0a l\u00f3g\u00edk v\u00e6ri \u00e1 bak vi\u00f0 a\u00f0 hv\u00edla leikmenn \u00ed lokaumfer\u00f0? Hv\u00edla fyrir hva\u00f0???<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var ekki fyrr en heim var komi\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 g\u00e1tum slegi\u00f0 \u00fev\u00ed upp a\u00f0 byrjunarli\u00f0 KA var \u00fea\u00f0 sama og \u00ed umfer\u00f0inni \u00e1 undan, fyrir utan Dean Martin sem var \u00ed banni. Fram og KA sendu fr\u00e1 s\u00e9r rei\u00f0ilegar yfirl\u00fdsingar vegna \u00feessa og Gaupi m\u00e6tti frekar l\u00fapulegur \u00ed sj\u00f3nvarpi\u00f0 daginn eftir og sag\u00f0ist \u201ehafa lesi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 einhverju bloggi a\u00f0 KA hef\u00f0i hv\u00edlt mestallt li\u00f0i\u00f0 og \u00feess vegna flutt fr\u00e9ttina\u2026\u201c<\/p>\n<p>En um \u00fea\u00f0 leyti sem Framararnir og Akureyringar settust ni\u00f0ur a\u00f0 semja yfirl\u00fdsingarnar, vorum vi\u00f0 Valur komnir til Reykjav\u00edkur og b\u00fanir a\u00f0 opna fyrsta bj\u00f3rinn \u00e1 JL-stadium. Mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 krypt\u00edskar f\u00e6rslurnar \u00e1 blogginu m\u00ednu m\u00e1nudaginn eftir var \u00fea\u00f0 upphafi\u00f0 a\u00f0 m\u00f3\u00f0ur allra \u00feynnkuhelga.<\/p>\n<p><em>(M\u00f6rk Fram: \u00c1g\u00fast Gylfason, Freyr Karlsson 2)<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>21. september 2001. KA 0 : Fram 3 Sumari\u00f0 2002 var skemmtilegt. \u00dea\u00f0 var gaman \u00ed vinnunni, \u00fear sem vi\u00f0 \u00d3lafur Gu\u00f0mundsson heitinn vorum \u00e1 fullu a\u00f0 byggja upp Rafheima. \u00c9g var \u00e1 kafi \u00ed f\u00e9lagsm\u00e1lunum, b\u00e6\u00f0i a\u00f0 r\u00edfa kjaft um p\u00f3lit\u00edk \u00e1 vefritinu M\u00farnum og svo \u00ed fri\u00f0arbar\u00e1ttunni \u2013 miki\u00f0 til me\u00f0 s\u00f6mu m\u00f6nnum. &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2014\/09\/03\/fotboltasaga-min-72100-beysi\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">F\u00f3tboltasaga m\u00edn 72\/100: Beysi<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-4453","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4453","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4453"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4453\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4453"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4453"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4453"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}