{"id":52,"date":"2002-05-26T16:22:51","date_gmt":"2002-05-26T16:22:51","guid":{"rendered":"http:\/\/192.168.1.4\/stefan\/2002\/05\/26\/dagbok-kosningadagsins-va-%c3%bea%c3%b0-er\/"},"modified":"2002-05-26T16:22:51","modified_gmt":"2002-05-26T16:22:51","slug":"dagbok-kosningadagsins-va-%c3%bea%c3%b0-er","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2002\/05\/26\/dagbok-kosningadagsins-va-%c3%bea%c3%b0-er\/","title":{"rendered":"Dagb\u00f3k kosningadagsins&#8230; V\u00e1, \u00fea\u00f0 er"},"content":{"rendered":"<p><b>Dagb\u00f3k kosningadagsins&#8230;<\/b><\/p>\n<p>V\u00e1, \u00fea\u00f0 er gott a\u00f0 svona dagar komi ekki nema \u00e1 nokkurra \u00e1ra fresti.<\/p>\n<p>Kosningadagurinn h\u00f3fst \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 vi\u00f0 Valur h\u00fasf\u00e9lagsforma\u00f0ur renndum vi\u00f0 \u00ed\u00ad Hagask\u00f3lanum til a\u00f0 kj\u00f3sa. \u00dev\u00ed\u00ad n\u00e6st var stefnan tekin til Grindav\u00ed\u00adkur. \u00c1 lei\u00f0inni fur\u00f0u\u00f0um vi\u00f0 okkur \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 ve\u00f0ri\u00f0 v\u00e6ri gott &#8211; hvort a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6ti virkilega veri\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 fengjum logn \u00ed\u00ad Grindav\u00ed\u00adk? En um lei\u00f0 og fram hj\u00e1 fjallinu \u00deorbirni var komi\u00f0, rann upp fyrir okkur a\u00f0 s\u00fa yr\u00f0i ekki raunin. \u00dea\u00f0 er alltaf rok \u00ed\u00ad Grindav\u00ed\u00adk!<\/p>\n<p>En svo allrar sanngirni s\u00e9 g\u00e6tt, \u00fe\u00e1 var ve\u00f0ri\u00f0 ekki alsl\u00e6mt. Vindurinn var hl\u00fdr og \u00fea\u00f0 rigndi hvorki n\u00e9 var v\u00f6llurinn blautur. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri synd a\u00f0 segja a\u00f0 leikurinn hafi veri\u00f0 fj\u00f6rugur, en Framararnir b\u00f6r\u00f0ust og t\u00f3kst a\u00f0 koma til baka eftir a\u00f0 hafa lent undir. N\u00fa eru tv\u00f6 stig komin \u00ed\u00ad h\u00fas \u00ed\u00ad jafnm\u00f6rgum leikjum &#8211; og \u00feeim b\u00e1\u00f0um \u00e1 \u00fativelli su\u00f0ur me\u00f0 sj\u00f3. \u00deetta ver\u00f0ur vissulega erfitt t\u00ed\u00admabil, en \u00fea\u00f0 er rosalega margt j\u00e1kv\u00e6tt \u00ed\u00ad gangi. T.d. er Bjarni H\u00f3lm, n\u00fdji str\u00e1kurinn \u00ed\u00ad v\u00f6rninni fr\u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i, helv\u00ed\u00adti efnilegur. Sterkur pjakkur sem getur lumbra\u00f0 \u00e1 hverjum sem er. &#8211; Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 vinna Vestmannaeyjar \u00e1 \u00feri\u00f0judaginn. \u00dea\u00f0 skiptir einfaldlega \u00f6llu m\u00e1li fryrir framhaldi\u00f0!<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>Eftir leikinn lag\u00f0i \u00e9g mig til a\u00f0 hla\u00f0a batter\u00ed\u00adin fyrir kv\u00f6ldi\u00f0. \u00dea\u00f0 f\u00f3r ekki betur en svo a\u00f0 \u00e9g svaf yfir mig og \u00feurfti a\u00f0 sp\u00e6na af sta\u00f0 \u00ed\u00ad b\u00fa\u00f0ina og svo til <a href=\"http:\/\/www.kaninka.net\/pallih\/\">Palla <\/a>og Hildar \u00ed\u00ad grilli\u00f0. Kom fyrir viki\u00f0 inn \u00ed\u00ad mitt J\u00far\u00f3v\u00ed\u00ads\u00ed\u00ad\u00f3n. Ekki gat \u00e9g haft miklar sko\u00f0anir \u00e1 \u00feessum l\u00f6gum, en \u00fea\u00f0 er samt alltaf stu\u00f0 a\u00f0 horfa \u00e1 stigatalninguna. &#8211; \u00dea\u00f0 dr\u00f3 l\u00ed\u00adka d\u00e1l\u00ed\u00adti\u00f0 \u00far fj\u00f6rinu a\u00f0 geta ekki veri\u00f0 a\u00f0 lepja bj\u00f3r \u00e1 me\u00f0an \u00e1 \u00feessu st\u00f3\u00f0. \u00c9g var nefnilega b\u00fainn a\u00f0 lofa m\u00e9r \u00ed\u00ad umr\u00e6\u00f0ur \u00ed\u00ad kosningasj\u00f3nvarpinu hj\u00e1 R\u00daV um n\u00f3ttina og ekki m\u00e6tir ma\u00f0ur \u00feanga\u00f0 \u00e1 sneplunum.<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>Svo f\u00f3ru t\u00f6lurnar a\u00f0 detta inn \u00far sveitum landsins. \u00darslitin \u00ed\u00ad Reykjav\u00ed\u00adk voru f\u00ed\u00adn &#8211; en eiginlega voru allar sko\u00f0anakannanirnar b\u00fanar a\u00f0 taka f\u00fatti\u00f0 \u00far \u00feessu. Komm on! \u00dea\u00f0 var auglj\u00f3st \u00ed\u00ad margar vikur a\u00f0 borgin ynnist.<\/p>\n<p>\u00datkoman v\u00ed\u00ad\u00f0a annars sta\u00f0ar \u00e1 landinu var ekki alveg n\u00f3gu g\u00f3\u00f0. T.d. var <a href=\"http:\/\/huginn.blogspot.com\/\">Huginn <\/a>d\u00e1l\u00ed\u00adti\u00f0 langt ni\u00f0ri vegna Hafnarfjar\u00f0arins, \u00fear sem hann var kosningastj\u00f3ri, \u00feegar hann m\u00e6tti til Palla s\u00ed\u00ad\u00f0ar um n\u00f3ttina. Hann \u00fearf \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 kenna sj\u00e1lfum s\u00e9r um \u00feessar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur. VG stendur ekki n\u00e6gilega styrkum f\u00f3tum \u00ed\u00ad Fri\u00f0inum, Samfylkingin er me\u00f0 fullt af f\u00ed\u00adnu f\u00f3lki \u00e1 s\u00ed\u00adnum lista og L\u00fa\u00f0v\u00ed\u00adk Geirssson vi\u00f0urkenndi \u00fea\u00f0 meira a\u00f0 segja \u00fearna um kv\u00f6ldi\u00f0 a\u00f0 fj\u00f6ldi kj\u00f3senda Samf\u00f3 v\u00e6ri \u00ed\u00ad raun stu\u00f0ningsmenn VG sem s\u00f6\u00f0la\u00f0 hafi um til a\u00f0 fella \u00ed\u00adhaldi\u00f0.<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>Um mi\u00f0n\u00e6tti\u00f0 f\u00f3r \u00e9g upp \u00ed\u00ad \u00datvarpsh\u00fas og l\u00e9t m\u00e9r lei\u00f0ast \u00fear fram yfir kl. 2. \u00c1 umr\u00e6\u00f0unum var \u00e9g \u00e1samt Gu\u00f0j\u00f3ni \u00d3lafi Frams\u00f3knarmanni og Sigur\u00f0i K\u00e1ra fr\u00e1 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isflokknum. S\u00ed\u00ad\u00f0ar b\u00e6ttist vi\u00f0 Ragnhei\u00f0ur R\u00ed\u00adkhar\u00f0sd\u00f3ttir, sigurvegari kosninganna \u00ed\u00ad Mosfellsb\u00e6. Ragnhei\u00f0ur er Framari eins og vi\u00f0 Siggi K\u00e1ri. &#8211; \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem m\u00e9r \u00feykir verst vi\u00f0 Safam\u00fdrarst\u00f3rveldi\u00f0 &#8211; hvar \u00fear eru margir Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ismenn \u00ed\u00ad stu\u00f0ningsmannali\u00f0inu. (E\u00f0a \u00f6llu heldur, hversu h\u00e1tt hlutfall \u00feeirra er.)<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>\u00c9g komst ekki aftur \u00ed\u00ad part\u00fdi\u00f0 til Palla fyrr en eftir d\u00fak og disk. \u00de\u00e1 var <a href=\"http:\/\/armannja.blogspot.com\/\">\u00ed\u0081rmann <\/a>\u00e1 bak og burt, en Stef\u00e1n J\u00f3nsson, <a href=\"http:\/\/olinjall.tripod.com\/\">\u00d3li Nj\u00e1ll<\/a>, Huginn og Dagn\u00fd, <a href=\"http:\/\/thorworks.blogspot.com\/\">\u00de\u00f3r <\/a>og Helga, Palli og Hildur og <a href=\"http:\/\/steinunnthora.blogspot.com\/\">Steinunn <\/a>\u00f6ll b\u00fain a\u00f0 skvetta r\u00e6kilega \u00ed\u00ad sig.<\/p>\n<p>K\u00farsinn var tekinn \u00e1 22 &#8211; \u00fear sem fr\u00e9ttist a\u00f0 \u00d3lafur F. Magn\u00fasson v\u00e6ri endanlega kominn inn \u00ed\u00ad borgarstj\u00f3rnina. \u00dea\u00f0 eru merkileg \u00farslit!<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>\u00c1 22 rakst \u00e9g flj\u00f3tlega \u00e1 Lilju D\u00f6gg Alfre\u00f0sd\u00f3ttur, gamla sk\u00f3lasystur \u00far MR. H\u00fan f\u00f3r a\u00f0 r\u00ed\u00adfast vi\u00f0 mig um p\u00f3lit\u00ed\u00adk og var miki\u00f0 ni\u00f0ri fyrir. Rifrildi\u00f0, sem einkum snerist um al\u00fej\u00f3\u00f0av\u00e6\u00f0inguna, \u00fer\u00f3a\u00f0ist nokku\u00f0 s\u00e9rkennilega og var or\u00f0i\u00f0 dreplei\u00f0inlegt s\u00ed\u00ad\u00f0asta h\u00e1lft\u00ed\u00admann. \u00deessu n\u00e6st svifu \u00e1 mig \u00feeir Gestur P\u00e1ll Reynisson og Kolbeinn H. Stef\u00e1nsson &#8211; e\u00f0alkratar sem eru sk\u00faffa\u00f0ir yfir \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 Samfylkingin s\u00e9 \u00f6murlegur flokkur. \u00c9g hef fari\u00f0 svo oft \u00ed\u00ad gegnum \u00feessa umr\u00e6\u00f0u me\u00f0 Kolla a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti gert \u00fea\u00f0 \u00ed\u00ad svefni. &#8211; Alltaf enda samt\u00f6lin svo \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 hann barmar s\u00e9r yfir \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 hafa misst okkur M\u00farverja yfir \u00ed\u00ad VG en sitji svo eftir me\u00f0 Birtingar-arminn \u00far Abl.<\/p>\n<p>* * *<\/p>\n<p>Klukkan var l\u00ed\u00adklega or\u00f0in h\u00e1lf sex \u00feegar vi\u00f0 Steinunn \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 yfirgefa 22. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i ekki m\u00e1tt seinna vera, \u00fev\u00ed\u00ad Steinunn var \u00ed\u00ad \u00fe\u00e1 mund a\u00f0 fara a\u00f0 k\u00fdla einhvern dreng sem h\u00fan haf\u00f0i fari\u00f0 a\u00f0 r\u00ed\u00adfast vi\u00f0 um st\u00f6\u00f0u l\u00e1glaunah\u00f3pa. &#8211; Inn \u00ed\u00ad \u00fe\u00e1 umr\u00e6\u00f0u blanda\u00f0ist svo t\u00e9\u00f0 Lilja D\u00f6gg, en r\u00f6k hennar \u00ed\u00ad m\u00e1linu voru eitthva\u00f0 \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: &#8222;\u00dea\u00f0 er verra a\u00f0 vera f\u00e1t\u00e6kur \u00ed\u00ad S\u00fadan en \u00e1 \u00cdslandi. \u00deess vegna mega \u00cdslendingar ekki kvarta yfir einu e\u00f0a neinu &#8211; e\u00f0a krefjast neinna umb\u00f3ta heima fyrir.&#8220; &#8211; Pott\u00fe\u00e9tt r\u00f6k!<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 t\u00f3k \u00f3rat\u00ed\u00adma a\u00f0 komast \u00ed\u00ad gegnum mi\u00f0b\u00e6inn. St\u00f6\u00f0ugt var eitthva\u00f0 f\u00f3lk a\u00f0 sv\u00ed\u00adfa \u00e1 mig ig vildi fara a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um NATO. \u00d3tr\u00falegt hva\u00f0 margir vir\u00f0ast hafa s\u00e9\u00f0 \u00feessi sj\u00f3nvarpsvi\u00f0t\u00f6l um daginn&#8230; &#8211; \u00dea\u00f0 var sem sagt ekki skri\u00f0i\u00f0 upp \u00ed\u00ad r\u00fam fyrr en \u00e1 sj\u00f6unda t\u00ed\u00admanum. \u00c9g er ekki \u00e1tj\u00e1n \u00e1ra lengur. \u00c9g er or\u00f0inn of gamall fyrir \u00feetta helv\u00ed\u00adti.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Dagb\u00f3k kosningadagsins&#8230; V\u00e1, \u00fea\u00f0 er gott a\u00f0 svona dagar komi ekki nema \u00e1 nokkurra \u00e1ra fresti. Kosningadagurinn h\u00f3fst \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad a\u00f0 vi\u00f0 Valur h\u00fasf\u00e9lagsforma\u00f0ur renndum vi\u00f0 \u00ed\u00ad Hagask\u00f3lanum til a\u00f0 kj\u00f3sa. \u00dev\u00ed\u00ad n\u00e6st var stefnan tekin til Grindav\u00ed\u00adkur. \u00c1 lei\u00f0inni fur\u00f0u\u00f0um vi\u00f0 okkur \u00e1 \u00fev\u00ed\u00ad hva\u00f0 ve\u00f0ri\u00f0 v\u00e6ri gott &#8211; hvort a\u00f0 \u00fea\u00f0 g\u00e6ti virkilega &hellip; <a href=\"https:\/\/truflun.net\/stefan\/2002\/05\/26\/dagbok-kosningadagsins-va-%c3%bea%c3%b0-er\/\" class=\"more-link\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa: <span class=\"screen-reader-text\">Dagb\u00f3k kosningadagsins&#8230; V\u00e1, \u00fea\u00f0 er<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":9,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[],"class_list":["post-52","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/52","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/9"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=52"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/52\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=52"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=52"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/truflun.net\/stefan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=52"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}