Kyngreind skrif

Ég var að lesa Neil Gaiman og hann bendir á The Gender Genie sem á að geta lesið úr skrifum fólks hvort það sé kven- eða karlkyns. Neil sagði að þetta hefði haft rétt fyrir sér um allt sem hann hefði látið í þetta. Ég hugsaði mig snöggt um til að finna eitthvað á ensku og mundi þá að Bjarni skrifar stundum færslur á ensku. Ég fleygði enskum texta frá Bjarna þarna inn og ég verð að tilkynna Bjarna að hann er kona föst í karlmannslíkama (eða svo skilst mér, hef aldrei séð líkama Bjarna til þess að kyngreina hann/hana).

Verð að grafa upp eitthvað sem ég hef skrifað á ensku til að prufa þetta.

ritalin is easy, ritalin is good

Þetta er lína úr laginu sem ég var að hlusta á, This is a call með Foo Fighters, ég er að fara á Foo Fighters í næstu viku, ekki þú (nema kannski þú þarna). Og ég hlakka til, að vísu ekki eins mikið og halda mætti enda draga væntanlegir flutningar til sín athygli.

Glöggt fólk tekur annars eftir að ég er ekki í vinnuni, ég er heima. Ég er ekki veikur heldur skipti ég við Örvar vinnufélaga þannig að ég er á kvöldvakt. Ég á þarafleiðandi eftir fimm kvöldvaktir. Fegin að vera ekki á dagvakt enda er örugglega allt á fullu núna, ég fæ að vinna tvo daga á viku í vetur þannig að ég hef enga þörf til að vinna of mikið núna. En nóg röfl, er að fara bæta kjötsneiðinni á rasslistann.

Mælt með bloggurum

Ég er búinn að bæta við tveimur bloggurum á listann yfir órassvædda bloggara, þeim Bjarna Má og Dr. Schnitzel. Bjarni hefur bloggað áður í samfélagi við aðra og þá hljóp ég alltaf yfir það sem hinir skrifuðu, hann er skemmtilegur. Þriðji doktorinn sem ég set í hlekki er brjálaður og átti í gær mjög góða færslu um Eiturvopna Ali, kíkið á það.

!!!Uppfært!!!
Bjarni hefur nú færst yfir á rasslistann.

!!!og aftur!!!
Schnitzel líka.