Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Þriðjudagur, 1. nóvember 2005 klukkan 21:20

Kvart og kvein í Strætó

Var í Strætó áðan. Vagninn var að leggja af stað og bílstjórinn sá ekki að kona var að á leiðinni. Ég kallaði á vagnstjórann sem stoppaði. Konan kemur síðan í vagninn, sest aftan við mig og byrjar að kvarta og kveina yfir strætóþjónustunni almennt. Þetta gerði hún þó ég væri augljóslega að hlusta á tónlist. Ég reyndi að svara án þess að hvetja hana en að lokum byrjaði ég bara að hunsa hana. Ég nenni ekki vera stuðpúði fyrir ókunnuga. Kellingin ætti að fá sér bloggsíðu ef hún vill fá útrás fyrir kvartið, svona einsog ég.

Í gær kom síðan ekki Strætóinn sem ég beið eftir. Svoltið ömurlegt.

Þriðjudagur, 1. nóvember 2005 klukkan 19:25

Útfararsiðir

Fór á fyrirlestur um útfarasiði í Kenýa áðan. Nokkuð áhugavert. Eftir fyrirlesturinn kúgaði ég Eydísi til að skutla okkur Eggerti heim.