Útskriftarveislan mín

Ég mun útskrifast með pompi og prakt (eða er það pragt? á maður sem er í framhaldsnámi í háskóla ekki að vita svona hluti?) laugardaginn 21. október.  Ég mun hins vegar halda upp á útskriftina daginn eftir og fara sjálfur í veislur hjá öðrum á daginn sjálfan.

Semsagt: Útskriftarveisla sunnudaginn 22. október, heima hjá mér, klukkan 15:00. Kökur, gos og mjólk verða í boði. Ekkert áfengi.  Ég fer að senda út pósta til að bjóða fólki en þið sem viljið staðfesta komu ykkar eða segja að þið komist ekki getið sett athugasemd um það í kerfið hér eða sent mér póst.

Dylgjublogg

Fyrir um ári síðan kom ákveðinn fáviti sem ég hafði áður ekki vitað að væri til og kallaði mig andlega krepptan í athugasemdakerfi bloggara sem við lesum greinilega báðir.  Ég svaraði fíflinu einfaldlega, sleppti því reyndar að notast við skítkast á móti og tel mig hafa orðið ofan á í þeim orðaskiptum.  Hugsaði svosem ekkert mikið meira um það þar til nýlega.  En það er satt það sem sagt er, þegar bullan á skólalóðinni fer að grenja er aumkunarvert að horfa á.  Mér hefur alltaf þótt göfugra að ráðast á sterka aðila heldur en auma.  Þeir sem eru hins vegar vanir á að ráðast á minni máttar verða voða hissa og sárir þegar slegið er til baka.

Bók kláruð

Ég kláraði The God Delusion í nótt.  Hefði klárað hana mun fyrr ef ég hefði ekki verið að passa mig á því að einbeita mér að lærdómnum. Hún var verulega góð og ég mæli vissulega með henni. Hef hins vegar ekki haft tíma til að byrja á Thud! eftir Terry Pratchett sem kom á sama tíma frá Amazon.

Meðmæli

Ef þið viljið veg menntunar og þekkingar sem mestan skrifið þá undir hér: http://student.is/undirskriftir/.

 

Á morgun verður mælt með menntun og bera meðmælin yfirskriftina “Vér meðmælum öll”. Markmiðið er að fá meiri umfjöllun um menntun fyrir komandi Alþingiskosningar sem verða næsta vor. Fulltrúum stjórnmálaflokka er tíðrætt um gildi menntunar og nauðsyn þess að gera Ísland að þekkingarþjóðfélagi í fremstu röð. Nú er komið að því að stjórnmálamenn svari því hvað þeir eiga nákvæmlega við þegar þeir lofa framþróun í háskólamálum og þekkingariðnaði á Íslandi og hvernig þeir ætla að ná markmiðum sínum.

 

Það er okkar, stúdenta, að ýta undir umræður um menntun og gera menntun að næsta kosningamáli.

 

Stúdentar ætla því að safnast saman á morgun, fimmtudag, kl. 15:00 fyrir framan Aðalbyggingu HÍ, þaðan verður gengið að Alþingishúsinu og haldin verða meðmæli á Austurvelli.

Dagskrá á fimmtudaginn 12. október:

15:00 Stúdentar safnast saman fyrir utan Aðalbyggingu HÍ
15:30 Meðmæli á Austurvelli
16:00 Októberfest í tjaldi á lóð HÍ